Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 11
Neðangreindan
fróðleik um Bern-
höftstorfuna má
lesa á vefnum bern-
hoftsbazaar.net:
Bernhöftstorfan
var upphaflega í
landi Stöðlakots.
Torfan var neðsti
hluti Ingólfsbrekku,
sem svo var nefnd á
19. öld, en það nafn
hefur ekki verið
notað lengi. Bern-
höftstorfan dregur
nafn af T.D. Bern-
höft bakara í Banka-
stræti 2. Íbúðar-
húsið var reist nyrst
á lóðinni 1834
ásamt brauðgerðar-
húsi, móhúsi, korn-
hlöðu og öðrum
geymsluhúsum. Var
þetta fyrsta bakarí
á landinu og starf-
aði hér til 1931.
Bernhöft ræktaði skrautgarð neðan við íbúðarhúsið og lét setja upp
vatnspóst sem var mikið notaður og nefndur Bakarapóstur eða Bernhöfts-
póstur. Íbúðarhúsið stendur enn lítt haggað en hin húsin skemmdust í
eldi árið 1977. Hafa þau verið endurgerð og útlit þeirra fært til fyrra
horfs.
Næst fyrir sunnan bakarahúsin er Gimli, sem reist var 1905 sem íbúðar-
hús Knuds Ziemsen borgarstjóra. Það var nánast reist í auglýsingarskyni
því að í bygginguna voru notaðir steyptir steinar frá verksmiðjunni Mjölni,
en Knud Ziemsen var einn af eigendum hennar. Syðsta húsið, Amtmanns-
stígur 1, var reist 1838 sem íbúðarhús Stefáns Gunnlaugssonar bæjar- og
landfógeta og var kallað Gunnlaugsenshús. Síðar bjó þar lengi Guð-
mundur Björnsson landlæknir og var húsið þá nefnt Landlæknishús.
Húsaröðin er merkur hluti af byggingarsögu höfuðstaðarins. Í skipu-
lagstillögum frá 1967 var gert ráð fyrir að reisa stóra stjórnarráðsbygg-
ingu á torfunni og flytja húsin sem þar stóðu í Árbæjarsafn. Um svipað
leyti reis upp hreyfing húsafriðunarfólks sem stofnaði Torfusamtökin til
að berjast fyrir varðveislu húsanna. Eftir langvinnar deilur um framtíð
Bernhöftstorfunnar samþykkti ríkisstjórnin árið 1979 að leigja samtök-
unum tvö húsanna og friðlýsa þau öll. Útitaflið var sett upp árið 1981.
Bernhöftstorfan
Friðlýst hús við fagran garð
Bernhöftstorfan árið 1975 Happdrættisbíll Fær-
eyska sjómannahappdrættisins fyrir fjörutíu árum þar
sem Bernhöfts bazaar verður settur upp í sumar.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Morgunblaðið/Eggert
Verkefnastjórarnir Þórey Björk Halldórsdóttir og Laufey Jónsdóttir ætla að brydda upp á ýmsum nýjungum á
útimarkaðnum Bernhöfts bazaar sem haldinn verður sex laugardaga í sumar, í fyrsta skipti 20. júní.
skiptast á afleggjurum á plöntu-
markaðnum, önnur að bjóða krökk-
um að selja gömlu leikföngin sín eða
halda tombólu á leikfangamark-
aðnum og fleira mætti tína til. „Á
bretta- og reiðhjólamarkaðnum get-
ur fólk fengið hjólin sín þvegin og
pússuð og gerð upp gegn vægu
gjaldi,“ tiltaka þær líka sem dæmi
um margbreytileikann.
Laufey og Þórey hafa haft í
mörg horn að líta að undanförnu og
hafa enn þegar tvær vikur eru til
stefnu. Núna eru þær að kalla eftir
umsóknum í básana og vonast þær
til að umsækjendur verði margir,
ólíkir og hvaðanæva. Auk fjölda
praktískra atriða sem þurft hefur að
leiða til lykta var töluverð vinna
fólgin í að skapa markaðnum list-
rænt og aðlaðandi yfirbragð og um-
gjörð.
Stíllinn í ætt við torfbæi
„Við höfðum staðsetningu og
sögu svæðisins til hliðsjónar við
hönnun básanna. Stíllinn er í ætt við
gömlu torfbæina en efniviðurinn nú-
tímalegur og liturinn nýstárlegur –
svona miðað við torfbæi að minnsta
kosti,“ segja þær.
Þótt básarnir dragi dám af torf-
bæjum er umgjörð markaðarins og
kynningarefni með nútímalegu sniði,
en þær stöllur eiga heiðurinn af
lógóinu og vefsíðu markaðarins. Og
vitaskuld stofnuðu þær Facebook-
síðu og gerðu markaðinn sýnilegan á
Twitter. Þær segjast hafa hannað
lógóið út frá formi básanna og lit-
irnir eigi að undirstrika hugmynd
um útimarkað undir berum himni.
„Að öðru leyti höfðum við sterklega í
huga að lógóið gæti þjónað sem fáni
markaðarins. Við ætlum að flagga til
bazaars!“
Nánari upplýsingar um þemu,
þátttökugjald o.fl. á www.bern-
hoftsbazaar.net. Umsóknir sendist
á bernhoftsbazaar@gmail.com.
Hægt er að sækja um á einum eða
fleiri mörkuðum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015
Er ekki kominn
tími á Tiguan?
VW Tiguan er vel útbúinn með öllu því helsta sem gerir bíl að jeppa.
Taktu skrefið til fulls og fáðu þér Tiguan. Góða skemmtun!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
www.volkswagen.is
Volkswagen Tiguan kostar frá:
5.380.000 kr.