Fréttablaðið - 01.12.2015, Side 29
3,01 l bensínvél, 370 hestöfl
Afturhjóladrif
Eyðsla 7,4 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 169 g/km CO2
Hröðun 4,2 sek.
Hámarkshraði 295 km/klst.
Verð 19.490.000 kr.
Umboð Bílabúð Benna
l Aksturseiginleikar
l Glæsileiki
l Eyðsla
l Fundust ekki
Porsche 911
carrera
hvorugur tók eftir því að svitinn
spratt fram líkt og við værum í
spretthlaupi.
„Launch control“ og fáránlega
góðar bremsur
Þegar komið var niður af fjallinu
var endað við yfirgefið hafnar-
svæði í bænum Santa Cruz og þar
var búið að útbúa braut til prófun-
ar á „launch control“-sprettbún-
aði bílsins, svigakstri og mögn-
uðum bremsubúnaði hans. Ekki
var það heldur leiðinlegt og sýndi
ennfremur hversu fáránlega
góður bíll hér er á ferð. Á örstutt-
um kafla fór hann í 140 km hraða
og þá skildi bremsað af öllu afli og
bíllinn stöðvaðist á svo lítilli vega-
lengd að ökumaður hreinlega trúði
því ekki. Góður bremsubúnaður
bílsins kom reyndar í góðar þarf-
ir oftar, ekki síst er páfugl kom
skokkandi á móti þegar komið var
úr einni beygjunni á leiðinni að
Teide. Óvíst er hverjum brá meira,
okkur eða fuglinum.
Að sjálfsögðu er 911 Carrera
orðinn sneggri en forverinn og
fer sprettinn í 100 á 4,2 sekúnd-
um með PDK-sjálfskiptingunni
og með Sport Plus stillinguna á.
Samsvarandi tími Carrera S er
3,9 sekúndur. Það eru ekki bara
fleiri hestöfl sem ýta undir snerp-
una heldur fæst aukið tog nú á
lægra snúningi og eins merkilegt
og það er þá hjálpa forþjöppurn-
ar bílnum mikið á lágum snún-
ingi, eitthvað sem maður á ekki að
venjast.
Lítið breytt útlit og lægra verð
Útlit 911-bílsins hefur ekki breyst
mikið með þessari andlitslyftingu,
en þó hefur merkilega miklu verið
skipt út. Hann er með ný LED-aðal-
ljós og -aftur ljós, nýja brettalínu,
húdd og upplýsingakerfi, svo eitt-
hvað sé nefnt. Aðalbreytingin er í
vélar húsinu.
Margir hafa haft áhyggjur af
hljóði vélarinnar með forþjöppu,
en flestir voru sammála um það að
ef eitthvað er hljómi vélin nú enn
betur og það forþjöppuhljóð sem
margir þekkja úr svo búnum bílum
er ekki til staðar, heldur áfram
grimmt og djúpt hljóð kraftavélar.
Rafræn stýrisaðstoð er í bílnum
nú eins og í forveranum og hefur
Porsche tekist að bæta hana enn og
tilfinningin fyrir framhjólunum til
stýrisins er góð, öndvert við marg-
an annan bílinn með slíkri aðstoð.
Nú er hægt að fá 911 Carrera
með beygjuaðstoð á aftari öxli og
eykur það annars frábæra aksturs-
getu bílsins og gerir beygjuradíus
hans einkar lítinn. Annar aukabún-
aður sem fá má nú er loftpúðafjöðr-
un að framan sem lyftir bílnum um
allt að 3 cm ef fara skal yfir hindr-
anir. Gæti verið æskilegur búnað-
ur í hraðahindranabiluðu landi sem
hérlendis.
Eitt það besta við þennan breytta
Porsche 911 Carrera er það að hann
lækkar í verði og kostar nú undir
20 milljónum, en það gerði forver-
inn ekki. Þökk sé því að hann lækk-
ar um vörugjaldsflokk vegna minni
mengunar.
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
1 Hinn nýi Porsche 911 kominn í 2.250 metra
hæð á leiðinni upp Teide-fjall
á Tenerife.
2 Þvílíkar lúxusinnréttingar ávallt hjá Porsche.
3 Sprett var úr spori á gamla hafnarsvæðinu í
St. Cruz og „launch control“
búnaðurinn prófaður og
bremsurnar.
1 2
3
Fréttablaðið
7BílarÞRIÐJUDAGUR 1. desember 2015
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
4
9
-7
6
5
8
1
7
4
9
-7
5
1
C
1
7
4
9
-7
3
E
0
1
7
4
9
-7
2
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K