Fréttablaðið - 08.07.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.07.2015, Blaðsíða 4
8. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 STJÓRNSÝSLA Persónuvernd álítur að sérfræð- ingateymi velferðarráðuneytisins um þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskan- ir megi ekki fá upplýsingar frá sveitarfélögum eða barnaverndarnefndum landsins og vinna úr þeim upplýsingum. Telur Persónuvernd að það brjóti í bága við persónuverndarlög. Velferðarráðuneytið óskaði sjálft eftir áliti stofnunarinnar á vinnu teymisins. Ingibjörg Broddadóttir, staðgengill skrifstofustjóra ráðuneytisins, segir að vinna nefndarinnar hafi verið stöðvuð í kjölfarið. „Öllum aðilum málsins var sent bréf 1. júlí þar sem niðurstaða Persónuverndar var kynnt og upplýst að sérfræðingateymið myndi ekki starfa áfram fyrr en heimild teymisins til að taka við persónuupplýsingum lægi skýrt fyrir,“ segir Ingibjörg. „Ég vil einnig upplýsa um að í ráðuneytinu stendur nú yfir vinna við að undirbúa stjórnsýslustofnun eða annan far- veg fyrir eftirlit og ýmis stjórnsýsluverkefni sem nú eru unnin í ráðuneytinu.“ Teymið á „annars vegar að leggja mat á það hvort barn þurfi að flytjast að heiman í sérsnið- ið úrræði og hins vegar að veita ráðgjöf og leið- beiningar um þjónustu og annan stuðning svo koma megi í veg fyrir að barn þurfi að flytjast að heiman,“ segir í áliti Persónuverndar. - sa Vinna sérfræðingateymis velferðarráðuneytis um þjónustu við börn með geðraskanir í hættu: Mega ekki miðla upplýsingum um börn UTAN SEILINGAR Persónuvernd segir miðlun upp- lýsinga til sérfræðinganefndar brjóta í bága við lög. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SPURNING DAGSINS FERÐAÞJÓNUSTA Landsbjörg og ferðamálayfirvöld ganga allt að því eins langt og hægt er í að veita ferðamönnum upplýsingar um aðstæður á Íslandi. Þetta er mat Jónasar Guðmunds- sonar, verkefnisstjóra slysavarna ferðamanna hjá Slysavarnafélag- inu Landsbjörgu. Framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, Páll Guðmundsson, greindi frá því í Fréttablaðinu í gær að skálaverðir, einkum í Hrafntinnu- skeri, hefðu unnið björgunar afrek á hálendinu síðustu vikur. Þeir hefðu borið inn í skála hrakta og bugaða ferðamenn sem alls ekki hefðu verið búnir til göngu í snjó og krapa. Jónas bendir á að á þessum tíma eigi fólk ekki von á aðstæðunum sem verið hafa á hálendinu síðustu vikur. Frá júníbyrjun hafi í sam- vinnu við Höfuðborgarstofu verið rekin sérstök starfsstöð í miðbæ Reykjavíkur þar sem vant björg- unarsveitarfólk sé við störf. „Við höfum hringt daglega í skálaverði og safnað upplýsingum um aðstæður. Við létum alla ferða- þjónustuaðila vita að þarna væri að finna upplýsingar. Við höfum einnig sett inn upplýsingar á síð- una safetravel.is um að aðstæður séu óvenjulegar. Þessar upplýsing- ar hafa einnig komið fram á skjá- upplýsingakerfi ferðamanna sem er á um 40 stöðum á landinu. Nú er einnig hálendisvakt björgunar- sveitanna hafin.“ Jónas telur að það sé mikill minnihluti ferðamanna sem ekki hitti skálavörð og landvörð þegar komið er inn í Landmannalaugar sem ræði við þá um aðstæður. Samstarf Landsbjargar við bílaleigur hefur verið gott, að því er hann greinir frá. „Við höfum reyndar ekki verið í jafnmiklu samstarfi við hópferðafyrirtækin.“ Kristján Baldursson, fram- kvæmdastjóri hópferðamiðstöðv- arinnar Trex sem er eitt þeirra fyrirtækja sem er með áætlunar- ferðir inn í Landmannalaugar, segir að farþegum með rútunum séu afhentar leiðbeiningar um aðstæður á svæðunum og hentugan klæðaburð. Taka þurfi til dæmis mið af breytilegu veðri. „Þeir fá miða þegar þeir koma upp í bílana með þessum leiðbein- ingum. Þeim er einnig ráðlagt að hafa samband við skálaverði og leita sér upplýsinga. Á heimasíðu okkar eru jafnframt leiðbeiningar og við vísum á aðrar vefsíður. Við reynum að gera okkar besta þótt við berum ekki ábyrgð á þeim sem kaupa bara áætlunarakstur. Það er greinilegt að upplýsingarnar ná ekki til allra eða þá að ferðamenn trúa því ekki að aðstæður séu eins og sagt er.“ Kristján tekur það fram að hluti farþeganna sé í skipulögðum hópum með leiðsögumönnum. „Þar er fólk betur tékkað af.“ ibs@frettabladid.is Landsbjörg hringir daglega í skálaverði uppi á hálendi Sérstök starfsstöð Landsbjargar er í miðbæ Reykjavíkur í samvinnu við Höfuðborgarstofu. Björgunarsveitar- menn starfsstöðvarinnar veita ferðamönnum upplýsingar um aðstæður á hálendinu sem safnað er daglega. HÓPFERÐIR „ Við reynum að gera okkar besta þótt við berum ekki ábyrgð á þeim sem kaupa bara áætlunarakstur. Það er greinilegt að upplýsingarnar ná ekki til allra eða þá að ferðamenn trúa því ekki að aðstæður séu eins og sagt er,“ segir Kristján Baldursson, framkvæmdastjóri Trex. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Við höfum hringt daglega í skálaverði og safnað upp- lýsingum um aðstæður. Við létum alla ferðaþjónustu- aðila vita að þarna væri að finna upplýsingar. Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. BANDARÍKIN Leikarinn Bill Cosby, hefur viðurkennt að hafa byrlað konu sem hann hugðist sofa hjá svefnlyf og nauðgað henni. Dómsgögn frá árinu 2005 sýna fram á játningu Cosby en málið féll niður eftir að sáttum var náð í málinu árið 2006. Cosby hefur verið sakaður um að hafa beitt fjölda kvenna kyn- ferðislegu ofbeldi. Ofbeldi Cosby mun hafa átt sér stað fyrir nokkr- um áratugum. Hann hefur neitað öllum ásökunum. - srs Játaði nauðgun árið 2005: Cosby byrlaði konu svefnlyf FJÖLDI ÁSAKANA Cosby hefur neitað öllum nýlegum ásökunum. Páll, koma ferðamennirnir af fjöllum á Hrafntinnuskeri? Minnstu ekki á það ógrátandi. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferða- félags Íslands, segir skálaverði hafa unnið björgunarafrek á hálendinu síðustu vikur. Þeir hafi borið grátandi, hrakta og bugaða ferðamenn upp í skála í Hrafntinnuskeri. BRETLAND Forsætisráðherra Bret- lands, David Cameron, og borgar- stjóri London, Boris Johnson, lögðu í gær kransa við minnis- varða þeirra sem fórust í sprengj- um í þremur neðanjarðarlestum og einum strætisvagni árið 2005. Frá þessu greinir BBC. Í gær voru liðin tíu ár frá því að fjórir menn sprengdu sig í loft upp með þeim afleiðingum að fimm- tíu og tveir létu lítið og rúmlega sjö hundruð særðust. Árásar- mennirnir voru tengdir hryðju- verkasamtökunum al-Kaída. - ngy Mínútu þögn í Bretlandi í gær: Tíu ár liðin frá hryðjuverkum NÁTTÚRUVERND Sveinn Runólfsson, landgræðslu- stjóri ríkisins, segir að talsvert skorti á verndun landsvæða sem ekki hafi verið friðlýst. „Þau svæði eru svolítið munaðarlaus í dag,“ segir Sveinn og nefnir sem dæmi Seljalandsfoss, Skóga- foss og Stóra-Dímon sem hafi látið verulega látið á sjá vegna umgangs ferðamanna. „Það er óheyrilegt álag á þessum stöðum,“ segir Sveinn. Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp sem skoða á leiðir til samþættingar verkefna eða sameiningu Landgræðslu ríkisins og Umhverfisstofnunar. Hópurinn á að skoða hvernig efla megi stofnanaumgjörð á sviði náttúruvernd- ar. „Ljóst er að með auknu álagi á náttúru landsins vegna ferðamennsku mun verða vaxandi þörf á að efla getu á þessu sviði,“ segir á vef ráðuneytisins. Sveinn, sem situr í starfshópnum, segir verkefni Umhverfisstofnunar og Landgræðslu ríkisins sam- bærileg á mörgum sviðum. Skipan starfshópsins sé jákvætt skref og að skoða mætti sameiningu Land- græðslunnar, Skógræktar ríkisins og Umhverfis- stofnunar. Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Fram- sóknar flokksins, er formaður starfshópsins. Líneik segir hópinn hittast fyrst í ágúst. Hún stýrir einnig hópi sem skoða á samþættingu verkefna á sviði trjá- ræktar. - ih Starfshópur skoðar sameiningu Umhverfisstofnunar og Landgræðslunnar: Takmörkuð vernd náttúruperla SKÓGAFOSS Sveinn segir að Skógafoss hafi látið mjög á sjá vegna ágangs ferðamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 4 -9 1 1 C 1 7 5 4 -8 F E 0 1 7 5 4 -8 E A 4 1 7 5 4 -8 D 6 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.