Fréttablaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 14
Birgir leifur í erfiðri stöðu Birgir leifur Hafþórsson, atvinnu- kylfingur úr gKg, lék á einu höggi yfir pari á þriðja keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir evrópu- mótaröðina í gær. Birgir leifur er samtals á fimm höggum yfir pari eftir þrjá hringi, en hann spilaði fyrsta hringinn á 74 höggum, annan hringinn á 72 höggum og svo hringinn í dag á 73 höggum. er keppni lauk í gær var Birgir leifur í 115. sæti af 156 kylfingum. fjórði hringurinn verður spil- aður í dag en eftir hann verður skorið niður. Aðeins 70 kylfingar komast áfram og spila úrslitahringina tvo. Birgir leifur þarf að fara á kostum í dag, en hann er um sex höggum frá því að vera á meðal 70 efstu. takist Birgi leif það verður hann svo að vera á meðal 25 efstu til að fá þátttökurétt á evrópumóta- röðinni sem er næststerkasta atvinnumótaröð heims.. Í dag 19.35 Danmörk - Svíþjóð Sport 20.00 Slóvenía - Úkraína Sport 3 19.30 Selfoss - HK Selfoss 19.30 Afturelding - Fylkir N1-höllin 19.30 ÍR - KA/Þór Austurberg 19.30 Stjarnan - FH TM-höllin 20.00 Fjölnir - Valur Dalhús Það er örlítið öðruvísi að labba inn á bar þegar Joe Hart heldur hurðinni opinni fyrir manni. Jón Júlíus Karlsson @JonJKarlsson Fy rri hálfleikur +3 Se inn i hálfleikur -6 Markatala íslenska landsliðsins í síðustu 3 leikjum Alfreð Finnbogason skoraði eina markið sem íslenska landsliðið hefur skorað í seinni hálfleik í síðustu fjórum landsleikjum. FRéttAblAðið/ADAm JAStRzebowSKi Fótbolti íslenska karlalandsliðið í fót- bolta leikur lokaleik sinn á sögulegu ári í kvöld þegar liðið mætir slóvakíu í vin- áttulandsleik á stadión pod Dubnom í Zilina. Þetta verður ellefti landsleikur á árinu sem íslenska karlalandsliðið tryggði sér sæti í úrslitakeppni stór- móts í fyrsta sinn. stóra stundin rann upp á laugardals- vellinum sunnudagskvöldið 6. sept- ember síðastliðinn þegar markalaust jafntefli á móti Kasakstan kom karla- liði íslands á eM í fyrsta sinn. íslenska landsliðið var þá taplaust í sjö leikjum ársins og var að halda hreinu í þriðja sinn í fjórum leikjum undankeppn- innar á árinu 2015. íslensku strákarnir fögnuðu vel í leikslok en þeir hafa ekki fagnað síðan. íslenska landsliðið hefur ekki unnið í þremur leikjum í röð og tveir þeir síðustu hafa tapast. Allir eiga það sam- eiginlegt að góð staða í hálfleik hefur runnið út í sandinn í þeim seinni. íslenska liðið sem fékk aðeins á sig í eitt mark í fyrstu fjórum mótsleikjum sínum á árinu 2015 hefur fengið á sig sjö mörk í seinni hálfleik á þessum þremur leikjum á móti lettlandi (2), tyrklandi (1) og Póllandi (4). ísland var 2-0 yfir í hálfleik á heima- velli á móti lettlandi en missti þann leik niður í jafntefli. liðið fékk á sig sigurmark í lokin í lokaleik undan- keppninnar úti í tyrklandi og Pólverjar skoruðu síðan fjögur mörk á síðustu 40 mínútunum leik liðanna í Varsjá á föstudaginn. landsliðsþjálfararnir Heimir Hall- grímsson og lars lagerbäck hafa lagt áherslu á að breikka landsliðshópinn í þessum vináttulandsleikjum við Pólverja og slóvaka en tefla engu að síður fram mjög sterkum liðum í þeim báðum. Það breytir þó ekki því að íslenska liðið hefur opnað sig í seinni hálfleikjunum beggja þessara leikja. Það fylgir þó stöðunni að hér gæti munað miklu um landsliðsfyrirliðann Aron einar gunnarsson, sem er að margra mati mikilvægasti leikmaður íslenska liðsins. Brimbrjóturinn á íslensku miðjunni stöðvar ófáar hrað- ar sóknir mótherjanna og hann var hvorki inni á vellinum þegar liðið fékk á sig tvö mörk í seinni hálfleik á móti lettum (leikbann) né þegar íslenska vörnin fékk á sig fjögur mörk í seinni á móti Pólverjum (fór af velli í hálfleik). Það mætti því kannski frekar bera saman gengi liðsins þegar Aron einar er inná og þegar hans nýtur ekki við. frammistaða liðsins í fyrri hálfleik er aftur á móti til mikillar fyrirmyndar og vísbending um gott skipulag og einbeitingu landsliðsmanna í upphafi leikja. Heilt yfir hefur íslenska liðið verið magnað í fyrri hálfleikjum tíu fyrstu landsleikja ársins enda marka- talan fyrstu 45 mínútur leikjanna 8-1 íslenska liðinu í vil. eina markið sem ísland hefur fengið á sig í fyrri hálf- leik á árinu skoruðu Kanadamenn úr vítaspyrnu í vináttuleik þjóðanna í Orlando í janúarmánuði. Aron einar gunnarsson getur ekki tekið þátt í leiknum í dag vegna meiðsla og það mun reyna á íslensku miðjuna að verja varnarlínuna í kvöld. Það hlýt- ur að vera mikilvægt fyrir strákana að enda sögulegt ár á skemmtilegan hátt. góður varnarleikur í seinni hálfleik gæti þar gert útslagið. ooj@frettabladid.is Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur ekki unnið leik síðan liðið komst á EM og slök frammistaða í seinni hálfleik síðustu leikja á mikinn þátt í því. Skipting marka karlalandsliðsins á árinu 2015 1. til 15. mínúta +4 16. til 30. mínúta +1 31. til 45. mínúta +2 Fyrri hálfleikur 8 1 +7 46. til 60. mínúta -1 61. til 75. mínúta -2 76. til 90. mínúta -1 Seinni hálfleikur 6 10 -4 Samanlagt mótherjar Ísland ekkert mark +3 Tvær hliðar strákanna okkar SKEMMTIPAKKINN Aðeins 310 kr. á dag FÁRÁNLEGA FLOTTUR PAKKI 365.is Sími 1817 Vandað sjónvarpsefni og fjarskipti á frábæru verði Sex sjónvarpsstöðvar, internet, heima- sími, Stöð 2 Maraþon og aðild að Vild.* Með því að greiða 1.990 kr. aukalega færðu endalaust tal og 1 GB í GSM. FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT á 365.is *20 GB í interneti og 100 mín. í heimasíma á 0 kr. Greitt er 9,7 kr. upphafsgjald þegar hringt er úr heimasíma. Nánari upplýsingar á 365.is olísdeild karla ÍbV - Grótta 26-31 Markahæstir: Einar Sverrisson 7, Kári Kristján Kristjánsson 6 - Viggó Kristjánsson 11, Daði Laxdal Gautason 6. Haukar - Akureyri 29-19 Markahæstir: Adam Haukur Baumruk 11, Einar Pétur Pétursson 5 - Andri Snær Stefánsson 8, Bergvin Þór Gíslason 4. Valur - Fram 19-22 Markahæstir: Vignir Stefánsson 6, Orri Freyr Gíslason 4 - Óðinn Þór Ríkharðsson 4, Þor- grímur Smári Ólafsson 4. Víkingur - ÍR 23-23 Markahæstir: Karolis Stropus 8, Daníel Einarsson 4 - Ingi Rafn Róbertsson 8, Davíð Georgsson 7, Sturla Ásgeirsson 6. FH - Afturelding 25-29 Markahæstir: Ásbjörn Friðriksson 8, Einar Rafn Eiðsson 7/3 - Jóhann Jóhannsson 6, Gunnar Þórsson 5/4. Undankeppni EM 2016, umspil Írland 2–0 bosnía Jonathan Walters skoraði bæði mörkin. Írland komst áfram á EM, 3-1, samanlagt.. Staðan efst Haukar 20 Valur 20 Fram 18 Afturelding 14 ÍBV 12 Neðst Grótta 12 FH 10 ÍR 9 Akureyri 8 Víkingur 3 Úrslit 1 7 . n ó v E M b E r 2 0 1 5 Þ r i Ð J U D A G U r14 S p o r t ∙ F r É t t A b l A Ð i Ð Sport 1 7 -1 1 -2 0 1 5 1 3 :4 1 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 F 9 -5 7 F 8 1 6 F 9 -5 6 B C 1 6 F 9 -5 5 8 0 1 6 F 9 -5 4 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.