Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið!
Það borgar sig
að nota það besta!
Viftur
HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir
Stýrisendar
og spindilkúlurViftu- og tímareimar
Kúplingar- og höggdeyfar
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is
Fyrstu myndirnar af Karlottu
prinsessu, dóttur Katrínar hertoga-
ynju af Cambridge og Vilhjálms
Bretaprins, litu nýverið dagsins
ljós. Á myndunum sést Georg prins,
tuttugu og tveggja mánaða, kyssa
hina eins mánaðar Karlottu á enn-
ið. Eftir því sem kemur fram á BBC
News verður prinsessan skírð þann
5. júlí næstkomandi í kirkju Maríu
Magðalenu á óðali Elísabetar
drottningar í Sandringham.
Myndirnar af systkinunum, sem
eru fjórar talsins, tók móðir þeirra,
Katrín hertogaynja, í Anmer Hall í
Norfolk á Austur-Englandi.
Þær voru teknar um miðjan maí-
mánuð en eru fyrst núna orðnar
opinberar, mörgum til mikillar
gleði.
AFP
Fyrstu myndirnar af
Karlottu prinsessu
Prins og prinsessa
Barack Obama
Bandaríkjaforseti
hvatti leiðtoga
G7-iðnríkjanna til
að bjóða Rússum
birginn vegna að-
gerða þeirra í
Úkraínu. Þetta
gerði hann á
fundi leiðtoganna
í Bæjaralandi í
Þýskalandi um helgina, eftir því sem
kemur fram á vef Reuters-frétta-
stofunnar.
Bæði David Cameron, forsætis-
ráðherra Bretlands, og Donald
Tusk, forseti Leiðtogaráðs ESB,
sögðust binda vonir við að
G7-ríkin myndu sýna samstöðu í
viðskiptaþvingunum gegn Rúss-
landi.
Rússum var ekki boðið á fundinn
vegna aðkomu þeirra að málum í
Úkraínu.
Hvetur til aðgerða
gegn Rússlandi
Obama á fundi G7-iðnríkjanna
Barack Obama
Brynja B. Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Alþýðuflokkurinn (AHP), sem er
kúrdískur að upplagi, tryggði sér í
fyrsta skipti sæti inn á tyrkneska
þingið í þingkosningunum í gær.
Kosningarnar eru sagðar þær þýð-
ingarmestu í Tyrklandi í áratugi. Al-
þýðuflokkurinn þurfti að ná 10%
fylgi til þess að komast inn á þingið
en þegar 96,8% atkvæða höfðu verið
talin hafði Alþýðuflokkurinn hlotið
12,8% atkvæða. Flokkurinn þykir
m.a. höfða til frjálslyndra Tyrkja.
Flokkur Erdogans forseta, Rétt-
lætis- og framþróunarflokkurinn
(AKP), fékk 40,6% atkvæða, en það
þýðir að óvíst er hvort hann nái til-
skildum meirihluta til að breyta
tyrknesku stjórnarskránni. Erdogan
vill með breytingunum auka völd sín
verulega á kostnað þingsins.
Erdogan var kjörinn forseti lands-
ins í fyrra en þar áður hafði hann
verið forsætisráðherra í þrjú kjör-
tímabil. Hann bætti efnahagslega
stöðu landsins verulega sem for-
sætisráðherra en aukið atvinnuleysi
hefur bitnað á fylgi flokks hans.
Flokkurinn hefur verið einn í ríkis-
stjórn frá árinu 2002 en nú verður
einhver breyting þar á.
AKP er sem fyrr segir stærsti
flokkur landsins, með 40,6% at-
kvæða í þingkosningunum. Þar á
eftir kemur Repúblikanaflokkurinn
(CHP) með 25,3% atkvæða og svo
Þjóðernisflokkurinn (NHP) með
16,55% atkvæða. Er Alþýðuflokkur-
inn því fjórði stærsti flokkur lands-
ins með 12,8% fylgi. Hann gæti haft
veruleg áhrif á tyrknesk stjórnmál í
framtíðinni.
Áform Erdogans
gætu mistekist
Kosningar Alþýðuflokkurinn,
flokkur Kúrda, nýtur æ meira fylgis.
Flokkur Kúrda hlaut 12,8% fylgi
AFP
Umfangsmikil leit stendur yfir að
tveimur dæmdum morðingjum sem
tókst að strjúka úr öryggisfangels-
inu Clinton Correctional Facility í
New York-ríki. Um 200 lögreglu-
menn taka þátt í leitinni, eftir því
sem kemur fram í frétt Washington
Post um málið. Þar er flóttanum lýst
sem
„sannarlega ótrúlegum“ og „þaul-
skipulögðum“.
Mennirnir, Richard Matt 48 ára
og David Sweat 34 ára, sem voru í
klefum hlið við hlið, munu hafa borað
gat á vegg og skriðið út í gegnum
skólpgöng til að flýja. Minnir flóttinn
því óneitanlega á kvikmyndina The
Shawshank Redemption. Þeir tróðu
fötum og öðrum eigum undir sængur
sínar til að villa um fyrir vörðum.
Báðir eru þeir álitnir hættulegir.
Matt var að afplána 25 ára dóm fyrir
að ræna manni og berja hann til
dauða. Sweat hafði hins vegar verið
dæmdur í lífstíðarfangelsi án mögu-
leika á reynslulausn fyrir að myrða
lögreglumann.
Skildu eftir ögrandi miða
Í frétt Indian Times um málið seg-
ir að þeir hafi skilið eftir miða með
ögrandi orðunum „Eigið góðan dag“,
en flótti þeirra kom í ljós við daglegt
eftirlit fangavarða klukkan hálfsex
að morgni.
Þá sé óvíst hvort þeir séu vopnaðir
eða hafi fengið aðstoð við flóttann.
Hins vegar sé ljóst að vegfarendur
eigi alls ekki að nálgast strokufang-
ana, verði þeir varir við þá, heldur
beri að hringja rakleiðis í Neyðarlín-
una.
Matt er sagður um 180 cm á hæð,
svarthærður og með fjölmörg húð-
flúr, m.a. áletrunina „Mexico For-
ever“ á bakinu, hjarta á bringunni og
merki bandaríska sjóhersins á hægri
öxl. Sweat er örlítið lægri, með brúnt
hár og græn augu, með húðflúr á
fingrum og vinstri upphandlegg.
brynja@mbl.is
AFP
Á flótta Fangarnir Richard Matt og
David Sweat eru álitnir hættulegir.
Í fyrsta sinn sem flótti úr öryggis-
fangelsinu tekst að sögn ríkisstjóra
Morðingar flúðu
út um skolpgöng
Sóttvarnalæknir
vill vekja athygli
á því að enn
greinist ein-
staklingar með
ebólu í Gíneu og
Síerra Leóne þótt
dregið hafi úr
fjölda greindra
tilfella. Þetta
kemur fram á
heimasíðu Land-
læknis.
Þann 9. maí sl. lýsti Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin (WHO) því yf-
ir að Líbería væri laus við ebólu.
Alls hafa um 27.000 einstaklingar
verið greindir með ebólu í Gíneu,
Líberíu og Síerra Leóne og rúm-
lega 11.000 látist.
Sóttvarnalæknir hvetur sem fyrr
til þess að einstaklingar ferðist ekki
að nauðsynjalausu til landa þar sem
ebóla greinist. Fyrri ráðleggingar
um ferðalög til landa þar sem ebólu
verður enn vart séu enn í fullu gildi.
Er fólk sem kemur frá löndum
þar sem ebóla greinist hvatt til að
hafa samband við smitsjúkdóma-
lækni á Landspítala.
Um 11.000 hafa
látist úr ebólu.
Ebóla enn í Gíneu og
Síerra Leóne
GÍNEA OG SÍERRA LEÓNE
Þingkosningar,
þar sem kosið er
um hluta þing-
sæta, hófust í
Mexíkó í gær. Sex
ára kjörtímabil
forsetans Enrique
Pena Nieto er nú
hálfnað og litið er
á kosningarnar
sem prófstein á
það traust sem
borið er til hans,
ef marka má frétt BBC um málið.
Ofbeldi og mótmæli eru áberandi
þar nú, en eiturlyfjagengi eru sögð
bera ábyrgð á dauða fjölmargra
frambjóðenda.
Áttatíu milljónir manna eru á
kjörskrá, en Pena Nieto hefur sætt
mikilli gagnrýni vegna spillingar
og vanrækslu, m.a. í tengslum við
sporlaust hvarf 43 háskólanema í
september í fyrra.
MEXÍKÓ
Kveikt í kosn-
ingaefni í Tixtla.
Ofbeldi litar þing-
kosningar í Mexíkó