Morgunblaðið - 18.06.2015, Side 22

Morgunblaðið - 18.06.2015, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015 ✝ Rebekka HelgaGuðmann fæddist á Akureyri 22. desember 1928. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 8. júní 2015. Foreldrar henn- ar voru Jón Gísla- son Guðmann, f. 14.11. 1896, d. 3.9. 1958, og Guðlaug Ísaksdóttir Guð- mann, f. 9.3. 1899, d. 2.11. 1968. Bræður Rebekku eru Ísak, f. 16.12. 1927, og Gísli, f. 16.12. 1927, d. 9.6. 1980. Fóst- urbræður þeirra eru Kristján Ísak Valdimarsson, f. 26.9. 2011, og Elvar Þór Valdimars- son, f. 17.3. 1941, d. 29.8. 2011. Rebekka giftist 14.11. 1953 eft- irlifandi eiginmanni sínum, Hermanni Sigtryggssyni, f. 15.1. 1931. Dætur þeirra eru: 1) Anna Rebekka, f. 16.8. 1954, gift Björgvini Steindórssyni, f. 25.12. 1954. Börn þeirra eru: a) Birkir Hermann, f. 22.4. 1982, í sambúð með Ágústu Sveins- dóttur, f. 27.2. 1985. Dætur þeirra eru Freyja Dögg, f. 20.1. 2006, Kristjana Birta, f. 1.9. 2011, og Aníta Bríet, f. 3.9. 2013. b) María Björk, f. 2.9. 1986, í sambúð með Sverri Karli Ell- ertssyni, f. 8.10. 1986. 2) Edda, f. 28.9. 1960, gift Andrew Kerr, f. 17.3. 1959. Dóttir þeirra er Rebecca Elizabeth. Eftir einn vetur í Menntaskólanum á Akureyri fór Rebekka í Húsmæðraskól- ann á Akureyri og lauk þar prófi. Síðan fór hún til Kaup- mannahafnar og útskrifaðist þar sem sníða- og kjólameistari. Hún vann við saumaskap í fjöldamörg ár. Var ritari í Gler- árskóla, kenndi á saumavélar og gegndi ýmsum félagsmála- og trúnaðarstörfum, m.a. í Kvenfélaginu Hlíf, KA og ÍBA. Var í Inner Wheel og forseti eitt kjörtímabil. Útför Rebekku fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 18. júní 2015, kl. 13.30. Hún elskuleg móðir mín er dáin og lífið verður aldrei samt aftur en ég verð ævilega þakklát fyrir að hafa átt hana að í nær 55 ár. Mamma var alin upp við forréttindi sem ekki allir nutu af hennar kynslóð og kom úr stórri fjölskyldu sem var metnaðarfull og framsýn og þar var menntun í fyrirrúmi. Mamma fór ung til Kaup- mannahafnar og lærði þar hönn- un og kjólasaum sem hún starf- aði við til margra ára. Ein af fyrstu minningum mínum er þegar ég sat á saumaborðinu hjá henni, hlustaði á morgun- stund barnanna og var að tína títuprjóna úr flíkunum sem hún var að sauma. Fyrir henni var þetta eins og að drekka vatn og framleiðslan var glæsileg. Mamma var mikill dugnaðar- forkur og féll sjaldan verk úr hendi. Auk vinnu sá hún um heimilið með glæsibrag. Hún var húsmæðraskólagengin og kunni vel til verka sem kom sér vel þegar foreldrar mínir ráku Hótel Varðborg og það var hennar verk að sjá um veiting- arnar. Heima fyrir var hollur matur í fyrirrúmi og þótt hún sé þekktust fyrir hnallþórur og og hreint guðdómlegar sósur og súpur þá vorum við systur aldar upp á hafragraut og grænmeti. Pabbi átti það til að hringja heim og spyrja hvort hann gæti komið með gesti í mat og þó að oft væri fyrirvarinn lítill, þá var matarborðið hlaðið af kræsing- um þegar gestirnir mættu. Við systur lærðum fljótt að bera á borð og sinna gestum. Á heimilinu var gestkvæmt af ættingjum, vinum, félags og íþróttahópum og alltaf var pláss til að hola öllum niður. Það voru ófáar stundirnar sem mamma gaf í félagsmál bæjarins. Hún aðstoðaði pabba í sínu starfi og áhugamálum, hvort sem það var matargerð, undirbúningur viðburða, vélrit- un bæklinga eða bara að vera tilbúin heima með allt sem þurfti svo að hann gæti sinnt starfi sínu sem best. Ósjaldan var farangri, mat og dætrunum pakkað í bílinn og haldið af stað á íþróttaviðburði úti á land. Mamma hafði einstaklega skipulagshæfileika og kom miklu í verk, setti markið hátt og krafðist mikils af sér og sín- um sem ég hef síðan notið góðs af í lífinu þó stundum á yngri árum hafi mér fundist þetta allt óþarfa vesen. Þá sjaldan hún settist niður þá var hún með handavinnu, saumaði út, prjónaði og heklaði og það voru margar gjafirnar sem framleiddar voru seint á kvöldin. Mamma hafði mjög gaman af því að ferðast og var alltaf vel undirbúin og kynnti sér stað- hætti og sögu vel. Ég man eftir því þegar við vorum á ferðalagi um landið, þá sat hún með ferðahandbókina í kjöltunni og las fyrir okkur um alla merk- ustu staðina. Mamma fylgdist alltaf með fréttum og hún hlustaði mikið á Rás 1. Hún hafði gaman af klassískri tónlist en sem krakka fannst mér þetta stundum ótta- legt gól en viti menn, sem full- orðin veit ég fátt betra en að fara á tónleika. Ég verð mömmu alltaf þakk- lát fyrir að kenna mér til verka, vinna vel og vanda allt sem ég geri. Passa upp á fjármál og skulda engum neitt. Láta fjöl- skylduna ganga fyrir öllu, vera fróðleiksfús og áhugasöm um líðandi stundu og kunna að meta menningu og listir. Bless, elsku mamma, Guð verði með þér. Edda Hermannsdóttir. Þegar Rebekka Guðmann kom ásamt manni sínum Her- manni Sigtryggssyni fyrst á heimili okkar bjuggum við á Hólum í Hjaltadal. Þetta var um páska og eldri dóttir okkar var þá nýlega fædd og þau hjón voru á leið til Siglufjarðar þar sem Hermann átti erindi vegna vinnu sinnar. Þau lögðu þó lykkju á leið sína til þess að líta til okkar og til að færa barninu stærsta páskaegg sem komið hefur inn á okkar heimili. Þá þegar höfðu tekist lausleg kynni með okkur í gegnum Eddu dótt- ur þeirra en þessi höfðingsskap- ur og ræktarsemi kom okkur þó þægilega á óvart. Örlögin höguðu því svo til að við fluttum til Akureyrar þetta sama ár og bjuggum þar í tutt- ugu og eitt ár og leiðir okkar síðar hafa oft leitt okkur til Ak- ureyrar í margvíslegum erind- um. Við höfum ræktað samband okkar við Hermann og Rebekku og erum stolt af því að geta kall- að þau vini okkar, þótt nokkur aldursmunur sé á milli okkar. Heimili þeirra hefur ávallt stað- ið okkur opið og við höfum í ótal skipti notið gestrisni þeirra og reyndar síðan tekið þátt í stór- viðburðum í fjölskyldu hvor ann- arra. Hermann og Rebekka hafa verið okkur eins og náin kær fjölskylda, sem alltaf var gaman að hitta. Rebekka Guðmann var hús- móðir af gamla skólanum. Hún var glæsileg kona. Ávallt vel til höfð og mátti ekki vamm sitt vita. Hún bjó fjölskyldunni glæsilegt heimili og lagði sig fram um að taka vel á móti gest- um. Jafnvel þótt við kæmum óvænt og óviðbúið voru veislu- föng borin á borð og rætt af ákafa um helstu áhugamál og annað sem efst var á baugi þá stundina. Rebekka hafði kynnt sér margt og myndað sér sterk- ar skoðanir, sem hún lá ekkert á. Hún var mikil hannyrðakona enda lærður kjólameistari. Við þá grein stafaði hún á árum áð- ur og greip reyndar oft til þeirr- ar þekkingar, en eftir að við kynntumst henni vann hún lengst af á skrifstofu Glerár- skóla. Eftir að starfsferlinum lauk var hún að mestu heima við. Um allangt skeið hefur hún átt við vanheilsu að stríða og undir það síðasta varnaði mátt- leysi því að hún tæki að sér mik- il verkefni. Andleg heilsa hennar var þó óbuguð og hún stjórnaði heimili sínu af festu þótt orkan hefði dvínað. Síðustu vikurnar voru Re- bekku erfiðar og viðbúið að hún hafi verið orðin hvíldinni fegin. Rebekka er mörgum harmdauði og við í okkar fjölskyldu söknum vinar í stað. Af öðrum vanda- lausum ólöstuðum hefur enginn reynst okkur eins vel og Re- bekka Guðmann og við erum af- skaplega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Her- manni og dætrum þeirra Eddu og Önnu og fjölskyldum þeirra og öðrum ástvinum vottum við okkar dýpstu samúðar. Megi minningin um góða og merka konu leggja líkn með þraut. Pétur, Herdís, Heiðrún og Katrín. Rebekka Guðmann HINSTA KVEÐJA Elsku Rebekka langamma. Takk fyrir að vera alltaf svona góð við okkur systurnar. Á ösku- daginn komum við og sung- um fyrir þig, þá gafst þú okkur gott nammi. Vonum að þér líði vel á himnum og Guð passi þig. Við ætlum að passa langafa Hermann vel fyrir þig. Þínar litlu ömmustelpur, Freyja Dögg, Kristjana Birta og Aníta Bríet. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANDÍS JÓHANNSDÓTTIR frá Háafelli, Drangsnesi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Silfurtúni í Búðardal 10. júní 2015, verður jarðsungin frá Drangsneskapellu laugardaginn 20. júní kl. 12.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Björgunarsveitina Björg á Drangsnesi, reiknnr. 0316-26-265, kt. 711090-2079. . Haukur Torfason, Ása María Hauksdóttir, Pétur J. Óskarsson, Guðbjörg Hauksdóttir, Óskar A. Torfason. Grettir Engilberts- son, f. á Ísafirði 27. september 1948. Hann lést 1. júní 2015. Foreldrar hans eru Engilbert Sum- arliði Ingvarsson, f. 28. apríl 1927 í Unaðsdal, Snæ- fjallahr. N.-Ís. bóndi og bók- bindari á Tirðil- mýri í Snæfjallahr., síðar á Hólmavík og Ísafirði, og Krist- ín Ragnhildur Daníelsdóttir, f. 10. júní 1928 á Uppsölum, Súða- víkurhr., N.-Ís., hárgreiðslu- kona og húsfreyja á Tirðilmýri á Snæfjallaströnd, síðar á Hólmavík og Ísafirði. Systkini Grettis eru 1. Daníel, f. 19. des- ember 1950, 2. Ingvar, f. 20. október 1952, 3. Jón Hallfreð, f. 22. nóvember 1955, 4. Ólafur Jóhann, f. 6. september 1960, 5. Atli Viðar, f. 9. september 1961 og 6. Salbjörg, f. 30. júlí 1967. Kona Grettis er Eva Kristina Karlsson, f. 20. janúar 1945, kennari í Svíþjóð. For. John Karlsson, f. 22. september 1913, d. 14. nóvember 1989, raf- virki í Svíþjóð, og Maj-Liss Karlsson, f. 3. jan- úar 1921, d. 27 maí 2007. Synir þeirra eru 1) Sæmundur Jóhann Grettisson, f. 25. júlí 1973, 2) Einar Snorri Karlsson, f. 16. apríl 1981, og 3) Kolbeinn Ari Karlsson, f. 25. júní 1982. Grettir ólst upp á Tirðilmýri og gekk í Héraðs- skólann í Reykjanesi, Gagn- fræðaskólann á Ísafirði og lauk síðan stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri. Grettir stundaði nám í félagsfræði, fé- lagsmannfræði og hagsögu við Uppsalaháskóla og var með magistergráðu í uppeldis- og kennslufræði. Hann var kenn- ari um tíma við Menntaskólann á Ísafirði en lengst af íslensku- kennari í Svíþjóð. Grettir gaf út nokkrar bækur um móðurmál og sögu og stofnaði „Fjarskóla Langföruls“, fyrsta internet- skólann þar sem íslenska var kennd. Útför Grettis fer fram í Upp- sala í Svíþjóð í dag, 18. júní 2015. Lífsgleði er það fyrsta sem kemur í hugann þegar ég hugsa um Gretti bróður. Hann hafði smitandi hlátur og gerði óspart að gamni sínu með hnyttnum til- svörum og nýstárlegum hug- myndatengslum. Hann var óstöðvandi gleðigjafi og átti það til að grípa gítarinn og syngja fyrir mann af engu tilefni. Eitt sinn, um 1990, þegar þau Stína og strákarnir fengu að gista þegar þau komu til landsins og ég var að vaska upp, var Grettir allt í einu mættur inn í eldhús með gítarinn og kyrjaði syrpu af slögurum. Það var alltaf tilhlökkunarefni í einangruninni á Snæfjalla- strönd þegar von var á Gretti frá útlöndum. Hann bar jafnan með sér nýjabrum, hafði alltaf eitt- hvað spennandi meðferðis; skrýtna tónlist og myndlist eða Andrés Önd á sænsku. Það eru tólf ár á milli okkar og ég hafði ekki mikið af Gretti að segja svo ég muni fyrr en á ung- lingsaldri. Þá kom hann einu sinni yfir sumartímann með nýju vinkonu sinni, henni Stínu. Grett- ir var ekkert fyrir vélar en þau Stína voru samtaka í að láta hendur standa fram úr ermum í heyskapnum á Mýri sumarið 1972. Stína var líka að teikna og mála og var gaman að kynnast því hvernig listamenn bera sig að. Ári seinna, í brakandi þurrki, var hringt í sveitasímann frá Svíþjóð, Grettir var í símanum og sagði að sonur væri fæddur, sem fékk svo nafnið Sæmundur. Svo fluttu þau Stína heim ári seinna og ég fékk að gista hjá þeim á Ísafirði þar sem þau bjuggu og kenndu bæði við menntaskólann. Það var alltaf gaman að koma til þeirra og mik- ið skrafað um listir og menningu og allt milli himins og jarðar. Þau fluttu aftur út til Svíþjóðar eftir um fimm ára dvöl á Ísafirði og störfuðu bæði eftir það við kennslu í Uppsala og eignuðust tvo syni til viðbótar, Snorra og Kolbein. Við sáumst æ sjaldnar en við Grettir skrifuðumst eitt- hvað á, meðal annars um súrreal- isma sem hann sagði að væri eins og saltið í matargerð, hann yrði alltaf að vera með, en eintómur væri hann óætur. Grettir leit á sig sem afsprengi byltingarkynslóðarinnar frá 1968 og sagði að listin ætti að þjóna al- þýðunni. Hann hafði mikinn áhuga á sögu, einkum fornsögun- um, og hafði mikla frásagnar- gáfu, en þegar hann veiktist fyrir um tíu árum var sem ský drægi fyrir sólu. Hann hresstist þó við og síðustu árin komu þau Stína og strákarnir nokkrum sinnum til Íslands og er sérstaklega minn- isstæð fjölskylduhátíðin í Dalbæ á Snæfjallaströnd 2012 þar sem var sungið við varðeld og spjallað fram á nótt í gamla húsinu á Lyngholti. Það var svo síðasta haust sem í ljós kom að ekki yrði hægt að lækna meinið og það væri spurning um tíma. Það var því óvænt en ánægjulegt að fá að hitta Gretti aftur síðasta haust ásamt Stínu og Sæma þegar þau komu til landsins í stutt frí og við áttum góðar stundir saman. Elsku Stína, Sæmi, Snorri og Kolli, innilegar samúðarkveðjur frá okkur Gyðu og Dagbjarti. Ólafur Jóhann Engilbertsson. Fyrstu minningar mínar um Gretti eru frá Árbakka. Hann var elstur og sjö árum eldri en ég og átti því frekar samleið með eldri Grettir Engilbertsson ✝ Haraldur Ell-ingsen fæddist í Reykjavík 22. maí 1935. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut þann 9. júní 2015. Hann var sonur hjónanna Erlings Jóhannesar Ell- ingsen verkfræð- ings, f. 20. júlí 1905, og Elínar Haralz Ellingsen húsmóður, f. 7. apríl 1909. Haraldur var einkabarn þeirra hjóna. Hinn 6. janúar 1961 kvæntist Haraldur Ásbjörgu Ellingsen, f. Thorsteinsson, f. 13. nóvember 1937 í Vági á Suðurey í Fær- eyjum. Eignuðust þau fimm börn og 12 barnabörn og tvö barnabarnabörn: 1) Erling, f. 17. maí 1961. Börn hans eru Matt- hías, Sólrún, Haraldur Brimar og Carmen Ásbjörg. 2) María, f. 22. janúar 1964. Börn hennar eru Lára og Kristín. 3) Elín, f. 20 febrúar 1968. Börn hennar eru Ísold, Númi, Helena Stjarna og Eldur. 4) Erla Ellingsen Mag- ane, f. 22 apríl 1973. Maki: Sean Magane. Börn þeirra eru Isabella Sunneva og Liam Máni. 5) Örn, f. 22. apríl 1973. Maki: Dhvani Ellingsen. Haraldur var stúdent frá Mennta- skólanum í Reykja- vík 1955. Cand. oe- con. frá Háskóla Íslands 1961. Fram- haldsnám í tölfræði við Institute of Social Studies í Haag í Hollandi 1964. Störf: Starfsmaður tölfræði- og áætlanadeildar Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) í París 1964-65, hjá Efnahagsstofnuninni 1962-71, hjá hagrannsóknadeild Fram- kvæmdastofnunar ríkisins 1972- 74, hjá Þjóðhagsstofnun og Hag- stofunni frá 1974 til starfsloka. Félags- og trúnaðarstörf: Í stjórn verlsunarinnar O. Ell- ingsen hf., 1971-84. Fé- lagskjörinn endurskoðandi Tryggingar hf. 1980-84. Útför hans fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, 18. júní 2015, kl. 15. Elsku pabbi, þú varst einstak- ur maður og faðir. Það sem þú kenndir mér mest í lífinu var að vera heiðarleg, standa við orð mín, bera virðingu fyrir nátt- úrunni og öllu sem guð hefur skapað. Minningarnar eru margar og ég varðveiti þær vel. Þær bestu eru úr sumarbústaðnum okkar á Læk. Þar var mikil ró og friður og tími til að spjalla og vera sam- an. Þar kenndir þú mér að rækta grænmeti og tína jurtir, fræddir mig um andleg mál og sagðir mér ættarsögur. Þú varst af- skaplega fróður og ósjaldan varstu með bók í hendi. Þú stóðst þig vel sem fimm barna faðir og ástkær eiginmað- ur. Gekkst veginn fallega og ert mér góð fyrirmynd. Þú sagðir mér að náttúran væri með svör við öllu og þannig nálgaðist þú Guð. Megir þú hvíla í fegurð Guðs. Ég mun sakna þín sárt. Þín dóttir, Erla. Faðir minn var góður maður. Af Guðs náð var hann í þeirri að- stöðu að geta séð fyrir sér og stórri fjölskyldu sinni með því einu að vinna venjulega vinnu- viku. Hann sóttist aldrei eftir meiru og einbeitti sér þess í stað að andlegum áhugamálum og að vera góður við alla. Ég ólst upp við að þekkja Guð, sálina og end- urholdgun sem einfaldar stað- reyndir vegna sannfæringar hans. Sá grunnur gerði það mun auðveldara fyrir mig að taka upp fulla iðkun Krishna vitundar að- eins 17 ára. Á síðari árum þegar faðir minn stríddi við ýmis heilsuvandamál kvartaði hann aldrei eða lét fötlun sína valda öðrum óþægindum. Í lokin end- urtók hann oft orð Biblíunnar: „Þú uppskerð það sem þú sáir.“ Það var augljóst fyrir okkur sem hjá honum vorum að hann gerði einmitt það. Ég óska honum alls hins besta á ferðalagi sínu heim til Guðs. Örn Ellingsen. „Hvað langar þig til að vera í næsta lífi, pabbi minn?“ spurði ég þig fyrir skömmu. „Hunangsfluga“ svaraðir þú eftir stutta umhugsun, með prakkarasvip. Og það væri nú þér líkt að velja auðmjúkt og þjónandi hlut- verk, en líka skemmtilega einfalt Haraldur Ellingsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.