Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Qupperneq 16
þriðjudagur 27. janúar 200916 Ættfræði
fólk í fréttum
Jóhanna Sigurðardóttir
Félagsmálaráðherra
Segja má að á endanum hafi megin-
ástæðan fyrir slitum stjórnarsam-
starfsins verið fólgin í því að Sam-
fylkingin gerði þá ófrávíkjanlegu
kröfu að Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra yrði forsætis-
ráðherra í áframhaldandi stjórnar-
samstarfi Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar. Í þessum skrifuðu orðum
kemur enn til álita að Jóhanna
verði forsætisráðherra í hugsanlegu
stjórnarsamstarfi Samfylkingar við
aðra flokka.
Starfsferill
Jóhanna fæddist í Reykjavík 4.10.
1942 og ólst þar upp. Hún lauk prófi
frá VÍ 1960.
Jóhanna var flugfreyja hjá Loft-
leiðum 1962-71, stundaði skrif-
stofustörf hjá Kassagerð Reykjavík-
ur 1971-78, var alþm. Reykvíkinga
1978-2003, alþm. Reykjavíkurkjör-
dæmis suður 2003-2007 og er nú
alþm. Reykjavíkurkjördæmis norð-
ur frá 2007. Hún var félagsmálaráð-
herra 1987-88, 1988-91, 1991-94 og
hefur verið félagsmálaráðherra frá
24.5. 2007, í fjórða sinn. Hún er auk
þess tryggingamálaráðherra frá árs-
byrjun 2008.
Jóhanna sat í stjórn Flugfreyjufé-
lags Íslands 1966-69 og var formað-
ur þess 1966 og 1969, sat í stjórn fé-
lagsins Svölunnar 1974-76 og var
formaður þess 1975 og sat í stjórn
VR 1976-83. Hún sat í nefnd til að
undirbúa frumvarp um tilhögun
og framkvæmd fullorðinsfræðslu
og endurskoðun laga um almanna-
tryggingar 1978, sat í Tryggingaráði
1978-87 og formaður þess 1979-
80, var formaður stjórnarnefndar
um málefni þroskaheftra og öryrkja
1979-83, sat í flokksstjórn Alþýðu-
flokksins 1978-94, var varaformað-
ur Alþýðuflokksins 1984-93, var
formaður Þjóðvaka 1995-99, var
varaforseti neðri deildar Alþing-
is 1979 og 1983-84, sat í utanríkis-
málanefnd 1995-96, iðnaðarnefnd
1995-99, sérnefnd um stjórnar-
skrármál 1995-97 og 1999-2000 og
2004-2007, allsherjarnefnd 1996-99,
efnahags- og viðskiptanefnd 1999-
2007, kjörbréfanefnd 1999-2003 og
félagsmálanefnd 2003-2007. Hún
sat á þingi Alþjóðaþingmannasam-
bandsins 1980-85, í Íslandsdeild
Alþjóðaþingmannasambandsins
1996-2003 og í Íslandsdeild ÖSE-
þingsins 2003-2007.
Fjölskylda
Fyrrv. eiginmaður Jóhönnu er Þor-
valdur Steinar Jóhannesson, f. 3.3.
1944, starfsmaður hjá Íslandsbanka.
Þau skildu. Foreldrar Þorvalds: Jó-
hannes Eggertsson, hljóðfæraleik-
ari í Reykjavík, og k.h., Steinunn G.
Kristinsdóttir húsmóðir sem er lát-
in.
Maki Jóhönnu frá 15.6. 2002
er Jónína Leósdóttir, f. 16.5. 1954,
blaðamaður og leikskáld. Foreldrar
hennar eru Leó Eggertsson og k.h.
Fríða Björg Loftsdóttir.
Synir Jóhönnu og Þorvalds Stein-
ars eru Sigurður Egill, f. 31.5. 1972,
starfsmaður hjá Ísal, en kona hans er
Ragnheiður Elíasdóttir, starfsmaður
hjá KSÍ, og eiga þau tvo syni og eina
dóttur; Davíð Steinar, f. 22.3. 1977,
starfsmaður hjá Olís, en kona hans
er Auður Oddgeirsdóttir og eiga þau
tvo syni.
Sonur Jónínu er Gunnar Hrafn
Jónsson, f. 13.6. 1981.
Systkini Jóhönnu: Anna María,
f. 4.10. 1942, húsmóðir í Reykja-
vík, gift Bernhard Petersen fram-
kvæmdastjóra; Hildigunnur, f. 19.5.
1950, flugfreyja, búsett í Reykjavík,
gift Lárusi Ögmundssyni lögfræð-
ingi; Gunnar Egill, f. 19.5. 1950, d.
2001, hagfræðingur í Reykjavík, var
kvæntur Guðfinnu Theódórsdóttur,
fyrrv. starfsmanni hjá SÍF.
Foreldrar Jóhönnu: Sigurður Eg-
ill Ingimundarson, f. 10.7. 1913, d.
12.10. 1978, alþm. og forstjóri Trygg-
ingastofnunar ríkisins, og k.h., Kar-
ítas Guðmundsdóttir, f. 19.12. 1917,
d. 26.8. 1997, húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Ingimundar,
daglaunamanns í Reykjavík Ein-
arssonar, b. á Egilsstöðum í Ölfusi
Jónssonar. Móðir Einars var Sól-
veig Þorvarðardóttir, b. á Vötnum í
Ölfusi, bróður Þorbjörns Garðars,
föður Guðmundar H., fyrrv. alþm.,
og langafa Vals leikara, föður Vals,
fyrrv. bankastjóra. Móðir Ingimund-
ar var Vilborg Jónsdóttir, systir Jóns
á Þorgrímsstöðum, langafa Hann-
esar Jónssonar sendiherra, föður
Hjálmars sendiherra.
Móðir Sigurðar var Jóhanna,
verkakvennaforingi Egilsdóttir, b. í
Hörgslandskoti á Síðu Guðmunds-
sonar. Móðir Egils var Sigríður Eg-
ilsdóttir, b. í Jórvík í Álftaveri Gunn-
steinssonar, bróður Runólfs, langafa
Margrétar, ömmu alþingismann-
anna fyrrv. Jóns Helgasonar og Hjör-
leifs Guttormssonar.
Karítas var dóttir Guðmundar,
kaupmanns í Reykjavík Guðjóns-
sonar, sjómanns í Reykjavík Björns-
sonar, bróður Guðrúnar, ömmu Al-
berts Guðmundssonar ráðherra.
Móðir Guðmundar var Steinunn
Þorsteinsdóttir, b. í Breiðamýrarholti
Þorsteinssonar, garðyrkjumanns í
Úthlíð í Biskupstungum Þorsteins-
sonar, b. á Hvoli í Mýrdal, hálfbróður
Bjarna Thorsteinssonar amtmanns,
föður Steingríms skálds. Þorsteinn
var sonur Þorsteins, b. í Kerlingardal
Steingrímssonar, bróður Jóns „eld-
prests“. Móðir Þorsteins í Úthlíð var
Þórunn Þorsteinsdóttir, b. á Vatns-
skarðshólum í Mýrdal Eyjólfsson-
ar. Móðir Steinunnar var Guðlaug
Stefánsdóttir, b. á Brekku í Biskups-
tungum Gunnarssonar, af Víkings-
lækjarætt ráðherranna fyrrv., Dav-
íðs Oddssonar, Ingólfs Jónssonar og
Eggerts G. Þorsteinssonar, sem og
Guðrúnar Helgadóttur rithöfundar,
og Jóns Helgasonar skálds.
Móðir Karítasar var Anna María
Gísladóttir, sjómanns Jónssonar, frá
Írafelli í Kjós. Móðir Önnu Maríu var
Vilborg, systir Salvarar, langömmu
Sigurðar Sigurjónssonar leikara.
Jónas fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Kópavogi. Hann hóf iðnnám
í bólstrun 1955 hjá föður sínum í
Bólstrun G. Bjarnasonar, Miðstræti
5, lauk sveinsprófi í greininni og
öðlaðist meistararéttindi 1968.
Jónas starfaði við bólstrun
að loknu sveinsprófi og stofnaði
Svefnbekkjaiðjuna ásamt bræðr-
um sínum, sem þeir starfræktu að
Laufásvegi 4 og síðan að Höfðatúni
2.
Jónas flutti til Ólafsfjarðar 1974
og starfrækti þar bólstrun og bú-
skap til ársloka 1981. Þá flutti hann
til Keflavíkur þar sem hann stund-
aði bólstrun til 2007, ýmist sem að-
alstarf eða aukastarf. Hann er nú
búsettur í Sandgerði.
Jónas hefur sungið í kórum á
Ólafsfirði og í Keflavík.
Fjölskylda
Jónas kvæntist 26.10. 1962 Jónas-
ínu Þórðardóttur, f. 7.8. 1942, starfs-
manni Reykjanesbæjar. Hún er
dóttir Þórðar Friðbjarnarsonar, f.
7.10. 1898, d. 11.4. 1966, iðnaðar-
manns í Bröttuhlíð við Húsavík, og
k.h., Dalrósar Huldu Jónasdóttur, f.
28.9. 1910, d. 19.2. 2001, húsmóður.
Börn Jónasar og Jónasínu eru
Dagný, f. 14.8. 1962, matarfræð-
ingur í Sandgerði, í sambúð með
Birni Halldórssyni járnsmið og eru
börn hennar Lísa María Hjartar-
dóttir sem á soninn Sindra Snæ,
Kristján Aron Hjartarson, Frið-
rika Ína Hjartardóttir og Hrefna Líf
Björnsdóttir; Dalrós, f. 25.7. 1964,
húsmóðir í Kópavogi, og eru börn
hennar Smári Páll Wiium, Þorgeir
Finnbogason og Þóranna Finn-
bogadóttir; Guðlaugur Bjarni, f.
29.11. 1966, rafmagnstæknifræð-
ingur í Kaupmannahöfn, í sambúð
með Alice Jörgensen hjúkrunar-
fræðingi og eru synir þeirra Jóhann
og Andreas; Jónas Bragi, f. 28.1.
1969, matreiðslumeistari í Reykja-
vík, í sambúð með Dagnýju Krist-
jánsdóttur ritara og er dóttir þeirra
Salka Björk; Sigríður Agnes, f. 22.2.
1977, starfsmaður hjá Pratical, bú-
sett í Hveragerði, en maður hennar
er Guðjón Ingason slökkviliðsmað-
ur og eru börn þeirra Arnór Ingi og
Anna Rakel.
Systkini Jónasar eru Bragi Mun-
an, f. 27.9. 1940, búsettur í Kumb-
aravogi; Hilmar Ágústsson, f. 21.7.
1942, sjómaður í Hafnarfirði; Leó
Ágústsson, f. 6.9. 1945, trésmiður í
Reykjavík; Ágúst Örvar Ágústsson,
f. 30.8. 1950, bólstrari í Kópavogi.
Foreldrar Jónasar: Guðlaugur
Bjarnason, f. 15.10. 1910, d. 22.2.
1963, bólstrari í Reykjavík, og Sig-
ríður Jónasdóttir, f. 18.9. 1916, d.
14.11. 2001, húsmóðir.
Jónas Páll Guðlaugsson
bólstrari í sandgerði
„Ég er búinn að skipuleggja dag-
inn,“ segir Jón Valgeir Gíslason sem
fagnar þeim stóráfanga að verða
fimmtugur í dag og leggst það afar
vel í hann. „Hugsaðu þér ef ég væri
að verða sextugur,“segir hann og er
ánægður með að eiga langt í það.
„Alveg heil tíu ár.“
Jón, sem er mikill athafnamað-
ur, hefur nóg að gera. Hann er
rekstrarhagfræðingur að mennt og
starfar sem rekstrarráðgjafi, kennir
á nokkrum stöðum og rekur fyrir-
tæki. Hann lætur það ekki aftra sér
frá því að eiga góðan afmælisdag
þó að hann þurfi að vinna en hann
er búinn að skipuleggja daginn vel.
„Ég ætla fara vel með mig. Ætla að
byrja hann á því að fara í sund og fá
mér gott kaffi. Svo ætla ég að taka á
móti vinum og kunningjum heima
hjá mér um kvöldið.“
Veisluhöldunum er þó ekki lokið
þar með því í byrjun sumars verður
heljarinnar afmælisveisla heima í
garðinum hjá Jóni. „Ég er með stór-
an garð og verður maður að leyfa
fólki að njóta þess með sér.“ Jón
ætlar að hafa veisluna veglega og
er hann búinn að ráða til sín fólk
og þar á meðal grillara sem ætlar
að sjá um veitingarnar. Aðspurð-
ur um tónlistaratriði vill hann lítið
gefa upp. „Það verður óvænt, “ seg-
ir hann svo gestirnir geta farið að
hlakkað til.
Jón er, að eigin sögn og ann-
arra, í besta formi líf síns á þessum
tímamótum og ber þess greinilega
merki. Við að eignast draumagjöf-
ina kveðst hann hafa yngst um
mörg herrans ár en hann fjárfesti
sjálfur í kontrabassa fyrir stuttu
sem hann hafði lengi langað í. „Ég
var ekki viss um að fólkið í kringum
mig hefði hugmyndaflugið og mað-
ur getur ekki tekið svoleiðis áhættur
þegar maður er orðinn svona gam-
all og þegar mann langar svo mikið
í eitthvað,“ segir Jón sem er byrjað-
ur að æfa sig að klappa honum og
faðma hann.
„Yfirleitt geri ég ekki mikið með
afmæli, þetta er kannski í fyrsta
skipti sem ákveðið er að halda al-
mennilega upp á svona tímamót.
Það hefur voðalega lítið annað ver-
ið gert en að fara út að borða og
hafa það gott með fjölskyldunni,“
segir hann að lokum og það er ljóst
að Jón hlakkar mikið til grillveisl-
unnar góðu.
70 ára í dag
Jón Valgeir Gíslason er fimmtugur í dag:
í besta Formi líFs míns
30 ára
n Mihaela Chelaru Vesturbrún 9, Flúðir
n Juozas Dapkus Urðarholti 4, Mosfellsbær
n Gunnar Þór Jónsson Eskihlíð 8a, Reykjavík
n Finnbogi Ásgeir Finnbogason Drekavöllum 26,
Hafnarfjörður
n Eva Lind Jónsdóttir Hlíðarási 11, Hafnarfjörður
n Kristín Ösp Þorleifsdóttir Álfkonuhvarfi 37,
Kópavogur
n Bryndís Eir Þorsteinsdóttir Heiðarbrún 14,
Hveragerði
n Jóhanna Jóhannesdóttir Grenimel 15, Reykjavík
40 ára
n Katarzyna Barbara Bak Sambyggð 8, Þorlákshöfn
n Robert Wieslaw Czech Tröllateigi 10, Mosfellsbær
n Erla María Marteinsdóttir Sléttahrauni 27,
Hafnarfjörður
n Hörður Ársæll Ólafsson Áshamri 47, Vestman-
naeyjar
n Soffía Katrín Sigurðardóttir Engimýri 10,
Akureyri
n Páll Sigurðsson Erluási 23, Hafnarfjörður
n Inga Hrönn Georgsdóttir Ásbraut 5, Kópavogur
n Birgir Valgarðsson Maríubaugi 59, Reykjavík
n Sigrún Sveinbjörnsdóttir Álfaskeiði 82,
Hafnarfjörður
n Ágúst Hilmisson Skaftahlíð 10, Reykjavík
n Steinar Örn Ingimundarson Laufengi 27,
Reykjavík
50 ára
n Roman Jan Milaszewski Arnarholti, Reykjavík
n Ólafur Sævar Gunnarsson Drangshlíð 2,
Hvolsvöllur
n Margrét Þóra Benediktsdóttir Árnastíg 10,
Grindavík
n Valur Jóhann Stefnisson Lækjasmára 92,
Kópavogur
n Katrín Björk Baldvinsdóttir Heiðargerði 8,
Akranes
n Sesselja Steinólfsdóttir Smárabraut 19, Höfn
n Jónína Marta Árnadóttir Arnartanga 73,
Mosfellsbær
n Jón Valgeir Gíslason Neshömrum 18, Reykjavík
n Þórhallur Ólafsson Hjallabrekku 17, Kópavogur
60 ára
n Birna Jóhannsdóttir Völvufelli 18, Reykjavík
n Þorbjörg K Jónsdóttir Grundarsmára 10,
Kópavogur
n Magnús Pétursson Barðastöðum 23, Reykjavík
n Hrafnhildur Snorradóttir Eyjabakka 24, Reykjavík
n Jón Guðmundsson Maríubakka 8, Reykjavík
n Lilja Sigríður Guðmundsdóttir Kjartansgötu 23,
Borgarnes
n Finnbogi Steinar Sigurgeirsson Írabakka 32,
Reykjavík
n Ruth Pétursdóttir Viðarrima 15, Reykjavík
70 ára
n Hörður Hólm Garðarsson Lautasmára 2,
Kópavogur
n Birna M Eggertsdóttir Snorrabraut 58, Reykjavík
n Guðrún Lóa Kristinsdóttir Huldulandi 38,
Reykjavík
75 ára
n Guðrún V Hallgrímsdóttir Bröttuhlíð 17,
Hveragerði
n Sigrún Guðmundsdóttir Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík
n Sjöfn Helgadóttir Austurtúni 12, Hólmavík
n Auðbjörg Ingimundardóttir Suðurhlíð 38c,
Reykjavík
80 ára
n Jörundur Jónsson Skúlagötu 40a, Reykjavík
n Pálína Gísladóttir Hrannarstíg 18, Grundarfjörður
n Þorgerður E Friðriksdóttir Hjallabraut 33,
Hafnarfjörður
85 ára
n Jónas Þorsteinsson Strandgötu 37, Akureyri
90 ára
n Jóhanna Björnsdóttir Skarfshóli, Hvammstangi
n Ólafur Sigurðsson Kumbaravogi, Stokkseyri
til
hamingju
með
afmælið!
Fimmtugur og í sínu
besta formi Ætlar að fara
vel með sig á afmælisdaginn.