Fréttablaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 28
VÖRUHUSA HREINSUN! H E I L S U R Ú M ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR! TAKMARKAÐ MAGNARG H !!! 1 71 11 5 FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 H E I L S U I N N I S KÓ R Inniskór sem laga sig að fætinum og dreifa þyngd jafnt um hann. 3.900 K R. T I LVA L I N J Ó L A G J Ö F Aldarfjórðungur er nú liðinn frá því að McCall­ister­fjölskyldan fór í ferðalag og gleymdi hinum átta ára Kevin uppi á háalofti. Sá stutti þurfti svo að beita öllum brögðum til þess að hrekja seinheppna innbrotsþjófa á brott, með spaugilegum hætti. Sögu­ þráðinn þekkja flestir, enda Home Alone sígild mynd sem margir horfa reglulega á þegar nær dregur jólum. Í tilefni af þessu 25 ára afmæli mynd­ arinnar fóru fjölmiðlar vestanhafs ofan í kjölinn á vinsældum hennar og einhverjir ímynduðu sér hvernig myndin yrði ef hún kæmi út í dag. Draumar verða uppfylltir Fjölmiðilinn Vox birti í gær úttekt á vinsældunum og rakti blaðamaður miðilsins nokkrar ástæður þeirra. Myndin var sú vinsælasta árið 1990, þrátt fyrir að hafa komið út í nóvem­ ber. Stórmyndir á borð við Dances With Wolves komu út sama ár. Ein af ástæðum vinsældanna er að börn (og fullorðnir) geta speglað sig í Kevin, sem hélt um stund að hann hefði látið fjölskyldu sína hverfa, eftir að vera skammaður. Hann borðaði súkkulaðiís í kvöldmat, var á sleða í húsinu og mátti fara inn í herbergi bróður síns. Kevin er skammaður, fjölskyldu­ meðlimir gera lítið úr honum og að lokum gleymist hann á háaloftinu. Honum tekst þó að sýna að hann getur lifað á eigin spýtur; lærir að þvo og kaupa inn. Og í leiðinni getur hann hrakið á brott innbrotsþjófa. Hann verður miklu sterkari þegar fjölskyld­ an er ekki á staðnum. Þetta er eflaust eitthvað sem börn og í raun allir ættu að geta tengt við á einhvern hátt. Home Alone sett í búning samtímans 25 ár voru í gær liðin frá því að kvikmyndin Home Alone kom út. Í til- efni af því var hún sýnd aftur í kvikmyndahús- um í Bandaríkjunum, bók var gefin út og sér- stök tilboð voru á pitsu- stöðum vestanhafs. Þrátt fyrir að Home Alone hafi komið út 16. nóvember, varð hún tekjuhæsta kvikmyndin árið 1990. Hún sló út stórmyndirnar Ghost og Dances with Wolves. Tekjuhæsta kvikmyndin árið 1990 286 milljónir dala komu í kassann þann tíma sem hún var sýnd árið 1990, frá 16. nóvember til ársloka. 15 milljónir dala kostaði að framleiða myndina. Á núvirði eru þetta um 38 milljarðar sem myndin tók inn í miðasölu. Home Alone borð við Photoshop og setja myndir af fjölskyldunni á Instagram, þannig að innbrotsþjófarnir myndu halda að allir væru heima. Fjölskyldan myndi sofa yfir sig því enginn hlóð símann sinn Ein af ástæðum þessi að Kevin gleymdist uppi á háalofti var sú að fjölskyldan svaf yfir sig eftir að slokknaði á vekjaraklukkunni í raf- magnsleysi. Árið 2015 notast allir við vekjaraklukkur í símanum sínum og því hefðu allir þurft að gleyma að hlaða símann sinn, ef myndin ætti að gerast nú á dögum. Kevin myndi nota dróna Auk þess að nota straujárn, fiður, tjöru og fleira, myndi Kevin nota dróna til þess að hrekkja hina seinheppnu innbrotsþjófa. Nú á dögum eru átta ára börn mjög tæknivædd og því líklegt að drónar og fleiri tæknilegir hlutir yrðu vel til þess fallnir að verja heimilið. kjartanatli@365.is Blaðamaður vefjarins Entertain- ment Weekly tók saman hugmyndir um hvernig þetta klassíska handrit myndi líta út ef sagan ætti sér stað á sögusviði nútímans; í tæknivæddari heimi árið 2015. Hér má sjá þýðingu á hluta listans: Kevin myndi horfa á Breaking Bad eða Narcos í beit Í stað þess að horfa á gamlar VHS- spólur um gamla „gangstera“ myndi Kevin væntanlega kveikja á Netflix og horfa á þætti á borð við Breaking Bad og Narcos í beit. McCallister-fjölskyldan myndi ferðast á stað með engu síma- sambandi Í myndinni fer fjölskyldan til Parísar og getur ekki náð í Kevin vegna þess að símalínur í hverfinu rofna. Ef myndin ætti að gerast í nútímanum þyrfti fjölskyldan að fara á einhvern stað þar sem ekkert farsímasam- band væri til staðar. Innbrotsþjófarnir myndu fylgjast með á netinu The Wet Bandits, innbrotsþjófarnir í myndinni, myndu – ef hún gerðist nú á dögum – fylgjast með húsunum sem þeir ætluðu að brjótast inn í með tækni netsins. Þeir gætu fylgst með fjölskyldunum í hverfinu á Facebook og Twitter. Kevin myndi plata þá í gegnum Instagram Í stað þess að setja upp leikþátt í stofunni, með gínum og pappa- spjöldum, myndi Kevin nota forrit á 1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r24 L í f I Ð ∙ f r É T T A b L A Ð I Ð Lífið 1 7 -1 1 -2 0 1 5 1 3 :4 1 F B 0 3 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 F 9 -5 3 0 8 1 6 F 9 -5 1 C C 1 6 F 9 -5 0 9 0 1 6 F 9 -4 F 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 3 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.