Fréttablaðið - 08.07.2015, Page 40
8. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 28
Erlendir slúðurmiðlar keppast nú
við að segja frá því að raunveru-
leikaþáttastjarnan Kourtney Kar-
dashian og Scott Disick séu hætt
saman, en þau hafa verið saman í
rúm níu ár og eiga saman þrjú börn.
Kourtney og systur hennar, Kim,
Khloé, Kendall og Kylie, þekkja
flestir úr þáttunum Keeping up
with the Kardashians þar sem hún
og fjölskylda hennar hleypa áhorf-
endum inn í líf sitt. Þátturinn hefur
verið sýndur á sjónvarpsstöðinni E!
frá árinu 2007 og hefur Kourtney
einnig tekið þátt í fleiri raunveru-
leikaþáttum ásamt systrum sínum.
Hún hefur, í samvinnu við Kim og
Khloé, hannað fatnað, ilmvötn og
gefið út bók. Kourtney er elst þeirra
systra, fædd árið 1979.
Samband Scotts og Kourtney
hefur komið talsvert við sögu í þátt-
unum. Þau byrjuðu að hittast árið
2006 og samkvæmt þáttunum og
erlendum miðlum hefur samband
þeirra verið stormasamt á köflum.
Scott er sagður mikið partídýr sem
sagt er hafa sett strik í reikninginn
og hefur hann farið í áfengismeð-
ferðir sem virðast ekki hafa skil-
að tilætluðum árangri og sagt er
að þau hafi lengi sofið hvort í sínu
herberginu.
Árið 2009 eiga þau að hafa hætt
saman en stuttu eftir það komst
Kourtney að því að hún var ólétt og
tóku þau aftur saman og eignuðust
sitt fyrsta barn, soninn Mason Dash
Disick þann 14. desember.
Árið 2012 eignaðist parið dótt-
urina Penelope Scotland Disick,
sem er fædd þann 8. júlí og eftir það
virtist sambandið blómstra, að því
er séð varð í raunveruleikaþættin-
um og á Instagram-síðum þeirra og
í desember á síðasta ári, á afmæl-
isdegi Masons, eignaðist parið sitt
þriðja barn, Reign Aston Disick.
Kourtney fékk sig svo fullsadda
þegar myndir frá því í síðustu viku
af Scott og stílistanum Chloe Bar-
toli, sem sögð er fyrrverandi kær-
asta Scotts, birtust í erlendum miðl-
um. Þar sjást þau láta vel hvort að
öðru í Mónakó og á Kourtney að
hafa slitið sambandinu fyrir fullt
og allt um helgina.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
sögusagnir fara á kreik um að Scott
hafi verið henni ótrúr, en einnig
er talið að mikil drykkja hans og
partístand hafi haft áhrif á ákvörð-
unina, en hann hefur verið iðinn við
að fá sér í glas á síðustu misserum
og aðstandendur hans og vinir sagð-
ir hafa áhyggjur af honum.
Það var vefmiðillinn E! sem
sagði fyrst frá sambandsslitunum
en sjónvarpsþáttur fjölskyldunnar
hefur verið sýndur á samnefndri
sjónvarpsstöð frá upphafi.
Búið spil hjá Kourtney og Scott?
Kourtney Kardashian er sögð hafa hætt með barnsföður sínum Scott Disick um helgina en þau eiga saman þrjú börn.
2006 ➜ Kourtney og Scott byrja að
hittast.
2007 ➜ Keeping up with the
Kardashians hefur göngu
sína.
2009 ➜ Hætta saman en byrja
saman aftur þegar
Kourtney kemst að því að
hún er ólétt.
2009 ➜ Sonurinn Mason Dash
Disick fæðist þann 14.
desember.
2011 ➜ Parið tilkynnir að það eigi
von á sínu öðru barni og
allt virðist ganga vel.
2012 ➜ Dóttirin Penelope Scot-
land Disick fæðist þann 8.
júlí.
2014 ➜ Sonurinn Reign Aston
Disick fæðist þann 14.
desember.
2015 ➜ Myndir af Scott að láta vel
að annarri konu birtast á
netinu.
2015 ➜ Erlendir slúðurmiðlar fjalla
um sambandsslit Kourtney
og Scott.
KOURTNEY OG SCOTT
ALLT BÚIÐ? Scott og Kourtney hafa verið saman frá árinu 2006 og eiga saman þrjú börn. NORDICPHOTOS/GETTY
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
bio. siSAM
SPARBÍÓ
CINEMABLEND
JAMES CAMERON
SEGÐU MANNINUM ÞÍNUM AÐ ÞAÐ SÉ STELPUKVÖLD Í KVÖLD!
ÍSLANDSVINURINN CHANNING TATUM ER SJÓÐHEITUR Í ÞESSARI
SKEMMTILEGU SUMARMYND
METRO NY IN TOUCH
NEW YORK DAILY NEWS
SKÓSVEINARNIR 2D 4, 6
SKÓSVEINARNIR 3D 4
MINIONS - ENS TAL 2D 6, 8
TERMINATOR GENISYS 10
TED 2 8, 10:20
JURASSIC WORLD 2D 8, 10:35
INSIDE OUT 2D - ÍSL TAL 5
SÝND í
2D OG 3D
SÝND MEÐ
ÍSL OG ENS TALI
-H.S., MBL
4000 M
ANNS
Penny Lancaster, eiginkona söngvarans
Rods Stewart, var í viðtali í breska þætt-
inum Loose Women á dögunum þar sem
hún sagði að Stewart hefði þurft að hætta
að klæðast þröngum buxum, hans ein-
kennisklæðnaði, þegar þau voru að reyna
að geta sitt annað barn.
Lancaster og Stewart hafa verið gift
síðan árið 2007 og eiga saman tvo syni,
þá Alistair, níu ára, og Aiden, fjögurra
ára, og sagði Lancaster í viðtali að læknir
hefði ráðlagt eiginmanni hennar að sleppa
þröngum fatnaði fyrir neðan mitti á
meðan á þeim tilraunum stæði og einnig
forðast það að fara í of heitt bað.
Hvort sem það var þeim ráðlegging-
um læknisins að þakka eða ekki þá buðu
hjónakornin annað barn sitt velkomið
í heiminn þann 16. febrúar árið 2011 en
Stewart, sem varð sjötugur á þessu ári, á
fyrir átta börn með fimm konum.
Það er nóg að gera hjá Stewart en von
er á nýrri plötu frá söngvaranum í októ-
ber á þessu ári og mun hún bera nafnið
Another Country. Verður þetta tuttug-
asta og níunda breiðskífa söngvarans
sem hefur gefið út ófáa smellina í gegnum
árin, en hann gaf út sína fyrstu breiðskífu
árið 1969 sem bar nafnið An Old Raincoat
Won‘t Ever Let You Down. - gló
Rod Stewart þurft i að sleppa þröngu buxunum
Söngvarinn góðkunni þurft i, að því er eiginkona hans heldur fram, að hætta að ganga í þröngum buxum til þess að geta getið barn.
ALSÆL Hjónakornin hafa verið gift frá árinu 2007
og eiga tvo syni saman. NORDICPHOTOS/GETTY
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
4
-9
1
1
C
1
7
5
4
-8
F
E
0
1
7
5
4
-8
E
A
4
1
7
5
4
-8
D
6
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K