Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 16

Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íkjölfar kosn-ingasigurssíns í upphafi maímánaðar hefur David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, lagt aukinn þunga á kosningaloforð sitt um að sam- ið verði upp á nýtt um aðild Breta að Evrópusambandinu, helst þannig að ýmsum stofn- sáttmálum sambandsins verði breytt fyrir alla. Í kjölfarið verði aðildin að sambandinu lögð fyrir Breta í þjóðar- atkvæði. Þessi viðleitni Camerons til þess að óskir Breta um framtíð sambandsins heyrist virðist hins vegar ekki ætla að skila af sér neinum alvöru árangri. Sum ríkin í sambandinu leggj- ast þver gegn hvers kyns breytingum, til dæmis þeim sem gætu leitt af sér að frjálsri för þegna þeirra til annarra ríkja sambandsins sé ógnað. Enn fremur er ljóst að flestar þær breytingar sem Cameron hefur nefnt eru til þess fallnar að hægja á samrunaferli Evr- ópu, en embættismannakerfið í Brussel vill frekar auka hrað- ann þar en hitt, óháð því hvað Evrópubúar sjálfir vilja. Og hvað skyldu þeir vilja? Í nýlegri skoðanakönnun sem gerð var meðal danskra kjós- enda kom fram að 46% að- spurðra voru á því að Danir ættu að reyna að semja upp á nýtt líkt og Bretar vilja gera, en einungis um 33% voru því and- víg. Þegar niður- stöður könnunar- innar voru greindar nánar sást að afstaðan í málinu fór ekki nema að nokkru leyti eftir flokkslínum og að meðal stuðn- ingsmanna tveggja stærstu flokkanna eru fylkingarnar tvær nokkurn veginn jafn- stórar. Skoðanakönnunin er ein- ungis enn ein birtingarmynd þess sem sést hefur í undan- förnum kosningum til Evrópu- þingsins, þar sem flokkar sem hafa efasemdir um ESB og gjalda varhug við frekari sam- runa taka til sín sífellt fleiri þingmenn. Leiðtogar og emb- ættismenn ESB láta eins og ekkert hafi í skorist og geta því búist við að fyrrnefnd þró- un í afstöðu almennings haldi áfram. Þó að líklegt sé að umbóta- tilraunir Camerons muni ekki enda í öðru en því að hann fái einhverja smádúsu í skiptum fyrir áframhaldandi velvilja breskra stjórnvalda gagnvart sambandinu væri það fyrir sitt leyti merkilegt ef ferlið yrði til þess að opna fyrir óánægju fleiri ríkja innan sambandsins með þróunina. En bregðist sambandið ekki við óskum íbú- anna er hætt við að efasemd- irnar um gildi sambandsins muni breiðast enn frekar út. Stór hluti Dana vill breytta aðild að Evrópusambandinu} Efasemdir breiðast út Í tengslum við ný-gerða kjara- samninga tilkynnti ríkisstjórnin um breytingar á skött- um sem meðal ann- ars fela í sér lækk- un á tekjuskatti almennra launamanna. Ríkið metur það svo að tekjutap ríkissjóðs verði um 10 milljarðar króna á ári vegna þessara aðgerða, sem þýðir með öðrum orðum að al- menningur hefur 10 milljörðum meira á milli handanna. Þetta er fagnaðarefni og tímabært eftir miklar skattahækkanir vinstristjórnarinnar. Eitt er umhugsunarvert þeg- ar kemur að kjarasamningum og þeim kröfum sem gerðar eru um aðkomu hins opinbera, en það er að sveitarfélögin hafa verið stikkfrí þegar kemur að því að liðka til fyrir gerð kjara- samninga. Þetta kann að hafa verið eðlilegt á árum áður þeg- ar umsvif sveitarstjórna voru mun minni en nú og skatt- heimta mun hóflegri. Nú er hins vegar svo komið að meiri- hluti staðgreiðslu skatta, sem samanstendur af tekjuskatti til ríkis- ins og útsvari til sveitarfélaga, fer til sveitarfélag- anna. Þrátt fyrir þetta hafa litlar eða engar kröfur ver- ið gerðar til sveitarfélaganna um að lækka álagningu sína í tengslum við kjarasamninga, og raunar er skattheimta sveitarfélaganna furðu sjaldan til umræðu yfirleitt. Með auknum umsvifum sveitarfélaganna og eftir því sem þau hafa hækkað hlutdeild sína í beinni skattheimtu af al- menningi er sjálfsagt að sjón- um verði frekar en áður beint að þeim og kröfur gerðar til þeirra um að stilla skattheimtu í hóf. Þetta getur átt við í tengslum við kjarasamninga en einnig al- mennt. Umtalsverður hluti tekna almennings fer í gegnum hendur sveitarstjórnarmanna og eðlilegt er að gerðar séu kröfur til þeirra vegna skatt- heimtu, ekki síður en til ann- arra sem með opinbert fé fara. Umsvif sveitar- stjórna hafa aukist og til þeirra þarf að gera meiri kröfur} Eiga ekki að vera stikkfrí Þ að hefur verið sérstakt, eða kannski miklu frekar grátlegt, að fylgjast með því hvernig þeirri furðulegu ákvörðun að halda Heimsmeistaramótið í fótbolta í Katar eftir sjö ár hefur verið haldið til streitu. Ákvörðunin kom af stað flókinni at- burðarás þar sem beygja og sveigja þurfti reglur til að hægt væri að halda mótið sem, að sögn mannréttindasamtaka, hefur þegar kostað 1.200 verkamenn lífið. Úrslitaleikur HM um miðjan desember – hver átti von á því? Þetta og svo margt, margt fleira í fótbolt- anum síðustu árin má rekja til þess hversu rotið Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, virðist vera. Síðast í gær greindi Sunday Times frá því að hugsanlega hefðu forsvars- menn FIFA vísvitandi talið vitlaust í atkvæðagreiðslunni um hvort HM 2010 ætti að vera í Marokkó eða Suður Afríku – þar virðist hafa ráðið úr- slitum hvort landið mútaði betur. Frásögnum af græðgi forsvarsmanna FIFA virðist því bara fjölga með hverjum deginum sem líður og smám saman er að flettast ofan af spillingu háttsettra embættismanna sambandsins. Af öllum þeim dúndursögum sem í boði eru af sam- bandinu hlýtur sú að vera í sérstöku eftirlæti þegar Chuck Blazer, ofurstóri maðurinn á pínuponsu vesp- unni, var eltur um götur New York þar sem hann reyndi að stinga alríkislögregluna, FBI, af. Og þegar í ljós kom að hann var kattakarl sem átti séríbúð á besta stað í borginni fyr- ir hjörð kisulóra. Svo má ekki gleyma Jack Warner, sem notaði mútugreiðslur til að lækka VISA- reikninginn sinn og gerði sig að fífli á Face- book þegar hann hélt að grín bandarískra „Baggalúta“ væri heilagur sannleikur; Að Bandaríkjamenn væru í þessari áróð- ursherferð í þeim tilgangi að fá sjálfir að halda HM, ekki bara í fjarlægri framtíð, heldur bara strax í sumar. Og loks er það myndin – já, kvikmyndin – sem FIFA lét framleiða um eigið ágæti. Skemmst er frá því að segja að breska blað- ið Telegraph gefur henni eina stjörnu, myndin kostaði 24 milljónir evra, FIFA lagði til 20 milljónir og það mættu tveir á fyrstu sýningu myndarinnar í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir allt þetta nær FIFA ekki að eyðileggja hversu einstakt fyrirbæri knattspyrna er – án FIFA hefur hún auk þess að vera skemmtiefni á hverjum degi náð að vera sáttasemjari lífsins; fengið jafnvel Ír- ana og Bandaríkjamenn til að etja kappi án líkams- meiðinga. Með eða án FIFA verður knattspyrna áfram þessi ákaflega fína og einfalda íþrótt – ellefu gegn ellefu og Þjóðverjar vinna eitt núll. julia@mbl.is Júlía Margrét Alexanders- dóttir Pistill Endalaus vitleysa STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fjöldi ferðamanna umsunnaverða Vestfirði hef-ur aukist verulega á síð-ustu árum. Á sama tíma hefur mikil uppbygging verið í ferða- þjónustu á svæðinu. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vest- urbyggð, segist eiga von á enn frek- ari aukningu á þessu ári. Spurð að því hvað fólk sé að sækja vestur segir hún að það sé einfalt. „Hér er mikil náttúrufegurð og skemmtilegt fólk.“ Ásthildur segir að uppbyggingin hafi verið hröð og hún hafi fyrst og fremst verið í höndum einkaaðila. Sveitarfélagið hafi stutt við með þeim leiðum sem því séu færar og hafi jafnframt unnið að því að gera sveit- arfélagið meira aðlaðandi. Hún segir mikla fjölbreytni vera í ferðaþjónustunni. Á Patreksfirði sé gott úrval gistingar; Fosshótel, Hótel West, Ráðagerði hostel, gistiheimilið Stekkaból og góðir veitingastaðir; Heimsendi, Stúkuhúsið, Besti bitinn og veitingastaðurinn á Fosshótelum. Á Bíldudal er gistiheimilið Stiklu- steinar og Bíldudalur Hostel auk gistimöguleika í frístundahúsum og ekki síst góður matur á Vegamótum. Í Breiðavík er eitt stærsta hót- elið á sunnanverðum Vestfjörðum og mikill fjöldi hefur viðkomu þar á hverju sumri, að sögn Ásthildar. Þar hafi herbergjum verið fjölgað og veit- ingasalur verið stækkaður. Hótel Látrabjarg í Örlygshöfn sé sömuleið- is í vexti og í Flókalundi sé einnig verið að stækka. Ferðamannatíminn lengist Yfirleitt sé sama hvert sé litið, flestir hafi uppi áform um að geta veitt vaxandi fjölda ferðamanna aukna þjónustu; afþreyingu, mat og drykk en fram undir þetta hafi skort á aðstöðuna. „Staðreyndin er sú að ferðamenn eru farnir að koma hingað vestur í auknum mæli, ekki síst út- lendingar, og tímabilið er orðið lengra en það var áður,“ segir Ást- hildur. „Vandamálið er að ríkisvaldið fylgir ekki með og innviðir eins og flug og vegakerfið eru ekki í lagi. Vissulega er það frábært hversu mik- ið hefur verið unnið að vegabótum í Reykhólasveit og víðar á leiðinni hingað vestur og nú eygjum við að framkvæmdir klárist á næstu árum. Það segir þó aðeins hluta sög- unnar því vegirnir út á Látrabjarg, sem er fjölsóttasti ferðamannastað- urinn, og niður á Rauðasand eru stórhættulegir. Fjöldi slysa á erlend- um ferðamönnum á þjóðvegum landsins á stuttum tíma er eitthvað sem ríkisvaldið þarf að hugsa alvar- lega um. Vegakerfið er ekki nógu gott og viðhaldið er fyrir neðan allar hellur, sérstaklega á fjölsóttum mal- arvegum.“ Tímamótadeiliskipulag Ásthildur segir að nýlega hafi tímamótadeiliskipulag verið sam- þykkt í bæjarstjórn Vesturbyggðar fyrir Látrabjargssvæðið. „Við vitum að með fjölgun ferðamanna verður samtímis að byggja þannig upp að náttúran verði ekki fyrir skaða. Það er okkar vilji að svæðið frá Keflavík, Látrabjargi að Bjargtöngum, Látra- vík og yfir í Breiðavík verði friðlýst sem þjóðgarður enda mun það verða til þess að viðkvæm náttúra svæðis- ins njóti enn frekari verndunar og þá opnast fjölmörg tækifæri í ferðaþjón- ustu samhliða því. Þetta verkefni hefur tekið langan tíma enda hafa bæjaryfirvöld viljað vanda sig sérstaklega við verkefnið vegna þess hversu viðkvæmt land- svæðið er og vegna fjölda landeig- enda. Með friðlýsingunni teljum við að hægt verði að koma í veg fyrir eyði- leggingu á þessu stórfenglega land- svæði, en sú hætta blasir við ef ekkert verður að gert,“ segir Ásthildur. Uppbygging og fjölg- un en ríkið situr eftir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Útvörður í vestri Látrabjarg hefur löngum verið matarkista með fjöl- breyttu fuglalífi, en hefur nú einnig mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Hákon Ásgeirsson, sérfræðingur Umhverfisstofnunar á Patreks- firði, segir að í júlí 2013 hafi landverðir á Látrabjargi gert könnun á fjölda ferðamanna. Í þeim mánuði hafi um 11 þúsund manns lagt leið sína á Bjarg- tanga og reiknað yfir á sumar- mánuðina í heild, þ.e. júní, júlí og ágúst, hafi niðurstaðan verið að um 30 þúsund ferðamenn hafi komið á Látrabjarg. Aðilar tengd- ir ferðaþjónustu séu sammála um að fjöldinn hafi verið veru- lega meiri í fyrrasumar og búist sé við fjölgun ferðamanna í ár. Hákon segir að sambærileg könnun hafi ekki verið gerð fyrir Rauðasand, en áætlað hafi verið að rúmlega helmingur fjöldans sem fór á Bjargtanga hafi farið á Rauðasand eða 15-20 þúsund manns. Þegar rætt var við Hákon fyrir helgi var hann staddur í Látravík. Hann sagði það mikið hagsmuna- mál fyrir landeigendur að veg- urinn út á Bjargtanga yrði færð- ur frá sumarhúsabyggðinni á Látrum. Vegurinn er mjór mal- arvegur, sem Hákon sagði að bæri engan veginn alla umferð- ina sem fer um hann á sumrin, þar á meðal stórar rútur. Í deili- skipulagi er gert ráð fyrir að veg- urinn verði færður upp fyrir byggðina, en slík framkvæmd er ekki á vegaáætlun. Um 30 þúsund manns 2013 VAXANDI UMFERÐ Á LÁTRABJARGI OG RAUÐASANDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.