Fréttablaðið - 24.11.2015, Blaðsíða 10
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Við höfum tekið skref í þá átt að geta sagt það list að lifa saman. List sem skapast af fjölbreytileika mannlífs, ólíkum bakgrunni okkar, venjum, gildum,
menningu og trúararfi.
Við trúum því að fjölbreytileiki leysi ekki
einungis úr læðingi sköpunarkraft í samfélaginu,
heldur gegni mikilvægu hlutverki í þeirri list að
lifa saman. Á þeirri trú byggjum við í Neskirkju
og Félagi Horizon það samstarfsverkefni að halda
Ashura-hátíð að tyrkneskum sið.
Markmiðið er að sýna fram á að hver sam-
félagshópur eigi sín litbrigði og sinn sess í sam-
félaginu. Með því að leggja saman litbrigði sam-
félagshópa skapast það sem við nefnum listina að
lifa saman.
Innblástur verkefnisins kemur frá Nóa spá-
manni. Þegar Nói fann loks þurrt land fagnaði
hann með því að útbúa búðing með þeim ólíku
hráefnum sem hann fann.
Þrátt fyrir að hráefnin hafi verið óvenjuleg og
ólík að lit og lögun, var útkoman svo góð að hefð-
inni hefur verið viðhaldið til okkar daga.
Í Ashura-búðingnum, sem boðið verður upp á
á hátíðinni, hefur hvert hráefni sitt sérkennandi
bragð, sitt litbrigði og sín áhrif á bragðlauka og
líkama þess sem neytir.
Hvert hráefni er einstakt og hefur sín sérkenni.
Ashura táknar þann fjölmenningar- og fjöltrúar-
bragðaheim sem við lifum í og samanstendur af
ólíkum einstaklingum og þjóðfélagshópum, sem
hafa hvert sitt sérkenni og hlutverk við að mynda
litríkt samfélag.
Öll höfum við okkar sérkenni að leggja til sam-
félagsins. Hvern einstakling skyldi virða og elska
að eigin verðleikum og þeirri elsku náum við með
því að koma saman sem eitt mannkyn.
Þess vegna erum við, í Neskirkju og Félagi
Horizon, innblásin af sögunni af Ashura-búðingi
Nóa spámanns.
Listin að lifa saman
Derya Ozdilek
formaður Félags
Horizon
Toshiki Toma
prestur innflytj-
enda
Með því að
leggja saman
litbrigði
samfélagshópa
skapast það
sem við
nefnum listina
að lifa saman.
Frá degi til dags
„Þessi bók er veisla“
Vigdís Grímsdóttir
Ekki þarf mikið til að æra óstöðuga og kemur ekki á óvart að í ákveðnum hópum hér á landi hafi forsprökkum hryðjuverkaárásanna í París tekist að æsa upp fordóma og hatur á öðru fólki. Í slíku andrúmslofti er sérstaklega mikilvægt að sæmilega hugsandi fólk gæti að
því að bæta ekki olíu á eld sundrungar og ótta.
Fyrir utan sóðaorðræðu brenglaðs fólks á netinu eru
nærtæk úr fréttum síðustu daga tvö dæmi um aukna
fordóma. Einstæð móðir í húsnæðisvanda fékk þau svör
hjá leigusala í Reykjavík að hann vildi ekki leigja henni
vegna þess að hún væri múslimi. Konan er flóttamaður
frá Gaza í Palestínu.
Þá kom upp í gær að skemmdarverk hefðu verið
unnin á Menningarsetri múslima í Reykjavík. Krotað
hafði verið á dyr, glugga og á þak. Og þótt Ahmad
Seddeeq, ímam í Menningarsetrinu, segist ekki búast
við viðlíka hatursglæpum hér á landi og komið hafa
upp í nágrannalöndunum, þar sem moskur hafa verið
brenndar, er ástæða til að hafa vara á.
„Hér ættum við að sameinast um að vera í friði og ekki
láta afvegaleiðast af vanþekkingu eða dreifa hatri og for-
dómum,“ sagði Seddeeq í fréttum Bylgjunnar í gær og er
óhætt að taka undir með honum þar. „Við í Menningar-
setrinu erum þeirrar skoðunar að sá eða þeir sem gerðu
þetta séu ekki fulltrúar almennings á Íslandi,“ sagði hann
líka. Og það er líka rétt. Þetta eru fávitar.
Öll trúarbrögð eiga sína öfgahópa og sjálfsagt er
að berjast gegn áhrifum þeirra. Í þeirri baráttu á allur
meginþorri fólks, sama hverrar trúar hann er. Þess vegna
er ástæðulaust að beina sjónum sérstaklega að einhverj-
um einum trúarbrögðum. Orsaka ofbeldisins er enda að
leita annars staðar en í trúarbrögðunum sjálfum, þótt
þau kunni að þykja hentug til réttlætingar. Ræturnar
liggja í misskiptingu og óréttlæti, bæði milli landa og
þjóðfélagshópa.
Ofbeldisverkin eru líka vatn á myllu einangrunarsinna
og annarra sem vilja ala á og nýta sér ótta fólks. Það er
hins vegar ekki félegt samfélag manna þar sem ótti og
fáfræði ráða för.
Sem betur fer á sér stað opinská umræða um þessi
mál, sér í lagi þar sem málsmetandi fólk þykir hafa farið
út af sporinu í viðbrögðum við ódæðisverkunum í París.
Þannig hefur Baldur Þórhallsson prófessor gagnrýnt Ólaf
Ragnar Grímsson forseta fyrir að beina sjónum sínum
sérstaklega að múslimum í umræðu um atburðina, vara
við tilraunum Sádi-Araba til að styrkja félög múslima hér
á landi og fyrir að velta upp spurningum um úrgöngu úr
Schengen-landamæraeftirlitinu.
„Það er nokkuð ljóst að forseti Íslands hefur hagað
orðum sínum með þeim hætti að þau hafa frekar leitt til
sundrungar í samfélaginu heldur en sameiningar,“ segir
Baldur. Forsetinn er nefnilega forseti allra Íslendinga,
líka múslima.
Velta má því fyrir sér hvort ótti við einstök trúar-
brögð, erlent fjármagn (olíuauð og peninga kínverskra
fjárfesta) eða samstarf fullvalda ríkja endurspegli vantrú
á innviðum samfélagsins, lagaumhverfi og getunni til
að taka á hvers konar glæpum. Leiðin áfram hlýtur að
snúast um að bæta úr þar sem úrbóta er þörf, heima og á
heimsvísu, en láta ekki óttann ráða för.
Óttaviðbrögð
Öll trúarbrögð
eiga sína
öfgahópa og
sjálfsagt er að
berjast gegn
áhrifum
þeirra. Í þeirri
baráttu á allur
meginþorri
fólks, sama
hvaða trúar
hann er. Þess
vegna er
ástæðulaust
að beina
sjónum
sérstaklega að
einhverjum
einum trúar-
brögðum.
Ál í ál í Straumsvík
Líkur eru nú á því að álverinu
í Straumsvík verði lokað fyrir
fullt og allt á næstu vikum og
mánuðum. Harðar deilur hafa
staðið yfir síðustu mánuði um
kaup og kjör starfsmanna í
álverinu þar sem móðurfyrir-
tæki álversins ytra hefur þrýst
á að ákveðin niðurstaða náist í
kjaradeiluna. Rio Tinto Alcan
hefur á síðustu árum lokað
nokkrum álverum úti um allan
heim. Því er raunverulega
hætta á að það gerist hér á landi
líka. Á fimmta hundrað starfs-
manna vinnur í Straumsvík
auk þess sem önnur fyrirtæki
þjónusta álverið. Því yrðu
afleiðingarnar gífurlegar ef
álverinu yrði lokað.
Rólegt á vígstöðvunum
Kjarninn greinir frá því að
þessi þingvetur sé sá rólegasti á
þessari öld. Fréttablaðið hefur
einnig ítarlega gert grein fyrir
því hversu fá mál ríkisstjórnar-
innar hafi ratað til þingsins það
sem af er þingvetri. Það sem
er þó áhugavert er að stjórnar-
andstaðan hefur kveinkað sér
mikið þetta haustið. Í aðra
röndina gagnrýna þau ríkis-
stjórn fyrir að eyðileggja hitt
og þetta en í hina fyrir að gera
ekki neitt. Ætti það ekki að
vera fagnaðarefni fyrir stjórn-
arandstöðu að meirihlutinn
geri ekki neitt, ef hann er svona
svakalega slæmur?
sveinn@frettabladid.is
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r10 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
B
-4
E
9
0
1
7
2
B
-4
D
5
4
1
7
2
B
-4
C
1
8
1
7
2
B
-4
A
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
3
2
s
_
2
3
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K