Fréttablaðið - 24.11.2015, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 24.11.2015, Blaðsíða 12
Ólafur aftur til SvíþjÓðar Ólafur Guðmundsson, landsliðs- maður í handbolta, er á leiðinni aftur til ifK Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta, en hann er á mála hjá Hannover- Burgdorf í þýsku 1. deildinni. Hann hefur verið mikið meiddur og aðeins skorað fjögur mörk til þessa í tíu leikjum. Ólafur var í stærra hlutverki hjá liðinu á síðustu leiktíð eftir að hafa slegið í gegn með Kristians- tad árið áður. Hann var áður á mála hjá dönsku liðinum aG Kaupmannahöfn og Nord sjælland. Kristian stad er í efsta sæti sænsku deildar- innar. Í dag 19.15 Meistaradeildarkvöld Sport 4 19.45 Arsenal - Dinamo Sport 19.45 Maccabi - Chelsea Sport 3 19.45 Bayern - Olympiacos Sport 5. 19.45 Barcelona - Roma Bravó 21.45 Meistaramörkin Sport Ætli ég sé meiðslapési því ég er Arsenal-fan, eða Arse- nal-fan af því ég er meiðsla- pési ?! Eva Hafdís @Eva Hafdis iNGÓlfur Samdi við fram ingólfur Sigurðsson er genginn til liðs við fram og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Hann var samningslaus eftir að hafa spilað með víkingi Ólafsvík síðastliðið sumar en liðið vann 1. deild karla með tíu stiga mun og tryggði sér sæti í Pepsi-deild karla. ingólfur var fastamaður í liði víkings í sumar. Hann spilaði sam- tals 21 deildarleik og skoraði þar sex mörk. Hann er aðeins 22 ára gamall en á þrátt fyrir það langan feril að baki. Hann lék með ung- lingaliðum Heerenveen á sínum tíma sem og lyngby í danmörku. þá hefur hann áður verið á mála hjá val, Kr, þrótti og Kv Nýjast Geir Hitti fifa-framBjÓð- eNdur í KauPmaNNaHöfN formenn knattspyrnusam- bandanna á Norðurlöndum, þar á meðal Geir þorsteinsson, formaður KSí, hittu fjóra forsetaframbjóð- endur fifa á fundi í Kaupamanna- höfn í gær. þetta voru þeir jerome Champagne, Gianni infantino, Prince ali og tokyo Sexwale. fram- bjóðendurnir fengu þarna tækifæri til að kynna sínar hugmyndir og framtíðarsýn fyrir formönnum Norðurlandaþjóðanna. „forset- arnir hafa ekki ákveðið hvern þeir styðja sem nýjan forseta fifa. þeir munu núna fara innbyrðis yfir allt sem þeir heyrðu og reyna að komast að sameiginlegri niður- stöðu um hvern skal kjósa,“ sagði í sameiginlegri tilkynningu eftir fundinn. Nælið ykkur í miða á kvennalandsleikinn á miðvikudag, það eru töggur í liðinu okkar, styðjum þær vel í Höllinni #korfubolti #EuroBasket2017 Jón Björn Ólafsson @JonBjornOlafs FótBOlti Gríska liðið Olympiakos er sjóðheitt um þessar mundir. liðið hefur unnið alla tíu leiki sína í grísku úrvalsdeildinni til þessa með marka- tölunni 28-4 og síðustu þrjá í meistara- deild evrópu. Grikkina vantar aðeins eitt stig til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum og það gæti komið í kvöld. verkefnið er reyndar ærið en Olympiakos mætir þá þýskalands- meisturum Bayern münchen á allianz-leikvanginum í münchen. Bayern hefur unnið alla heimaleiki sína í deildinni þar í haust og tvo leiki í meistaradeildinni með markatölunni 10-1. liðin eru efst og jöfn í f-riðli með níu stig hvort en arsenal og dinamo Zagreb eru með þrjú. „við gerum okkur alveg grein fyrir því hverjum við erum að fara að mæta,“ segir alfreð í samtali við frétta- blaðið. Hann er nýkominn upp á liðs- hótelið í münchen eftir skrautlega helgi. aflýsa þurfti leik erkifjendanna Panathinaikos og Olympiakos vegna óláta stuðningsmanna fyrrnefnda liðsins en alfreð fékk til að mynda logandi blys í sig þegar hann var ásamt félögum sínum að taka út aðstæður á vellinum. alfreð mun eins og fleiri sem mál- inu tengjast fara fyrir sérstaka nefnd í Grikklandi vegna málsins þar sem hann mun gefa skýrslu. þangað til er honum óheimilt að ræða það við fjöl- miðla. Engin útivallargrýla það átti eftir að fara nákvæmlega út í leikskipulag Olympiakos fyrir leikinn þegar alfreð ræddi við fréttablaðið en hann þóttist vita að liðið myndi nálgast leikinn af varfærni. „það verður gott skipulag á liðinu, rétt eins og í fyrri leiknum,“ sagði hann en þegar liðin mættust í fyrstu umferð riðlakeppni meistaradeild- arinnar í haust þá unnu þjóðverj- arnir 3-0 sigur í Piraeus. eftir marka- lausan fyrri hálfleik skoraði thomas müller snemma í þeim síðari en hin tvö mörkin komu ekki fyrr en í blá- lokin og annað þeirra var víti. Grísk lið hafa sjaldnast átt góðu gengi að fagna í útileikjum í evr- ópukeppni en Olympiakos hefur sýnt í ár að það getur staðið í hverj- um sem er. 3-2 sigurinn á arsenal, þar sem alfreð skoraði eftirminni- lega sigurmarkið, og 1-0 sigur á dinamo Zagreb sýna það. „það er allt hægt í fótbolta og við förum með rétt hugarfar í hvern einasta leik. þegar dregið var í riðla þá reiknuðu ef til vill ekki margir með því að við færum langt en allir í klúbbnum og stuðningsmenn eru bjartsýnismenn. það hefur allt gengið upp á tímabilinu til þessa.“ Þreyttur á spurningunum alfreð hefur áður greint frá því hversu erfitt það er að sætta sig við að vera á hliðarlínunni eins og hefur oftast verið hlutskipti hans í haust. Hann var í byrjunarliðinu í fyrstu umferð deildarkeppninnar en hefur síðan komið aðeins við sögu sem varamaður, hvort sem er í deildinni heima eða í meistara- deildinni. „þetta gengur upp og niður hjá manni. þetta er hugarleikfimi enda finnst engum skemmtilegt að vera í þessari stöðu,“ segir alfreð spurður um hvernig honum gangi að halda fullri einbeitingu. „maður er auðvi- tað þreyttur á spurningum um þessi mál. þetta er svipað og með lands- liðið. en ég geri allt sem ég get gert og svo er þetta í höndum annarra.“ Fáránleg ákvörðun Sem fyrr segir náði alfreð að vekja mikla athygli á sér þegar hann tryggði Olympiakos 3-2 sigur á arsenal í lund- únum, eftir að hafa komið inn á sem varamaður. en honum þykir óskiljan- legt að vita til þess að hann fékk ekki fleiri tækifæri eftir þá góða innkomu. „það er fáránleg ákvörðun að fram- herji sem skorar sigurmark skuli vera settur á bekkinn næstu fjóra leiki á eftir. það sendir ákveðin skilaboð og sýnir að maður er að synda gegn sterkum straumum. það er greini- lega búið að taka ákvörðun og ekkert sem breytir því, sama hvað gerist. það er mjög sérstakt.“ alfreð segir að hann hafi komið til Grikklands undir ákveðnum formerkjum og því hafi þróun m á l a ko m i ð honum mjög á óvart. „en svo var keyptur nýr framherji til liðsins og þá er eins og allt hafi breyst. Ég geri mér vel grein fyrir því að það er mikil samkeppni um stöður í liði sem er við það að komast í 16-liða úrslit meistara- deildarinnar en manni þætti eðli- legt að samkeppnin væri sanngjörn. mér finnst að það ekki hafa verið tilfellið.“ Skoða stöðuna í janúar lánssamningur alfreðs er til loka tímabilsins í Grikklandi en hann er á mála hjá real Sociedad á Spáni, sem skipti nýverið um þjálfara. alfreð útilokar ekki að skoða stöðu sína í janúar ef ekkert breytist. „maður hefur velt öllu fyrir sér og ég útiloka ekki neitt. maður vill auð- vitað fá að spila en það er margt sem hefur áhrif á svona ákvörðun. Ég er auðvitað með samning og ég mun auðvitað virða hann.“ þangað til að kemur að því mun alfreð nýta öll þau tækifæri sem hann fær og hann vonast vitaskuld til þess að það komi í kvöld. „þetta verður afar skemmtileg upplifun. Hér er gríðarlega mikil saga og hér vilja allir knattspyrnu- menn fá tækifæri til að spila,“ segir alfreð sem myndi v i t a n l e g a ekki leiðast að fá tæki- færi til að taka þátt í því að valda stórliði Bayern skráveifu. „það væri geggjað,“ segir hann og hlær. „en ég hef ekki hugsað mikið um það. Ég einbeiti mér að því að vera tilbúinn ef til mín verður leitað. það er stærsta atriðið.“ Það er allt hægt í fótbolta Alfreð Finnbogason og félagar í Olympiakos mæta Bayern München á hinum magnaða Allianz-leikvangi í München. Alfreð er ósáttur við hversu lítið hann hefur fengið að spila en vonast eftir tækifæri í kvöld. Alfreð í baráttu við Arsenal-manninn Alexis Sanchez í leik Olympiakos og Arsenal í Meistaradeild Evrópu. FRéttABlAðið/gEtty Það er fáránleg ákvörðun að framherji sem skorar sigur- mark skuli vera settur á bekkinn næstu fjóra leiki á eftir. Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@365.is 2 4 . n ó v E m B E r 2 0 1 5 Þ r i Ð J U D A G U r12 s p O r t ∙ F r É t t A B l A Ð i Ð sport 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :1 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 2 B -E 7 A 0 1 7 2 B -E 6 6 4 1 7 2 B -E 5 2 8 1 7 2 B -E 3 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 3 2 s _ 2 3 1 1 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.