Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Side 4
þriðjudagur 27. janúar 20094 Fréttir
Ólafur Ragnar Grímsson forseti sagði í
gær að tryggja yrði að þjóðin fengi far-
veg til að ákveða hvernig stjórnskipun
Íslands verði í framtíðinni. Hann tel-
ur nauðsynlegt að skapa farveg fyrir
þá umræðu í þjóðfélaginu að breyta
stjórnskipan og stjórnarskrá landsins
og vinna að „nýju lýðveldi“. Ólafur
Ragnar er ekki fyrsti forseti landsins
sem reynir að hafa áhrif á þessi mál-
efni.
„Ásgeir Ásgeirsson lagði áætlun
fyrir Viðreisnarstjórnina árið 1959.
Það var um að breyta kjördæma-
skipan, efnahagslega viðreisn og um
að halda áfram varnarsamstarfinu
við Bandaríkin,“ segir Svanur Kristj-
ánsson, prófessor í stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands. Hann segir að
þannig hafi Ásgeir gert mun meira
en að leiða umræðuna eins og Ólafur
Ragnar geri núna.
„Annað dæmi er Sveinn Björns-
son, fyrsti forseti landsins. Hans fyrsta
verk var að fara til Bandaríkjanna til
að gera varnarsamning,“ segir Svan-
ur. Þannig hafi þessir forsetar haft af-
skipti af innihaldi stjórnmálanna og
stefnu ríkisstjórna. „Þannig er Ólafur
Ragnar að ganga mjög skammt,“ segir
hann. Svanur leggur til að þjóðfund-
urinn frá árinu 1851 verði endurtek-
inn. „Það þarf að boða til þjóðfund-
ar eða stjórnlagaþings um almenna
samræðu í þjóðfélaginu og um nýjan
sáttmála fyrir samfélagið. Þannig er
hægt að tengja saman fulltrúalýðræði
og beint lýðræði.“
Þingræði reynst vel
„Forsetinn getur ekki sett nein skil-
yrði önnur en þau að þetta er sjón-
armið inn í umræðuna og margt af
því sem hann sagði var mjög skyn-
samlegt,“ segir Stefanía Óskarsdótt-
ir stjórnmálafræðingur. Hún telur að
þetta muni falla í ágætan farveg hjá
stjórnmálaflokkunum. „Mér finnst að
þingræðisfyrirkomulagið hafi dugað
okkur mjög vel fram að þessu. Það er
það fyrirkomulag sem er hjá flestum
nágrannaríkjum okkar. Þingræðisfyr-
irkomulagið tryggir að það er hægt
að koma málum mjög hratt í gegn-
um þing og það er skýrt hverjir bera
ábyrgð. Það er hægt að refsa fólki í
kosningum,“ segir Stefanía.
„Við getum borið þetta saman við
fyrirkomulagið í Bandaríkjunum þar
sem framkvæmdavaldið er mjög að-
greint frá löggjafarvaldinu. Hlutirnir
þar gerast mjög hægt og þar er erfitt
að refsa fólki í kosningum. Þar getur
forsetinn bent á þingið og öfugt,“ segir
hún. Stefanía telur að þrátt fyrir að fólk
sé mjög meðvitað um stjórnmál þessa
stundina sé aukin áhersla á þjóðarat-
kvæðagreiðslur ekki endilega hentug.
„Það vill hafa stjórnmálamenn sem
sjá um þetta,“ segir hún.
Stefanía telur að það sé mjög mikil-
vægt fyrir ríkisstjórn að vera vel tengd
við fólkið í landinu. Það hafi ekki ver-
ið reyndin að undanförnu. „Ég er
mjög ánægð með það að Íslendingar
hafa mjög mikinn áhuga á lýðræðinu.
Þeir vilja að stjórnmálamenn hlusti,“
segir hún. Það sé hins vegar ólíklegt
að miklar breytingar verði gerðar á
stjórnarfyrirkomulaginu hérlendis.
Núverandi fyrirkomulag hafi verið til
staðar í meira en hundrað ár. Það hafi
verið tekið upp frá Danmörku sem
hafi fengið sína fyrirmynd frá Bret-
landi.
Ekki miklar breytingar
Ýmsar tillögur hafa í gegnum tíðina
komið fram til breytinga á stjórnarskrá
og stjórnskipan Íslands. Árið 2005 var
mynduð sérfræðinganefnd um end-
urskoðun stjórnarskrárinnar. Í skýrslu
nefndarinnar voru helstu hugmyndir
hérlendis raktar. Forsetavald er með-
al þeirra atriða sem mest hafa verið
rædd í tengslum við hugsanlega end-
urskoðun stjórnarskrárinnar. Á fyrstu
árum lýðveldisins aðhylltist hópur
fólks í ýmsum stjórnmálaflokkum for-
setaræði á Íslandi að bandarískri fyr-
irmynd.
Kosningakerfið og kjördæma-
skipanin hafa verið viðvarandi við-
fangsefni tillagna um stjórnarskrár-
breytingar á lýðveldistímanum.
Breytingar á kosningakerfinu voru
meginefni þeirra stjórnarskrárbreyt-
inga sem tóku gildi 1934, 1942, 1959,
1984 og 1999. Þróunin hefur verið í þá
veru að auka jafnvægi atkvæða en til-
lögur hafa reglulega komið frá jafnað-
armönnum um að gera landið allt að
einu kjördæmi, alveg frá árinu 1927.
Tillögur um að ráðherrar eigi ekki
atkvæðisrétt á Alþingi hafa alloft kom-
ið fram. Slíkar tillögur voru meðal
annars bornar fram af þingmönnum
Bandalags jafnaðarmanna á níunda
áratugnum.
Hugmyndir um stjórnlagaþing eða
þjóðfund til að endurskoða stjórnar-
skrána hafa reglulega skotið upp koll-
inum allt frá því verið var að undirbúa
Forsetinn boðar
„nýtt lýðveldi“
Ólafur Ragnar Grímsson lýsti þeirri skoðun sinni í gær að hugsanlega yrði að
gera breytingar á stjórnskipan og stjórnarskrá landsins. Stjórnmálafræðingar
sem DV ræddi við töldu orð forsetans gott sjónarmið inn í umræðuna. Svanur
Kristjánsson lagði til að koma á þjóðfundi. Stefanía Óskarsdóttir taldi þing-
ræðisfyrirkomulagið hafa reynst okkur vel. Það væri sama fyrirkomulag og
hjá flestum nágrannalöndum okkar.
AnnAS SiGmundSSon
blaðamaður skrifar as@dv.is
Forsetaræði
n Forsetaræði er stjórnarskrárbundin leið til að stjórna þar sem æðsti maður framkvæmdavaldsins er forseti kosinn í beinni kosningu og löggjafarvaldið er sjálfstætt.
n þetta er sjaldgæft stjórnarfyrirkomulag. Bandaríkin eru þekktasta dæmið.
n Forsetaræði var fundið upp af landnemum Bandaríkjanna með það fyrir augum að dreifa valdinu til að koma í veg fyrir einræði eða harðstjórn.
n Bandaríska stjórnarskráin tekur skýrt fram að framkvæmdavaldið skuli vera í höndum forsetans. Hann er kosinn í almennum kosningum til fjögurra ára í senn og má ekki
sitja lengur en tvö kjörtímabil. það er einungis hægt að koma honum frá með því að þingið lögsæki hann fyrir alvarlega glæpi og slæma hegðun. Forsetinn getur ekki leyst
upp þingið og boðað til nýrra kosninga. þetta er aðalsmerki forsetaræðisins.
Þingræðisstjórn
n þingræðislegt framkvæmdavald er, öfugt við forsetaræði, upprunalega tengt við löggjafarvaldið.
n ríkisstjórnin er mynduð úr þinginu og getur verið felld með vantrauststillögu.
n ríkisstjórnin getur einnig í flestum tilfellum leyst upp þingið og kallað til nýrra kosninga.
n þingræði samanstendur af þremur þáttum:
n ráðandi flokkar koma frá þinginu. ráðherrar eru ennþá hluti af löggjafarvaldinu.
n Hægt er að steypa ríkisstjórninni af stóli með vantrauststillögu þingsins.
n Framkvæmdavaldið er jafnskipt, sem tekur form ráðuneytis þar sem forsætisráðherra var samkvæmt hefðinni fremstur meðal jafningja. þetta margþátta framkvæmda-
vald er andstætt þeim fókus sem er settur á einn yfirmann framkvæmdavaldsins í forsetaræði.
Blandað Fyrirkomulag
n Flóknara og fjölbreytilegra en forsetaræði og þingræði.
n þetta fyrirkomulag tengir saman forsetaræði og þingræði með því að hafa kosinn forseta með forsætisráðherra og ráðuneyti sem eru ábyrg fyrir þinginu.
n Blandað fyrirkomulag samanstendur af þremur þáttum:
n Forseti lýðveldisins er kosinn með almennum kosningarétti.
n Hann hefur þó nokkur völd.
n Hann hefur á móti sér forsætisráðherra og ráðherra sem eru valdhafar framkvæmdavaldsins og ríkisstjórnarinnar og geta aðeins setið í embætti ef þeir hafa stuðning
þingsins á bak við sig.
n þetta fyrirkomulag hefur sérstaklega heillað Evrópulönd sem hafa staðið frammi fyrir erfiðleikum á alþjóðavettvangi. n þegar erfiðleikarnir utan landamæranna minnka,
minnka völd forsetans í sama mæli.