Morgunblaðið - 18.06.2015, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Youth Philharmonic Orchestra
(YPO), aðalhljómsveit New Eng-
land Conservatory, heldur tvenna
tónleika á Íslandi í júní og verður
aðgangur ókeypis á tónleikana.
Tónleikarnir fara annars vegar
fram í Hamraborgarsal í Hofi á
Akureyri þann 21. júní klukkan
16:00 og hins vegar í Eldborgarsal
Hörpu 28. júní klukkan 17:00.
Hljómsveitin sem samanstendur af
níutíu tónlistarnemum frá öllum
heimshornum rekur sögu sína allt
til ársins 1962 og hefur síðan þjálf-
að ungt afburðarfólk í klassískri
tónlist.
Ari Þór Vilhjálmsson, fiðluleik-
ari, mun spila með hljómsveitinni
en hann hefur starfað með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands frá árinu 2006
sem leiðari annarrar fiðlu og leikur
einleik á tónleikunum með YPO.
„Ég stundaði nám við New Eng-
land Conservatory og var þess
vegna beðinn um að spila með
hljómsveitinni á tónleikaferðalagi
hennar hér á landi,“ segir Ari sem
gegndi leiðandi stöðu í hljómsveit-
Poème í einleik
fyrrum nemanda
Sænskir spennusagnahöf-undar hafa úr nógu að moðaenda virðast erfiðleikarnirvera á hverju horni í Sví-
þjóð. Glæpasagan Skuggadrengur
ber þess merki, en í henni beinir höf-
undur athyglinni
fyrst og fremst að
vandamálum sem
fylgja andstæðum
eins og auði og fá-
tækt, mismunandi
litarhætti manna,
mismunandi trúar-
brögðum, for-
dómum af ýmsu
tagi, fíkn, hefnd og
síðast en ekki síst togstreitu og bar-
áttu í fjölskyldum.
Sagan hefst 1970, þegar Kristófer,
sjö ára gamall drengur á ferð með
föður sínum og yngri bróður, hverf-
ur skyndilega á lestarstöð í Stokk-
hólmi. 2012 hverf-
ur Jóel, yngri
bróðirinn, og eig-
inkonan fær
Danny Katz til
þess að hafa uppi
á honum, vegna
þess að eiginmað-
urinn hafði áður
nefnt hann á nafn
í sambandi við
traust. Í gang fer
hröð atburðarás, þar sem einskis er
svifist og ekki er gerður grein-
armunur á sekum og saklausum í því
efni.
Snemma kemur í ljós hver helsti
vandinn er. Tengsl á réttum stöðum
auðvelda að leysa gátuna en sam-
bönd verða einnig til þess að gera
fólki erfiðara fyrir. Hliðarspor eru
geymd en ekki gleymd.
Skuggadrengur er ágætis af-
þreying og fljótlesin. Netið teygir
sig víða en fljótlega er gefið til
kynna hvar skórinn kreppir og eftir
það er þetta ekki spurning um hverj-
ir eiga helst hlut að máli heldur
hvernig eigi að leysa málið.
Samfara framgangi við lausn gát-
unnar lýsir Carl-Johan Vallgren
helstu persónum vel, tengingum og
vandamálum sem þær eiga við að
stríða. Fléttan er góð en samt er
stundum farið frekar hratt yfir sögu.
Spennusaga
Skuggadrengur bbbmn
Eftir Carl-Johan Valgren.
Þórdís Gísladóttir þýddi. Bjartur, 2015.
Kilja, 359 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Hliðarspor geymd
en ekki gleymd
Carl-Johan
Valgren
Chadwick: Symphonic Sketc-
hes; 1. Jubilee
Gandolfi: The Garden of Cosmic
Speculation; The Zeroroom og
Soliton Waves
Chausson: Poème fyrir fiðlu og
hljómsveit, op. 25
Rimsky-Korsakov: Scheher-
azade
Hljómsveitarstjóri: David Loebel
Einleikari: Ari Vilhjálmsson
Einleikari í Scheherazade:
Christine Hong, konsertmeistari
Dagskrá
tónleikanna
EFNISSKRÁ YOUTH PHIL-
HARMONIC ORCHESTRA
Jurassic World 12
Á eyjunni Isla Nublar hefur
nú verið opnaður nýr garður,
Jurassic World. Viðskiptin
ganga vel þangað til að ný-
ræktuð risaeðlutegund ógn-
ar lífi fleiri hundruð manna.
Metacritic 59/100
IMDB 7,6/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00,
22.35
Sambíóin Álfabakka 17.20,
17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00, 22.35
Smárabíó 17.15, 17.15,
20.00, 20.00, 22.40, 22.40
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.40,
20.00
Tomorrowland 12
Metacritic 60/100
IMDB 6,9/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
20.00
Sambíóin Akureyri 17.30
Spy 12
Susan Cooper í greining-
ardeild CIA er í rauninni hug-
myndasmiður hættulegustu
verkefna stofnunarinnar.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 84/100
IMDB 7,4/10
Laugarásbíó 22.00
Smárabíó 17.30, 20.00,
22.30
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 22.20
Mad Max:
Fury Road 16
Eftir að heimurinn hefur
gengið í gegnum mikla eyði-
leggingu er hið mannlega
ekki lengur mannlegt. Í
þessu umhverfi býr Max, fá-
máll og fáskiptinn bardaga-
maður.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 88/100
IMDB 9,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Sambíóin Egilshöll 22.30
Sambíóin Akureyri 22.30
San Andreas 12
Jarðskjálfti ríður yfir Kali-
forníu og þarf þyrluflug-
maðurinn Ray að bjarga
dóttur sinni.
Metacritic 43/100
IMDB 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.10
Sambíóin Kringlunni 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00
Avengers: Age of
Ultron 12
Þegar Tony Stark reynir að
endurvekja gamalt friðar-
gæsluverkefni fara hlutirnir
úrskeiðis og það er undir
Hefnendunum komið að
stöðva áætlanir hins illa
Ultrons.
Morgunblaðið bbbmn
IMDB 9,3/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Hrútar 12
Bræðurnir Gummi og Kiddi
hafa ekki talast við áratug-
um saman.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 83/100
IMDB 8,2/10
Laugarásbíó 16.00, 18.00
Smárabíó 17.45
Háskólabíó 17.30, 20.00,
22.10
Borgarbíó Akureyri 17.40
Bakk Tveir æskuvinir ákveða að
bakka hringinn í kringum Ís-
land til styrktar langveikum
börnum. Bönnuð yngri en
sjö ára.
Morgunblaðið bbbbn
Háskólabíó 20.00, 22.10
Bíó Paradís 20.00
Pitch Perfect 2 12
Morgunblaðið bbbmn
IMDB 7,2/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Loksins heim Metacritic 48/100
IMDB 6,7/10
Smárabíó 15.30
Fúsi 10
Fúsi er liðlega fertugur og
býr einn með móður sinni.
Líf hans er í afar föstum
skorðum og fátt kemur á
óvart.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 64/100
IMDB 7,7/10
Háskólabíó 17.30
Bíó Paradís 18.00
The Arctic Fox-
Still Surviving
Bíó Paradís 20.00, 21.00
Human Capital
Bíó Paradís 20.00, 22.15
Wild Tales
Bíó Paradís 22.00
París norðursins
Bíó Paradís 22.00
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Kvikmyndastjarnan Vincent Chase er snú-
in aftur ásamt Eric, Turtle, Johnny, og
framleiðandanum Ari Gold.
Metacritic 38/100
IMDB 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 20.00,
22.30, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 21.00, 22.30
Entourage 12
Gleðikonuna Isabellu (Imogen Poots) dreymir um að gerast leikkona
á Broadway. Hún kynnist sviðsleikstjóranum Arnold (Owen Wilson)
og fara þá hlutirnir að gerast.
Metacritic 54/100
IMDB 6,3/10
Laugarásbíó 20.00, 22.35
Smárabíó 20.00, 22.15
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.00
She’s Funny That Way12
Eftir að ung stúlka flytur á nýtt heimili fara tilfinningar hennar í
óreiðu þegar þær keppast um að stjórna huga hennar.
Metacritic 91/100
IMDB 9,0/10
Laugarásbíó 15.50, 18.00
Sambíóin Álfabakka
15.10, 15.40, 15.40, 17.50
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00
Sambíóin Kringlunni
17.50
Sambíóin Akureyri 17.45
Smárabíó 15.20, 15.30,
17.45
Inside Out