Fréttablaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 20
Elskuleg móðir okkar, systir og amma, Finnborg Bettý Gísladóttir andaðist þann 13. nóvember síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Áskirkju föstudaginn 20. nóvember kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Róbert Fragapane Tómas Hermannsson Systir okkar, mágkona og frænka, Sigríður Helga Þorbjarnardóttir líffræðingur, lést á líknardeild Landspítalans sunnudagskvöldið 15. nóvember. Útför hennar verður auglýst síðar. Guðmundur og Auðbjörg Njáll og Jóna Laufey og Jón Guðbjörg og Jónas Guðrún og Guðmundur og fjölskylda. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Guðrún Ólafía Sigurjónsdóttir frá Raftholti, Víðivöllum 3, Selfossi, lést í faðmi fjölskyldunnar á dvalarheimilinu Lundi föstudaginn 13. nóvember. Útför hennar fer fram frá Marteinstungukirkju laugardaginn 21. nóvember kl. 14. Hjartans þakkir fær starfsfólk Lundar fyrir góða umönnun og hlýju. Ársæll Teitsson Kristín Ágústa Ársælsdóttir Tryggvi Rúnar Pálsson Sigurjón Ársælsson Guðrún Þóra Garðarsdóttir Sigríður Ársælsdóttir Þórarinn Arngrímsson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Steingerður Sólveig Jónsdóttir Grænavatni, Mývatnssveit, lést fimmtudaginn 12. nóvember á dvalarheimilinu Lögmannshlíð. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jónas Helgason Guðrún Bjarnadóttir Haraldur Helgason Freyja Kristín Leifsdóttir Þórður Helgason Helga Þyri Bragadóttir Árni Hrólfur Helgason Kristín List Malmberg ömmubörn og langömmubörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Sveins Kristjánssonar kennara, Blásölum 22. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Landspítala, líknardeildar og Skógarbæjar fyrir frábæra umönnun, vinsemd og hlýhug. Aðalheiður Edilonsdóttir Kristján G. Sveinsson Sigríður Hjörleifsdóttir Edda Lilja Sveinsdóttir Páll Árnason Ingibjörg A. Sveinsdóttir Þröstur Magnússon Stefán Jökull Sveinsson Sjöfn Sigurgísladóttir Kolbrún Sveinsdóttir afabörn og langafabörn. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda MEÐ VIRÐINGU OG KÆRLEIK Í 66 ÁR Útfarar- og lögfræðiþjónusta www.útför.is   „Við höfum gert róttækar breytingar á ritinu, breytt stefnu þess og fjölgað útgáfudögum,“ segir Thelma Hjaltadótt- ir, ritstjóri tímaritsins List á Vestfjörðum sem nú er nýkomið út í breyttri mynd. Hún segir blaðinu dreift frítt í hvert hús á Vestfjörðum. En um hvað er hún að skrifa?  „Bara til að nefna einhver dæmi sem lýsa breiddinni þá er sagt frá leikriti sem nýbúið er að frumsýna á Strönd- um, það kallast Draugasaga og er eftir Strandamann, við segjum frá sjónvarps- þáttum sem byggðir eru á sögu Sigvalda Kaldalóns, læknis og tónskálds í Ísa- fjarðardjúpi á öndverðri síðustu öld, sem kvikmyndafélagið Í einni sæng er með í smíðum. Svo er tónlistarmaðurinn Skundi að gefa út hljóðbók um músa- fjölskyldu í Súðavík og henni gefum við gaum. Við erum með viðtal við Ragn- heiði Gröndal söngkonu og Fjallabræður segja skondna sögu í kringum nafngift nýja disksins þeirra. Svona mætti lengi telja.“  List á Vestfjörðum er gefið út af félagi vestfirskra listamanna og stjórnin er jafnframt í ritnefnd. „Þetta er fyrsta blaðið sem ég ritstýri,“ segir  Thelma sem um árabil starfaði sem blaðamaður á BB. Ritinu er dreift frítt í hvert hús í fjórðungnum og einnig er það komið inn á netið. Slóðin er: http://issuu.com/gunnibje/docs/ lav_2015-2016_umbort_issu Fram að þessu hefur ritið List á Vest- fjörðum verið gefið út einu sinni á ári og þá í annálsstíl en nú er það í fréttastíl og á að koma út þrisvar yfir árið, að sögn Thelmu. Hún segir allan Vestfjarðakjálk- ann undir og allt efni sem fellur undir menningu og biðlar til listamanna og annarra velunnara listarinnar á svæðinu að vera duglegir við að senda henni efni og ábendingar. „Blaðið leggur áherslu á það sem er að gerast á hverjum árs- tíma fyrir sig. Tilgangurinn er auð vitað að vekja athygli á hversu fjölbreytt og auðug menningarflóran er hér fyrir vestan.“ gun@frettabladid.is Sigvaldi Kaldalóns og músafjölskylda í Súðavík  Frumsýning leikritsins Draugasaga í Sævangi og hljóðbók um músafjölskyldu í Súðavík eru meðal umfjöllunarefnis í tímaritinu List á Vestfjörðum sem nú kemur út með nýju sniði.  Thelma lætur sér ekkert óviðkomandi sem fellur undir vestfirska list og menningu. Mynd/Úr einkasafni kápan á hinu nýútkomna riti. Merkisatburðir 1913 Morgunblaðið birtir fyrstu íslensku fréttamyndirnar, sem eru dúkristur, gerðar vegna morðmáls í Dúkskoti í Reykjavík. 1938 Vikan kemur út í fyrsta sinn, fyrsti ritstjóri hennar er Sigurður Benediktsson. 1939 Starfsmannafélag ríkisstofnana, SFR, er stofnað. 1940 akureyrarkirkja er vígð og er þá stærsta guðshús íslensku þjóðkirkjunnar. 1946 Þrjú hús gjöreyðileggjast og mörg skemmast mikið í bruna í Þingholtunum í Reykjavík. 1974 Viktor Borge, danskur píanóleikari og háðfugl, kemur fram á tónleikum með Sinfóníu- hljómsveit Íslands. 1983 Mikligarður, stærsta verslun landsins, er opnuð í Reykjavík í Holtagörðum við Sund. 1984 Jón Baldvin Hanni- balsson er kjörinn for- maður Alþýðuflokksins. 1988 Linda Pétursdóttir, 18 ára fjölbrautaskólanemi frá Vopnafirði, er kosin Ungfrú heimur. Hún hlýtur einnig titilinn Ungfrú Evrópa. 1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð tímamót 1 7 -1 1 -2 0 1 5 1 3 :4 1 F B 0 3 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 F 9 -5 C E 8 1 6 F 9 -5 B A C 1 6 F 9 -5 A 7 0 1 6 F 9 -5 9 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 3 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.