Fréttablaðið - 24.11.2015, Qupperneq 12
Ólafur aftur til SvíþjÓðar
Ólafur Guðmundsson, landsliðs-
maður í handbolta, er á leiðinni
aftur til ifK Kristianstad í sænsku
úrvalsdeildinni í handbolta, en
hann er á mála hjá Hannover-
Burgdorf í þýsku 1. deildinni.
Hann hefur verið mikið
meiddur og aðeins
skorað fjögur mörk til
þessa í tíu leikjum. Ólafur
var í stærra hlutverki hjá
liðinu á síðustu leiktíð
eftir að hafa slegið í
gegn með Kristians-
tad árið áður. Hann
var áður á mála hjá
dönsku liðinum aG
Kaupmannahöfn og
Nord sjælland.
Kristian stad
er í efsta
sæti sænsku
deildar-
innar.
Í dag
19.15 Meistaradeildarkvöld Sport 4
19.45 Arsenal - Dinamo Sport
19.45 Maccabi - Chelsea Sport 3
19.45 Bayern - Olympiacos Sport 5.
19.45 Barcelona - Roma Bravó
21.45 Meistaramörkin Sport
Ætli ég sé meiðslapési því
ég er Arsenal-fan, eða Arse-
nal-fan af því ég er meiðsla-
pési ?!
Eva Hafdís
@Eva Hafdis
iNGÓlfur Samdi við fram
ingólfur Sigurðsson er genginn til
liðs við fram og hefur skrifað undir
tveggja ára samning við félagið.
Hann var samningslaus eftir að
hafa spilað með víkingi Ólafsvík
síðastliðið sumar en liðið vann
1. deild karla með tíu stiga mun
og tryggði sér sæti í Pepsi-deild
karla. ingólfur var fastamaður í liði
víkings í sumar. Hann spilaði sam-
tals 21 deildarleik og skoraði þar
sex mörk. Hann er aðeins 22 ára
gamall en á þrátt fyrir það langan
feril að baki. Hann lék með ung-
lingaliðum Heerenveen á sínum
tíma sem og lyngby í danmörku.
þá hefur hann áður verið á mála
hjá val, Kr, þrótti og Kv
Nýjast
Geir Hitti fifa-framBjÓð-
eNdur í KauPmaNNaHöfN
formenn knattspyrnusam-
bandanna á Norðurlöndum, þar á
meðal Geir þorsteinsson, formaður
KSí, hittu fjóra forsetaframbjóð-
endur fifa á fundi í Kaupamanna-
höfn í gær. þetta voru þeir jerome
Champagne, Gianni infantino,
Prince ali og tokyo Sexwale. fram-
bjóðendurnir fengu þarna tækifæri
til að kynna sínar hugmyndir og
framtíðarsýn fyrir formönnum
Norðurlandaþjóðanna. „forset-
arnir hafa ekki ákveðið hvern þeir
styðja sem nýjan forseta fifa. þeir
munu núna fara innbyrðis yfir
allt sem þeir heyrðu og reyna að
komast að sameiginlegri niður-
stöðu um hvern skal kjósa,“ sagði
í sameiginlegri tilkynningu eftir
fundinn.
Nælið ykkur í miða á
kvennalandsleikinn á
miðvikudag, það eru töggur í
liðinu okkar, styðjum þær
vel í Höllinni #korfubolti
#EuroBasket2017
Jón Björn Ólafsson
@JonBjornOlafs
FótBOlti Gríska liðið Olympiakos
er sjóðheitt um þessar mundir. liðið
hefur unnið alla tíu leiki sína í grísku
úrvalsdeildinni til þessa með marka-
tölunni 28-4 og síðustu þrjá í meistara-
deild evrópu. Grikkina vantar aðeins
eitt stig til að tryggja sér sæti í 16-liða
úrslitunum og það gæti komið í kvöld.
verkefnið er reyndar ærið en
Olympiakos mætir þá þýskalands-
meisturum Bayern münchen á
allianz-leikvanginum í münchen.
Bayern hefur unnið alla heimaleiki
sína í deildinni þar í haust og tvo leiki
í meistaradeildinni með markatölunni
10-1. liðin eru efst og jöfn í f-riðli með
níu stig hvort en arsenal og dinamo
Zagreb eru með þrjú.
„við gerum okkur alveg grein fyrir
því hverjum við erum að fara að
mæta,“ segir alfreð í samtali við frétta-
blaðið. Hann er nýkominn upp á liðs-
hótelið í münchen eftir skrautlega
helgi. aflýsa þurfti leik erkifjendanna
Panathinaikos og Olympiakos vegna
óláta stuðningsmanna fyrrnefnda
liðsins en alfreð fékk til að mynda
logandi blys í sig þegar hann var ásamt
félögum sínum að taka út aðstæður á
vellinum.
alfreð mun eins og fleiri sem mál-
inu tengjast fara fyrir sérstaka nefnd
í Grikklandi vegna málsins þar sem
hann mun gefa skýrslu. þangað til er
honum óheimilt að ræða það við fjöl-
miðla.
Engin útivallargrýla
það átti eftir að fara nákvæmlega út í
leikskipulag Olympiakos fyrir leikinn
þegar alfreð ræddi við fréttablaðið
en hann þóttist vita að liðið myndi
nálgast leikinn af varfærni.
„það verður gott skipulag á liðinu,
rétt eins og í fyrri leiknum,“ sagði
hann en þegar liðin mættust í fyrstu
umferð riðlakeppni meistaradeild-
arinnar í haust þá unnu þjóðverj-
arnir 3-0 sigur í Piraeus. eftir marka-
lausan fyrri hálfleik skoraði thomas
müller snemma í þeim síðari en hin
tvö mörkin komu ekki fyrr en í blá-
lokin og annað þeirra var víti.
Grísk lið hafa sjaldnast átt góðu
gengi að fagna í útileikjum í evr-
ópukeppni en Olympiakos hefur
sýnt í ár að það getur staðið í hverj-
um sem er. 3-2 sigurinn á arsenal,
þar sem alfreð skoraði eftirminni-
lega sigurmarkið, og 1-0 sigur á
dinamo Zagreb sýna það.
„það er allt hægt í fótbolta og við
förum með rétt hugarfar í hvern
einasta leik. þegar dregið var í riðla
þá reiknuðu ef til vill ekki margir
með því að við færum langt en allir
í klúbbnum og stuðningsmenn
eru bjartsýnismenn. það hefur allt
gengið upp á tímabilinu til þessa.“
Þreyttur á spurningunum
alfreð hefur áður greint frá því
hversu erfitt það er að sætta sig
við að vera á hliðarlínunni eins og
hefur oftast verið hlutskipti hans í
haust. Hann var í byrjunarliðinu í
fyrstu umferð deildarkeppninnar
en hefur síðan komið aðeins við
sögu sem varamaður, hvort sem er
í deildinni heima eða í meistara-
deildinni.
„þetta gengur upp og niður hjá
manni. þetta er hugarleikfimi enda
finnst engum skemmtilegt að vera í
þessari stöðu,“ segir alfreð spurður
um hvernig honum gangi að halda
fullri einbeitingu. „maður er auðvi-
tað þreyttur á spurningum um þessi
mál. þetta er svipað og með lands-
liðið. en ég geri allt sem ég get gert
og svo er þetta í höndum annarra.“
Fáránleg ákvörðun
Sem fyrr segir náði alfreð að vekja
mikla athygli á sér þegar hann tryggði
Olympiakos 3-2 sigur á arsenal í lund-
únum, eftir að hafa komið inn á sem
varamaður. en honum þykir óskiljan-
legt að vita til þess að hann fékk ekki
fleiri tækifæri eftir þá góða innkomu.
„það er fáránleg ákvörðun að fram-
herji sem skorar sigurmark skuli vera
settur á bekkinn næstu fjóra leiki
á eftir. það sendir ákveðin
skilaboð og sýnir að maður
er að synda gegn sterkum
straumum. það er greini-
lega búið að taka ákvörðun
og ekkert sem breytir því,
sama hvað gerist. það er
mjög sérstakt.“
alfreð segir að
hann hafi komið
til Grikklands
undir ákveðnum
formerkjum og
því hafi þróun
m á l a ko m i ð
honum mjög á
óvart. „en svo
var keyptur
nýr framherji
til liðsins og þá
er eins og allt
hafi breyst. Ég
geri mér vel
grein fyrir því
að það er mikil
samkeppni
um stöður
í liði sem er
við það að
komast í 16-liða
úrslit meistara-
deildarinnar en
manni þætti eðli-
legt að samkeppnin
væri sanngjörn. mér
finnst að það ekki hafa
verið tilfellið.“
Skoða stöðuna í janúar
lánssamningur alfreðs er til loka
tímabilsins í Grikklandi en hann er á
mála hjá real Sociedad á Spáni, sem
skipti nýverið um þjálfara. alfreð
útilokar ekki að skoða stöðu sína í
janúar ef ekkert breytist.
„maður hefur velt öllu fyrir sér og
ég útiloka ekki neitt. maður vill auð-
vitað fá að spila en það er margt sem
hefur áhrif á svona ákvörðun. Ég
er auðvitað með samning og
ég mun auðvitað virða hann.“
þangað til að kemur að
því mun alfreð nýta öll
þau tækifæri sem hann fær
og hann vonast vitaskuld
til þess að það komi í
kvöld. „þetta verður afar
skemmtileg upplifun.
Hér er gríðarlega
mikil saga og hér vilja
allir knattspyrnu-
menn fá tækifæri
til að spila,“ segir
alfreð sem myndi
v i t a n l e g a
ekki leiðast
að fá tæki-
færi til að
taka þátt í
því að valda
stórliði Bayern skráveifu.
„það væri geggjað,“ segir hann
og hlær. „en ég hef ekki hugsað
mikið um það. Ég einbeiti mér
að því að vera tilbúinn ef til mín
verður leitað. það er stærsta
atriðið.“
Það er allt hægt í fótbolta
Alfreð Finnbogason og félagar í Olympiakos mæta Bayern München á hinum magnaða Allianz-leikvangi í
München. Alfreð er ósáttur við hversu lítið hann hefur fengið að spila en vonast eftir tækifæri í kvöld.
Alfreð í baráttu við Arsenal-manninn Alexis Sanchez í leik Olympiakos og Arsenal í Meistaradeild Evrópu. FRéttABlAðið/gEtty
Það er fáránleg
ákvörðun að
framherji sem skorar sigur-
mark skuli vera settur á
bekkinn næstu fjóra leiki á
eftir.
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@365.is
2 4 . n ó v E m B E r 2 0 1 5 Þ r i Ð J U D A G U r12 s p O r t ∙ F r É t t A B l A Ð i Ð
sport
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
B
-E
7
A
0
1
7
2
B
-E
6
6
4
1
7
2
B
-E
5
2
8
1
7
2
B
-E
3
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
3
2
s
_
2
3
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K