Fréttablaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 6
STÆKKUN BÚRFELLSVIRKJUNAR Útboð nr. 20198 Byggingarvinna Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í byggingarvinnu við stækkun Búrfellsvirkjunar samkvæmt útboðsgögnum nr. 20198. Helstu verkþættir eru eftirfarandi: Aðrennslisskurður Um er að ræða gröft á um 400 m löngum aðrennslisskurði. Helstu magntölur eru áætlaðar: Laus gröftur 16 000 m³ Sprengigröftur 79 000 m³ Sprautusteypa 1 000 m³ Inntaksmannvirki Verkþátturinn fellst í byggingu inntaksmannvirkis ásamt stjórnhúsi og undirstöðum fyrir spenna. Helstu magntölur eru áætlaðar: Sprengigröftur 3 000 m³ Mót 2 500 m2 Bendistál 176 000 kg Steinsteypa 2 500 m³ Jarðgangagerð Verkhlutinn fellst í að sprengja og styrkja 65 m langt stöðvar- hús neðanjarðar, 270 m löng aðkomugöng og 440 m löng skeifulaga frárennslisgöng. Einnig fellst í verkefninu borun 120 m lóðréttra, hringlaga þrýstiganga með þvermál 5,9 m og 110 m lóðréttra hringlaga strengganga með þvermál 4,6 m. Helstu magntölur eru áætlaðar: Laus gröftur 5 000 m³ Sprengigröftur 9 000 m³ Gangagröftur 99 000 m3 Sprautusteypa 4 100 m³ Stöðvarhús Verkþátturinn felst í uppsteypu og frágangi á stöðvarhúsi neðanjarðar ásamt anddyri aðkomuganga. Aðrir verkþættir eru m.a. útvegun og uppsetning á öllum húskerfum auk gerð aðkomuvega, landmótun og lóðafrágangur. Helstu magntölur eru áætlaðar: Mót 7 100 m2 Bendistál 670 000 kg Steinsteypa 9 400 m³ Frárennslisskurður Verkhlutinn felst í greftri á um 2,2 km löngum frárennslisskurði. Helstu magntölur eru áætlaðar: Gröftur 631 000 m³ Sprengigröftur 74 000 m³ Sprautusteypa 1 000 m³ Framkvæmdum skal að fullu lokið haustið 2018. Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Landsvirkjunar, http://utbod.lv.is Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík,fyrir klukkan 12:00 fimmtudaginn 21. janúar 2016 þar sem þau verða opnuð kl. 14:00 sama dag og lesin upp að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Dómsmál Taka þarf til endur- skoðunar refsingar vegna fíkni- efnabrota, að mati Kolbrúnar Benedikts dóttur, saksóknara hjá embætti ríkissaksóknara. Kolbrún fjallaði fyrir helgi um löggjöf og refsingar fyrir fíkniefnabrot á mál- þingi um fræðslu og forvarnir gegn kannabis. Á málþinginu velti hún upp þeirri spurningu hvort minnstu brot vegna vörslu fíkniefna ætti að til- greina í sakavottorði. Í dag fer dómur eða viðurlaga- ákvörðun fyrir vörslu fíkniefna inn á sakaskrá sama hversu brotið er lítið. Hafi máli lokið með sekt er það tilgreint í sakavottorði í þrjú ár. „Menn eru mjög uppteknir af sakavottorðinu, það er eins og við megum bara ekki sækja um vinnu eða fara til útlanda án þess að fram- vísa sakavottorði. Ég hef ekki verið beðin um að framvísa sakavottorði neins staðar,“ sagði Kolbrún og sagði helst óskað eftir sakavottorð- um á grundvelli barnaverndarlaga. „En eiga þessi brot að koma fram á sakavottorði? Er eðlilegt að 50 þúsund króna sekt vegna vörslu efna sem menn eru teknir með, sem eru ef til vill bara 0,03 grömm af kannabis, komi fram í sakavott- orði? Þá er ekki verið að finna nema leifar af efni hjá viðkomandi. Þetta er samt brot og það er sektað fyrir það. Þá veltir maður því fyrir sér hvort það sé eðlilegt að setja slíkt inn,“ sagði Kolbrún og bar slík brot saman við umferðarlagasektir en þar er ákveðið lágmark á sektum áður en til þess kemur að greina frá viðurlagaákvörðun í sakavottorði. „Það eru bara sektir hærri en hundr- að þúsund krónur sem skráðar eru í sakavottorð.“ Kolbrún segir ekki eðlilegt að embættismenn taki ákvörðun um að afnema slíkar skráningar. „Ég held að það sé mjög eðlilegt að þetta sé pólitísk ákvörðun.“ Kolbrún ræddi einnig almennt um refsiramma fíkniefnabrota og rifjaði upp umdeildan dóm þar sem burðardýr fékk ellefu ára fang- elsisdóm. „Það fór eiginlega allt á hliðina. Það er mikil gerjun í þess- ari umræðu og ég held að það sé mjög jákvætt. Vonandi verða íslensk stjórnvöld með í þeirri umræðu. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt.“ Hún ræddi einnig um ýmis vand- kvæði í sambandi við refsingar fyrir fíkniefnabrot. Ekki sé refsivert að flytja ný fíkniefni til landsins. „Það þarf sífellt að vera að bæta inn á þessa lista nýjum og nýjum fíkni- efnum. Við höfum lent í því að innflutn- ingur á þessum efnum, sem eru ný og eru ekki á þessum listum, er ekki refsiverður,“ segir Kolbrún. kristjanabjorg@frettabladid.is Á sakaskrá vegna 0,03 gramma af kannabis Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari veltir vöngum yfir refsingum vegna fíkni- efnabrota á málþingi um kannabis. Smávægileg brot eru skráð í sakaskrá í þrjú ár. Er eðlilegt að 50 þúsund króna sekt vegna vörslu efna sem menn eru teknir með, sem eru ef til vill bara 0,03 grömm af kannabis, komi fram á saka- vottorði? Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari Borgarstjóri heldur ræðu Forsvarsmenn ekki færri en 103 fyrirtækja og stofnana skrifuðu undir yfirlýsingu um aðgerðir í loftslagsmál­ um í Höfða í gær. Þau setja sér markmið og fylgja þeim eftir með aðgerðum sem draga úr losun gróðurhúsaloft­ tegunda og minnka myndun úrgangs. Reykjavíkurborg og Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, efndu til þessa samstarfs og markar undirskriftin formlegt upphaf verkefnisins. Fréttablaðið/anton 1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A Ð I Ð 1 7 -1 1 -2 0 1 5 1 3 :4 1 F B 0 3 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 F 9 -4 E 1 8 1 6 F 9 -4 C D C 1 6 F 9 -4 B A 0 1 6 F 9 -4 A 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 3 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.