Morgunblaðið - 18.06.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.06.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum sem alltaf er opin, hvort sem fáir eða margir eru að vinna. Þangað leita menn fyrst ef eitthvað kemur fyrir, hvort sem það er að ræða málin eða fá plástur á sár. Eldhúsfólkið er því í einhvers konar foreldrahlutverki. „Mennirnir eru í hörkuvinnu. Þeir þurfa kjarnmiklar máltíðir og vilja alvöru mat. Maturinn er oft það eina sem þeir geta hlakkað til og eins gott að við stöndum undir ábyrgð- inni. Við leggjum áherslu á að vera með fjölbreyttan mat í hæsta gæða- flokki,“ segir vertinn. Margir Pólverjar eru á vinnu- svæðinu. Gauti gerir ekki mikið úr því að þarfirnar séu mismunandi en segir þó að taka verði tillit til ýmissa sérþarfa svo menn séu ánægðir. Smiðir frá Póllandi Guðmundur Þórðarson, stað- arstjóri LNS Sögu, segir að nú séu um 50 manns á vegum LNS Sögu við vinnu á svæðinu. Þeim fjölgar á næstu vikum og verða fljótlega orðnir rúmlega hundrað. Samið var við pólskan und- irverktaka um uppsteypu á stöðv- arhúsinu enda svo stór hópur iðn- aðarmenn ekki lengur gripinn upp af götunni á Íslandi. Á hans vegum eru nú 23 smiðir, stjórnendur og verkamenn á Þeistareykjum. Þeim mun bráðlega fjölga upp í 35 til 40 manns. Unnið er við undirstöður tengibyggingar stöðvarhúss og var fyrsta steypa í síðustu viku og önnur steypa í þessari viku. Byggingin er mikið járnabundin og mikinn kopar þarf í jarðtengingar. Tengibyggingin verður steypt upp og byggður kjallari undir vélasalinn sem stálgrindarhús verður reist ofan á. Guðmundur segir stefnt að því að steypa tengibygginguna upp undir þak í sumar og kjallara vélahússins og reisa stálbitana. Auk pólsku smiðanna eru 15 stjórnendur úr eigin starfsliði LNS Sögu, ýmist Íslendingar eða erlendir ríkisborgarar, og nokkrir aðrir starfsmenn. Hinn meginverkþátturinn, að leggja gufuveitu frá borholum og byggja skiljustöð, er einnig að kom- ast af stað. Guðmundur segir að í því verki sé ætlunin að komast upp úr jörðinni í sumar þannig að hægt verði að leggja öll rör og einangra næsta sumar. Veturinn nýtist líka í að sjóða saman hluta röranna til að flýta fyrir. Má hvergi missa fókus Guðmundur hefur verið í stjórn- endahlutverki við byggingu virkjana og í öðrum stórverkefnum á Íslandi og í Grænlandi, þó meira að vatns- aflsvirkjunum en jarðgufuvirkj- unum. Hann segir að munurinn sé þónokkur. Hann nefnir fyrst að að- gengið sé miklu betra að Þeista- reykjum en virkjunum á hálendinu, hvað þá að virkjunum sem Ístak byggði á Grænlandi. Vinnusvæðið sé aðeins í um 350 metra hæð og tengt við byggðakjarnann Húsavík með góðum vegi. Auðveldara sé að sækja þjónustu og meira að segja geri LNS Saga yfirleitt þá kröfu til birgja að þeir afhendi vörur sínar á vinnusvæðinu en ekki í vöruskemmu í byggð. Þá séu byggingar að mestu ofanjarðar og hefðbundnari en þungbyggð neðanjarðarmannvirki vatnsaflsvirkjana, eins og til dæmis Sultartangavirkjunar. Hann tekur það fram að verktak- inn þurfi að mestu að vera sjálfum sér nógur á Þeistareykjasvæðinu, koma upp vinnubúðum og mötu- neyti og allri sömu aðstöðu og við virkjanir á hálendinu. Verkið er í sjálfu sér ekki flókið, að sögn Guð- mundar. Stærsta áskorunin í báðum verkunum er hvað skilatími verk- anna er skammur, miðað við að- stæður. „Það þarf að skipuleggja verkið vel, eins og vertíðarvinnu þessi tvö sumur. Við getum ekki gert ráð fyr- ir að vinna mikið utandyra á vetr- um. Við erum með nokkuð bratta áætlun og það má hvergi missa fók- us.“ Hjartað slær í mötuneytinu  Vinna við byggingu Þeistareykjavirkjunar komin af stað  50 manns á vegum LNS Sögu á virkj- anasvæðinu  Mikið lagt undir í sumar  Mötuneytið komið í gang  Svefnskáli fyrir 90 manns Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þeistareykjaþorp Fyrirtækið LNS Saga hefur reist svefnskála fyrir 90 starfsmenn við Þeistareyki en fyrir eru svefnskálar á vegum Landsvirkjunar. SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Aðstaða fyrir rúmlega 100 starfs- menn verktakans LNS Sögu og undirverktaka við byggingu Þeista- reykjavirkjunar er að verða tilbúin. Mötuneytið, hjarta hvers vinnu- staðar í fjallasölum, hefur verið opn- að. Með því er mikið unnið því eins og Gauti Árnason, brytinn á Þeista- reykjum, segir: „Þetta er eins og til sjós. Ef kokkurinn stendur sig ekki fer allt í vitleysu.“ LNS Saga er með tvö stærstu verkin á Þeistareykjum, byggingu stöðvarhúss og lagningu gufuveitu. Verkunum er slegið saman undir eina stjórn. Mikil vinna hefur verið lögð í skipulagningu verksins enda þarf að halda vel á spöðunum til að hægt verði að skila því á réttum tíma. Veturinn er erfiður til útivinnu og því verður að ljúka stærstu verk- þáttum haustið 2016 til þess að hægt verði að gangsetja virkjunina haustið 2017 og tryggja rafmagn til að knýja kísilver PCC á Bakka við Húsavík. Herbergi með baði Verkið er að síga af stað. Verk- takar eru að setja upp og ganga frá svefnaðstöðu fyrir 90 manns í vinnu- búðum sem fyrirtækið keypti frá Noregi, auk mötuneytis og skrif- stofa. Reglurnar kveða á um að starfsmennirnir skuli hafa eins- mannsherbergi nema í undantekn- ingartilvikum og þá í skamman tíma og að ekki skuli vera fleiri en fimm um hvert baðherbergi. LNS Saga gerir gott betur en þetta því allir starfsmennirnir hafa eigið herbergi með baði. Auk þess eru rúmgóðar setustofur, sána í hverri svefnálmu og þráðlaust internet er orðið nauð- synlegur grunnþáttur á slíkum vinnusvæðum. Ekki ætti að væsa um mannskap- inn þann stutta tíma sem hann er ekki við vinnu. Vaktirnar eru langar enda hafa menn ekkert annað að gera en vinna á meðan þeir eru á vinnusvæðinu og vilja taka frítím- ann út heima hjá sér, hvort sem það er í Póllandi eða á Íslandi. Vilja alvöru mat Gauti bryti sér um það ásamt sjö samstarfsmönnum að gefa starfs- fólkinu gott að borða fimm sinnum á dag, alla daga vikunnar, allan ársins hring, auk þess að annast þrif og rekstur á svefnskálum og skrif- stofum. Gauti kann ekki við að salnum sé líkt við veitingahús en samþykkir að hann sé ljómandi gott mötuneyti fyrir rúmlega hundrað manna vinnustað. Mötuneytið er sú eining Í starfsmannahópnum við Þeistareyki eru margir reyndir virkjanamenn, sem hafa unnið að mörgum stórverkum og þekkjast margir vel, ekki síst mennirnir í stjórnendateymi LNS Sögu. Gauti bryti og Guðmundur Þórðarson eru í þeim hópi sem sækir í þessa spennu. Þeir unnu báðir lengi að verkefnum fyrir Ístak, meðal annars í Grænlandi og Gauti vann auk þess við Fljótsdalsvirkjun og Búðarháls- virkjun, í flestum tilvikum í sama hlutverki og á Þeistareykj- um. „Þetta er tiltölulega þröngur hópur, þessir gömlu virkj- anamenn. Maður er alltaf að sjá sömu andlitin í mismunandi stórverkum. Hér hjá LNS Sögu eru líka margir gamlir Ístaks- menn,“ segir Gauti. „Þetta á vel við við mig. Ég hef frjálsræði í mínum störfum. Það eina sem ég þarf að passa upp á er að hafa alla góða og þá er þetta bara gaman,“ segir Gauti. Hann býr í Hornafirði og rekur þar með konu sinni gisti- heimili. Vinnur í tvær vikur á Þeistareykjum og fær síðan viku frí. Þá bíður margt heima; hugsa þarf um garð og hús, gefa morg- unmat og búa um rúm. „Mér finnst skemmtileg og spennandi áskorunin sem felst í því að beisla endurnýjanlegu náttúruöflin eins og vatnsafl og jarðvarma sem er okkar auðlind með þátttöku í byggingu mann- virkja. Þau eru oftast af stærri gerðinni, einstök og stundum erfið og flókin, en um leið gef- andi og skemmtilegt að takast á við að leysa þegar vel tekst til,“ segir Guðmundur Þórðarson. Mörg sömu andlitin GÖMLU VIRKJANAMENNIRNIR Hressir í mötuneytinu Tómas Haukur Tómasson framleiðslustjóri stöðvarhúss, Gauti Árnason matráður og hóltelstjóri, Sveinn Fjeldsted öryggisstjóri, Reynir Örn Reynisson framleiðslustjóri veitna og Guðmundur Þórðarson staðarstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.