Fréttablaðið - 08.07.2015, Síða 32
8. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT
Ástkær sonur okkar,
bróðir, mágur og frændi,
EINAR ATLASON
blikksmíðameistari,
Vallarási 3, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans aðfaranótt
28. júní sl. Útförin fer fram frá Garðakirkju
í Garðabæ föstudaginn 10. júlí nk. kl. 15.00.
Atli Pálsson Margrét S. Einarsdóttir
Hallgrímur Atlason Guðbjörg Jónsdóttir
Guðjón Atlason Ana Isorena Atlason
Atli Atlason Elín Svarrer Wang
og fjölskyldur.
MARGRÉT
SIGVALDADÓTTIR GEPPERT
frá Ausu, Borgarfirði,
búsett í Calgary, Kanada,
andaðist þann 24. júní síðastliðinn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Vigdís Sigvaldadóttir
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HERBORG HULDA SÍMONARDÓTTIR
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 3. júlí sl.
Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 10. júlí kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Hjartavernd.
Ingibjörg Guðrún Viggósdóttir Elías Kristinsson
Snæbjörn Geir Viggósson Helga Jónasdóttir
Sigurður Viggósson Anna Jensdóttir
Þorbjörn Viggósson Lilja Baldvinsdóttir
Símon Viggósson Birna Benediktsdóttir
Bjarni Viggósson Jóhanna Þórðardóttir
Kristín Viggósdóttir Hilmar Jónsson
barnabörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍSABET JÓNSDÓTTIR
frá Þjórsárholti,
Hraunbæ 103, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 2. júlí síðastliðinn.
Útförin fer fram föstudaginn 10. júlí frá Árbæjarkirkju kl. 13.00.
Grétar Guðmundsson Herdís Hallgrímsdóttir
Árni Þór Guðmundsson Bára Jónsdóttir
Jón Helgi Guðmundsson Guðrún Ásbjörnsdóttir
Guðbjörg Guðmundsdóttir Þórarinn Sólmundarson
Stefán Guðmundsson Þórunn Óskarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og vináttu við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
JÓNÍNU ÁRNADÓTTUR
frá Hjalteyri,
Tjarnarbóli 2, Seltjarnarnesi.
Þóra Sigurbjörnsdóttir Þórður Valdimarsson
Snjólaug Sigurbjörnsdóttir Magnús Guðmundsson
Valrós Sigurbjörnsdóttir Halldór Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, amma og langamma,
SIGRÚN HÓSEASDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu 28. júní. Útförin
fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 3-S á Eir fyrir
einstaka umhyggju og alúð þann tíma sem
hún dvaldi þar sem og starfsfólks dagdeildar
þar sem hún var í dagvistun áður en hún fór á hjúkrunardeild.
Ingibjörg Sigurðardóttir
Sigurbjörn Sigurðsson
Sigurður Örn Sigurbjörnsson
Gylfi Þór Sigurbjörnsson
Breki Örn Sigurðarson
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓR VIGNIR STEINGRÍMSSON
fv. yfirvélstjóri hjá Landhelgisgæslunni,
Hlíðarhúsum 3,
áður Arahólum 2, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi föstu daginn
12. júní. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 9. júlí kl. 15.00.
Kristín Þórsdóttir
Rannveig Þórsdóttir
Þorsteinn Ólafs Lára Kristjánsdóttir
Ólafur Kristinn Ólafs Soffía G. Jóhannesdóttir
Andri Már Bjarnason
Daníel Þór Valdimarsson, Rebekka Rún Hjartardóttir
Þór Steinar Ólafs, Björg Magnea Ólafs, Kristján Már Ólafs
Halldóra Sigurlaug Ólafs, Magnea Jónína Ólafs
og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN PÁLMI ÞORSTEINSSON
fyrrverandi kennari,
Tjarnarstíg 3, Seltjarnarnesi,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund þann
20. júní 2015. Útförin hefur farið fram.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar, sem önnuðust hann
af mikilli fagmennsku og kærleika.
Lovísa Bergþórsdóttir
Pálmi V. Jónsson Þórunn Bára Björnsdóttir
Jóna Karen Jónsdóttir Ólafur Kjartansson
afabörn og langafabörn.
Faðir okkar,
BALDUR BÖÐVARSSON
Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi,
lést 1. júlí á lungnadeild Sjúkrahússins
í Fossvogi. Útförin verður gerð frá Neskirkju
fimmtudaginn 9. júlí kl. 13.00. Blóm
og kransar afþakkaðir.
Bryndís Baldursdóttir
Haukur Baldursson
Hrafn Baldursson
Jón Baldursson
Ástkær bróðir, stjúpbróðir, frændi
og vinur okkar,
EINAR ÖRN EIÐSSON
lést að heimili sínu mánudaginn 29. júní
síðastliðinn. Jarðarför fer fram í Neskirkju
föstudaginn 10. júlí kl. 13.00.
Vinir og vandamenn Einars Arnar.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SVERRIR SIGURJÓNSSON
húsasmíðameistari,
Þorlákshöfn,
sem lést 1. júlí verður jarðsunginn frá
Þorlákskirkju í Þorlákshöfn fimmtudaginn 9. júlí kl. 14.00.
Hrönn Sverrisdóttir Guðni Pétursson
Hlín Sverrisdóttir Hreggviður Jónsson
Hlynur, Leifur, Arna, Alma Rún og Sverrir
MERKISATBURÐIR
1922 Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin á þing fyrst kvenna og
tók hún sæti á Alþingi 15. febrúar 1923.
1926 Ríkisstjórn undir forsæti Jóns Þorlákssonar tók við völdum
og sat í rúmt ár.
1951 Tveir íþróttamenn slösuðust mikið og aðrir tveir biðu bana
í Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar er bjarg lenti á 30
manna rútu sem þeir voru í.
1987 Ríkisstjórn undir forsæti Þorsteins Pálssonar settist að
völdum og sat í rúmt ár. Jóhanna Sigurðardóttir átti sæti í
stjórninni og var hún þriðja konan til að gegna ráðherraembætti
á Íslandi. Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal
stendur á miklum tímamótum, því í
dag fagnar hann 35 ára afmælinu sínu.
„Þetta er svakalega fljótt að líða. Ég
man þegar ég var yngri, þá töluðu for-
eldrar mínir mikið um það hvað tím-
inn líður hratt. Maður skilur það þegar
maður eldist,“ segir Auðunn.
Hann var staddur í Leifsstöð þegar
blaðamaður náði tali af honum, á leið
til Las Vegas til að fylgjast með Gunn-
ari Nelson fyrir sjónvarpsþátt sem
hann vinnur að. „Við verðum bara að
vinna eins og skepnur þarna úti. Maður
skálar kannski í rauðvíni eftir góðan
vinnudag,“ segir Auðunn spurður út í
hvort hann ætli að gera eitthvað í til-
efni dagsins.
Hann fór þó í keilu og á írska daga
á Akranesi með fjölskyldunni um
helgina. „Maður heldur kannski létta
veislu þegar maður kemur heim,“ bætir
Auðunn við.
Hann segist þó ekki finna fyrir því
að hann sé að eldast mikið, nema að nú
fyrst finni hann fyrir því að hann sé
kominn á fertugsaldurinn. „Ég held ég
sé svona fimm árum á eftir. Þegar ég
var þrítugur leið mér eins og ég væri 25
ára. Nú líður mér í fyrsta sinn eins og
ég sé kominn á fertugsaldurinn.“
Spurður út í heilsuna segist hann
hafa verið í svipuðu líkamlegu formi
undanfarin fimm ár, enda duglegur að
stunda líkamsrækt. „Ég finn aðallega
fyrir aldrinum þegar ég er að spila
fótbolta á gervigrasi. Ég spilaði leik
á gervigrasi fyrir skömmu og daginn
eftir leið mér eins og ég væri sextugur,“
segir Auðunn og hlær.
Hann hefur í gegnum tíðina, eins
og flestir vita, starfað við fjölmiðla og
segist vera afar þakklátur fyrir að hafa
fengið að starfa við það sem hann elsk-
ar að gera. „Lífið er búið að vera frá-
bært. Það að fá að starfa við það sem
maður elskar að gera er æðislegt. Ég
get ekki kvartað.“ gunnarleo@frettabladid.is
„Ég held ég sé svona
fi mm árum á eft ir“
Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal stendur á tímamótum í dag. Hann fagnar afmælis-
deginum í Las Vegas í Bandaríkjunum og ætlar jafnvel að skála í rauðvíni í tilefni dagsins.
AFMÆLISBARN Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal hefur skemmt þjóðinni á ýmsan hátt.
Hann er þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa við það sem hann elskar að gera í gegnum
tíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
5
-8
C
E
C
1
7
5
5
-8
B
B
0
1
7
5
5
-8
A
7
4
1
7
5
5
-8
9
3
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K