Morgunblaðið - 18.06.2015, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015
Í tilefni af stórafmælinu ætlar Kristján á Hróarskelduhátíðinaásamt félaga sínum, tónlistarspekingnum Agli Harðarsyni. Þeirhafa notið saman Iceland Airwaves í tug skipta en í ár gera þeir
sér afmælisdagamun og skella sér á Hróarskeldu þar sem þeir eru
báðir fertugir á árinu. Af þekktum atriðum þar eru Die Antwoord og
Einstürzende Neubauten efst á lista en stór hluti upplifuninnar er að
uppgötva eitthvað nýtt og sjúga í sig stemninguna.
Kristján Gunnarsson er viðskiptastjóri og annar eigenda vefhönn-
unarfyrirtækisins Kosmos og Kaos. Hann er fæddur á Akranesi árið
1975 en ólst upp í Kaupmannahöfn. Fluttist svo aftur til landsins tíu
ára, þegar rimma hljómsveitanna Duran Duran og Wham var sem
harðvítugust, þó að hann taki fram að sjálfur hafi hann hlustað á Kiss.
Kristján stundaði nám í tölvunar- og sameindalíffræði við Háskólann í
Hróarskeldu og hélt þaðan til Íslenskrar erfðagreiningar árið 2005,
þar sem hann vann sem framleiðslustjóri á rannsóknarstofu í tæp tvö
ár. Það var ekki fyrr en þá sem leið hans lá inn í heim vefmiðlunar,
þegar hann hóf störf hjá EC Software, þar sem hann kynntist meðeig-
anda sínum hjá Kosmos og Kaos, Guðmundi Bjarna Sigurðssyni, en
þeir stofnuðu fyrirtækið saman árið 2010 þar sem nú starfa 15 manns.
Kristján er giftur Sólbjörgu Hlöðversdóttur, en þau giftust árið
2004 eftir 20 ára prufukeyrslu. Þau eiga saman tvo syni: Bjart, 19 ára,
og Ara Kaprasíus, 13 ára.
Ljósmynd/Kristján Gunnarsson
Fertugur Kristján Gunnarsson er annar eigenda Kosmos & Kaos.
Tveir fertugir
á Hróarskeldu
Kristján Gunnarsson fertugur í dag
G
uðjón fæddist í Vest-
mannaeyjum 18.6. 1955
og ólst þar upp í Aust-
urbænum. „Leiksvæði
okkar strákanna voru
túnin austur frá bæjum, frá Suð-
urvegi til Tobba á Kirkjubæ. Þar
spörkuðum við bolta frá morgni til
kvölds en fótboltavöllurinn okkar og
önnur leiksvæði fór undir hraun.
Þetta voru skemmtilegir leikfélagar
og verst hvað hópurinn tvístraðist í
Gosinu.“
Guðjón hefur alla tíð búið í Eyjum
að undanskildu gosárinu: „En leiðin
lá aftur heim til Eyja við fyrsta
tækifæri. Fyrsta hemilið í Eyjum
eftir gos var í félagsheimili bæj-
arins. Þar gistum við frændur, ég og
Árni Sigfússon, og tókum að okkur
húsvörslu. Ég vissi að foreldrar
mínir kæmu fljótlega heim sem og
varð raunin.“
Guðjón vann í fiski á sumrin og
fór með föður sínum og bræðrum,
ásamt öðrum Elliðaeyingum, til
lundaveiða í Elliðaey: „Það var
himneskt að fá að taka þátt í kvöld-
vökunum með þeim Oddsstaða-
bræðrum og öðrum Elliðaeyingum.“
Guðjón var í Barnaskóla Vest-
mannaeyja og í Gagnfræðaskól-
anum. Hann hóf störf hjá Verslun
Gunnars Ólafssonar & Co. hf.,
Tanganum, og starfaði þar 1973-75.
Síðar lauk hann iðnskólaprófi,
pungaprófi og meiraprófi í Eyjum
1974-75.
Guðjón starfaði hjá Sparisjóði
Vestmannaeyja 1975-90 og var þar
gjaldkeri, skrifstofustjóri og loks
aðstoðarsparisjóðsstjóri. Hann var
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
1990-2002, útibússtjóri Sjóvár Al-
mennra hf. í Vestmannaeyjum 2002-
2003, alþingismaður 2003-2007 og
hefur síðan verið fasteignasali og
umboðsmaður Varðar trygginga og
Happdrættis HÍ í Eyjum.
Guðjón var forseti bæjarstjórnar
2002-2003, formaður stjórnar Líf-
eyrissjóðs starfsmanna Vest-
mannaeyjabæjar, stjórnar Bæjar-
veitna Vestmannaeyja 1990-2002,
hafnarstjórnar Vestmannaeyja
2000-2002, samninganefndar Vest-
mannaeyjabæjar, almannavarnar-
nefndar Vestmanneyja 1990-2002,
sat í stjórn Hitaveitu Suðurnesja
2002-2003, sat í VES þingnefnd Al-
þings 2004-2007, þar af formaður frá
2005, formaður sjávarútvegsnefndar
Alþingis 2004-2007 og Samgöngu-
nefndar í eitt ár og sat í mennta-
Guðjón Hjörleifsson, fv. bæjarstjóri og alþingismaður – 60 ára
Sumarfrí Guðjón og Rósa með vinafólki, Höllu og Óla Einars, í Mexíkó, er þau sigldu um Karabíska hafið.
Eyjapeyi fyrst og fremst
Hjónin Guðjón og Rósa Elísabet.
Hafnarfjörður Konráð Viktor
Gestsson fæddist 18. júní 2015 kl.
9.20. Hann vó 3.692 g og var 51,5
cm langur. Foreldrar hans eru
Alexandra E.V. Guðmundsdóttir
og Gestur Baldursson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
LOKSINS
ER KOMIN GÓÐ ÁSTÆÐA
TIL AÐ GRILLA
Alvöru grillsósur sem gera gott betra.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.