Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Blaðsíða 5
þriðjudagur 27. janúar 2009 5Fréttir
„Samfylkingin hefur ekki haft þrek
til að ljúka þessu samstarfi með
eðlilegum hætti. Það verður að
skrifast á hennar reikning,“ sagði
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, eftir fund með
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur, formanni Samfylkingarinnar,
skömmu eftir hádegið í gær þar
sem ákveðið var að slíta stjórnar-
samstarfinu.
Geir vísaði áfram frá sér ábyrgð
á öllu því sem miður hefur farið
við stjórn landsins að undanförnu.
Sömuleiðis vísaði hann ábyrgð á
stjórnarslitunun frá sér og á hend-
ur Samfylkingunni og sagði að vel
hefði verið hægt að halda sam-
starfinu áfram. Krafa Samfylking-
arinnar um að forsætisráðuneytið
félli henni í skaut var hins vegar, að
mati Geirs, algjörlega óásættanleg
og hefði aldrei getað leitt
til annars en stjórnarslita.
Ingibjörg segir Geir hins
vegar fara með rangt mál.
Hafnaði Jóhönnu
Ingibjörg lagði til við Geir
að Jóhanna Sigurðardóttir,
félags- og tryggingamála-
ráðherra, tæki við sem
forsætisráðherra ef þáver-
andi stjórn ætti að starfa
áfram saman. Að mati
Ingibjargar væri það eina
rétta að þau Geir myndu
draga sig frá forystunni
og lýsti hún sig tilbúna
til að stíga til hliðar fyr-
ir Jóhönnu sem hún telur
æskilegt að sitji við stjórn-
artaumana þar til þjóðin
kýs sér leiðtoga.
Ingibjörg segir það
hrokafullt af Sjálfstæð-
isflokknum að hafna þessu boði:
„Mér finnst það mjög sérkennilegt
og kannski lýsa því að flokkurinn
er valdakerfi sem hugsar fyrst og
síðast um sjálft sig en ekki það sem
er best fyrir þjóðina við þessar til-
teknu aðstæður,“ segir hún.
Samkvæmt heimildum DV leit-
aði Samfylkingin þó fyrst til Össur-
ar Skarphéðinssonar iðnaðarráð-
herra til að leiða flokkinn en hann
hafnaði því af ókunnum ástæðum.
Seðlabankinn þrætuepli
Ingibjörg þvertekur fyrir að stjórn-
arslitin sé á ábyrgð Samfylkingar-
innar, eins og Geir heldur fram, og
segir flokksmenn hafa sýnt sjálf-
stæðismönnum mikið langlund-
argeð. Meðal annars hafi Samfylk-
ingin eindregið óskað eftir því að
skipt verði um stjórn í Seðlabank-
anum, sem heyrir undir forsætis-
ráðuneytið, en ekki orðið við því.
Á þingfundi síðar um daginn
þrættu þau Geir og Ingibjörg og
vændu hvort annað um hroka. Fyrr
um daginn sagði Geir þó í sam-
tali við blaðamenn að þau hefðu
ákveðið að kveðjast með kossi eft-
ir að þau ákváðu að slíta stjórnar-
samstarfinu, en þau innsigluðu
ríkisstjórnarsamstarfið eftirminni-
lega með kossi á Þingvöllum í maí
2007.
Dagaspursmál um stjórnarslit
Björgvin G. Sigurðsson sagði af
sér sem viðskiptaráðherra í fyrra-
dag og axlaði þannig sína ábyrgð.
Hann lét þó ekki þar staðar numið
heldur lét hann Jónas Fr. Jónsson,
forstjóra Fjármálaeftirlitsins, fjúka
sem og stjórnarmenn þess. Mörg-
um fannst þó að Björgvin hefði átt
að láta verkin tala mun fyrr, jafnvel
strax í október.
Ekki er lengra síðan en á sunnu-
dag sem Geir sagði ótækt að slíta
ríkisstjórnarsamstarfinu þar sem
það leiddi til þess að landið yrði
stjórnlaust. Þegar þessi orð voru
sögð hafði fjöldi fólks haldið uppi
háværum mótmælum í fimm daga
og krafist þess að ríkisstjórnin viki.
Mikill hiti var í sumum mót-
mælendum og þurfti lögregla í
fyrsta skipti frá árinu 1949 að not-
ast við táragas við löggæslu hér á
landi.
DV hefur allt frá því þing kom
aftur saman eftir jólafrí, á þriðju-
dag í síðustu viku, sagt frá því að
í smíðum sé rauðgrænt stjórnar-
bandalag Samfylkingar og Vinstri-
hreyfingarinnar - græns framboðs.
Því var það aðeins dagaspurmál
hvenær ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar yrði slitið.
„Mér finnst það
mjög sérkennilegt og
kannski lýsa því að
flokkurinn er valda-
kerfi sem hugsar fyrst
og síðast um sjálft sig.“
ÁSAKANIR Á VÍXL
Geir H. Haarde vísar áfram frá sér allri ábyrgð á því sem miður hefur farið við
stjórn landsins og kennir Samfylkingunni um ríkisstjórnarslitin. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir mótmælir þessu og segir sína flokksmenn hafa sýnt sjálfstæðismönnum
mikið langlundargeð. Vika er síðan DV greindi fyrst frá því að rauðgrænt bandalag
Samfylkingar og vinstri-grænna væri í smíðum.
dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
ÞRIÐJUdagUR 20. JanúaR 2009 dagblaðið vísir 13. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
dRaUmURInn
sem RættIst
baRack obama veRÐUR valdamestI maÐUR heIms í dag
Samfylking á Suðupunkti vegna StjórnarSamStarfS:
VILJA STJÓRN
MEÐ VG
hvítlIÐI áttI aÐ
veRJa mótmælanda
fRéttIR
atvInnUlaUs
aÐ hJálpa
böRnUm
leIkskólakennaRI YfIRheYRÐUR fYRIR aÐ mótmæla. sótt fYRIRvaRalaUst í vInnUna.
ÞReIfIngaR Um RaUÐgRænt samstaRf
kRafa Um tafaRlaUst UppgJöR vegna bankahRUnsIns
fRamsókn gætI vaRIÐ mInnIhlUtastJóRn vantRaUstI,
segIR sIgmUndUR davíÐ
fJaRveRa IngIbJaRgaR tRUflaR flokksstaRfIÐ
vIlJa aÐ foRmaÐURInn mInnkI vInnUálagIÐ
fRéttIR
eRlent
fólk
óskaR vIll
moggann
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
fimmtudagur 22. janúar 2009 dagblaðið vísir 15. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
ísland er
stjórnlaust
mótmælendur ruddust inn á samfylkingu
framsókn hugsanlega í rauðgræna stjórn
Ögmundur og Össur funduðu
kjarasamningar í uppnámi
así vill nýja stjórn
leynigÖng frá alþingi
fréttir
Janúarbyltingin setur stJórnarsamstarf í uppnám:
frægir
mótmæla
þorsteinn kragh:
„ég er saklaus“
fólk
landspítali
bannar
facebook
fréttir
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
miðvikudagur 21. janúar 2009 dagblaðið vísir 14. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
BjÖrgÓLFur
thor gegn
krÓnunni
ríkissTJÓrNiN
FELLUr
Fréttir
Fréttir
janúarByLting á
austurveLLi
eLLeFu ára
handtekinn
„ég var Líka
að mÓtmæLa“
kona Barin
með kyLFu
ingiBjÖrg
veikari en
taLið var
„geir er
Búinn að
vera“
m
yn
d
b
jö
rn
b
lö
n
d
a
l
Erla HlynSDóttIr
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
20. janúar 2009
21. janúar 2009
22. janúar 2009
andaði köldu geir Haarde segist hafa slitið
stjórnarsamstarfinu með kossi. þau ingibjörg
Sólrún gísladóttir eyddu hins vegar afgang-
inum af deginum í að saka hvort annað um
hroka og andaði köldu á milli þeirra í þingsal.
MynD rakEl óSk
FoRSetINN boðAR
„Nýtt LýðVeLdI“
„Forsetinn getur ekki
sett nein skilyrði önnur
en þau að þetta er sjón-
armið inn í umræðuna
og margt af því sem
hann sagði var mjög
skynsamlegt.“
Stjórnarslit geir H. Haarde
tilkynnir Ólafi ragnari grímssyni
um að ríkisstjórn sín sé fallin.
MynD HEIða HElGaDóttIr
sjálfa lýðveldisstjórnarskrána. Á bak
við þá ósk hefur jafnan legið sú hug-
mynd að hraða heildarendurskoð-
un stjórnarskrárinnar eða jafnvel að
takmarka áhrif stjórnmálaflokkanna
á hana.
Tillögur um þjóðaratkvæðagreiðsl-
ur hafa verið reglulega á dagskrá um-
ræðunnar um stjórnarskrána frá því á
sjöunda áratug tuttugustu aldarinnar.
Flestar hafa slíkar tillögur gengið út á
að tiltekið hlutfall kjósenda gæti knú-
ið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um
lög frá Alþingi eða skorað á forseta
að beita málskotsrétti. Einnig hefur
komið fram tillaga um að þriðjungur
þingmanna gæti knúið fram þjóðar-
atkvæðagreiðslu um löggjöf, líkt og í
Danmörku.