Fréttablaðið - 01.12.2015, Side 54

Fréttablaðið - 01.12.2015, Side 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Maður lætur hafa sig út í allt mögu-legt, og þetta ætlar að gera heilmikla lukku,“ segir Ing- unn Hlín Björgvinsdóttir, dans- stjarna sem slegið hefur rækilega í gegn í nýjasta myndbandi Emmsjé Gauta, sem ber nafnið Ómar Ragn- arsson. „En þetta var nú bara allt í lagi, þeir hringdu og ég gerði þetta,“ útskýrir hún. Dansar Ingunn línudans af mikl- um móð í myndbandinu en viður- kennir þó fúslega að hafa ekki haft hugmynd um hvernig hún hafi ætlað að dansa í téðu myndbandi.  „Ég dansaði bara það sem mér datt í hug, heyrði taktinn og þá kom þetta allt saman til mín,“ útskýrir Ingunn og bætir glottandi við: „Þetta fer allt eftir músíkinni, maður dansar nú alveg hraðar en þetta.“ Ingunn er svo sem enginn aukvisi þegar kemur að því að sýna dans í myndböndum. „Ég hef nú dansað með Geirmundi Valtýssyni í sjónvarpinu einu sinni, nema þá vorum við reyndar fjórar. Svo hef ég dansað með Helga Björns líka.“ Sjálf hefur Ingunn ekki verið mikið í að dansa við rapptónlist,og sagðist ekk- ert hafa þekkt þennan Emmsjé Gauta þegar verkefnið datt inn á borð til hennar. „Ég þekki hann ekki nokkurn skapaðan hlut. Þeir hringdu á stöðv- arnar og var bara endalaust bent á mig,“ útskýrir Ingunn og bætir við: „Svona lætur áttatíu og fjögurra ára kerlingin,“ og hlær eins og hún eigi lífið að leysa. Ingunn hefur dansað síðan hún var ung, og fór mikinn í samkvæm- isdönsum. „Ég dansaði alltaf við bróður minn, en svo hætti hann. Þá fór ég beint á línuna, þar þarf engan herra,“ segir hún, alsæl með sitt sport en hún hefur dansað línudans í um tuttugu ár núna, og kennir hann að auki. Eins og það sé ekki nóg segir Ingunn frá því að dansinn umlyki hana úr öllum áttum, en á dögunum hafi sjö ára barnabarn hennar orðið Íslandsmeistari í gömlu dönsunum og árið 2003 hafi dóttir hennar orðið heimsmeistari í samkvæmisdönsum, svo sennilega sé þetta allt saman í blóðinu. Aðspurð um hvort hún ætli sér að hasla sér frekari völl innan rapp- senunnar svara okkar kona því til að hún viti ekkert um það, en það megi vissulega skoða allt. gudrun@ frettabladid.is Línudansdrottningin hans Emmsjé Gauta „Svona lætur áttatíu og fjögurra ára kerlingin,“ segir Ingunn Hlín Björgvinsdóttir sem dansar í myndbandi lagsins Ómar Ragnarsson sem Emmsjé Gauti sendi nýverið frá sér og hefur slegið þar í gegn. Þau Gauti og Ingunn eiga línudansinn sameiginlegan, það er, meðan hún dansar eftir kúnstarinnar reglum þá stígur Gauti hann í daglegu lífi og eftir eigin höfði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILhELM Kláraði þetta á fjörutíu mínútum „Ingunn er svona undrakona, þetta tók okkur í mesta lagi fjörutíu mínútur, eða tvö rennsli, sem er frekar óvenjulegt,“ segir Gauti Þeyr, eða Emmsjé Gauti. „Hugmyndin er komin frá Frey Árnasyni og mér leist auðvitað vel á þetta bara.“ Gauti er að vonum himinlifandi með myndbandið, sem sker sig sannarlega úr dobíu rappmyndbanda, þar sem býsna sjaldgæft er að konum á níræðisaldri sé gert hátt undir höfði, en á aðeins tveimur sólarhringum hlaut mynd- bandið tólf þúsund spilanir. „Ég væri helst til í að fá hana bara með mér að túra,“ svarar Gauti þegar hann er inntur eftir því hvort hann ætli sér að fá Ingunni í fleiri verkefni, en aug- ljós tenging er á milli línudansins og rappsins fyrir þá sem nú þegar hafa ekki komið auga á hana. „Ég hef alltaf dansað mikið á línunni, svo ég tengi þannig mikið við línudansinn,“ út- skýrir hann að lokum og skellir upp úr. ÉG dansaðI Bara það sEm mÉr datt í HuG, HEyrðI taktInn oG þá kom þEtta aLLt saman tIL mín. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 1 . d e s e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U d A G U r34 L í f I Ð ∙ f r É T T A b L A Ð I Ð 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 4 9 -6 C 7 8 1 7 4 9 -6 B 3 C 1 7 4 9 -6 A 0 0 1 7 4 9 -6 8 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.