Fréttablaðið - 08.07.2015, Síða 8
8. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Stál og plast þakrennur
Allir fylgihlutir fáanlegir
Frábært
verð!
Sjá verðlista á:
www.murbudin.is
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
loKsins aftuR sumAr...íS
ÍSinn Sem færiR þéR sumaRið er kOminn aftur. ekTa rjóMaís
Með kókOs, áStaraLdini, mangó og súKkulaðIdropUm.
LÖGREGLUMÁL Stefán Eiríksson,
þáverandi lögreglustjóri á höfuð-
borgarsvæðinu, mátti ekki víkja
Gunnari Scheving Thorsteins-
syni lögreglumanni tímabundið
frá störfum vegna LÖKE-máls-
ins svokallaða.
Þetta er niðurstaða nefndar
sem fjallaði um málið á grund-
velli 27. greinar laga um rétt-
indi og skyldur opinberra starfs-
manna.
Gunnar sneri aftur til starfa
hjá lögreglunni í mars síðast-
liðnum. Í áliti meirihluta nefnd-
arinnar, sem var skipuð þremur
einstaklingum en einn skilaði
séráliti, kemur fram að ekki
hafi verið grundvöllur til þess
að víkja Gunnari úr starfi þrátt
fyrir að hann hafi verið grunað-
ur um refsiverða háttsemi.
Héraðsdómur Reykjavíkur
sýknaði Gunnar af ákæru um
að miðla upplýsingum sem áttu
að fara leynt til þriðja aðila.
Upphaflega var Gunnar einnig
ákærður fyrir að hafa flett upp
nöfnum 45 kvenna í upplýsinga-
kerfi lögreglunnar, LÖKE, en
sá ákæruliður var hins vegar
felldur niður.
Garðar Steinn Ólafsson, lög-
maður Gunnars, segir í samtali
við Fréttablaðið að þessi niður-
staða þýði að hægt sé að reikna
út endanlega bótafjárhæð sem
Gunnar mun fara fram á.
„Ég bind vonir við að ráðu-
neytið biðjist afsökunar og
bjóði bætur að fyrra bragði. Ef
við náum ekki saman munum
við stefna þeim í haust,“ segir
Garðar. - fbj
Ætlar í bótamál við ríkið vegna brottvikningar:
Lögreglustjórinn
fór ekki að lögum
GUNNAR SCHEVING THORSTEINSSON
Ég bind vonir við að
ráðuneytið biðjist afsök-
unar og bjóði bætur að
fyrra bragði. Ef við náum
ekki saman munum við
stefna þeim í haust.
Garðar Steinn Ólafsson lögmaður.
GRIKKLAND Alexis Tsipras, forsæt-
isráðherra Grikklands, sótti í gær
leiðtogafund ríkja Evrusvæðisins
þar sem hann sóttist eftir nýjum
samningi um neyðaraðstoð fyrir
gríska ríkið. Sú aðstoð yrði háð
ströngum skilmálum um breyting-
ar á ríkisrekstri. Ekki náðist sam-
komulag á fundinum.
Matteo Renzi, forsætisráðherra
Ítalíu, sagði við blaðamenn eftir
fundinn að annar fundur yrði hald-
inn á sunnudaginn með öllum 28
leiðtogum ríkja Evrópusambands-
ins, ekki bara evrusvæðisins. Von-
ast er til að niðurstaða náist á þeim
fundi, sem verður sá síðasti.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, sagði Grikki enn ekki upp-
fylla þau skilyrði sem hún telur
nauðsynleg til að hefja samninga-
viðræður af alvöru. Hún sagðist
enn fremur vonast til þess að hafa
nægilega ítarlegar tillögur frá
Grikkjum fyrir fimmtudag til að
bera undir þýska þingið svo hægt
væri að hefja samningaviðræður.
„Ég er andvígur brotthvarfi
Grikklands úr evrusvæðinu en ég
get ekki afstýrt því ef gríska ríkis-
stjórnin fer ekki að óskum okkar,“
sagði Jean-Claude Juncker, for-
seti framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins. Hann sagði fram-
kvæmdastjórnina hafa undirbúið
ítarlega áætlun ef af brotthvarfi
verður. Juncker gaf Grikkjum
frest til föstudagsmorguns til að
koma með ítarlegar tillögur.
François Hollande, forseti
Frakklands, sagði eftir fundinn
að vel væri mögulegt að ná sam-
komulagi.
„Þetta voru langar og strangar
viðræður sem sýna hversu alvarlegt
ástandið er,“ sagði Merkel og bætti
því við að sú þörf að kalla til allra
leiðtoga ríkja Evrópusambandsins
undirstrikaði alvarleikann.
„Einungis fimm dagar eru til
stefnu til að finna endanlegt sam-
komulag við Grikki,“ sagði Donald
Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópu-
sambandsins í gær. Hann sagði
þetta mikilvægasta augnablik í
sögu evrunnar.
Tsipras mun ávarpa Evrópu-
þingið í dag til að greina nánar frá
stöðu mála.
Evklíð Tsakalótos, hinn nýi fjár-
málaráðherra Grikklands, mætti
tómhentur á samningafund við
fjármálaráðherra ríkja evrusvæð-
isins í Brussel í gær. Talið var að
Tsakalótos myndi koma með nýjar
tillögur til að létta skuldabyrði
Grikkja. Giorgos Stathakis, efna-
hagsmálaráðherra Grikkja, sagði
við fréttastofu BBC í fyrradag að
tillögurnar miðuðu að þrjátíu pró-
sent skuldaniðurfellingu.
thorgnyr@frettabladid.is
Juncker vill tillögur
á föstudagsmorgun
Forsætisráðherrar ríkja Evrusvæðisins funduðu um neyðaraðstoð í gær. Annar
fundur verður á sunnudag. Lokafrestur Grikkja til að koma með ítarlegar tillögur
er á föstudag. Nýr fjármálaráðherra Grikkja mætti tómhentur á fund í Brussel.
FUNDAÐ For-
sætisráðherrar
ríkja Evrusvæð-
isins fund-
uðu um nýja
neyðaraðstoð
fyrir Grikkland í
gærkvöldi.
NORDICPHOTOS/AFP
Ég er andvígur
brotthvarfi Grikklands úr
evrusvæðinu en ég get
ekki afstýrt því ef gríska
ríkisstjórnin fer ekki að
óskum okkar.
Jean-Claude Juncker, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
5
-2
A
2
C
1
7
5
5
-2
8
F
0
1
7
5
5
-2
7
B
4
1
7
5
5
-2
6
7
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K