Fréttablaðið - 08.07.2015, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.07.2015, Blaðsíða 30
USD 134,2 GBP 207,0 DKK 19,68 EUR 146,9 NOK 16,33 SEK 15,7 CHF 141,4 JPY 1,10 Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Gengi gjaldmiðla FTSE 100 6.432,21 +103,47 (-1,58%) Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskipti STJÓRNAR - MAÐURINN @stjornarmadur Nýverið lauk heimsmeistaramóti í knattspyrnu kvenna sem haldið var í Kanada. Ríkisútvarpið átti sjónvarpsréttinn að mótinu og sýndi nokkra leiki í beinni þegar líða tók á mótið. NOKKRIR urðu til þess að gagn- rýna að HM kvenna væri ekki gert jafn hátt undir höfði og heims- meistaramóti karla. Þar hafa allir leikir gjarnan verið sýndir í þráð- beinni, og engu skipt hvort um er að ræða úrslitaleiki eða leik Írans og Slóveníu í riðlakeppninni. STJÓRNARMAÐURINN er almennt á því að markaðsöflin eigi að ráða því hvaða sjónvarpsefni er borið á borð áhorfenda. Sjónvarpsstöðvar eiga að einblína á efni sem borgar sig. Efni sem hægt er að kaupa inn á viðráðanlegu verði, hugnast aug- lýsendum og síðast en ekki síst er til þess fallið að halda áskrifend- um eða laða að nýja. ÞESSI röksemdafærsla er hins vegar ekki svo einföld þegar um er að ræða ríkissjónvarpsstöð. Þess vegna var nokkuð kyndugt að heyra Þóru Arnórsdóttur taka til baka gagnrýni sína á slæ- lega frammistöðu íþróttadeildar RÚV með m.a. þeim rökum að íþróttadeildin væri undirmönn- uð og erfitt hefði reynst að laða styrktar aðila og kostun að mótinu. ÞETTA væru mögulega gild rök fyrir einkarekna sjónvarpsstöð. ÞÓRA er hins vegar að tala um sjálft Ríkisútvarpið sem rekið er fyrir almannafé. Því ber, eins og öðrum ríkisstofnunum, að fylgja jafnréttissjónarmiðum í starfsemi sinni, og sjá til þess að það efni sem sýnt er fullnægi kröfum um „gæði og fjölbreytni“ svo vísað sé í lagabókstafinn. ÞESS utan er erfitt að sjá í hendi sér að ekki sé hægt að sýna HM kvenna án þess að tapa á því. Sjón- varpsrétturinn kostar einungis brotabrot af því sem karlamótið kostar og fjöldi iðkenda kvenna- knattspyrnu hér á landi bendir til þess að mörg fyrirtæki myndu sjá hag sinn í því að styrkja mótið eða kaupa auglýsingar í tengslum við útsendingar. MANNEKLA er heldur ekki afsök- un. Þarf fleiri starfsmenn til að sýna frá HM kvenna en karla? HUGREKKI þarf til að breyta ríkjandi viðhorfum. Eðli málsins samkvæmt er erfiðara fyrir einka- rekna aðila að taka slíkt stökk með tilheyrandi fjárhagslegri áhættu. Önnur sjónarmið eiga hins vegar við ríkismiðla, og raunar gætu tækifæri sem þetta að einhverju leyti réttlætt tilvist slíkra miðla. VONANDI var þetta í síðasta sinn sem HM kvenna fær ekki sam- bærilega umfjöllun við karlamót- ið. RÚV tapar tilgangi sínum 551 MILLJÓN EVRA Hreinn gjaldeyrisforði tvöfaldast Seðlabankinn hefur keypt 551 milljón evra á millibankamarkaði það sem af er ári. Hefur bankinn greitt fyrir tæplega 82 milljarða króna. Greining Íslandsbanka segir þetta vera ríflega tvöfalt hærri fjárhæð en á fyrri hluta ársins 2014. Hreinn gjaldeyrisforði Seðla- bankans hefur frá áramótum aukist úr 306 milljónum evra í 644 milljónir. 18% AUKNING Icelandair flutti 363.000 farþega Icelandair Group flutti 363 þúsund farþega í millilandaflugi í júní og voru þeir 18% fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning var 18% á milli ára. Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru 28 þúsund í júní sem er aukning um 4% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum Icelandair Group jókst um 4% frá júní á síðasta ári. 03.07.2015 Ég er ekki Kolkrabbinn. Það er ekkert erfitt að vera ég, það er bara fínt. Engeyingar eru stór ætt og fáir í pólitík. Margir hafa náð langt, já. Er einhver við- skiptavaldablokk á bak við? Nei. En það er gaman að því þegar menn búa til frasa um fyrirbæri sem eru til, sum hver tímabundið. Sumar valdablokkir sem skrifað var um á tíunda áratugnum eru gufaðar upp. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 5 -B E 4 C 1 7 5 5 -B D 1 0 1 7 5 5 -B B D 4 1 7 5 5 -B A 9 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 4 8 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.