Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.11.2015, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 24.11.2015, Qupperneq 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Skrautbúinn maður rétti mér miða. Ég leit á og sá að hann var að bjóða stinningarlyf, vörn gegn illa auganu, seið til að vinna ástir kvenna og síðan sérstakt lygalyf. Þetta vakti athygli mína þó ég sé ýmsu vanur á leið minni heim úr vinnu enda margt kynlegra kvista í Malagaborg. Ég spurði hann út í lygalyfið. Hann opnaði þá leðurskjóðu mikla og rétti síðan fram lítinn poka með hvítu dufti og opnaði hann. Þetta leit út eins og kókaín eða hreinlega lyftiduft. Svo sagði hann stoltur: „Með þessu er hægt að ljúga kinn- roðalaust hverju sem er, meira að segja sálfræðingar gætu ekki greint þar nokkuð gruggugt. Þar sem það eru kosningar í næsta mánuði býð ég sérstakan afslátt.“ Ég hef séð aðeins of margar bíómyndir um dagana svo ég dýfði löngutöng ofan í pokann og stakk síðan puttanum upp í mig. Maðurinn, sem sagðist vera frá Nígeríu, var ekki ánægður með þetta. Spurði hvern fjárann ég væri að hugsa, þetta væri rándýrt efni, unnið úr nashyrningahorni og sænsku skapa hári. Hann vildi rukka mig um tvo skammta. Mér þótti þetta náttúrlega afskaplega leitt en ekki lengi þó. Ég var nefnilega rétt kominn fyrir horn þegar lögreglumaður gómaði mig og spurði hvað ég hefði verið að vilja með kaupmanninum atarna. Mér til mikillar hrellingar komst ég að því að ég gat engu logið að lög- reglunni og átti ég þó að vera búinn með dágóðan skammt af lygalyfinu. Þetta hefur allt verið lygi hjá honum bölvuðum, hugsaði ég með mér. Svo kom ég heim, ákvað að breyta svolítið til og setti hár mitt í tagl. Síðan settist ég niður við tölvuna og ákvað að fara að skrifa þennan pistil. Allt í einu þegar ég var búinn að opna word-skjalið fann ég að lyfið var farið að virka. Pistlahöfundur á lyfjum Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun Gallup, apr.–jún. 2015 YFIRBURÐIR Fréttablaðsins staðfestir 54,0% 19,3% FB L M BL Allt sem þú þarft ... 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :1 2 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 2 A -F A A 0 1 7 2 A -F 9 6 4 1 7 2 A -F 8 2 8 1 7 2 A -F 6 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 2 3 1 1 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.