Fréttablaðið - 24.11.2015, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 24.11.2015, Blaðsíða 11
Ísland er eitt þeirra 50 þjóðríkja innan WTO (World Trade Organ-isation) sem nú taka þátt í gerð alþjóðlegs samnings sem á yfir- borðinu á að snúast um hagræðingu allrar þjónustu landa á milli, en snýst í raun um endanlega yfirtöku stór- fyrirtækja á öllum sviðum mann- lífs og náttúru. Þetta er svokallaður TiSA-samningur (Trade in Services Agreement). Ef ekki væri fyrir WikiLeaks væru allflestir óvitandi um hvað málið snýst, því öllum umræðum og samn- ingnum sjálfum á að halda leyndum fyrir almenningi fram að undirritun og til næstu fimm ára eftir gildistöku. Samningurinn sjálfur er settur fram í nafni „gagnsæis“. Jafnvel nasistarnir voru ærlegri að því leyti að þeir gerðu heiminum ljóst hver stefna þeirra væri. Nýlega birti breska Oxfam- stofnunin skýrslu sem sýnir að 1% jarðarbúa á nú meira en hin 99%. Af TiSA-samningnum má sjá að pró- sentið eina og útvalda ætlar ekki að gefa sig fyrr en það á bókstaflega allt. Í þessum sem og öðrum fríverslun- arsamningum er kveðið á um hvernig stórfyrirtæki geta rekið dómsmál gegn þjóðríkjum fyrir gerðardómi ef þeim finnst brotið á sér eða markaðs- legt olnbogarými þeirra skert svo það bitni á gróða þeirra. Þessi gerðardóm- ur er skipaður þremur lögfræðingum, hvar tveir þeirra eru oftast hallir undir hag fyrirtækisins, en einn frá landinu sem reynir að spyrna gegn hnattræna túrbó kapítalismanum. Nú þegar hafa slík mál farið í gegn vegna annarra fríverslunarsamninga. Sænska fyrirtækið Vattenfall fór í mál við Hamborg í Þýskalandi, sem ætlaði að reyna að minnka umsvif kolaorku- vers í bænum í nafni hreinna lofts. Þýskaland þurfti að beygja sig í málinu. Franska stórfyrirtækið Veolia fór í mál við Egyptaland af því að ríkisstjórnin lögfesti lágmarkslaun þegnanna. Phi- lip Morris tóbaksfyrirtækið fór í mál við Ástralíu af því að þeir vildu skerða tóbaksauglýsingar, og svo mætti lengi telja. Gefið alræðisvald Með TiSA-samningnum er stór- fyrirtækjum gefið alræðisvald í nafni markaðstrúar, fríverslunar og „hag- ræðingar“. Samningurinn mun ná utan um 70% alþjóðamarkaðsins af allri þjónustu, allt frá fjármálum til heilbrigðismála. Á WikiLeaks má lesa að ákvæði um einkavæðingu eru óafturkallanleg, það þýðir að lönd geta ekki gert lykilþjónustu opinbera á ný, þótt þau muni upplifa að allt versni þegar fjarlægt stórfyrirtæki fer að reka elliheimili og leikskóla landsins. Og þótt undanþága fáist varðandi lykil- TiSA-samningurinn og lýðræði á útsölu Bergsveinn Birgisson rithöfundur Nú eru umræður komnar í gang um sæstreng frá Íslandi, og fræg söngkona hefur beðið alþjóðasamfélagið um að „bjarga okkur frá ríkis- stjórninni“. Ef marka má það sem lekið hefur um TiSA- samninginn, væri nær að biðja um björgun frá honum. þjónustu, snýst mannlífið um margt fleira. Hér er verið að umbylta hvers- dagslífi okkar allra; lýðræði, kjara- barátta margra kynslóða og hugsjónir um réttlátari auðæfaskiptingu eru seld á einu bretti. Nú mun loftslagsráðstefnu í París brátt hleypt af stokkunum, og þjóðir vonandi skuldbinda sig til að minnka útlosun koltvísýrings og eiturefna. Ef TiSA-samningurinn gengur í gildi geta sömu þjóðríki lent í málaferlum við stórfyrirtæki innan stóriðju sem munu telja á sér brotið, og í raun tapað málinu eins og reglan er. Nú eru umræður komnar í gang um sæstreng frá Íslandi, og fræg söng- kona hefur beðið alþjóðasamfélagið um að „bjarga okkur frá ríkisstjórn- inni“. Ef marka má það sem lekið hefur um TiSA-samninginn, væri nær að biðja um björgun frá honum. Ef alþjóðleg stórfyrirtæki munu standa að fjármögnun og framkvæmd, verða þeirra hagsmunir í fyrirrúmi. Af öllu að dæma geta þau farið í mál við ríkið ef land eða fossar eru friðaðir. Kannski eygja þau mikla möguleika í risastíflu við Þingvallavatn? Þá mætti yrkja: „Nú er hún Snorrabúð sokkin.“ Hér er um að ræða eina mikilvæg- ustu ákvörðunartöku seinni tíma, er getur skilið á milli þess hvort sóma- samlegu mannlífi þoki nokkuð á leið eða hvort Markaðsins útvöldu, stór- fyrirtæki með gróðahugsun eina, muni fá að stofna til einræðis og þrælahalds í anda fornaldar. Að ætla að gefa stór- kapítalnum lýðræði landa og þjóða með slíku leynimakki er gróteskur glæpur gegn þegnunum. Opin umræða er fyrsta skref í að afstýra slíku slysi. Jón Karl Ólafsson framkvæmda- stjóri innan- landsflugssviðs Isavia Það er hverju landi nauð-synlegt að búa yfir góðu og öruggu samgöngu-kerfi sem tengir lands- hlutana saman. Það er sérstaklega mikilvægt í harðbýlu landi eins og Íslandi, þar sem fjarlægðir geta oft verið miklar. Það hvernig sam- göngunum er háttað er pólitísk ákvörðun, hvort fólk ferðist um á eigin vegum eða hvort stjórnvöld komi að uppbyggingu og rekstri kerfis almenningssamgangna. Engum blöðum er um það að fletta að flug er hraðvirkasta og skilvirkasta almenningssam- gangnakerfið. Sé það vilji ráða- manna, og þjóðarinnar, að halda uppi góðum almenningssamgöng- um um landið er því einboðið að byggja innanlandsflugið upp. Þar kemur Isavia að málum sem rekstraraðili flugvalla. Isavia hefur markvisst unnið að því undan- farin ár að markaðssetja Ísland sem áfangastað í alþjóðlegum flugleiðum. Það hefur skilað sér í mikilli aukningu umferðar um Keflavíkurflugvöll, en það eflir einnig innanlandsflugvellina. Sú ánægjulega staða er nú komin upp að um tvo þeirra, Akur- eyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll, verður alþjóðleg umferð flugvéla á næsta ári. Einnig hefur ríkis- stjórnin sett á laggirnar sérstakan sjóð sem hefur það markmið að auka millilandaflug um Akur- eyrarflugvöll og Egilsstaðaflug- völl. Isavia fagnar því og hlakkar til að vinna með heimamönnum að því að efla millilandaflug um þessa tvo flugvelli. Vinna þarf að markaðsmálum, bæði heima en ekki síst erlendis, svo þetta verði lífvænlegir millilandaflugvellir á næstu árum. Með markvissu starfi og sam- vinnu ferðaþjónustunnar gætu flugvellirnir tveir sinnt margfalt fleiri farþegum á hverju ári. Í þess- ari vinnu má ekki gleyma mikil- vægi flugsamgangna innanlands því þær eru grundvöllur fyrir því að flugvellirnir geti vaxið áfram. Hagsmunir Isavia, sem rekstr- araðila flugvalla, fara saman við hagsmuni ferðaþjónustunnar. Við þurfum að vinna saman að því að byggja upp góða aðstöðu, svo hægt sé að fjölga farþegum, bæði í innanlandsflugi og alþjóðaflugi. Bæði Akureyrar- og Egilsstaðaflug- völlur geta tekið við miklum fjölda farþega á ári óbreyttir. Efling innanlandsflugvalla og innanlandsflugsins almennt er því öllum í hag. Sé það vilji okkar að flug verði áfram hluti af almenn- ingssamgöngukerfi landsins þurf- um við að taka höndum saman og byggja upp til framtíðar. Hraðvirkustu almenningssamgöngurnar Við þurfum að vinna saman að því að byggja upp góða aðstöðu, svo hægt sé að fjölga farþegum, bæði í innanlandsflugi og alþjóða- flugi. UMBÚÐIR NÁTTÚRULEGA BETRI Það er lítið mál að endurvinna nýju Smjörva umbúðirnar. Þú tekur bara pappann af plastöskjunni og setur í pappírstunnuna. Gámar fyrir plastumbúðir eru á næstu grenndarstöð eða endurvinnslustöð. E N N E M M / S IA • N M 71 94 0 s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 2 4 . n ó v e m B e R 2 0 1 5 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :1 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 2 B -C 0 2 0 1 7 2 B -B E E 4 1 7 2 B -B D A 8 1 7 2 B -B C 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s _ 2 3 1 1 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.