Morgunblaðið - 18.06.2015, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 18.06.2015, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015 Margt verður um manninn á Hjalteyri um helgina en þar verður dagskrá í og við Verksmiðjuna í tengslum við sýninguna Að bjarga heiminum. Í tilkynningu segir að dagskráin samanstandi af gjörningum, fyrirlestrum, tónlist, ljóðlist, umræðum, dansi og söng. Meðal þeirra sem koma fram eru Anna Richardsdóttir, Jón Laxdal Hall- dórsson, Arna Valsdóttir og Sigríður Ásný Ketilsdóttir. Hátíðahöldin hefjast á laugardaginn klukkan tvö með setningu Snorra Finns- sonar, sveitarstjóra Hörgársveitar. Á sunnudaginn byrjar dagurinn klukkan 10.30 með vakningu Sigríðar Sólarljóss en eftir það má finna pallborðsumræður um Að bjarga heiminum undir leiðsögn félaga úr Félagi áhugamanna um heimspeki á Akureyri. Lýkur dagskránni um fimmleytið. Sýningarstjóri er myndlistamaðurinn Aðalsteinn Þórsson. Fyrirlestrar, dans og söngur í Verksmiðjunni á Hjalteyri Anna Richardsdóttir Kosningaafmælis- og Jónsmessuhátíð verð- ur haldin á Seltjarnarnesi 19. júní næst- komandi en þá mun leikkonan og rithöf- undurinn Sólveig Pálsdóttir stýra gönguferð um Seltjarnarnesið. Í leiðangr- inum sameinast hin árvissa Jónsmessu- ganga Seltirninga og hátíðahöld í tilefni af því að 19. júní 2015 eru 100 ár liðin frá því að íslenskar konur fengu fyrst kosninga- rétt til Alþingis. Gangan hefst inni í Mýrarhúsaskóla klukkan 12.45 með léttum veitingum sem fylgt verður eftir með ræðuhöldum og fleiru skemmtilegu. Dætur munu segja frá mæðrum sínum sem syntu gegn straumnum í leitinni að jafnrétti og hulunni svipt af óþekktum baráttumálum í nútímasamfélagi, eins og segir í tilkynningu. Gangan er í samstarfi við framkvæmdanefnd um 100 ára af- mæli kosningaréttar kvenna. Gengið um Seltjarnarnes í tilefni kosningaafmælis og Jónsmessu Sólveig Pálsdóttir Tónleikar Will Carruthers, How can you re- move the absence of a thing?, verða haldnir á Boston Reykjavík, Laugavegi 28b, í kvöld klukkan 21. Um er að ræða fyrstu tónleika í nýrri tónleikaröð, microgroove sessions, á Boston Reykjavík. Carruthers er breskur og er hann helst þekktur sem bassaleikari hljómsveitanna Spacemen 3, Spiritualized, The Brian Jonestown Massacre, Spectrum og Dead Skeletons en hann hefur auk þess fengist við ritstörf og gaf meðal annars ný- lega út bókina Book of Jobs. Í tilkynningu segir meðal annars að í tónlist Carruthers mæti gömul þjóðlagahefð kyndugum melódíum sem sprottnar eru upp úr því eyðilandi sem hnignun iðnaðarsamfélaganna skapaði í upplöndum, eða miðhéruðum, Bretlands. Micro- groove-kvöldin eru samstarfsverkefni Boston Reykjavík, Konsúlatsins og Ölgerðarinnar. Will Carruthers með tónleika á Boston Reykjavík í kvöld Will Carruthers Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Listin hermir eftir lífinu og lífið hermir eftir listinni þangað til enginn veit lengur hvort er hvað,“ segir píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson en hann er listrænn stjórnandi tón- listarhátíðarinnar Reykjavík Midsummer Mu- sic sem verður haldin í fjórða sinn í Hörpu og nágrenni dagana 18. til 21. júní. Hátíðin hefur fyrir löngu skipað sér sess sem einn áhuga- verðasti viðburður tónleikaársins og hefur hún meðal annars unnið til Íslensku tónlistar- verðlaunanna. Eftirhermur í fyrirrúmi „Hátíðin að þessu sinni er ólík því sem áður hefur verið að því leytinu að það hverfist allt um þemað með afgerandi en ólíkum hætti. Hún hefur því sérstakan lit,“ segir Víkingur Heiðar en þema hátíðarinnar í ár er Imitation og eftirhermur úr ýmsum áttum. Meðal ann- ars verður leikin tónlist eftir Bach, Stra- vinsky, Schnittke, Crumb og Adams, auk þess sem spunameistararnir Skúli Sverrisson og Davíð Þór Jónsson spinna sinn glóandi þráð í gegnum alla hátíðina eins og segir í tilkynn- ingu. „Það er hægt að framkvæma eftirhermur í tónlist á mjög skemmtilegan hátt. Á opn- unartónleikunum er ég með tónskáld frá öll- um tímum sem hafa verið að herma eftir nátt- úrunni. Þar má nefna fuglasöng frá barokkinu og hvalasöng frá áttunda áratugn- um eftir George Crumb. Það er verk fyrir uppmagnaða flautu, selló og píanó. Brjál- æðislega fallegt. Við erum einnig með verk sem líkir eftir síðustu stundunum í lífi mosk- ítóflugu,“ segir Víkingur Heiðar um fjöl- breytta dagskrána. „Á föstudeginum munum við flakka svolítið á milli stíla. Við verðum með kvintett þar sem Skúli Sverrisson er á rafmagnsbassa, Davíð Þór Jónsson og ég á allskonar hljómborðs- hljóðfæri og flygla, Kristinn Árnason á raf- magnsgítar og Pétur Grétarsson á trommu- sett. Við munum taka verkið Myndir á sýningu sem er eitt glæsilegasta píanóverk rómantíska tímans. Í því verki hermir höf- undur verksins, Modest Mussorgsky, eftir göngu sinni á myndlistarsýningu vinar síns. Í kringum árið 1970 gerði breska rokkgrúppan Emerson, Lake & Palmer sína eigin útgáfu af verkinu. Við munum núna herma eftir þeirri útgáfu með okkar sérstaka flutningi. Þarna er því um margliða eftirhermu að ræða. Við er- um að herma eftir Emerson, Lake & Palmer sem voru að herma eftir Mussorgsky sem hermdi eftir göngu sinni um myndlistarsýn- inguna. Imitation er einnig yfirheiti spuna- verks sem verður í Hallgrímskirkju á laug- ardaginn klukkan þrjú. Þar mun Davíð Þór spila í fyrsta sinn á Klais-orgelið volduga og Skúli Sverris verður í hinum enda kirkjunnar með bassann. Það að stilla þessu risaorgeli svona andspænis rafmagnsbassa í hinum enda kirkjunnar verður eflaust eins og nokk- urs konar samtal á milli Davíðs og Golíats,“ segir Víkingur Heiðar kíminn. Fiðla Napóleons í Hörpu Alls munu fjórtán listamenn vega þyngst á hátíðinni í ár, þar af sex erlendir. Víkingur kveður alla listamennina afar hæfileikaríka og segir hann eina af grunnhugmyndum hátíð- arinnar einmitt að koma með heimsþekkta sólóista til landsins til að leika með íslenskum hljóðfæraleikurum. „Ég hugsa þetta svolítið sem stefnumót á milli þess skemmtilegasta á Íslandi og úti. Við getum tekið Sayöku Shoji sem dæmi. Hún er japanskur fiðluleikari sem er einfaldlega einn besti fiðluleikari okkar tíma leyfi ég mér að fullyrða. Hún kemur hingað með Stradiv- arius-fiðlu sem er var eitt sinn í eigu Napóle- ons Bonaparte. Hún er engu lík. Svo fáum við yfirburðaeinleikara frá Skandinavíu og Arme- níu og flottan víólueinleikara frá Þýskalandi,“ segir Víkingur Heiðar og kveður jafnframt hið klassíska tónlistarlíf á Íslandi í uppsveiflu. „Ég held að það hafi aldrei jafn margir sótt í klassíska tónleika hér á landi og um þessar mundir. Það er magnað að fylgjast með því og sérstaklega með tilkomu Hörpu, hún gerir mér kleift að halda þessa hátíð. Það væri ekki hægt að bjóða listamönnunum sem koma á hátíðina upp á annað en kjöraðstæður til þess að vinna. Hvað hátíðina varðar, þá er hún að sjálfsögðu klassísk í eðli sínu. Ég vil þó meina að þetta sé fyrst og fremst tónlistarhátíð, ég vil ekki að fólk hugsi um hana sem klassíska, djass- eða strengjahátíð. Ég vil að fólk komi með opinn hug og sé tilbúið að opna eyrun fyrir verkum sem það hefði fyrirfram ekki endilega talið að væru þess tebolli. Það er til dæmis ofboðslega gaman að vera með strengjakvartetta, glæsilegt fiðlu- og selló- verk fyrir hlé og fara síðan yfir í prógressíft rokk í síðari hálfleik,“ segir hann og bætir við að ýmislegt verði prófað í fyrsta skipti á há- tíðinni. „Við munum til að mynda í fyrsta skipti vera með einskonar hátíðarpassa á tíu þúsund krónur fyrir tíu tónleika sem allir eru í heimsklassa. Ég hugsa um hátíðina sem heild. Það skiptir mig máli að þeir sem koma á há- tíðina til þess að sjá stóru kammerverkin eða Stradivarius-leikinn komi líka í Hallgríms- kirkju og heyri Davíð Þór spinna á orgelið, og öfugt,“ segir Víkingur Heiðar að lokum. Samtal á milli Davíðs og Golíats  Tónlistarhátíðin Reykjavík Midsummer Music verður haldin í fjórða sinn 18. til 21. júní í Hörpu  Þema hátíðarinnar að þessu sinni er eftirhermur og verða þeim gerð skil með fjölbreyttu móti Morgunblaðið/Eggert Eftirhermur „Á opnunartónleikunum er ég með tónskáld frá öllum tímum sem hafa verið að herma eftir náttúrunni. Þar má nefna fuglasöng frá barokkinu og hvalasöng frá áttunda áratugnum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.