Fréttablaðið - 08.07.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.07.2015, Blaðsíða 6
8. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 VEISTU SVARIÐ? UTANRÍKISMÁL Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur skipað tvo nýja sendiherra. Estrid Brekkan sendiráðunaut- ur verður sendiherra Íslands í Stokkhólmi í stað Gunnars Gunn- arssonar. Hermann Örn Ingólfs- son, skrifstofustjóri í utanríkis- ráðuneytinu, tekur við stöðu sendiherra Íslands í Ósló af Gunnari Pálssyni. Urður Gunnarsdóttir, upplýs- ingafulltrúi utanríkisráðuneyt- isins, segir að Árni Þór Sigurðs- son, sem skipaður var sendiherra á síðasta ári, hafi frá því í apríl stýrt norðurslóðamálum hjá ráðuneytinu. - ih Ráðherra skipar sendiherra: Nýr sendiherra í Stokkhólmi EFNAHAGSMÁL Samkvæmt bráða- birgðatölum Hagstofunnar var útflutningur á vörum í júní í ár 56 milljarðar króna og innflutn- ingur tæpir 66,4 milljarðar. Þetta kemur fram í frétt á vef- síðu Hagstofunnar. Vöruskiptin í júní voru því óhagstæð um 10,4 milljarða króna. Athygli er vakin á því að áætl- un um eldsneytiskaup íslenskra flutningsfara erlendis er nú með- talin í bráðabirgðatölum. - fbj Bráðabirgðatölur Hagstofu: Vöruskiptin óhagstæð í júní 1. Hvað var Gunnar Heiðar Þorvalds- son lengi fjarri Eyjum? 2. Hver sigraði í leikritunarkeppni Listaháskólans? 3. Hvað hafa margar íslenskar konur höfðað mál gegn fyrirtækinu sem hafði eftirlit með PIP-brjóstapúðum? SVÖR: ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON Stýrir mál- efnum norðurslóða. 1. Ellefu ár. 2. Jónas Reynir Gunnarsson. 3. 204. SAMGÖNGUR Ekki er hugsað til sjúkraflutninga í áhættumati Isavia á hugsanlegri lokun 06/24 flugbrautarinnar á Reykjavíkur- flugvelli. Hjartað í Vatnsmýrinni gagnrýnir að sá viðamikli þáttur sé ekki hafður með í áhættumat- inu. „Hverfandi líkur eru taldar á að slys yrði þar sem mannslíf töpuð- ust og flugvél eyðilegðist,“ segir í áhættumati Isavia vegna lokunar flugbrautar 06/24 á Reykjavíkur- flugvelli, sem sumir hafa viljað kalla neyðarbraut. Borgaryfirvöld í Reykjavík hafa lengi viljað loka þeirri flugbraut til að liðka fyrir byggð í Vatns- mýri. Vegna þeirra hugmynda bað innan ríkisráðuneytið Isavia, sem annast rekstur flugvalla á Íslandi, að gera áhættumat um lokun braut arinnar. Isavia kemst þannig að orði að lokunin yrði „þolanleg og að hverfandi líkur eru taldar á að mannslíf tapist verði flugbraut- in aflögð“. Í annmörkum áhættumatsins segir að verkefnið hafi verið að meta breytingu á flugvallarkerfi Reykjavíkurflugvallar út frá flugöryggislegum þáttum. „Þetta áhættumat tekur ekki á áhrifum á flugvallakerfið í landinu, neyðar- skipulagi Almannavarna, sjúkra- flutningum, umhverfisþáttum né fjárhagslegum þáttum flug- rekstrar,“ segir í skýrslunni. Njáll Trausti Friðbertsson, flugumferðarstjóri og einn for- svarsmanna Hjartans í Vatns- mýri, telur þessa annmarka mjög áhrifamikla. „Það orkar tvímælis að sjúkraflug sé ekki tekið með í áhættumatsskýrsluna. Það getur verið að mannslíf tapist ekki við lokun flugbrautarinnar ef þú telur ekki sjúkraflugið með. Þetta snýr að almannahagsmunum. Öryggis- hagsmunir almennings eru mikil- vægir en Isavia skoðar þá ekkert í þessari áhættumatsskýrslu,“ segir Njáll Trausti. Mýflug flaug 538 ferðir í sjúkra- flugi í fyrra og var helmingur þeirra ferða í miklum forgangi, svokallað F1- eða F2-flug þar sem líf sjúklings er í húfi. „Ef menn ætla að loka og hafa engar mótvægisaðgerðir, þá mun einhvern tímann koma til þess að við lendum í vandræðum. Ég er ekkert að segja að einhver muni deyja en það verður ekki útilokað. Það eru miklar líkur á að mann- tjón hljótist af,“ segir Leifur Hall- grímsson, forstjóri Mýflugs. sveinn@frettabladid.is Sjúkraflug er utan áhættumats Isavia Isavia metur „þolanlegt“ að loka 06/24 flugbraut Reykjavíkurflugvallar. Kemst að þeirri niðurstöðu að mannslíf tapist ekki. Hins vegar skoðar áhættumatið ekki sjúkraflug. „Miklar líkur á að manntjón hljótist af,“ segir forstjóri Mýflugs. RÚSSLAND Lögreglan í Rússlandi hefur gefið út leiðbeiningar um hvernig skuli taka sjálfu eða svo- kallað „selfie“ en hundruð hafa slasast og tugir látist við að taka sjálfsmynd í Rússlandi. Síðastliðinn fimmtudag skaut 21 árs gömul kona sig óvart í hausinn við að taka sjálfu af sér með skammbyssu og gaf lögregl- an út leiðbeiningarnar í kjölfarið. Í nýjum varúðarleiðbeiningum lögreglunnar stendur „Kúl sjálfa getur kostað þig lífið.“ - srs Tugir hafa látist í Rússlandi: Kúl sjálfa getur kostað þig lífið REYKJAVÍK Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum að taka upp systkina- tillit á leikskólum. Það er gert með því að breyta reglum um leikskólaþjónustu með samþykkt á nýju ákvæði í reglum um þjónustuna. Því verður bætt við að börn sem eiga systkini í umsóknarleikskóla njóta systkinatillits í viðkom- andi leikskóla svo framarlega sem þeim börnum sem eru fyrir framan þau á biðlista býðst rými í öðrum þeim leikskóla sem for- sjármenn setja til vara. Það sama gildir fyrir sjálfstætt starfandi leikskóla. - ngy Systkinatillit á leikskólum: Setja reglur um systkinatillit HÆTTULEG SELFIE Kona skaut sig við að taka sjálfu. NORDICPHOTOS/GETTY 06/24 Áhættumat Isavia tekur sjúkraflug ekki með í útreikninga áhættumats vegna lokunar flugbrautar á Reykjavíkurflugvelli. Öll sérhæfð bráðaþjónusta fyrir alla landsmenn er á Landspítalanum við Hringbraut. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR NJÁLL TRAUSTI FRIÐBERTSSON Flugumferðarstjóri LEIFUR HALLGRÍMSSON Forstjóri Mýflugs STJÓRNSÝSLA Bókun minnihluta Vinstri grænna og Samfylkingar á fundi hafnarstjórnar Hafnar- fjarðar í gær er harðorð í garð skýrsluhöfundar úttektar á Hafnar fjarðarhöfn. Meðal annars ásaka fulltrúar minnihlutans, þeir Gylfi Ingv- arsson og Sigurbergur Árnason, skýrsluhöfund um að hafa reynt að draga sérstaklega fram neikvæða þætti um höfnina. Úttektin var unnin af Capacent og snýr að stjórnsýslu, fjármálum og rekstri Hafnarfjarðarhafnar síð- astliðin tíu ár. Fram kemur í skýrsl- unni að þótt skuldastaða hafi batnað hafi rekstrarkostnaður hafnarinnar aukist. Það er meðal annars rakið til aukins launakostnaðar. Eins og áður segir er bókun minnihlutans harðorð. Þar er sagt að í skýrslunni sé vinnutími starfs- manna hafnarinnar tortryggður og að ýjað sé að því að launakjör starfsmanna séu óeðlileg. Þá er sagt að skýrsluhöfunda skorti framtíðarsýn fyrir höfn- ina. Ekki sé horft til þess að höfn- in sé lífæð Hafnarfjarðar og mikl- ir möguleikar séu fólgnir í henni. Við skoðun á rekstri hafnarinnar og afkomu Hafnarsjóðs hafi nýr samningur við Rio Tinto Alcan í Straumsvík ekki verið tekinn með í reikninginn. Sá samningur stór- auki tekjur Hafnarsjóðs og bæti stöðu hans. - snæ Samfylkingin og Vinstri græn kvarta yfir nýrri skýrslu um rekstur, fjármál og stjórn Hafnarfjarðarhafnar: Segja úttekt á höfn unna af vanþekkingu GYLFI INGVARSSON Fulltrúi Samfylk- ingarinnar í stjórn Hafnarfjarðarhafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 5 -5 6 9 C 1 7 5 5 -5 5 6 0 1 7 5 5 -5 4 2 4 1 7 5 5 -5 2 E 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.