Morgunblaðið - 18.06.2015, Side 2
Ljósmynd/Forsætisráðuneytið
Merkingar á Stjórnarráðshúsinu við Lækjargötu voru afhjúpaðar í gær.
Varanlegar merkingar hafa ekki áður verið á þessu 250 ára gamla húsi, en
byggingin hefur í 111 ár verið miðpunktur íslenskrar stjórnsýslu.
Skjaldarmerki Íslands hefur verið sett upp við inngang hússins, auk þess
sem settar voru upp merkingar úti við Lækjargötu.
Ljósmynd/Forsætisráðuneytið
Miðpunktur íslenskrar
stjórnsýslu í 111 ár
Merkingar á Stjórnarráðinu afhjúpaðar á þjóðhátíðardaginn
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
farið hækkandi síðan samræmdu
prófunum var breytt og þau urðu
frekar hluti af innra starfi skól-
anna. Stofnunin hafi fengið fyrir-
mæli um að leiðbeina skólunum
með matskvarða fyrir einkunna-
gjöf en það taki ekki beint á þessu
máli. Vilji sé þó til staðar hjá ráðu-
neytinu til þess að einkunnir skól-
anna verði samanburðarhæfari og
slíkt hljóti að þurfa að koma til.
Vandinn framhaldsskólanna
Ólafur Loftsson, formaður Fé-
lags grunnskólakennara, segir um-
ræðuna þó vera nokkuð á villi-
götum. Námsmatið hafi breyst og
litið sé til fleiri þátta en einungis
þess hvernig nemendur standi sig í
einstöku prófi á einum degi.
„Námsmatið getur aldrei verið
sniðið að þörfum framhaldsskólans
svo hann geti tekið inn hjá sér
nemendur. Ef þetta veldur fram-
haldsskóla vandræðum verður
hann að finna sjálfur lausnir á því,
getur haft inntökupróf eða leitað
annarra leiða til að taka nemendur
inn. Það getur aldrei orðið stýri-
tæki um hvernig menn haga náms-
matinu í grunnskóla hvernig tekið
er inn í framhaldsskólana.“
Minna að marka einkunnir
Ólafur H. Sigurjónsson, for-
maður Félags stjórnenda í fram-
haldsskólum, segist merkja orðið
mun á einkunnum milli grunn-
skóla. Þetta sé vandamál við inn-
ritun og ógerningur að reyna að
leiðrétta fyrir þessu. Það sé mjög
slæmt ef nemendum sé í raun mis-
munað eftir því úr hvaða grunn-
skóla þeir komi. Einnig þurfi sum-
ir nemendur að þvera
höfuðborgarsvæðið til þess að
komast til skóla. Líta ætti að hluta
til búsetu nemenda eins og gert
hafi verið áður fyrr.
Samræmd próf ekki ákjósanleg
Allir viðmælendur Morgunblaðs-
ins fyrir þessa frétt voru sammála
um að gagnrýnin á samræmdu
prófin eins og þau voru skipulögð
áður fyrr hefði átt rétt á sér. Þau
hefðu verið of stýrandi fyrir
kennsluna, sérstaklega fyrir 9. og
10. bekk. Þá nefnir Ólafur Lofts-
son sérstaklega að með þeim hafi
um of verið einblínt á frammistöðu
nemenda á einu prófi á einum
degi. Fjölbreyttara námsmat gefi
betri sýn á styrkleika nemenda.
Hækkandi einkunnir torvelda innritun
Framhaldsskólarnir sjá einkunna-
verðbólgu hjá grunnskólunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verzlunarskólinn Meðaleinkunn
nýnema í ár er 9,4 frá grunnskóla.
SVIÐSLJÓS
Bjarni Steinar Ottósson
bso@mbl.is
Mikil umræða hefur skapast í
kringum tölur sem Ingi Ólafsson,
skólastjóri Verzlunarskóla Íslands,
gaf út um einkunnadreifingu um-
sækjenda við skólann. Með þeim
fylgdi að mörgum umsækjendum
hefði verið hafnað þrátt fyrir
meðaleinkunn upp á 9,0 eða hærri.
Margir vilja í því sambandi meina
að einkunnir grunnskólanna hafi
gengið í gegnum verðbólguskeið
frá því að hætt var að líta til sam-
ræmdra prófa þegar kom að um-
sóknum í framhaldsskóla.
Arnór Guðmundsson, forstöðu-
maður Námsmatsstofnunar, segir
að þar á bæ hafi menn orðið varir
við þetta ástand. Einkunnir hafi
Hlaup er að öllum líkindum hafið í
Skaftá, að því er segir í tilkynningu
frá Veðurstofu Íslands. Rennsli
Skaftár við Sveinstind hefur verið
að aukast frá því á þriðjudag og
hefur rafleiðni aukist sömuleiðis.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni mun flóðið vera lítið að
umfangi en rennslið við Sveinstind
hefur enn ekki náð venjulegu
sumarrennsli. Verður þó grannt
fylgst með áframhaldandi þróun í
vatnsmagni Skaftár. Hlaupið er tal-
ið koma úr vestari Skaftárkatl-
inum, sem síðast hljóp úr í janúar á
síðasta ári.
Sprungur munu myndast hratt
Næstu daga munu flóðaðstæður
ríkja við bakka Skaftár og er mögu-
legt að hún flæði yfir vegi sem
liggja nærri árbökkum hennar.
Ferðafólki er eindregið ráðlagt að
halda sig fjarri jöðrum Skaftár-
jökuls, Tungnárjökuls og Síðu-
jökuls á meðan hlaupið stendur yf-
ir, en brennisteinsvetni sem fylgir
hlaupvatninu getur skaðað slímhúð
í augum og öndunarvegi.
Þá munu sprungur myndast mjög
hratt í kringum ketilinn og ætti
ferðafólk á Vatnajökli því að halda
sig fjarri kötlunum, að því er segir í
tilkynningu Veðurstofunnar. Að
jafnaði er hlaup úr hvorum katli á
tveggja ára fresti.
Morgunblaðið/ÞÖK
Afl Hlaup árið 2005. Hlaup úr hvorum
katli eru jafnan á tveggja ára fresti.
Lítið hlaup
líklega haf-
ið í Skaftá
Ferðafólki ráðlagt
að halda sig fjarri
Ólafur H. Sigurjónsson segir
sárlega vanta samræmda
stefnu í menntamálum á Ís-
landi, helst alveg upp í grunn-
nám í háskóla. Gríðarlegt brott-
fall úr framhaldsskólum lands-
ins sé sterkur vitnisburður um
þetta. Nemendur séu hér afar
lengi að komast í gegnum fram-
haldsskólastigið og of fáir skrái
sig í iðnnám eftir grunnskóla.
Iðnnemar skili sér að lokum, en
seint, eftir að hafa fallið frá
bóknámi. Einnig sé áhyggjuefni
að ekkert nám sé í boði í tölvu-
tengdu námi eins og forritun
fyrr en komið sé í háskóla. Afar
brýnt sé að breyta þessu.
Skortur á
samræmingu
MENNTAMÁL
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Kjaraviðræður Samtaka atvinnulífs-
ins (SA) og fjögurra iðnaðarmanna-
félaga, þ.e. Félags hársnyrtisveina,
Grafíu/FBM, MATVÍS og Samiðn-
ar, halda áfram í dag. Viðræðunum
hefur miðað ágætlega, að mati Þor-
steins Víglundssonar, framkvæmda-
stjóra SA.
„Við stefnum að því að ljúka við-
ræðunum gagnvart þessum fjórum
félögum í þessari viku,“ sagði Þor-
steinn. Hann kvaðst gera ráð fyrir
að skrifað yrði
undir kjarasamn-
ing öðru hvoru
megin við næstu
helgi.
Hins vegar
slitnaði upp úr
viðræðum Félags
vélstjóra og
málmtækni-
manna (VM) og
Rafiðnaðarsam-
bands Ísland (RSÍ) við SA í fyrra-
dag.
„Menn höfðu í raun og veru lokið
Fjögur iðnaðarmannafélög og
SA stefna að samningi í vikunni
Framkvæmdastjóri SA segir VM og RSÍ hafa lagt fram viðbótarlaunakröfur
viðræðum um launalið gagnvart öll-
um félögunum sex og höfðu gengið
frá samþykkt um þann hluta við-
ræðnanna. Eftir stóðu sérmálin. Í
tilfelli þessara tveggja [VM og RSÍ]
settu menn í raun og veru fram við-
bótarlaunakröfur, undir viðræðum
um sérkröfur, sem við gátum ekki
fallist á. Þá slitnaði upp úr,“ sagði
Þorsteinn. „Við erum ekki til við-
ræðu um að opna launaliðinn aftur.“
Hann sagði að viðræðurnar sner-
ust nú um sérmálin og þeim hefði al-
mennt talað miðað ágætlega gagn-
vart öllum félögunum sex.
„Við höfum getað orðið við sum-
um þessum sérkröfum en öðrum
ekki. Svipað á við um öll félögin
sex,“ sagði Þorsteinn. Hann sagði að
SA gengi út frá því að menn héldu
sig við þá línu sem búið hefði verið
að leggja varðandi launaliðinn og ná
samkomulagi um.
Samiðn, Grafía/FBM, Félag hár-
snyrtisveina og SA gerðu samkomu-
lag um að fresta boðuðum verkföll-
um, sem áttu að hefjast 10. júní, til
22. júní. Á heimasíðu Grafíu/FBM
segir að stefnt sé að því að ná samn-
ingum áður en verkfall skelli á.
Þorsteinn
Víglundsson