Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 14
14 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Auglýsendur eru ekki öfunds-
verðir. Fjölmiðlalandslagið hefur
aldrei verið flóknara og virðist að
með hverjum deginum verði erfið-
ara að ná athygli neytenda. Einar
Ben, framkvæmdastjóri Tjarnar-
götunnar, segir að í þessu um-
hverfi sé mjög hættulegt að
staðna. Jafnt stórir sem smáir
auglýsendur verði að hafa kjarkinn
til að fara nýjar leiðir í markaðs-
málum.
Tjarnargatan er
framleiðslufyrirtæki sem starfar
með öllum helstu auglýsingastofum
landsins. Lesendur þekkja
Tjarnargötuna fyrir herferðir sem
tvinna saman marga miðla og nota
möguleika internetsins á hugvits-
samlegan hátt. Af nýlegum verk-
efnum má nefna Öruggborg.is fyr-
ir Símann og UN Women þar sem
vakið er til umhugsunar um kyn-
bundið ofbeldi, og gagnvirkan vef
Pepsi-deildarinnar, Pepsideildin.is.
Vakti líka mikla athygli á sínum
tíma þegar Tjarnargatan gerði
herferðina #höldumfókus fyrir
Samgöngustofu og Símann þar
sem varað var við hættunni af því
að nota snjallsímann undir stýri.
Hefur jafnað þá stóru og litlu
Einar segir að nýju miðlarnir
bjóði upp á áhugaverða möguleika
og á vissan hátt minnki þeir bilið á
milli stórra og smárra auglýsenda.
„Það þarf t.d. ekki endilega að
kosta mikið að gera gott efni fyrir
netið, og ef markaðsefnið byrjar að
dreifa sér sjálft –verður „viral“ –
er hægt að ná til fjölda fólks fyrir
brot af því verði sem það myndi
kosta að kaupa pláss í sjónvarpi,
útvarpi eða prentmiðlum. Á móti
kemur að það er æ meira af góðu
efni sem ratar á netið og erfiðara
að fanga athyglina.“
Fyrir vikið verða auglýsendur að
vera reiðubúnir að fara frumlegar
leiðir, bæði hvað varðar framsetn-
ingu og miðlanotkun en ekki síður
hvað snýr að innihaldi. „Fólk vill
ekki lengur horfa á auglýsingar.
Það er að segja; áhorfendurnir
heima í stofu, eða við tölvuskjáinn,
hafa ekki áhuga á „harðri sölu“ og
hafa litla þolinmæði fyrir markaðs-
efni sem er ekki að segja þeim
sögu, framkalla einhverja upplifun
eða tilfinningar.“
Þar með er ekki sagt að fyrir-
tæki sem hafa haft sín auglýsinga-
mál í föstum skorðum um árabil
þurfi endilega að taka U-beygju.
Einar leggur á það áherslu að fyr-
ir suma geti verið skynsamlegt að
halda áfram á sömu braut. „Ef það
hefur sýnt sig að ákveðin nálgun
virkar þarf ekki endilega að breyta
til. En auglýsendur ættu að vera á
verði, fara reglulega yfir hvaða
skilaboð það eru sem þeir vilja
koma áleiðis og hvort einhvers
staðar megi gera betur.
Stigið út í óvissuna
Að taka nýja stefnu í markaðs-
efni kallar síðan á ákveðinn kjark.
Að hugsa auglýsingar og birtingar
á allt aðra vegu en áður er
óneitanlega spor út í óvissuna.
Einar segir íslenska auglýsendur
almennt vera nokkuð viljuga og til-
búna að prufa nýjar leiðir. Hann
segir hyggilegast, fyrir þá sem
vilji lágmarka áhættuna, að leita
til þeirra sem hafi bestu feril-
skrána. „Að ætla t.d. að gera
markaðsefni „viral“ á netinu er
ákveðið lotterí. Er þá vænlegast til
árangurs að vinna efnið með þeim
sem hafa áður sýnt það í verki að
þeir geta gert efni sem stendur
undir væntingum.“
„Fólk vill ekki lengur
horfa á auglýsingar“
Markaðsefni þarf að segja sögu og vera upplifun fyrir áhorfandann Að
fara nýjar leiðir getur margborgað sig en útheimtir kjark af hálfu auglýsandans
Morgunblaðið/Ómar
Athygli „Áhorfendurnir heima í stofu, eða við tölvuskjáinn, hafa ekki áhuga
á „harðri sölu“ og hafa litla þolinmæði fyrir markaðsefni sem er ekki að
segja þeim sögu,“ segir Einar Ben um kröfurnar á auglýsingamarkaði.
Bandaríski hlutabréfamarkaðurinn
lækkaði á föstudag eftir að fréttir
bárust af töluverðri fjölgun starfa í
maímánuði.
Atvinnumálaráðuneytið vestra
segir um 280.000 ný störf hafa orðið
til í síðasta mánuði. Í skoðanakönn-
unum kom í ljós að hagfræðingar
bjuggust við 210.000 störfum í mán-
uðinum.
MarketWatch segir lækkun
hlutabréfa koma til vegna þess að
markaðurinn túlki atvinnutölurnar
sem svo að auknar líkur séu á
hækkun stýrivaxta, sem svo myndi
laða fjármagn á markaði frá hluta-
bréfum og yfir í aðra fjárfestingar-
kosti.
Bæði S&P 500 og Dow Jones-
vísitölurnar lækkuðu um brot af
prósenti á föstudag en Nasdaq-vísi-
talan hækkaði um 0,2%.
Yfir vikuna lækkaði S&P 500
0,7% og Dow Jones missti 0,9% á
meðan Nasdaq rýrnaði um 0,1%.
ai@mbl.is
AFP
Vinnandi Fjölgun starfa í BNA í
maí var meiri en vænst hafði verið.
Sterkar atvinnu-
tölur vestanhafs
Fréttir af fjölgun
starfa veiktu
hlutabréfavísitölur
Bankaráð alþjóðlega þýska risa-
bankans Deutsche Bank hefur
ákveðið að fela reksturinn í hendur
nýs framkvæmdastjóra. John Cryan
tekur við starfinu, en hann var áður
fjármálastjóri hjá UBS.
Anshu Jain og Jürgen Fitschen
deildu með sér framkvæmdastjóra-
stólnum en þeir þykja hafa misst
traust hluthafa að undanförnu. Fyrir
mánuði kynntu þeir nýja stefnu sem
ætlað er að auka ávinning hluthafa,
en rekstur bankans hefur gengið
brösuglega vegna hárra sekta, erf-
iðra markaðsaðstæðna og strangara
regluverks. Er stutt síðan bankinn
var sektaður um 2,5 milljarða dala
fyrir aðild sína að Libor-svindlinu
svokallaða.
Financial Times greinir frá því að
á aðalfundi bankans fyrir tveimur
vikum greiddu hluthafar með sam-
tals 39% eignarhald gegn sitjandi
framkvæmdastjórn og kölluðu
margir fjárfestar eftir afsögn Jain
og Fitschen.
Jain mun láta af störfum í lok júní
en Fitschen verður framkvæmda-
stjóri fram að hluthafafundi árið
2016. Eftir það verður Cryan einn í
framkvæmdastjórahlutverkinu.
John Cryan er 54 ára gamall
breskur ríkisborgari og hefur setið í
stjórn Deutsche Bank síðan 2013. Á
síðasta ári lét hann af störfum sem
stjórnandi Evrópuarms singapúrska
fjárfestingarfyrirtækisins Temasek.
ai@mbl.is
Deutsche Bank skiptir
um framkvæmdastjóra
Hluthafar óánægðir með frammistöðu bankans
AFP
Búið Fráfarandi framkvæmdastjórar DB, Jurgen Fitschen og Anshu Jain.
Kínverskt tölvu-
leikjafyrirtæki
varð hlutskarp-
ast í uppboði
þar sem hægt
var að vinna
kvöldverð með
milljarðamær-
ingnum og
stjörnufjárfest-
inum Warren
Buffett.
Dalian Zeus Entertainment Co.
greiddi 2,35 milljónir dala fyrir
kvöldstund með Buffett. Stendur
Buffett árlega fyrir uppboði af
þessum toga og rennur ágóðinn
til góðgerðafélagsins Glide Fo-
undation sem starfar í San Franc-
isco og aðstoðar bágstadda á
svæðinu.
Hæstbjóðandi má taka með sér
allt að sjö matargesti og er mál-
tíðin snædd á Smith & Wollensky
steikhúsinu í New York. Má
spyrja Buffett spjörunum úr yfir
máltíðinni og þannig mögulega fá
einstaka innsýn inn í fjárfest-
ingapælingar „véfréttarinnar frá
Omaha“. ai@mbl.is
Kínverjar
munu snæða
með Buffett
Warren Buffett
Buðu jafnvirði
314 milljóna króna
● Hanna Dögg
Marínósdóttir hef-
ur verið ráðin í
starf sölu- og
markaðsstjóra hjá
Bústólpa. Mun
Hanna einnig
gegna starfi að-
stoðarfram-
kvæmdastjóra fyr-
irtækisins og vera
staðgengill framkvæmdastjóra í fjar-
veru hans. Í tilkynningu segir að um
nýtt starf sé að ræða hjá fyrirtækinu.
Hanna Dögg er sjávarútvegsfræð-
ingur, menntuð við Háskólann á Ak-
ureyri. Hún hefur unnið við sölu- og
markaðsstörf, fyrst sem sölustjóri hjá
Norðurmjólk og síðar hjá MS á Akur-
eyri. Undanfarin þrjú ár hefur Hanna
verið gæðastjóri MS á Akureyri.
ai@mbl.is
Nýr aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Bústólpa