Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 30
Meðalafsláttur af nýjum bílum
sem seldir voru í Bandaríkjun-
um var 3.104 dollarar í október.
Það er 14% hærri afsláttur en að
meðaltali í október í fyrra og er
að meðaltali 9,5% af meðalverði
þeirra. Meðalverð seldra bíla þar
vestra var 32.529 dollarar í októ-
ber. Salan í október var mjög
góð, en hluti skýringar á því hlýt-
ur að liggja í því hve bílafram-
leiðendur bjóða vel þessa dagana.
Mikil samkeppni virðist ríkja á
markaðnum sem lýsir sér í þess-
um aukna afslætti og svo virðist
sem mikið kappsmál sé að ljúka
árinu á góðri sölu.
Stefnir í mesta bílasöluár
frá upphafi
Sumir greinendur hafa gengið
svo langt að segja að bílafram-
leiðendur séu að kaupa sér góða
sölu með öllum þessum afslætti,
en á meðan eru kaupendur glað-
ir og endurnýja bíla sína sem
aldrei fyrr, enda stefnir í besta
bílasöluár í Bandaríkjunum frá
upphafi. Bílasala þarf aðeins að
aukast um 3% á síðustu tveimur
mánuðum ársins til að árið verði
það besta í sögunni, en vöxturinn
hefur verið talsvert meiri það
sem af er ári. Vöxturinn í októ-
ber var t.d. 14%.
Dæmi um allt að 20% afslátt
Dæmi eru um það að bílafram-
leiðendur hafi boðið svo mikið
sem 20% afslátt af bílum sínum
og er Chevrolet Cruze dæmi
um það – verðlistaverð hans er
20.920 dollarar, en Chevrolet
hefur boðið 4.184 dollara afslátt
af því verði og er bíllinn því í
boði á 16.736 dollara, eða 2,2
milljónir króna. Bílaframleið-
endur segja hins vegar að fram-
legð af sölu bíla þeirra sé há
og hefur Ford náð 11,3% fram-
legð af þeim bílum sem seldir
hafa verið í N-Ameríku í ár og
Gen eral Motors 11,8%. Toyota,
Honda, Mazda og Subaru hafa
einnig sýnt vænar framlegðar-
tölur.
Síhækkandi afsláttur af nýjum bílum
í Bandaríkjunum veldur áhyggjum
Þ
ýski bílaframleiðand-
inn Borgward kynnti
nýjan jeppling sem
er grunsamlega líkur
Audi Q5 á bílasýn-
ingunni í Frankfurt
í haust. Borgward
átti sitt blómaskeið fyrir meira
en hálfri öld og fór svo á haus-
inn. Borgward framleiddi bíla
fyrir millistéttina en var nánast
gleymdur sem bílaframleiðandi
þar til merkið var endurreist af
kínverska bíla- og þungavéla-
framleiðandanum Foton. Foton
á 100% í Borgward og ætlar
greinilega að stytta sér leið inn
á evrópska bílamarkaðinn með
þýsku bílamerki.
Borgward BX7
á að keppa við Audi Q5
Foton ætlar ekki að ráðast á
garðinn þar sem hann er lægst-
ur því fyrsti bíll þeirra er jepp-
lingurinn Borgward BX7, sem
keppa mun við Audi Q5 en verða
talsvert ódýrari. Það kemur svo
sem ekki á óvart að fyrsti bíll-
inn sé jepplingur en Foton fram-
leiðir einmitt jepplinga í Kína.
Á miðjum sjötta áratug síð-
ustu aldar var næststærsti bíla-
framleiðandi Þýskalands á eftir
Volkswagen ekki BMW, Merce-
des Benz, Audi eða Opel. Það
var Borgward. Það er sonar-
sonur stofnandans Carls Borg-
ward, Christian, sem fer fyrir
endurreisn bílamerkisins með
fjármagni frá Kína og stuðn-
ingi Foton við smíðina. Í áætlun-
um Borgward hefst fjöldafram-
leiðsla hins fjórhjóladrifna BX7
um mitt næsta ár og fyrirtækið
mun í kjölfarið kynna tvær nýjar
bílgerðir á ári. Borgward hefur
ekki enn fengist til að gefa upp
verð BX7 en segir að það verði
afar samkeppnishæft. Borgward
BX7 á að vera tæknilega mjög vel
útfærður og fullfær um að keppa
við lúxusbíla eins og Audi Q5.
Ætla að framleiða
500.000 bíla á ári
Meiningin er að koma með bíla
Borgward á markað í Evrópu
eftir tvö ár en hasla sér völl í
Kína þangað til. Framleiðslu-
markmið Borgward er 500.000
bílar, nokkuð bratt í ljósi þess
að heildarframleiðsla Borg ward
frá upphafi var um ein milljón
bíla. Foton framleiðir nú þegar
650.000 bíla á ári. Það virðist
hafa verið mjög hugvitssam-
legt að selja kínverska bílafram-
leiðandanum Foton allt hlutafé í
Borgward því með því kemst bíla-
merkið inn á kínverska markað-
inn án þess að vera skattlagt sem
innfluttir bílar. Það hefði annars
tekið um 10 ár. Enn fremur eru
vasar Foton djúpir og því nægt
fjármagn til svo þróa megi nýja
bíla án þess að eiga á hættu að
verða fjárvana. Borgward hefur
í huga að draga að nýja fjárfesta
með því tryggja enn meira þró-
unarfé.
Borgward Isabella var
framleiddur í 200.000 eintökum
Frægasti bíll Borgward var án
vafa Isabella sem framleidd-
ur var í 200.000 eintökum frá
árinu 1954. Hann þótti einstak-
ur bíll, var með sjálfstæða fjöðr-
un á öllum hjólum, afar góðar
bremsur, vó undir einu tonni en
tók samt 6 farþega. Hann þótti
frábær akstursbíll og átti ekki í
vandræðum með að taka snarp-
ar beygjur á mikilli ferð. Auk
þess var hann vel útbúinn og sló
nærri lúxusbílum. Borg ward Isa-
bella var seldur í Bandaríkjunum
og þar mátti fá bílinn á 1.600 doll-
ara. Vel með farin eintök af bíln-
um seljast þar nú á 50.000 dollara
og þykja miklir safngripir. Haft
er eftir þeim sem aka Borgward
Isabella í dag að þar fari bíll sem
ekur eins og nútímabíll, svo eitt-
hvað hefur Borgward gert rétt
með smíði þessa bíls og segja má
að hann hafi verið bíll á undan
sinni framtíð.
Stofnandinn með bílablóð í æðum
en lítill fjármálamaður
Stofnandinn, Carl Borgward, fór
sínar eigin leiðir og sagt var að
hann hefði verið sinn versti óvin-
ur. Hann var með bílablóð í æð-
unum en lítill fjármálamaður og
þegar erfiðir tímar komu árið
1961 urðu bankastofnanir frá-
hverfir stuðningi við Borgward
og fyrirtækið var í kjölfarið lýst
gjaldþrota. Nú er ný saga að hefj-
ast hjá Borgward og spennandi
verður að sjá hvernig þróun þess
verður á næstu árum undir for-
ystu sonarsonar hans.
bílaframleiðandinn
borgward er frá kína
Borgward BX7 er fyrsti bíll Borgward í meira en hálfa öld.
Borgward stefnir á 500.000 bíla framleiðslu á ári og sölu Í Evrópu.
Nú má fá Chevrolet Cruze með allt að 20% afslætti.
Svo margar pantanir hafa borist í lúxusjeppann Bentley Bentayga að
Bentley hefur ákveðið að bjóða tvær nýjar jeppagerðir í kjölfarið. Það yrði
„coupe“-útgáfa Bentayga og minni gerð bílsins sem gæti flokkast sem
jepplingur. Alls hafa borist 4.000 pantanir í hinn rándýra Bentley Bentayga
jeppa og mun að auka sölu Bentley um 40%. Alls ekki lítill vöxtur það og
dæmigert fyrir það hvað jeppar og jepplingar hafa gert fyrir mörg önnur
bílafyrirtæki. Bentayga er með sama undirvagn og nýr Audi Q7, enda til-
heyra bæði bílamerkin Volkswagen-samstæðunni. Minni gerð hans gæti
staðið á léttum MSB-undirvagni frá Volkswagen, en ekkert er staðfest í
þeim efnum.
Tilkoma Bentayga mun færa sölu Bentley í um 12.000 bíla á ári, en mark-
mið fyrirtækisins er að selja 15.000 bíla árið 2018. Því er mjög freistandi
fyrir Bentley að bæta jepplingi í bílaflóruna og ætti markmiðið þannig auð-
veldlega að nást, ef mið er tekið af viðtökum við Bentayga. Bentley ætlar
líka að bjóða „coupe“-útgáfu Bentayga sem verður enn öflugri en venjulegi
600 hestafla bíllinn. Hann verður straumlínulagaðri og á að geta komist á
320 km hraða og klára sprettinn í 100 á undir 4 sekúndum.
Bentley „Baby“ Bentayga
jepplingur á teikniborðinu
Jeppi stendur ekki undir nafni nema hann sé vel dekkjaður. Ef þú
vilt nýta til fullnustu, orku, aksturseiginleika og öryggi jeppans,
skiptir sköpum að velja réttu dekkin. Þegar jeppadekk eru annars
vegar búum við yr áratuga reynslu og þekkjum þá eiginleika sem
breytilegar akstursaðstæður kalla á.
RÉTTU JEPPADEKKIN
KOMA ÞÉR ALLA LEIÐ
NESDEKK.IS / 561 4200BENNI.IS / 590 2045
Mud-terrain KM2 Bighorn MT-762Open Country MT
All-terrain AT Bravo AT-771Open Country AT
Fáðu aðstoð við val á jeppadekkjum hjá söluaðilum okkar um land allt
Þó svo að hægt hafi verulega á vexti í bílasölu í Kína var vöxturinn þar mikill
í október, eða 10% og seldust alls 1,94 milljónir bíla og var það umfram
spár. Bílasala hefur ekki aukist jafn mikið í Kína á milli ára í 7 mánuði og er
því spáð að hún verði á flugi næstu mánuðina.
Kínverskir bílaframleiðendur sóttu verulega á erlenda bílaframleiðendur
og jókst markaðshlutdeild þeirra um 2,1% frá fyrra ári. Innfluttir bílar í Kína
bera nokkuð háa tolla og hefur það orðið vatn á myllu innlendra framleið-
enda. Kínversk stjórnvöld hafa lækkað tolla almennt á bíla og vilja með því
auka söluna og tölurnar frá október staðfesta að það hefur tekist. Eins og
víða annars staðar er sala jepplinga og jeppa mikil og vöxturinn milli ára
nam 61% og seldust 622.000 þannig bílar í október.
Á meðan seldust 1,05 milljónir fólksbíla og stóða sala þeirra í stað á
milli ára. Því er allur vöxturinn fólginn í sölu jepplinga og jeppa. Kínverski
bílaframleiðandinn Great Wall, sem býður gott úrval jepplinga og jeppa,
jók söluna um 14% í október. Ford og Hyundai náði einnig umtalsverðri
aukningu.
Kínverskir bílaframleiðendur
vinna á heima fyrir
bílar
Fréttablaðið
8 1. desember 2015 ÞRIÐJUDAGUR
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
4
9
-7
B
4
8
1
7
4
9
-7
A
0
C
1
7
4
9
-7
8
D
0
1
7
4
9
-7
7
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K