Fréttablaðið - 01.12.2015, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 8 1 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r þ r i ð j u d a g u r 1 . d e s e M b e r 2 0 1 5
Fréttablaðið í dag
Fréttir Miklar vonir eru
bundnar við loftslagsráðstefn-
una í París. 12
sport Kobe Bryant ætlar að
hætta í sumar eftir 20 ára feril í
NBA-deildinni. 20
Menning Nýtt verk eftir Daníel
Bjarnason er stórfenglegt. 26
plús 2 sérblöð l Fólk l bÍlar
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
saMgöngur Öryggisráðstafanir sem
ráðist hefur verið í samhliða breyt-
ingum á þjóðveginum um Hellis-
heiði kalla á að veginum verði oftar
lokað vegna snjóa, eða þegar verður
mjög blint.
„Þetta er dálítil stefnubreyting
að loka fremur oftar en sjaldnar og
helst að vera á undan því að menn
festi sig,“ segir G. Pétur Matthíasson,
upplýsingafulltrúi Vegagerðarinn-
ar. Hann áréttar að mikilvægasta
aðferðin til að bæta umferðaröryggi
sé alltaf að skilja að akstursstefnur,
því að hættulegustu umferðarslysin
verði þegar bílar lenda beint framan
á hver öðrum.
Víravegrið hefur verið sett upp á
Hellisheiði og víðar á Suðurlands-
vegi til þess að skilja að aksturs-
stefnur og auka öryggi, en auknu
öryggi segir Pétur að fylgi líka
kostnaður. Víravegriði fylgi samt
minni snjósöfnun en annars konar
vegriðum. En um leið sé þrengt að
og dýrara verði að ryðja veginn.
Þá minnkar rými ökumanna til að
athafna sig og aka í kringum fasta
bíla í vondum veðrum. Því er lík-
legra að einn bíll sem stoppar verði
til þess að stöðva umferðina alveg.
„Það er verklag á hverri einustu
heiði um hvernig standa skuli að
lokunum og við erum í samvinnu
við björgunarsveitirnar, sem manna
þá lokunarpóstana, og greiðum fyrir
það,“ segir G. Pétur. En þótt verkalag
sé til staðar þá sé það enn í þróun
líka. Vegagerðin sé hins vegar mjög
ánægð með viðbrögð fólks í könn-
unum hennar við lokunum, því
fólk vilji fremur að vandræðum sé
afstýrt með lokunum. „Og stefnan er
einmitt að loka helst áður en veðrið
kemur og bílar fara að festast.“ Með
því verklagi sé líka auðveldara að
opna fyrr, þegar ekki þarf að koma
í burt bílum sem sitji fastir. Fólk
megi hins vegar búast við því nú að
veginum verði lokað oftar en áður.
„Það er bara kostnaðurinn af því að
bæta umferðaröryggið.“
Síðasti vetur segir G. Pétur að hafi
verið óvenjulegur suðvestanlands
vegna tíðra lokana út af veðri. Meira
að segja hafi komið fyrir að loka hafi
þurft Reykjanesbrautinni. Þarna
spili saman veður, breytt verklag
og breytt umferðarmenning. „Þá
hefur líka áhrif fjölgun ferðamanna,
þannig að við erum með fleiri óvana
ökumenn á ferðinni, bæði innlenda
og erlenda.“ Núna séu uppi aðrar
aðstæður en fyrir 20 árum þó að þá
hafi líka snjóað mikið.
olikr@frettabladid.is
Boða fleiri lokanir á Hellisheiði
Ný vegrið á milli akreina og breytingar á Suðurlandsvegi þýða að Vegagerðin lokar Hellisheiðinni oftar
þegar veður er vont. Um er að ræða nýtt verklag. Vonir standa til að lokanir vari skemur með þessu lagi.
Akstur á Heiðinni
Á síðasta ári óku að jafnaði yfir sex
þúsund bílar yfir Hellisheiði á degi
hverjum, ríflega þrjú þúsund í hvora
átt.
Fjöldi manns sækir vinnu annað-
hvort á höfuðborgarsvæðið eða af
því og austur fyrir fjall, fyrir utan
aðra umferð.
Í nóvember í fyrra fór að jafnaði
5.561 bíll yfir Hellisheiðina á
degi hverjum, en veður tók ekki
að versna að ráði fyrr en í lok
mánaðarins.
Meðaldagsumferð að vetri, frá
desember og fram í mars, var í fyrra
4.650 bílar á dag, samkvæmt tölum
Vegagerðarinnar.
„Við vorum þarna á æfingu við að draga manneskju upp úr sjó,“ segir Tinna María Halldórsdóttir hjálparsveitarkona úr Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Hjálparsveitarmenn þurfa að hafa
handtökin á hreinu og því er nauðsynlegt að æfa sig við ýmis veðurskilyrði. Fréttablaðið/Vilhelm
lÍFið Emmsjé Gauti
og línudansarinn
Ingunn Hlín
Björgvinsdóttir
leiða saman
hesta sína í
nýjasta
mynd-
bandi
rappar-
ans.
32-34.
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
4
9
-5
8
B
8
1
7
4
9
-5
7
7
C
1
7
4
9
-5
6
4
0
1
7
4
9
-5
5
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K