Morgunblaðið - 08.06.2015, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 159. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Greiddi af kreditkortum og láni
2. Fjölnir Þorgeirsson trúlofaður
3. Fyrstu myndirnar af systkinunum
4. Vann Marokkó HM 2010
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sýningin Hjarta Hróa hattar eftir
David Farr í íslenskri þýðingu Garðars
Gíslasonar verður frumsýnd á Stóra
sviði Þjóðleikhússins 12. september í
samstarfi við Vesturport. Selma
Björnsdóttir leikstýrir sýningunni, en
hún var aðstoðarleikstjóri Gísla Arnar
Garðarssonar þegar sýningin var
heimsfrumsýnd hjá Royal Shake-
speare Company í nóvember 2011 auk
þess að semja danshreyfingar. Salka
Sól Eyfeld semur tónlistina fyrir sýn-
inguna og leikmynd hannar Börkur
Jónsson. Með hlutverk Marion og Hróa
fara Lára Jóhanna Jónsdóttir og Þórir
Sæmundsson. Í öðrum hlutverkum eru
Guðjón Davíð Karlsson, Oddur Júlíus-
son, Sigurður Þór Óskarsson, Stefán
Hallur Stefánsson, Stefán Karl Stef-
ánsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir
og Baltasar Breki Samper, en Katrín
og Baltasar eru
bæði nýút-
skrifuð af
leikarabraut
LHÍ. Miklir
loftfim-
leikar prýða
sýninguna, en
umsjón með
þeim hefur
Jóhannes
Níels Sig-
urðsson.
Salka Sól semur við
Hjarta Hróa hattar
StepByStep-
leikhópurinn í
London setur upp
íslenska útvarps-
verkið Spor, eða
Moments, eftir
Starra Hauksson
á leiklistarhátíð í
Crouch End í
Norður-London í
júní. Leikarahópurinn er alíslenskur
og þýðing er í höndum Arons Trausta.
Um sviðsútsetningu og leikstjórn sér
sænski leikstjórinn Maya Lindh.
Listrænn stjórnandi leikhópsins er
íslenski leikstjórinn og leikarinn Vala
Fannell.
Íslenskt útvarpsverk
sett upp í London
Vala Fannell
Á þriðjudag Suðvestan 8-13 m/s og skúrir en léttskýjað að mestu
fyrir austan. Degur úr vindi seinni partinn. Hiti 5 til 12 stig.
Á miðvikudag Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 13-20 m/s hvassast fyrir norð-
vestan. Víða talsverð rigning á Vesturlandi, einkum síðdegis, en
hægari og úrkomulítið fyrir norðaustan. Hiti 7 til 14 stig.
VEÐUR
Íslandsmeistarar Stjörn-
unnar töpuðu öðrum leik
sínum í röð í Pepsi-deild
karla í knattspyrnu í gær-
kvöldi þegar Fjölnismenn
skelltu þeim í Garðabæ, 3:1.
Þar með er liðið fallið niður
í miðja deild. Fjölnir er hins
vegar kominn í hóp efstu
liða. FH er á toppnum eftir
sigur á Víkingi. Breiðablik
er áfram taplaust í öðru
sæti, stigi á eftir FH. Þá
vann Valur KR. »2
Annað tap Ís-
landsmeistaranna
Ísland vann til flestra verð-
launa á Smáþjóðaleikunum
að þessu sinni, en þeim
lauk á laugardagskvöldið.
Íslensku íþróttamennirnir
unnu til 115 verðlauna; 38
þeirra voru gull, 46 silfur og 31
brons. Þar með er Ísland orðið
sigursælasta þátttökuland
Smáþjóðaleikanna frá upp-
hafi. »8
Íslenskt íþróttafólk var
sigursælast allra
Íslenska landsliðið í handknattleik
kvenna tapaði með níu marka mun,
28:19, fyrir Svartfellingum í fyrri leik
liðanna í undankeppni heimsmeist-
aramótsins í gær. „Ég er hundfúll yfir
þessum úrslitum því í 40 mínútur lék
liðið heilt yfir nokkuð vel,“ sagði
Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðs-
þjálfari. Íslenska liðið var um skeið
með með sex marka forskot. »1
Níu marka tap fyrir
Svartfellingum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Þetta er frábær staður og hvergi
betra að vera. Kyrrðin, fegurðin
og hafið. Maður er hvergi eins
langt í burtu og á Hornbjargs-
vita,“ segir Halldór Hafdal Hall-
dórsson, staðarhaldari Ferðafélags
Íslands.
Halldór er að fara sitt fjórða
sumar í vitann hinn 27. júní þegar
hann, ásamt fjölda annarra félaga
í Ferðafélagi Íslands og sjálfboða-
liða, heldur þar vinnuhelgi. Hann
snýr aftur til síns heima 10. ágúst.
„Ég fer með nesti og nýja skó,“
segir hann og hlær. „Þarna er bát-
ur og ég veiði töluvert og svo er
borðað það sem til er eins og
skarfakál og hvönn – eitthvað úr
náttúrunni.“ Örstutt er í gjöful
þorskmið, en staðarhaldarinn
veiðir á sjóstöng og mokar upp
aflanum. Fiskbollurnar hans Hall-
dórs eru rómaðar og þykja af-
bragðsgóðar. Hann býst við að
gera vel yfir hundrað hnefastórar
bollur á meðan vinnuhelgin stend-
ur yfir.
Hundrað ára túrbína
Vitinn er með sína eigin orku-
framleiðslu, en hundrað ára gömul
túrbína annast framleiðsluna og
tryggir birtu og yl. „Allur búnaður
í vitanum er enn nánast eins og
þegar vitaverðirnir voru þarna.
Allar vélar og tæki eru enn í lagi
og við viðhöldum þessu.“
Síðasti vitavörður með fasta bú-
setu var Ólafur Þ. Jónsson, betur
þekktur sem Óli kommi. Halldór
er arftaki hans þá tæpu tvo mán-
uði sem vitinn er opinn yfir
sumarið. Pólitískar skoðanir eru
þó ekki eins eldrauðar og voru í
tíð Óla, sem nefndi herbergin
Síberíu, Kalíníngrad, Volgu og
Moskvu meðal annars.
„Júlímánuður er frekar þétt
setinn af ferðalöngum. Júní og
ágúst hafa verið rólegri en við er-
um að reyna að breyta því með því
að auka siglingar á Hornstrandir.
Í sumar verður fyrirtækið
Strandferðir í Norðurfirði með
áætlun á föstudögum og sunnu-
dögum. Þetta á vonandi eftir að
auka ferðamannastrauminn.“
Vitað mál um veðrið
Halldór er ekki í neinum vafa
um að besta veðrið verði við vit-
ann í sumar. „Þetta er drauma-
staður til að vera á. Þarna verður
góða veðrið í sumar. Það er vitað
mál,“ segir hann og hlær.
Langt í burtu á Horni
Fjórða sumar
staðarhaldarans í
Hornbjargsvita
Ljósmynd/Ferðafélag Íslands
Staðarhaldarinn Halldór þykir lunkinn veiðimaður og gerir afbragðs fiskbollur sem rómaðar eru fyrir stærð og
gæði. Hér er hann lengst til vinstri, ásamt félögum sínum á vinnuhelginni í fyrra að laga rennu fyrir farangur.
Ferð félagsmanna Ferðafélags Íslands í Hornbjargsvita við Látravík í lok júní
er sambland af skemmtun og vinnu. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Ferðafélags Íslands, og Halldór leiða ferðina og starf sjálfboðaliða.
Gera á vitann kláran fyrir ferðamannavertíðina. Aðalvinnan felst í því að
koma upp stiga og rennu í fjörunni til að koma farangri ferðalanga til og frá.
Þá þarf að þrífa húsið og snurfusa eftir veturinn.
Milli þess sem sjálfboðaliðar ferðafélagsins hlúa að húsi og umhverfi
þess er farið í gönguferðir í grenndinni. Gjarnan er gengið á sjálft Hornbjarg
og Kálfstindar skoðaðir. Víst er að margir munu leggja leið sína á þessar
slóðir í sumar.
Snurfusað og gengið um leið
VINNUFERÐ FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS