Morgunblaðið - 18.06.2015, Síða 14

Morgunblaðið - 18.06.2015, Síða 14
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Aðeins kvenbæjarfulltrúar sátu bæjarstjórnarfund á Akureyri í fyrradag, eins og fram kom í blaðinu í gær. Þar var samþykkt til- laga um að keypt yrði tistaverk til heiðurs Vilhelmínu Lever, sem var fyrsta konan til að kjósa til sveitar- stjórnar á Íslandi, árið 1863 á Akur- eyri.    Listaverkið verður gjöf til bæjarbúa í tilefni af 100 ára kosn- ingarafmæli kvenna til Alþingis árið 2015. Leitað verður til listakonu til að vinna verkið.    Það var vel við hæfi að stúlka yrði dúx Menntaskólans á Akureyri í þessari miklu hátíðarviku kven- þjóðarinnar. 154 stúdentar braut- skráðust frá skólanum í gær og hæstu einkunn hlaut Ásdís Björk Gunnarsdóttir frá Akureyri; hún var Dux Scholae með 9,56.    Fjölmenni var við athöfnina og auk ávarps og ræðu skólameistara, Jóns Más Héðinssonar, voru flutt ávörp og kveðjur frá afmælis- árgöngum, en elstir í þeim hópi voru 70 ára stúdentar, vaskur hópur fólks um nírætt.    Sú merkilega samkoma MA- hátíðin 16. júní fór fram í 25. skipti. Hópurinn sem nú heldur upp á 50 ára stúdentsafmælið átti sem sagt hugmyndina og hrinti henni í fram- kvæmd, og hátíðin er allar götur síð- an í umsjá 25 ára júbílanta ár hvert. Að þessi sinni voru veislugestur lið- lega 900. Geri aðrir betur! Í gærkvöldi var svo hátíðarsam- koma nýstúdenta í Íþróttahöllinni þar sem þeir komu saman með fjöl- skyldum sínum og vinum til borð- halds. Um ellefuleytið áttu þeir að mæta, skv. hefð, niður á Ráðhústorg og dansa góða stund, áður en haldið var upp í Höll á ný. Skemmtilegar þessar hefðir í MA.    19. júní er á morgun, Kvenna- dagurinn, og óvenju merkilegur að þessu sinni þar sem 100 ár eru þá frá því að (sumar) konur á Íslandi fengu kosningarétt. Margt verður gert í höfuðstað Norðurlands til að halda upp á daginn, og raunar strax í dag og næstu daga.    Í dag verður opnuð sýning á verkum Hjördísar Frímann á bóka- safni Háskólans kl. 16, Listamanns- spjall verður í Flóru kl. 20 til 21 með Margréti Jónsdóttur og kvenna- ganga Minjasafnsins, Jafnréttis- stofu og Héraðsskjalasafnins hefst kl. 20. Gangan hefur yfirskriftina Í fótspor Vilhelmínu – fyrstu kon- unnar sem kaus á Íslandi. Gengið verður frá Laxdalshúsi.    Á morgun verður dagskrá bæði í Lystigarðinum og á Ráðhústorgi, auk tónlistaratriða í Hofi og þáttur- inn um Vilhelmínu Lever úr þátta- röðinni Öldin hennar og umfjöllun N4 um fyrirmyndir sýndur á Akur- eyri Backpackers kl. 14 til 16.    Enn verður dagskrá í tilefni 100 ára kosningaafmælis kvenna í Hofi á sunnudaginn og hefst hún kl. 13. Lesið verður upp úr og spjallað um nýútkomna bók, Frú ráðherra, sög- ur kvenna á ráðherrastóli. Sigrún Stefánsdóttir og Edda Jónsdóttir segja frá vinnslu bókarinnar og Valgerður Sverrisdóttir frá Lóma- tjörn segir frá reynslu sinni sem ráðherra og les kafla úr bókinni. Sama dag kl. 15 verður dagskrá í Samkomuhúsinu þar sem Vilhelm- ínu Lever verður minnst. Saga Jónsdóttir stjórnar dagskránni og í framhaldinu munu Spékopparnir, leikhópur Félags eldri borgara, stikla á stóru í kosningasögu kvenna. Boðið verður upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri, um sýningu Mireyu Samper, Endurvarp, kl. 12.15 til 12.45 í dag. Hlynur Hallsson safn- stjóri tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna og einstaka verk.    Hafi það farið framhjá ein- hverjum í gær er rétt að benda á frétt sem birtist á mbl.is: „Akureyri trónir á toppi lista leiðsöguhand- bókaútgefandans Lonely Planet yfir 10 bestu staðina til að heimsækja í Evrópu þetta sumarið...“    Vitnað var í fréttatilkynningu frá Lonely Planet, þar sem sagði meðal annars: „Akureyri er efst á listanum sem besti staðurinn í Evrópu sökum rólyndislegs yfirbragðs staðarins í bland við borgarstemningu auk þess sem gott er að gera út frá bænum þegar kemr að því að kanna græna haga Íslands, sjávarþorp og fossa, svo ekki sé minnst á að sjá magnþrungna jökla í svip, eldfjöll og hraunbreiður.“    Stundum er sagt að frægðin komi að utan og á oft vel við. Senni- lega er líka vel við hæfi að montið skuli stundum koma að utan! Meira að segja Akureyringar voru því ábyggilega fegnir í gær, hugsanlega orðnir þreyttir á því að monta sig af bænum sínum sjálfir ...    Rétt er að geta þess að Lonely Planet hefur kannski átt við Stór- Akureyrarsvæðið eða Stór- Siglufjarðarsvæðið. Myndin með umfjölluninni á heimasíðu miðilsins var nefnilega frá Siglufrði! Konur og besti ferðamanna- staður Evrópu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tímamót Hluti nýstúdentanna 154 sem brautskráðust frá Menntaskólanum á Akureyri í gær. Sól var í sinni. Fjöldi Margmenni var í miðbæ Akureyrar um miðjan dag í gær í blíðunni. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015 www.gilbert.is Ísland er í efsta sæti á lista Efna- hags- og friðarstofnunarinnar (e. Institute for Economics and Peace) yfir friðsælustu ríki heims, fimmta árið í röð. Í frétt Global Finance um úttekt stofnunarinnar kemur fram að þrátt fyrir að öldin sé sú friðsæl- asta í sögu mannkyns hafi friðsæld heimsins hrakað á síðustu sjö árum. Stofnunin gefur árlega út listann The Global Peace Index, en sam- kvæmt honum búa þegnar 111 landa við minni frið en árið 2008 en í 51 landi ríkir meiri friður en áður. Norðurlandaríkin á meðal 11 efstu Ísland er með 1,189 stig á lista stofnunarinnar, sem er settur þann- ig fram að því lægri sem talan er, þeim mun friðsælla er landið. Dan- mörk er í öðru sæti með 1,193 stig og Austurríki vermir þriðja sætið með 1,2 stig. Noregur og Finnland eru einnig meðal tíu friðsælustu landa heims samkvæmt listanum, en þar vermir Finnland sjötta sætið og Noregur það tíunda. Af Norðurlandaríkj- unum er Svíþjóð það eina sem ekki kemst á blað, en landið deilir 11. sætinu með Tékklandi. Í athugun stofnunarinnar er fylgst með hervæðingu, samfélags- legu öryggi og yfirstandandi átökum jafnt innanlands sem utan. Heimsfriður farið dvínandi Aukin spenna í Úkraínu, átökin í Sýrlandi, borgarastyrjöld í Suður- Súdan og aukin virkni í hryðjuverk- um víða um heim er meðal þess sem gerir það að verkum að friður í heiminum fer dvínandi. Í ár vermir Sýrland botnsæti listans en það er þó Suður-Súdan sem fer niður um flest sæti milli ára. Georgía er það land þar sem ástandið hefur batnað hvað mest, en landið er á uppleið eftir átök við Rússland árið 2008. Friðsælasta land í heimi 5. árið í röð  Danmörk fylgir fast á hæla Íslands Friðsælt Ísland trónir á toppi lista yfir friðsælustu löndin í heiminum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.