Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Síða 6
Nýi Glitnir hefur ákveðið að auglýsa
eftir tilboðum frá fjárfestum í Ár-
vakur, útgáfufélag Morgunblaðsins.
Árvakur er komið í sölumeðferð hjá
Nýja Glitni og hafa tilraunir stjórn-
ar Árvakurs til að koma saman hópi
fjárfesta til að leggja nýtt hlutafé inn
í félagið því mistekist. Nýi Glitnir gaf
stjórn Árvakurs tækifæri á því í nóv-
ember að koma saman fjárfestahópi
sem reiðubúinn væri að leggja millj-
arð króna í félagið en það gekk ekki.
Tímamörk sem Árvakursmenn hafa
gefið fyrir því að fá fjárfesta að félag-
inu hafa iðulega liðið án þess að ár-
angur næðist. Skuldir Árvakurs við
Nýja Glitni nema um 3,5 milljörðum
króna.
Tveir fjárfestahópar hafa lýst yfir
áhuga á Árvakri: tveir erlendir fjár-
festar, Steve Cossers og Everhard
Vissers, og hópur fjárfesta sem Ósk-
ar Magnússon er í forsvari fyrir. Ósk-
ar segir að hann og fjárfestarnir sem
hann er í forsvari fyrir muni líklega
leggja fram tilboð í félagið á næst-
unni.
Ólafur ánægður með
sölumeðferðina
Ólafur Stephensen, ritstjóri Morg-
unblaðsins, segist vera ánægður
með að framtíð Árvakurs sé komin
í þennan farveg. „Við teljum okkur
vita að fleiri en einn og fleiri en tveir
fjárfestar hafi áhuga á blaðinu,“ seg-
ir Ólafur. Hann segir að sölumeð-
ferðin á Árvakri hjá Glitni sé sú nið-
urstaða sem forsvarsmenn Árvakurs
hafi talið æskilega.
Spurður segir hann að þessi nið-
urstaða í málinu þýði ekki að for-
svarsmönnum Árvakurs hafi mis-
tekist að finna fjárfesta til að leggja
nýtt hlutafé inn í fyrirtækið. „Þetta
er bara eðlilegt og jákvætt framhald
á því ferli sem hófst í haust að reyna
að fá nýtt hlutafé inn í Árvakur,“ seg-
ir Ólafur.
Hann segir að útgáfa Morgun-
blaðsins muni halda áfram óbreytt
þar til niðurstaða liggur fyrir úr sölu-
meðferðinni og vonandi eftir það.
„Ég geri fastlega ráð fyrir að ein-
hver þessara fjárfesta muni tryggja
áframhaldandi útgáfu,“ segir Ólafur.
Hann segir aðspurður að Árvakur
eigi nægilegt rekstrarfé til að greiða
starfsmönnum fyrirtækisins laun
um mánaðamótin. En Einar Sig-
urðsson, forstjóri Árvakurs, greindi
frá þessu á starfsmannafundi hjá
Árvakri í gær auk þess sem laun
allra starfsmanna yrðu lækkuð um
fimm prósent.
Björgólfur ekki með
Guðmundur Oddsson, lög-
maður erlendu fjárfestanna
tveggja sem lýst hafa yfir
áhuga á að kaupa Árvak-
ur, neitar því að Björg-
ólfur Thor Björgólfsson
standi á bak við áhuga
tvímenninganna á félag-
inu. Samkvæmt heimild-
um DV gerðu fjárfestarnir
tveir tilboð í Árvakur fyrr í
mánuðinum sem var
hafnað af Nýja
Glitni. Guð-
mundur
vill ekki tjá
sig um á
hvaða for-
sendum
tilboðinu
var ekki
tekið.
Há-
værar
sögu-
sagnir hafa verið uppi um að fjár-
festarnir tveir séu leppar Björgólfs
Thors sem vilji eignast Árvakur en
félagið var að stærstum hluta í eigu
föður hans, Björgólfs Guðmunds-
sonar. Sagan segir að Björgólfur vilji
ekki vera í forsvari í kaupunum á
Árvakri vegna þeirrar nei-
kvæðu umræðu sem er
um hann í samfélaginu .
Guðmundur
lögmaður
Björgólfsfeðga
Guðmundur segist hafa
verið lögmaður þeirra
Björgólfsfeðga,
meðal annars
verið inn-
an-
þriðjudagur 27. janúar 20096 Fréttir
ritstjorn@dv.is
Innlendar FréttIr
Kópavogsbúar
orðnir 30 þúsund
Þrjátíuþúsundasti Kópavogs-
búinn leit dagsins ljós þeg-
ar Jóhannesi Kr. Kristjánssyni,
fyrrverandi fréttamanni á Stöð
2, og Brynju Gísladóttur fæddist
sonur 10. janúar síðastliðinn.
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri
og Ómar Stefánsson, formaður
bæjarráðs, heimsóttu fjölskyld-
una í gær og gáfu drengnum
30 þúsund krónur í tannfé, eða
eina krónu á hvern íbúa, og skjal
og smekk til vitnis um að hann
væri þrjátíuþúsundasti íbúinn í
Kópavogi.
Borgin ósátt við
ríkisvaldið
Reykvískir ráðamenn eru afar
ósáttir við Vegagerðina þessa
dagana. Ástæðan er sú að
stjórnendur Vegagerðarinnar
tilkynntu rétt fyrir jól breytingu
á verðskrá þjóðvega. Fulltrú-
ar í framkvæmda- og eigna-
ráði Reykjavíkurborgar segja
þetta þýða að kostnaður færist
frá ríkinu yfir á sveitarfélögin í
landinu.
Sighvatur Arnarsson, skrif-
stofustjóri hjá framkvæmda- og
eignasviði borgarinnar, gerði
grein fyrir áhrifum þessarar
breytingar á fundi í dag. Þar
sagði hann að þarna gæti verið
um að ræða tugi milljóna króna
í aukinn kostnað árlega hjá
Reykjavíkurborg.
Kanar vilja
sæstreng
Tveir Bandaríkjamenn og
einn Íslendingur funduðu ný-
lega með Kristjáni L. Möller
samgönguráðherra um hugs-
anlega lagningu sæstrengs
milli Íslands og Bandaríkj-
anna. Steve Cowper, fyrrver-
andi landsstjóri í Alaska, fer
fyrir hópnum en með honum
í för voru Greg Varisco og Sig-
hvatur Pétursson.
Þeir hafa áhuga á að leggja
nýjan sæstreng milli land-
anna. Strenginn vilja þeir
nýta fyrir gagnaver sem yrðu
starfrækt hérlendis.
Gjaldið heldur
ekki í við verð-
bólgu
Áfengisgjald hefur hækkað
um tvö til 37 prósent síðustu
fjórtán árin. Þetta kemur
fram í svari Árna Mathiesen
fjármálaráðherra við fyrir-
spurn Kristins H. Gunnars-
sonar, þingmanns Frjálslynda
flokksins. Áfengisgjaldið
hefur hækkað minnst á léttu
víni eða um tvö prósent. Mest
hefur það hækkað á sterku
áfengi eða um 37 prósent. Þar
á milli kemur svo hækkun
áfengisgjalds á bjór sem hef-
ur hækkað um fjórtán pró-
sent. Á sama tíma hefur verð-
bólga numið 91 prósenti.
Nýi Glitnir óskar eftir tilboðum í Árvakur. Tveir fjárfestahópar hafa lýst yfir áhuga á
Árvakri við Glitni. Lögmaður erlendu fjárfestanna tveggja sem vilja kaupa Árvakur
segir Björgólf Thor ekki standa á bak við kauptilboðið. Ritstjóri Morgunblaðsins er
ánægður með sölumeðferðina. Óskar Magnússon og fjárfestar tengdir honum hyggj-
ast líklega bjóða í Árvakur.
REYNT AÐ BJARGA
ÁRVAKRI FRÁ ÞROTI
Gjaldþrot Árvakurs
Sölumeðferðin á félaginu er
nú í höndum nýja glitnis því
tilraunir stjórnar félagsins til
að finna nýtt hlutafé í félagið
mistókust. Myndin er tekin á
ritstjórn Morgunblaðsins.
Býður í Árvakur Óskar Magn-
ússon fer fyrir hópi fjárfesta
sem hyggjast bjóða í Árvakur á
næstunni en nýi glitnir sendi frá
sér tilkynningu í gær þar sem
greint var frá því að Árvakur yrði
tekinn í sölumeðferð.
InGI F. VIlhjÁlMsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra vill ekki svara því hreint út
hvort hann hafi vitað að Páli Win-
kel fangelsismálastjóra hafi verið
veitt formleg áminning fyrir brot á
lögum um réttindi og skyldur op-
inberra starfsmanna þegar hann
veitti Páli embætti fangelsismála-
stjóra árið 2007. Greint var frá mál-
inu í DV í gær. Tveir aðrir umsækj-
endur voru um embættið.
Sýslumaðurinn í Kópavogi, Þor-
leifur Pálsson, veitti Páli áminning-
una þegar hann var sumarafleys-
ingamaður í lögreglunni í Kópavogi
árið 1999. Páll Winkel staðfestir að
hann hafi fengið áminninguna en
að hún hafi verið smávægileg.
Styrmir Sævarsson, fyrrver-
andi samstarfsmaður Páls, kvartaði
undan honum til yfirmanna í lög-
reglunni í Kópavogi fyrir hættulega
vanrækslu í starfi árið 1999. Meðal
annars kvartaði Styrmir undan Páli
fyrir að hafa skutlað fólki hingað
og þangað og fyrir að kíkja í bæinn
meðan hann var á vakt.
Svo virðist sem Björn Bjarnason
hafi litið framhjá áminningunni
og ekki tekið hana með í reikning-
inn þegar hann veitti Páli embætti
fangelsismálastjóra í árslok 2007.
Móðir Páls, Guðný Jónsdóttir, er rit-
ari Björns Bjarnasonar dómsmála-
ráðherra og var einnig ritari Sól-
veigar Pétursdóttur, forvera Björns
í starfi.
Spurður hvort hann hafi vit-
að af áminningunni og hvort hún
hafi verið tekin með í reikning-
inn þegar hæfi umsækjendanna
þriggja um stöðuna var metið, segir
Björn að blaðamaður misskilji eðli
áminningar. Björn segir að áminn-
ing sé veitt til að gefa þeim sem var
áminntur tækifæri til að taka sig á
og ef hann geri það þá sé málið úr
sögunni.
„Ég sé ekki betur en Páll Winkel
hafi staðið sig með mikilli prýði í
þeim störfum sam hann hefur gegnt
og ég þekki: framkvæmdastjóri
Landssambands lögreglumanna,
aðstoðarríkislögreglustjóri og síð-
an fangelsismálastjóri. Við ákvarð-
anir mínar tók ég mið af þeim með-
mælum sem Páll fékk og nálgaðist
málið á jákvæðan hátt, þótt þú viljir
halda þig við hið neikvæða að hætti
DV,“ segir Björn. ingi@dv.is
Björn Bjarnson var „jákvæður“ þegar hann skipaði Pál Winkel fangelsismálastjóra:
Leit framhjá áminningu
Áminntur Páll Winkel fangelsismála-
stjóri hlaut formlega áminningu þegar
hann var sumarafleysingamaður í
lögreglunni árið 1999.