Fréttablaðið - 08.07.2015, Side 42

Fréttablaðið - 08.07.2015, Side 42
8. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 30 Gunnar Nelson fær gullið tæki- færi til þess að stimpla sig inn með látum í Bandaríkjunum á laugardag er hann þreytir frum- raun sína í UFC hér í landi. Þá mætir hann heimamann- inum Brandon Thatch í bardaga sem fyrir fram er talinn vera afar jafn. UFC-kvöldið á laugardag er það stærsta á árinu hjá UFC og það stærsta frá upphafi að mati margra. Barist verður um tvo titla og aðrir bardagar kvöldsins eru heldur ekkert slor. Stjarna kvöldsins og aðal- aðdráttaraflið er Írinn kjaftfori Conor McGregor. Hann er mikill Íslandsvinur. Æfði hjá Mjölni og er æfingafélagi Gunnars. Þeir búa saman í stórri villu hér rétt fyrir utan Las Vegas og hafa æft saman síðasta mánuðinn. Svo mikla trú hafa forráða- menn UFC á Gunnari að þeir settu bardaga hans sem einn af aðalbardögum kvöldsins. Bar- dagi hans er fjórði síðasti bardagi kvöldsins. Það er gríðarleg viður- kenning fyrir okkar mann sem vonandi nýtir tækifærið vel. Það vilja allir bardagakappar í UFC vera með á þessu kvöldi en aðeins útvaldir fá að keppa. Hinir koma á svæðið og hitta aðdáendur víða um bæ og reyna að minna á sig. Í kringum þetta bardagakvöld er mikil dagskrá sem hófst í gær og mun standa út sunnudag. Þetta er „Super Bowl“ vika þeirra UFC- manna. Það verða alls konar uppá- komur alla vikuna og svo ráð- stefna þar sem hægt verður að hitta stjörnurnar og gera margt annað skemmtilegt. Mikil upplif- un fyrir alla sem hingað koma í vikunni. Hér í Las Vegas er allt af ann- arri stærðargráðu en fólk á almennt að venjast og fjölmiðla- áhuginn er gríðarlegur. Allir stærstu viðburðirnir fara fram á MGM Grand-hótelinu og bardaga- kvöldið í MGM Grand Garden Arena. Það er sögufrægur salur þar sem allir stærstu boxbardag- ar síðustu ára hafa farið fram. Þar börðust meðal annars Floyd May- weat- her og Manny Pacqiuao á dögun- um. Salurinn tekur um 17 þús- und manns í sæti og komast færri að en vilja. Miðarnir voru líka ekkert ódýrir en á dögunum var verið að selja dýr- ustu miðana á yfir 300 þúsund krónur. Þ e t t a ve r ð u r magnaður viðburður sem enginn ætti að missa af. Stóra sviðið bíður eft ir frumsýningu Gunnars Nelson í Bandaríkjunum UTAN VALLAR Henry Birgir Gunnarsson skrifar frá Las Vegas SPORT FÓTBOLTI Ætli það verði ekki talað um íslenska knattspyrnu fyrir og eftir Lars Lagerbäck eftir nokkur ár, svo ótrúlegum árangri hefur Svíinn náð með hjálp Heimis Hallgrímssonar. Umbreytingin á íslenska karlalandsliðinu undan- farin þrjú ár er hvergi meira áber- andi en í valhoppi íslenska liðsins um upp styrkleikalista FIFA. Liðið sem var nokkrum sætum neðar en Færeyjar og Liechten- stein haustið 2011 er nú komið í hóp 25 bestu knattspyrnuþjóða heims. Hinn öflugi spænski knatt- spyrnutölfræðingur Alexis Martín- Tamayo hefur tekið saman stig landa í næstu útgáfu FIFA-listans og samkvæmt hans útreikningum er íslenska liðið að hoppa upp í 23. sæti listans og er nú aðeins einu sæti á eftir Frökk- um og sex sætum á eftir Ítölum. Aftur bestir á Norðurlöndum Ísland hefur hæst komist upp í 28. sæti listans en liðið varð efst Norður landaþjóða í október 2014. Danir stukku upp fyrir íslenska liðið á næsta lista en eru nú sam- kvæmt útreikningum Alexis komnir í annað sætið á ný. Það er langt í bæði Svía (33. sæti) og Norðmenn (neðar en 60. sæti) sem voru sem dæmi meira en hundrað sætum á undan Íslandi fyrir þremur árum. Standist útreikningar Mister Chip, sem bregðast nær aldrei, hoppar íslenska landsliðið um fjór- tán sæti á listanum og verður þetta þá í sjöunda sinn í þjálfaratíð Lars Lagerbäck sem liðið tekur stórt stökk upp FIFA-listann á síðustu 34 mánuðum eða frá fyrsta stóra stökkinu í september 2012. Sigurinn á Tékkum á Laugar- dalsvelli fyrir 26 dögum kom íslenska liðinu ekki bara á topp rið- ilsins í undankeppni EM 2016 allt sumar heldur einnig upp í annan styrkleikaflokk þegar dregið verð- ur í undankeppni HM í Sankti Péturs borg í lok mánaðarins. Sextánda sæti innan Evrópu Íslenska liðið verður væntanlega í sextánda sæti af evrópsku þjóðun- um á nýjum lista en liðin í sætum tíu til átján fylla annan styrkleika- flokk. Ísland er þriðja síðasta liðið þangað til og er á undan bæði Danmörku og Bosníu samkvæmt útreikningum Martín-Tamayo. Hér á síðunni má sjá yfirlit yfir þessi sjö stóru stökk íslenska liðs- ins í þjálfaratíð Lars Lagerbäck en sex af þeim hafa komið eftir flotta sigra í undankeppnum. Auk þess hefur íslenska liðið sex sinn- um hækkað sig um fimm til átta sæti milli útgáfu FIFA-listans þessi þrjú mögnuðu ár Lars með íslenska liðið. ooj@frettabladid.is Sjöunda stóra stökk strákanna Íslenska knattspyrnulandsliðið er væntanlega að fara að taka stórt stökk á nýjasta FIFA-listanum og komast hærra en nokkurn tímann fyrr þegar nýr listi verður gefi nn út á morgun. Þetta verður ekki fyrsta stóra stökkið síðan Lars Lagerbäck tók við liðinu árið 2012. Júlí 2015 Upp um 14 sæti 2-1 sigur á Tékklandi á Laugardalsvelli ➜ Svíinn Lars Lagerbäck hefur stýrt íslenska landsliðinu í átján leikjum í undankeppnum HM eða EM og liðið hefur unnið tíu þeirra (56 prósent) og aðeins tapað fimm (28 prósent). September 2013 Upp um 16 sæti 2-1 sigur á Albaníu á Laugardalsvelli Apríl 2013 Upp um 19 sæti 2-1 sigur á Slóveníu í LjubljanaOktóber 2012 Upp um 21 sæti 2-1 sigur á Albaníu í Tirana September 2012 Upp um 12 sæti 2-0 sigur á Noregi á Laugardalsvelli Júní 2013 Upp um 12 sæti 4-2 tap fyrir Slóveníu á Laugardalsvelli September 2014 Upp um 12 sæti 3-0 sigur á Tyrklandi á Laugardalsvelli Október 2014 Upp um 6 sætiJúlí 2014 Upp um 5 sæti Október 2013 Upp um 8 sæti Júní 2014 Upp um 6 sæti Mars 2013 Upp um 6 sæti Desember 2012 Upp um 6 sæti 23 37 28 34 46 47 52 58 46 54 70 61 73 92 98 90 9697 118 130 FÓTBOLTI Dregið var í undanúrslit Borgunarbikars karla og kvenna í gær. Bikarúrslitaliðin í kvenna- flokki frá því í fyrra gætu mæst aftur á Laugardalsvellinum í ár því Stjarnan sækir Fylki heim og Selfoss tekur á móti Val eða KR. Í karlaflokki taka KR-ingar á móti Eyjamönnum en þetta er fjórða árið í röð og í níunda sinn á síðustu 19 árum sem KR og ÍBV dragast saman í bikarnum. 1. deildarlið KA fær Val í heim- sókn í hinum leiknum. - óój Fjögur ár í röð NÚ Á KR-VELLINUM KR og ÍBV eru góðkunningjar í bikar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 5 -5 6 9 C 1 7 5 5 -5 5 6 0 1 7 5 5 -5 4 2 4 1 7 5 5 -5 2 E 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.