Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Page 7
hússlögmaður hjá lyfjafyrirtækinu Actavis, en að Cosser og Visser hafi samband við hann án milligöngu Björgólfs Thors. „Ég held að verið sé að leggja saman tvo plús tvo og fá út úr því 152. Ég hef verið lögmað- ur þeirra feðga í gegnum tíðina. En Cosser og Visser komu til í Íslands í allt öðrum erindagjörðum en að kaupa Árvakur. Það er ekkert til í þessu,“ segir Guðmundur sem einn- ig sat í stjórn knattspyrnuliðsins West Ham en það er í eigu Björgólfs Guðmundssonar. Rekstrarlegur áhugi Guðmundur segir að áhugi tví- menninganna á Árvakri sé fyrst og fremst rekstrarlegur auk þess sem Árvakur sé „sérstök eign“. „Þeir hafa sagt að það að eiga Moggann myndi vera eins og að eiga sjötíu manna greiningardeild um íslenskt samfélag,“ segir Guðmundur og bætir því við að Cosser og Visser hafi hug á stærri fjárfestingum á Íslandi. Félagarnar hafa einnig lýst yfir áhuga sínum á að kaupa tónlistarhúsið ófullkláraða í miðbæ Reykjavíkur að sögn Guð- mundar. Guðmundur segir að hann hafi ekki heyrt frá Nýja Glitni upp á síðkastið um að- komu Cossers og Vissers að Árvakri en að hann eigi von á að heyra frá bankanum í þessari viku. Óskar hyggst leggja fram tilboð Óskar Magn- ússon, sem fer fyrir hin- um fjárfesta- hópnum sem lýst hefur yfir áhuga á Árvakri, seg- ist ánægður með að heyra að félag- ið hafi verið auglýst til sölu opinber- lega. „Mér finnst þetta mjög gott. Þetta er það sem ég hef sjálfur lagt til. Það þarf að taka af öll tvímæli um að hugsanlegir kaupendur sitji við sama borð. Þá verður þetta ferli sem allir geta tekið þátt í,“ segir Óskar. Hann segir aðspurður að hann og fjárfestarnir sem hann er í forsvari fyrir séu áhugasamir um að kaupa Árvakur og hyggist líklega leggja fram tilboð í félagið. „Mér finnst það líklegt ef við fáum þær upplýsing- ar sem eru nauðsynlegar til að geta gert slíkt,“ segir Óskar. Óskar vill ekki greina frá því hvaða fjárfestar það eru sem hann er í forsvari fyrir en Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson lögmað- ur er talinn vera einn þeirra sem og Guð- björg Matthíasdóttir, ekkja Sigurðar Ein- arssonar útgerð- armanns frá Vest- mannaeyjum, sem sögð er reiðubúin að leggja milljarða inn í félagið. „Þetta er bara eðlilegt og jákvætt framhald á því ferli sem hófst í haust til að reyna að fá nýtt hluta- fé inn í Árvakur.“ Ánægður með lendinguna Ritstjóri Morg- unblaðsins telur sölumeðferð Glitnis á Árvakri vera æskilega. Ekki með í ráðum Lögmaður erlendu fjárfestanna tveggja sem gerðu tilboð í Árvakur fyrr í mánuðinum segir að þeir séu ekki leppar Björgólfs Thors Björgólfssonar. Björn Bjarnson var „jákvæður“ þegar hann skipaði Pál Winkel fangelsismálastjóra: Fréttir Teymi, Tal og Vodafone hafa lík- lega brotið gegn samkeppnislög- um með því að ákveða að Tal fari ekki í samkeppni við Vodafone. Þetta kemur fram í bráðabirgðaáliti Samkeppniseftirlitsins í gær. Þar er lagt fyrir að fulltrúar Teymis í stjórn Tals víki þegar í stað úr stjórn og að í þeirra stað muni Samkeppniseft- irlitið skipa tvo óháða einstaklinga í stjórnina. Ákvæði í samningi um aðgang að farsímaneti Vodafone eru tal- in tryggja hagsmuni Vodafone og Teymis en það er andstætt ákvörð- un Samkeppniseftirlitsins frá því á síðasta ári um samskipti félag- anna. Því er talið að samningurinn sé til þess fallinn að draga úr þeirri samkeppni sem Tal getur stundað á markaðnum og brjóti þar með í bága við samkeppnislög. Meint brot Tals, Teymis og Vodafone: Skipt um stjórnarmenn Samkeppni skaðast Samningur félaganna er talinn brjóta gegn samkeppnislögum. Hafðu samband í síma 515-5555 eða sendu tölvupóst á askrift@dv.is - inn í hlýjuna Fáðu DV heim í áskrift

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.