Morgunblaðið - 18.06.2015, Qupperneq 27
málanefnd og félagsmálanefnd.
Guðjón sat í miðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins, var formaður Sjálfstæð-
isfélags Vestmannaeyja, formaður
fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í
Eyjum 2014, Eyverja, FUS, nem-
endafélags Gagnfræðaskólans, Ung-
templarafélagsins Flakkarins á gos-
árunum, Akóges árið 2010,
stjórnarmaður í Stafkirkjunefnd-
inni, sat í sóknarnefnd Landakirkju,
var stjórnarmaður í Íþróttafélaginu
Þór, Bridgefélagi Vestmannaeyja,
Veiðifélagi Elliðaeyinga og var með-
limur í Hrekkjalómafélaginu þegar
það var og hét. Hann hlaut gull-
merki Eyverja og silfurmerki ÍBV.
Helsta áhugamál Guðjóns felst í
því að finna meiri tíma með fjöl-
skyldunni. Hann er mjög virkur í fé-
laginu Akóges og hefur gaman af að
fylgjast með pólitíkinni af hliðarlín-
unni. Auk þess spilar hann golf þeg-
ar tími gest til. Síðast en ekki síst
eru öll málefni Vestmannaeyja-
bæjar og Eyjamanna honum hug-
leikin.
Fjölskylda
Eiginkona Guðjóns er Rósa Elísa-
bet Guðjónsdóttir, f. 26.7. 1959,
stuðningsfulltrúi í Grunnskóla Vest-
mannaeyja. Foreldrar hennar eru
Erna Tómasdóttir, f. 29.12. 1937,
húsfreyja, og Guðjón Stefánsson, f.
7.1. 1936, húsasmiður. Þau búa í
Vestmannaeyjum.
Börn Guðjóns og Rósu Elísabetar
eru Sæþór Orri, f. 27.11. 1979, fram-
kvæmdastjóri í Vestmannaeyjum en
kona hans er Karen Inga Ólafs-
dóttir, íþróttafræðingur og fram-
kvæmdastjóri og eru börn þeirra
Birta Sól, f. 2001, Lúkas Orri, f.
2005, og Alex Ingi, f. 2007; Silja Rós,
f. 24.7. 1987, félagsráðgjafi í Eyjum
en sambýlismaður hennar er Gústaf
Kristjánsson sjómaður og er sonur
þeirra Guðjón Elí, f. 2009; Sara
Dögg, f. 9.12. 1990, innanhús-
arkitekt og stílisti hjá versluninni
ZARA en sambýlismaður hennar er
Hjálmar Ragnar Agnarsson lækna-
nemi, og Sindri Freyr, f. 21.7. 1994,
háskólanemi og trúbador í Eyjum.
Systkini Guðjóns eru Lilja Dóra,
f. 7.10. 1947, húsfreyja í Hafnarfirði;
Guðmunda, f. 23.4. 1949, fram-
kvæmdastjóri í Vesmannaeyjum;
Guðni, f. 8.11. 1957, netagerðar-
meistari í Eyjum; Halldór, f. 9.11.
1960, húsasmíðameistari í Eyjum;
Sigrún, f. 25.8. 1962, ræstitæknir í
Eyjum; Jónína Björk, f. 24.5. 1966,
sjúkarliði í Eyjum.
Foreldrar Gujóns: Inga Jóhanna
Halldórsdóttir, f. 30.11. 1927, fv.
saumakona í Vestmanneyjum, og
Hjörleifur Guðnason, f. 5.6. 1925, d.
13.6. 2007, múrarameistari.
Guðjón og Rósa kona hans taka á
móti gestum í tilefni þessara tíma-
móta, föstudaginn 19. júní nk. frá kl.
20.30 í Akóges
Úr frændgarði Guðjóns Hjörleifssonar
Guðjón
Hjörleifsson
Jónína G. Þorsteinsdóttir
húsfr. á Krossi
Víglundur Þorgrímsson
útgerðarb. á Krossi
Lilja Víglundsdóttir
húsfr. í Neskaupstað
Halldór Jóhannsson
trésmíðam. í Neskaupstað
Inga J. Halldórsdóttir
saumakona í Eyjum
Katrín Gísladóttir
húsfr. á Krossi
Jóhann Marteinsson
b. á Krossi í Mjóafirði
Vilborg Einarsdóttir
húsfr. á Þrándarstöðum
Grímur Þorsteinsson
b. á Þrándarstöðum í Eiðasókn
Halldóra Grímsdóttir
húsfr. á Seyðisf. Fósturmóðir:
Guðrún Grímsdóttir húsfr. í Eyjum
Guðni Sigmundsson
verkam. á Seyðisf. Fóstur-
faðir hans: Guðjón Jónsson
smiður í Eyjum
Hjörleifur Guðnason
múrarameistari í Eyjum
Hólmfríður Guðnadóttir
húsfr. á Engilæk
Sigmundur
Sigmundsson
b. á Engilæk í
Hjaltastaðaþinghá
Pétur
Guðjónsson
sjómaður
Ósk Pétursdóttir
húsfr. á
Raufarhöfn
Pétur
Björnsson
athafnamaður
Hólmfríður
Guðnadóttir
húsfr. á Ak.
Guðni Jónsson
múraram. á Ak.
Birkir Hólm
Guðnason
framkv.stj.
Icelandair
Sigrún Þórhildur
Guðnadóttir
húsfr. í Eyjum
Guðni Þórarinn
Guðmundsson
organisti frá Landlyst
Margrét Grímsdóttir
húsfr. í Neskaupstað
Guðný Pálsdóttir
húsfr. á Reyðarfirði
Kjartan Sveinsson
byggingatæknifr.
Þorsteinn Þ.
Víglundsson
skólastj. og
sparisjóðsstj.
í Eyjum
Kristín S.
Þorsteinsdóttir
húsfr. í Garðabæ
Árni Sigfússon
fyrrv. bæjarstj. í
Reykjanesbæ
Þorsteinn Ingi Sigfússon
prófessor við HÍ
Gylfi Sigfússon
forstj. Eimskips
Þór Sigfússon
hagfr.
Sólveig
Gísladóttir
húsfr. í
Neskaupst.
Dagbjört
Sigurðard.
húsfr. í
Neskaupst.
Þórunn
Lárusdóttir
húsfr. í
Neskaupst.
Lárus
Sveinsson
trompetl.
og kórstj.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015
Alfreð J. Jolson, biskup kaþ-ólsku kirkjunnar á Íslandi,fæddist 18.6. 1928 í Bridge-
port í Connecticut í Bandaríkjunum.
Foreldrar hans voru Alfred Jolson,
sem rak vélaverkstæði í Fairfield í
Connecticut, og Justine, af írskum
ættum, dóttir John Houlihan, hót-
elhaldara og ríkisþingmanns í New-
ton í Connecticut, og Catherine.
Móðir Alfreds var Karolina
Amundsen, frá Kristiansand í Nor-
egi. Faðir Alfreds, afi Alfreðs Jols-
son, var Guðmundur Hjaltason, f.
1872, bakari á Ísafirði, sem starfaði
m.a. sem kolakyndari og bakari í
Bridgeport. Meðal skyldfólks Al-
freðs er Rósa Ingólfsdóttir og Leifur
Dungal læknir.
Alfreð gekk í reglu jesúíta árið
1946. Hann lauk guðfræðiprófi frá
Weston College í Boston 1958 og
vígðist til prests 14.6. 1958. Auk þess
lauk Alfreð licenciatsprófi frá We-
ston College 1959, MBA-prófi í við-
skiptafræði frá Harvard 1962 og
doktorsprófi í heimspeki og fé-
lagsfræði frá Gregorian-háskólanum
í Róm 1970. Doktorsritgerð hans
fjallaði um rannsóknir á hlutverki
presta og þeim hindrunum sem
koma í veg fyrir köllun til prests-
starfa.
Alfreð starfaði víða um heim við
háskólakennslu, meðal annars við
Al-Hikma háskólann í Bagdad, Bost-
on College of Business Admin-
istration og Háskólann í Harare í
Simbabve, en þá hét sú borg Sal-
isbury og landið Ródesía. Einnig
kenndi hann við Saint Josefs-
háskólann í Fíladelfíu og var aðstoð-
arrektor og yfirmaður
viðskiptafræðideildarinnar í Wheel-
ing Jesuit College í Vestur-Virginíu
frá 1986.
Alfreð var vígður Reykjavíkur-
biskup í Dómkirkju Krists konungs í
Reykjavík 6. og 7. febrúar 1988.
Alfreð biskup var góður ræðu-
maður, heimsmaður og sannur
menntamaður. Þeir sem til hans
þekktu sögðu hann einstaklega
hlýjan með sterka nærveru. Hann
var jafnan alþýðlegur og félags-
lyndur.
Alfreð lést 21.3. 1994.
Merkir Íslendingar
Alfreð J.
Jolson
85 ára
Aðalheiður Kristjánsdóttir
Alda Hoffritz
Ástþór Yngvi Einarsson
Bjarnheiður
Sigmundsdóttir
Guðmundur Ívarsson
80 ára
Freygerður Svavarsdóttir
Friðgeir Sigurgeirsson
Helga Jónsdóttir
Kristbjörg Þ. Kjeld
Kristín Hróbjartsdóttir
Þorvarður Gústafsson
75 ára
Hreiðar Sigurðsson
Sigrún Ólafsdóttir
Sigursveinn Friðriksson
70 ára
Haraldur Erlendsson
Kjartan Reynir Ólafsson
Margrét P. Magnúsdóttir
Sigríður Karlsdóttir
60 ára
Ásdís Birna Ottesen
Birgir Ingibergsson
Brynjar Hólm Bjarnason
Diego Björn Valencia
Elísa Jóhanna Stefánsdóttir
Guðrún Indriðadóttir
Janina Kojder
Kristín B. Torfadóttir
Matthías Kjartansson
Sigríður B. Magnúsdóttir
Sigrún Kjartansdóttir
Valgerður K. Olgeirsdóttir
50 ára
Aðalheiður Ó. Þorleifsdóttir
Algis Gasparaitis
Ásthildur E.
Guðmundsdóttir
Eggert Rúnar Birgisson
Elfar Úlfarsson
Guðrún Grímsdóttir
Halldór Halldórsson
Helgi Heiðar Helgason
Inga Kjartansdóttir
Kristbjörg Arnarsdóttir
Leifur Ó. Hákonarson
Marek Bajda
Ósk R. Guðmundsdóttir
Ragnar E.A. Finnbogason
Ríkarður Már Ríkarðsson
Sasithorn Phanngam
Sigríður Melrós Ólafsdóttir
Sigurbjörg Viðarsdóttir
Valgerður Þóra Elvarsdóttir
40 ára
Bjarni Breiðfjörð Pétursson
Björn Hreiðar Björnsson
Blerim Morina
Damian Karol
Klobassa-Zrencki
Guðfinna K. Einarsdóttir
Heiðrún Bergsdóttir
Helga S. Valdimarsdóttir
Hildur Bjargmundsdóttir
Hildur Sveinsdóttir
Hilmar Þór Pálsson
Íris Erla Sigurðardóttir
Kristján Gunnarsson
Piotr Ryniec
Reynir Jónasson
Sigrún Hermannsdóttir
30 ára
Aldís Ólöf Júlíusdóttir
Aron Örn Óskarsson
Ásdís D. Þorsteinsdóttir
Davíð Þór Þorsteinsson
Eiríkur Oddsson
Gautur Ingi Ingimarsson
Helga Hilmarsdóttir
Inga Hanna Gísladóttir
Krzysztof Demko
Louie Abonitalla
Megan Lamont
Tobiasz Stasinski
Til hamingju með daginn
30 ára Jenný ólst upp í
Reykjavík og Laugum í
Þingeyjarsýslu. Lauk
prófi í leiklist og leik-
stjórn frá KADA árið
2012.
Maki: Björn Grétar Bald-
ursson, f. 1992, nemandi
í tómstunda- og félags-
málafræði hjá HÍ.
Foreldrar: Arnór
Benónýsson, f. 1954,
menntaskólakennari og
Súsanna Svavarsdóttir, f.
1953, blaðamaður og rit-
höfundur.
Jenný Lára
Arnórsdóttir
30 ára Hera ólst upp á
Sauðárkróki, lauk prófi í
læknisfræði frá HÍ.
Maki: Halldór Jón Sig-
urðsson., f. 1983, knatt-
spyrnuþjálfari og íþrótta-
kennari.
Börn: Hrafnhildur Kara
Halldórsdóttir, f. 2010, og
Hilmar Rafn Halldórsson,
f. 2015.
Foreldrar: Birgir Rafn
Rafnsson, f. 1960, banka-
maður og Hrafnhildur
Pétursdóttir, f. 1962,
sjúkraliði.
Hera
Birgisdóttir
30 ára Guðrún ólst upp í
Grindavík og býr í Kópa-
vogi í dag. Lauk námi í
tækniteiknun frá Iðnskól-
anum í Hafnarfirði 2011
og starfar sem innanhús-
hönnuður í IKEA.
Maki: Guðmundur Ingvi
Einarsson, f. 1981. starfar
sem markaðsfræðingur.
Foreldrar: Dagmar
Elvarsdóttir, f. 1963, vinn-
ur hjá Icelandair, og Hall-
dór Einir Smárason, f.
1963, framkvæmdastjóri
Golfklúbbs Grindavíkur.
Guðrún
Halldórsdóttir
Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
S KÁPATI LB OÐ
Verð58.900,-m. vsk.