Morgunblaðið - 18.06.2015, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Makrílveiðar Smábátar fara nú inn
í kvótakerfið í makríl eins og aðrir.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Makrílveiðar smábáta og ísfisk-
veiðiskipa eru nú kvótasettar, sam-
kvæmt nýrri reglugerð um stjórn
makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið
2015. Þar með eru makrílveiðar allra
gerða íslenskra fiskiskipa háðar
aflaheimildum. Makrílveiðum smá-
báta hefur verið stýrt með sóknar-
marki frá því að þær hófust árið
2010. Sjávarútvegsráðherra setti
reglugerðina í fyrradag.
Stjórn Landssambands smábáta-
eigenda hefur lýst yfir fullu van-
trausti á embættisfærslu sjávar-
útvegsráðherra og krefst þess að
reglugerðin verði dregin til baka.
Í reglugerðinni er miðað við að
heildarmakrílafli íslenskra skipa
verði 172.964 lestir á þessu ári. Það
er nokkur aukning frá því í fyrra,
þegar kvótinn var 167.826 lestir.
Páll Rúnarsson, skipstjóri á
togaranum Brimnesi RE 27, var í
gær að veiða gulllax djúpt suður af
Vestmannaeyjum. Hann kvaðst hafa
séð punkta í fiskileitartækjunum
sem voru makríllegir. „Sjórinn er
frekar kaldur, svona tveimur gráð-
um kaldari en á sama tíma í fyrra,“
sagði Páll. „Við byrjuðum á þessum
slóðum að veiða makríl 12. júní í
fyrra. Það er töluvert minna að sjá
nú en þá, en það eru einhverjir
punktar.“ Páll sagði að sjórinn væri
að hlýna. „Það vantar bara sól og
sléttan sjó, þá hlýnar yfirborðið tölu-
vert hratt.“
Makrílveiðar allra stærða og
gerða fiskiskipa háðar kvóta
Smábátasjómenn krefjast þess að makrílveiðireglugerð verði dregin til baka
MMakrílkvóti einnig gefinn út »6
F I M M T U D A G U R 1 8. J Ú N Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 142. tölublað 103. árgangur
SPILAR
MEÐ YPO Á
TÓNLEIKUM
ÚR SKÚR
AÐ STÓR-
FYRIRTÆKI
KRISTÍN Á
HÆSTA ÞREPI
Í BORGINNI
VIÐSKIPTAMOGGINN LISTAMAÐUR 31ARI ÞÓR 32
Árbæjarsafn opnaði dyr sínar í gær fyrir gestum sem vildu njóta þjóð-
hátíðardagsins með því að skyggnast aftur í fornar hefðir landans. Þar
gátu þessir kátu krakkar leikið sér að því að keyra kassabíl en þrátt fyrir
hraða nútímans fara kassabílar líklega ekki mikið hraðar en forðum daga.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ungir sem aldnir fögnuðu þjóðhátíðardegi Íslendinga
Kassabílar, kleinur og kakó eru enn ómissandi og njóta vinsælda í Árbæjarsafni
Niðurstöður fimm ára rannsóknar
voru nýlega kynntar, en hún leiddi í
ljós að Grænlandsjökull er nú í
fyrsta skipti að bráðna á öllum svæð-
um jökulsins og er bráðnunin meira
en tvöföld á við það sem hefur verið.
Ísjökum hefur fjölgað mikið sam-
hliða því að ísbreiðan hefur hopað
og skriðjöklar sækja fram.
Veðurstofa Íslands og Jarðvís-
indastofnun Háskólans tóku þátt í
rannsókninni, sem var á vegum nor-
rænu ráðherranefndarinnar. »18
Ný rannsókn sýnir
hraðari bráðnun
Grænlandsjökull Bráðnar hraðar en áður.
Starfshópur
sem umhverfis-
ráðherra skipaði
um hreindýra-
eldi var sammála
um að mæla ekki
með hreindýra-
eldi eða stór-
felldum hrein-
dýrabúskap í
hreindýrahögum
á Austurlandi ef
standa ætti vörð um villtan stofn
hreindýra hér á landi.
Umsækjendur um leyfi til hrein-
dýraeldis hugðust m.a. nota dýrin í
ferðaþjónustu. »6
Fellst ekki á leyfi til
hreindýraeldis
Austurland Hrein-
dýr verði frjáls.
Snjór á Þjórs-
ársvæðinu var nú
sá mesti sem þar
hefur mælst í
a.m.k. 25 ár.
Landsvirkjun hóf
í fyrra að fylgjast
betur en áður
með snjómagni á
vatnasviðum
vatnsaflsvirkjan-
anna. Lengi hef-
ur verið fylgst með ákomu á jökla
en nú er einnig fylgst með snjó-
magninu utan jöklanna. »12
Óvenju mikill snjór
á Þjórsársvæðinu
Snjór Landsvirkjun
mælir nú snjómagn.