Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Side 10
vanda, með niðurfellingu skulda að
hluta,“ segir hann.
Vill sjá plan
Jóhannes bendir á að ríkisstjórnin
hafi lýst yfir vilja til að fara í mann-
aflsfrekar framkvæmdir. „Ég vil sjá
ríkisstjórnina koma með plan um
hvernig á að bjarga atvinnuvegun-
um, því að sjálfsögðu veltur hag-
ur heimilanna á því hvort fyrirtæki
haldi áfram að starfa. Það þarf að
bjarga þeim heimilum sem standa
frammi fyrir geigvænlegum vanda
og gefa innspýtingu í atvinnulífið til
að draga úr þeim skaða sem heimil-
in verða fyrir. Þetta eru að sjálfsögðu
brýnustu verkefnin,“ segir hann og
bætir við að beðið sé með óþreyju
eftir frumvarpi um skuldaaðlög-
un. „Neyðarlög voru samþykkt fyrir
rúmlega hundrað dögum. Fyrst hægt
var að samþykkja neyðarlög í flýti-
meðferð, hvers vegna er ekki hægt að
setja lög um skuldaaðlögun í sömu
flýtimeðferð?“ spyr hann.
Ísland sæki um aðild
Jóhannes segir að neytendur hljóti
að gera þá kröfu að vextir lækki veru-
lega. „Vaxtastigið verður að fara nið-
ur og það verður að ná einhverju
samkomulagi við Alþjóðagjaldeyr-
issjóðinn, AGS, um lækkun á stýri-
vöxtum. Vaxtastigið er allt að drepa
hér,“ segir hann og bætir við að margt
myndi breytast til hins betra ef vext-
ir væru í samræmi við vextina í ESB-
löndum. „Menn eru sammála um
það í dag að krónan sé of veik. Fyrir
einu til tveimur árum voru menn
sammála um að krónan væri of
sterk. Við hoppum öfganna á
milli,“ segir Jóhannes sem
ítrekar ályktun Neytenda-
samtakanna: Samtökin
hafa tekið klára afstöðu um
að það eigi að láta reyna
á með aðildarviðræð-
um hvaða kostir eru í boði
varðandi Evrópusamband-
ið. Ég geri mér grein fyrir að
þetta gæti fallið á sjávarút-
vegs- og landbúnaðarmál-
um en það er öldungis ljóst
að ef Ísland yrði aðili myndi
vöruverð lækka töluvert en
matvælaverð mest.“ Jóhannes
segir að þrátt fyrir að ekki sé unnt
að taka upp evru strax myndu vext-
ir leita niður í það sem er í öðrum
ESB-löndum.
Jóhannes gerir skýra
kröfu til þess að
almenning-
ur fái að
vita um
allt sem
gerðist í
aðdrag-
anda
banka-
hrunsins vegna þess að almenningur
muni borga brúsann. „Ef við ætlum
að byggja upp tiltrú á nýju Íslandi, þá
má ekkert fara á milli mála. Annars
tekst það ekki.“
þriðjudagur 27. janúar 200910 Neytendur
Dísilolía
el
d
sn
ey
t
i Grafarvogi verð á lítra 144,4 kr. verð á lítra 167,8 kr.
Skeifunni verð á lítra 142,8 kr. verð á lítra 166,2 kr.
Akranesi verð á lítra 144,4 kr. verð á lítra 167,8 kr.
bensín
Spönginni verð á lítra 142,7 kr. verð á lítra 164,1 kr.
Barðastöðum verð á lítra 142,8 kr. verð á lítra 166,2 kr.
Eyrarbakka verð á lítra 142,8 kr. verð á lítra 166,2 kr.
Skógarseli verð á lítra 142,9 kr. verð á lítra 166,3 kr.
umsjón: Baldur guðmundsson, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, vill að frumvarp um skulda-
aðlögun nái hratt fram að ganga. Reikna þurfi út hvað heimilin geti borgað niður af
skuldum sínum en restina þurfi að fella niður. Það sé bæði lánveitendum og lántakend-
um fyrir bestu. Neytendasamtökin vilja að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópu-
sambandið.
Ný stjórN felli
Niður skuldir
„Það sem gert hefur verið fyrir heim-
ilin fram að þessu hefur fyrst og
fremst verið fólgið í því að lengja í
hengingarólinni,“ segir Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, um störf annarrar ríkis-
stjórnar Geirs H. Haarde.
„Það sem ég á við er að lánin hafa
verið fryst í ákveðinn tíma með meiri
greiðslubyrði þegar kemur að því að
greiða af lánunum á nýjan leik,“ segir
Jóhannes.
Gera má ráð fyrir því að ný rík-
isstjórn líti dagsins ljós á komandi
dögum. Ekki stendur á svörum þeg-
ar Jóhannes er spurður hvað ný ríkis-
stjórn þurfi að gera til bjargar heimil-
unum og þar með neytendum. „Það
sem þarf að gera er að grípa til að-
gerða gagnvart þeim heimilum sem
eru í mestum fjárhagsvanda. Það
þarf einfaldlega að meta hvað hvert
og eitt heimili ræður við að greiða til
baka af lánum sínum,“ segir Jóhann-
es og bætir því við að afganginn þurfi
einfaldlega að fella niður.
Forsendur brostnar
Hann segir að þegar heimilin tóku
lánin, hvort sem það eru verðtryggð
eða gengistryggð lán, hafi verið
gengið út frá ákveðnum forsendum.
Bæði hvað varðar tekjur viðkomandi
heimilis og greiðslubyrði af lánum.
Þær séu brostnar og ungt fólk eigi
margt í miklum erfiðleikum núna,
sér í lagi fólk sem hafi tekið allt að
100 prósent húsnæðislán. Það hafi
orðið fyrir miklum tekjumissi, í formi
launaskerðinga eða atvinnuleysis.
Jóhannes segir að betra sé fyrir
lánveitendur að gefa eftir af höfuð-
stóli skulda og fá þó til baka það sem
viðkomandi heimili getur greitt, frek-
ar en að keyra heimilin í þrot. „Næsta
ríkisstjórn verður að taka á þessum
Bíddu í viku
Freistandi getur reynst að falla
fyrir góðum tilboðum á útsöl-
um sem nú standa sem hæst. Á
námskeiðum um fjármálaráð-
gjöf er fólki kennt að standast
þessar freistingar. Ef grunnt er á
fjármunum er góð regla að hugsa
málið í viku. Ef þú sérð flík sem
þig langar að kaupa skaltu ekki
víkja frá þeirri reglu að bíða í
viku með að kaupa hana. Þannig
kemstu hjá skyndiákvörðunum
þó útsalan gæti reyndar ver-
ið búin, viku síðar. Þá eru líka
enn minni líkur á því að þú látir
freistast.
klippinG hjá
nEmum
Miðað við tölur frá Hagstofu
Íslands getur kostnaður við að
klippa fjögurra manna fjölskyldu
á einu ári verið 50 þúsund krón-
ur. Það miðast við að hver fjöl-
skyldumeðlimur fari fjórum sinn-
um á ári á hárgreiðslustofu. Með
því að panta tíma hjá nemum í
iðnskólum landsins má draga
verulega úr þeim kostnaði. Klipp-
ing þar kostar í mörgum tilvik-
um helmingi, eða jafnvel þrefalt
minna, en á hefðbundnum hár-
greiðslustofum.
n Lastið fær Pizza Hut í
Smáralind. Viðskipta-
vinur fór út að borða á
veitingastaðnum um
helgina. Þegar hann
settist að borðinu,
sem honum var vísað
á, veitti hann því
athygli að hnífurinn var
skítugur, eins og sést á
myndinni. Auk þess var mylsna
á gólfum og borð kámug.
n Lofið fær Halldór skósmiður í
Grímsbæ. Viðskiptavingur hafði
samband og sagði að hann væri
ekki bara langódýrastur heldur
einstaklega almennilegur og
tæki alltaf á móti kúnnum
sínum með bros á vör. „Hann
er besti skósmiðurinn í
Reykjavík,“ sagði
viðskiptavinurinn.
sEndið loF Eða lasT Á nEYTEndur@dV.is
„Næsta ríkisstjórn verð-
ur að taka á þessum
vanda, með niðurfell-
ingu skulda að hluta.“
Brýnustu VerkeFni nýrrar stJórnar að
mati Formanns neytendasamtakanna:
- Frumvarp um skuldaaðlögun fái flýtimeðferð
- skuldir umfram greiðslugetu verði felldar niður
- innspýting í atvinnulífið
- samið verði við ags um lægra vaxtastig
- aðildarviðræður við EsB hefjist
- almenningur verði upplýstur um ástæður hrunsins
BaLdur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
ungt fólk glímir við
gríðarlegar skuldir
Formaður neytendasamtak-
anna vill frumvarp um
skuldaaðlögun sem allra fyrst.