Morgunblaðið - 18.06.2015, Page 19

Morgunblaðið - 18.06.2015, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015 Árbæjarsafn Þjóðbúningar voru í aðalhlutverki í gær og boðið var upp á lummur í tilefni þjóðhátíðardagsins. Styrmir Kári Aðgerðaáætlun um afnám fjármagnshafta hefur nú litið dagsins ljós. Um er að ræða heildstæða lausn sem setur hagsmuni al- mennings í forgang og byggjast aðgerðirnar upp á gagnsæi og við- urkenndri að- ferðafræði. Gríðarleg vinna hefur farið í und- irbúning á þessu stóra og mikilvæga máli, sem skiptir öll heimili landsins miklu máli. Það er nú svo að allir Ís- lendingar tóku á sig verulegan skell í efnahagshruninu og þungar byrðar voru lagðar á landsmenn alla. Þess vegna er afar ánægjulegt að rík- isstjórn Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar hefur nú kynnt aðgerðir, sem eiga að tryggja að sú kollsteypa sem allir urðu fyrir, endurtaki sig ekki. Það verða ekki lagðar frekari byrðar á landsmenn vegna hafta. Aðeins um tölur Samkvæmt aðgerðaáætluninni hafa slitabú gömlu bankanna tvo möguleika til að koma sér út úr höft- um. Annars vegar er um að ræða stöðugleikaframlag, en þá hafa slita- búin frest til ársloka 2015 til að upp- fylla stöðugleikaskilyrðin. Ef slita- búin uppfylla ekki skilyrðin fyrir árslok verður lagður á þau stöð- ugleikaskattur. Skatturinn nemur 39% af heildareignum slitabúana og álagning fer fram hinn 15. apríl 2016. Skatturinn skal vera að fullu greiddur um mitt sama ár. Sama hvor leiðin verður farin er nið- urstaðan sú sama fyrir þjóðarbúið: Losun hafta hefur ekki neikvæð áhrif á efnahagslífið og lífskjör al- mennings í landinu. Áhrif á ríkissjóð Nauðsynlegt er að lækka skuldir ríkissjóðs og ná niður þeim gríð- Eftir Elsu Láru Arnardóttur og Þórunni Egilsdóttur Þórunn Egilsdóttir Höfundar eru þingmenn Framsókn- arflokksins. Elsa Lára Arnardóttir Afnám hafta skipt- ir okkur öll máli »Um er að ræða heildstæða lausn sem setur hagsmuni al- mennings í forgang og byggjast aðgerðirnar upp á gagnsæi og við- urkenndri aðferða- fræði. arlega vaxtakostnaði sem greiða þarf á hverju ári. Vaxtagjöld rík- issjóðs fyrir þetta ár eru 77 millj- arðar. Þessi fjárlagaliður er einn stærsti útgjaldaliður fjárlaga. Batn- andi hagur ríkissjóðs mun birtast í batnandi hag almennings í landinu. Með lægri skuldum mun svigrúm aukast í ríkisfjármálum. Það getur orðið til þess að við höfum meiri möguleika en áður til að byggja upp okkar mikilvægu innviði og bæta grunnþjónustu samfélagsins. Aðal- atriðið er að það verði gert í sam- ræmi við ábyrga ríkisfjármála- stefnu. Það er það sem skiptir öllu máli fyrir Íslendinga. Svigrúmið sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson talaði einn flokks- formanna um í kosningabaráttunni árið 2015 er svo sannarlega til stað- ar. Það er 850 milljarðar. Á vegum mennta- og menningarmálaráð- neytis er nú unnið að endurskoðun á náms- efni og skipan náms til stúdentsprófs með það að markmiði að stytta námstíma um ár; úr fjórum árum í þrjú. Þessi umsvif hafa vakið talsverð viðbrögð í ræðu og riti, og eins og við er að búast koma þar fram skipt- ar skoðanir. Ég hef reynt að fylgjast með blaðaskrifum um breytingarnar. Sjálfsagt hefur mér yfirsést eitthvað, en ég fæ ekki séð annað, en að fjallað sé um málið frá báðum hliðum heið- arlega og af einlægni. Hérlendis gegnir stúdentspróf í vaxandi mæli hlutverki lykils, sem opnar leið að einhverri af mörgum brautum innan skólakerfisins, og þar með einnig að atvinnulífinu. En stundum vill það gleymast, að ekki er víst að sami lykillinn gangi að öllum lásum, eða eigi að ljúka þeim öllum upp. Að loknu stúdentsprófi frá MR hóf ég fljótlega nám í náttúrufræði í Há- skólanum í Lundi. Heim kominn tek ég til við náttúrufræðikennslu, fyrst í mínum gamla skóla, síðan kennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð og að lokum rektor þess skóla. Viðhorf mín til skipulags á skóla- starfi, þar með til prófa, mótuðust verulega í ársnámi í kennslufræð- um við Edinborgarhá- skóla (í launuðu orlofi frá MH). Þróun stúdents- prófa á Íslandi Þegar ég lauk stúd- entsprófi er mér nær að halda að einungis einn háskóli hafi verið til á Íslandi, Háskóli Ís- lands, og engir aðrir hérlendir skólar hafi gert stúdents- próf að inntökuskilyrði. Þar kom, að hver sérskólinn af öðrum fluttist „á háskólastig,“ þar sem aðeins stúd- entar fengu að stunda nám. Lítum á kennaranámið. Réttindi til að kenna börnum á skóla- skyldualdri, 7 til 13 ára, fengu menn að loknu námi í Kennaraskóla Ís- lands, sem tók þrjá vetur fram til 1943, þegar fjórða vetrinum var bætt við. Stúdentum voru boðin sömu réttindi eftir eins vetrar nám, víst að- allega í grunnaðferðum kennslu, svo sem í lestri og skrift, en gengið virð- ist hafa verið út frá því, að mennta- skólanámið veitti þá kjölfestu, sem dygði til kennslu í reikningi og les- greinum eins og kristinfræði, sögu, landafræði og náttúrufræði. En árið 1971 varð Kennaraskóli Íslands að Kennaraháskóla Íslands. Þar með fengu stúdentar einir að- gang að skólanum, þar sem beið þeirra þriggja vetra nám til kenn- araprófs, sem síðar lengdist í fjögur ár, eða fimm í einhverjum tilvikum. Á móti kom, að skólaskyldan lengdist úr sjö ára barnaskóla í tíu ára grunn- skóla. Árið 2008 var Kennaraháskól- inn innlimaður í Háskóla Íslands og til varð Menntavísindasvið HÍ. Svipuð þróun verður hjá hjúkr- unarkonum, sem færa sig upp á há- skólastig og verða ókyngreindir hjúkrunarfræðingar. Og bænda- skólar verða landbúnaðarháskólar. Langflestar námsbrautir fram- haldsskólanna brautskrá stúdenta. Það liggur í augum uppi, að engum dettur í hug að búa alla þessa nem- endur undir langt, fræðilegt há- skólanám. Ekki heldur leikni í renni- smíði eða sérhæfðri tölvuforritun. En einhverjir þurfa á slíkum und- irbúningi að halda. Hvað tekur við? Fyrir því hefur skapast hefð hér- lendis, að framhaldsskólar braut- skrái menn af ýmsum sviðum eða brautum sem stúdenta. Þetta minnir okkur kannski á það, að fyrstu skipulegu skólar á Íslandi voru flest- ir ætlaðir verðandi embættis- mönnum, og því miður að í prófum á vegum ráðuneytis er aðeins leitað að mönnum til akademísks fræðanáms. Öðrum er ýtt til hliðar, hvergi er leit- að að listrænum hæfileikum né menn valdir til trésmíðanáms vegna hæfni eða leikni í meðferð á sög eða rennibekk. (Tekið skal fram að þessi gagnrýni beinist ekki að þeim, sem samviskusamlega vinna að prófa- gerð í samræmi við reglugerð, enda skráð af fyrrum fulltrúa sinna fræða í landsprófsnefnd.) Þótt meginreglan verði, að boði ráðuneytis, að námi til stúdentsprófs skuli lokið á þremur árum, þarf að gera ráð fyrir frávikum frá því, rétt eins og nú eru alltíðar undantekn- ingar frá fjögurra ára framhalds- námi. Nú sýnist mér að komið sé að við- tökuskólunum, skólum á há- skólastigi, eða einstökum deildum þeirra að skilgreina þær lágmarks- kröfur sem þessir aðilar setja sem skilyrði fyrir skólavist sem forsendur fyrir innritun í tiltekið háskólanám. Ekki er víst að allir framhalds- skólar væru sáttir við allar slíkar kröfur, hefðu kannski ekki aðstöðu til að standa undir þeim. Um slíkt yrði samið á milli skólanna, ekki mið- stýrt af ráðuneyti. Ef vel tekst til, þannig að sam- komulag næst á milli útskriftarskóla og viðtökuskóla stúdenta um verka- skiptingu, sem báðir treystast til og leitast við að standa við, er líklegt að nýnemar mættu einnig vel við una, og hvorki yrði þörf fyrir inntökupróf í háskólann/deildina né síupróf með háu hlutfalli brottfalls í lok fyrsta há- skólaárs. Hér færast sífellt fleiri skólar „á háskólastig“. Þessi þróun á sér hlið- stæðu í ýmsum löndum. Önnur hafa valið aðrar leiðir. Minna má á áhrif gilda ýmissa iðngreina í Evrópu- löndum, sem voru öflug og yfirgrips- mikil stéttarfélög. Þau sömdu um borgararéttindi félaga sinna þar sem þess gerðist þörf, sáu um fagkennslu innan stéttarinnar, tryggðu afkomu ekkna og munaðarleysingja, auk sómasamlegs lífeyris félagsmanna á efri árum og höfðu mörg digra sjóði til ráðstöfunar. Þegar hætt var að hlaða veglegar kirkjur úr höggnum steini í Evrópu skapaðist nýr vett- vangur fyrir voldug gildi steinsmið- anna – Frímúrarareglan! Miðað við hversu ólíkar kröfur við- tökuskólarnir („skólar á há- skólastigi“) gera um formlega und- irbúningsmenntun, í öllum þeim tilvikum sem hún er skilgreind sem stúdentspróf, væri alger samræming ámóta vænleg og á búnaði til fjall- göngu í Sviss og á Sjálandi. − En á einhverju verður að byrja, og útspil menntamálaráðuneytis um styttingu náms er ágætt upphaf. Eftir Örnólf Thorlacius » Þar kom, að hver sérskólinn af öðrum fluttist „á háskólastig,“ þar sem aðeins stúd- entar fengu að stunda nám. Örnólfur Thorlacius Höfundur er fv. rektor Mennta- skólans við Hamrahlíð. Um styttingu náms til stúdentsprófs og fleira, sem hangir á sömu spýtu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.