Morgunblaðið - 18.06.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015
Daniel Hannan, þingmaður áEvópuþinginu, skrifaði í gær
grípandi pistil um Grikkland, sem
ætti enga góða efnahagslega kosti
um þessar mundir, en hinn illskásti
væri að losna út úr evrunni.
Vandinn væri þósá að ekki væri
gott að sósíal-
istaflokkur Tsipras-
ar forsætisráðhera
leiddi þá umbreyt-
ingu.
Fyrri stjórn hefðivissulega lotið
kröfum ESB og
beitt þjóð sína miklu
harðræði.
Með niðurskurði og einkavæð-ingu hefði verið svo komið að
ríkissjóður Grikkja hefði loks, að
grunni til, verið kominn í plús.
Ríkissjóður aflaði meiri tekna enhann eyddi. Afborgunum og
fjármagnskostnaði er þá haldið ut-
an við.
Tsipras hefði verið kosinn til aðhverfa af þessari braut og fara
á ný gömlu skattheimtu- og eyðslu-
leiðina.
En Hannan telur að sú kúvend-ing sé einmitt ástæða þess að
ESB geti nú hugsað sér að láta
Grikkland róa:
’’
Sú mynd sem þvældist fyrir
leiðtogum ESB áður var ekki sú
að Grikkland myndi fara sína leið,
heldur óttinn við þá mynd að Grikk-
land færi sína leið og blómstraði í kjöl-
farið – eins og Ísland hefur gert.“
Eftirtektarvert sjónarmið.
Daniel Hannan
Má ekki lukkast
STAKSTEINAR
Alexis Tsipras
Veður víða um heim 17.6., kl. 18.00
Reykjavík 9 súld
Bolungarvík 10 skýjað
Akureyri 13 alskýjað
Nuuk 5 léttskýjað
Þórshöfn 8 skúrir
Ósló 10 skúrir
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 16 heiðskírt
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 22 heiðskírt
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 17 skýjað
Glasgow 12 skýjað
London 23 léttskýjað
París 25 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 18 heiðskírt
Berlín 21 heiðskírt
Vín 17 skýjað
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 20 léttskýjað
Montreal 18 skýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 16 skúrir
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:56 24:03
ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34
SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17
DJÚPIVOGUR 2:10 23:47
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sæmdi fjórtán ein-
staklinga heiðursmerki hinnar ís-
lensku fálkaorðu við hátíðlega at-
höfn á Bessastöðum í gær.
Þeir sem hlutu fálkaorðuna eru:
Aron Björnsson yfirlæknir,
Reykjavík, riddarakross fyrir
störf á vettvangi skurðlækninga
og heilbrigðismála. Egill Ólafsson
tónlistarmaður, Reykjavík,
riddarakross fyrir framlag til ís-
lenskrar tónlistar og leiklistar.
Einar Jón Ólafsson kaupmaður,
Akranesi, riddarakross fyrir
framlag í þágu heimabyggðar.
Guðjón Friðriksson rithöfundur,
Reykjavík, riddarakross fyrir
framlag til íslenskra bókmennta
og söguritunar. Inga Þórunn Hall-
dórsdóttir, fyrrverandi skóla-
stjóri, Kópavogi, riddarakross
fyrir störf á vettvangi menntunar,
uppeldis og fjölmenningar. Jó-
hann Sigurjónsson, sjávarlíffræð-
ingur og forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar, Reykjavík,
riddarakross fyrir forystu á vett-
vangi fiskirannsókna og hafvís-
inda. Jón Egill Egilsson sendi-
herra, Reykjavík, stórriddara-
kross fyrir störf í opinbera þágu.
Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri,
riddarakross fyrir framlag til ís-
lenskrar leiklistar og kvikmynda-
gerðar. Líney Rut Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri Íþrótta- og
Ólympíusambands Íslands,
Reykjavík, riddarakross fyrir
störf í þágu íþróttahreyfingar.
Margrét Lísa Steingrímsdóttir
þroskaþjálfi, Reykjavík, riddara-
kross fyrir störf í þágu fatlaðra
barna og velferðar. Ragnhildur
Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri,
Reykjavík, stórriddarakross fyrir
störf í opinbera þágu. Stefán
Reynir Gíslason, tónlistarkennari
og kórstjóri, Varmahlíð, riddara-
kross fyrir framlag til tónlistarlífs
á landsbyggðinni. Steinunn Briem
Bjarnadóttir Vasulka listamaður,
Bandaríkjunum, riddarakross
fyrir frumkvæði og nýsköpun í
myndlist. Þórunn H. Sveinbjörns-
dóttir, formaður Félags eldri
borgara í Reykjavík og fyrrver-
andi formaður Sóknar, Reykjavík,
riddarakross fyrir störf í þágu
verkalýðshreyfingar og velferðar.
14 sæmdir hinni íslensku fálkaorðu
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Á Bessastöðum Ólafur Ragnar Grímsson ásamt þeim 14 sem sæmd voru heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.
Stefnt er að því að reisa minnisvarða um flug-
slysið í Fagradalsfjalli 3. maí 1943. Þar fórst
bandarísk B-24 Liberator sprengjuflugvél. Að-
eins einn úr áhöfninni komst af. Á meðal þeirra
sem fórust var Frank M. Andrews, yfirhershöfð-
ingi Bandaríkjahers í Evrópu. Afhjúpa á minnis-
varðann 3. maí 2018 þegar 75 ár verða liðin frá
slysinu.
Flugvélin gekk undir gælunafninu Hot Stuff.
Hún var fyrsta stóra sprengjuflugvélin í 8. flug-
hersveitinni (8AF) sem lauk 25 árásarferðum í
Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir 31.
árásarferðina var ákveðið að vélin flygi til
Bandaríkjanna, þar sem hún átti að fara um til
að vekja athygli á sölu stríðsskuldabréfa.
Áætlað er að minnisvarðinn kosti 9-10 millj-
ónir króna, en fjársöfnun hófst 3. maí 2013. Þeg-
ar hafa safnast yfir fimm milljónir króna. Banda-
ríkjamaðurinn Jim Lux á mestan heiðurinn af
söfnuninni og hefur mest safnast í Bandaríkj-
unum. Íslenskum fyrirtækjum og einstaklingum
hefur verið boðið að styrkja söfnunina.
Í fréttatilkynningu segir að íslenskum fyrir-
tækjum sem fáist við steinsmíði verði boðið að
senda hugmynd að minnisvarða. Bandaríski
listamaðurinn Terry Hinde mun gera líkan af
flugvélinni. Í líkaninu verður brot úr sjálfri flug-
vélinni. Sjá nánar á vefnum stridsminjar.is.
Reisa á minnisvarða um
flugslysið í Fagradalsfjalli
Þegar hafa safnast um fimm milljónir króna
Tölvumynd/Quiring Monuments
Minnisvarði Hugmynd að minnisvarðanum um
flugslysið við Fagradalsfjall á Reykjanesi.