Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2009, Page 2
Þriðjudagur 3. febrúar 20092 Fréttir
„Við byggðum knatthúsið í Smáran-
um og rétt er að rifja upp að við átt-
um ekki lægsta tilboð en þar sem
við vorum sennilegast auðveldustu
mennirnir til að stilla upp við vegg
og stuðla þannig að því að þú fengir
sjálfur jarðvinnu verksins. En það átti
eftir að draga dilk á eftir sér eins og í
flestum tilfellum þegar Klæðning var
að störfum fyrir okkur það var ávallt
einhver auka skattur lagður á þau
verk af þínum geðþótta,“ segir Gunn-
ar Ólafsson, eigandi byggingafélags-
ins ÓGBYGG sem byggði knatthúsið
í Smáralind sem síðar hlaut nafnið
Fífan. Þetta kemur fram í bréfi sem
Gunnar Ólafsson skrifaði Gunnari
Birgissyni, bæjarstjóra í Kópavogi, í
júlí árið 2005 - rúmum mánuði eft-
ir að Gunnar Birgisson tók við sem
bæjarstjóri. Gunnar Birgisson hafði
verið bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins í Kópavogi þar á undan.
Opnað var fyrir tilboð verktafyrir-
tækja í knatthúsið í apríl árið 2001 og
hljóðaði tilboð ÓGBYGG í verkið upp
á tæpar 385 milljónir króna og voru
tvö önnur tilboð lægri. Gunnar Ólafs-
son lætur í það skína að tilboð ÓG-
BYGG hafi verið samþykkt því Gunn-
ar Birgisson ætti auðveldara með að
vefja því fyrirtæki um fingur sér en
öðrum til að hygla Klæðningu.
Gunnar Birgisson var stofnandi
og aðaleigandi verktakafyrirtækisins
Klæðningar sem vísað er til í bréf-
inu. Fyrirtækið sá um jarðvinnuna
við byggingu Fífunnar. Gunnar seldi
hlut sinn í Klæðningu árið 2002 eft-
ir að fyrir-
tækið hafði
verið endur-
fjármagnað
vegna gríðar-
legrar skuld-
setningar.
Nýir hluthafar, Járnbending og BYGG
ehf., komu þá inn í fyrirtækið með
nýtt hlutafé.
Gunnar Birgisson vændur um
fjárkúgun
Gunnar Ólafsson sakar nafna
sinn Birgisson jafnframt um fjárkúg-
un í bréfinu. „Við höfum til margra
ára þurft að hlíta þessari fjárkúgun
þinni sem þú hefur beitt okkur, og
voru ferðir þínar til okkar á útborg-
unardegi fyrirtækis Klæðningar hvað
eftir annað minnisstæðastar þar sem
þú komst og stappaðir niður fótum,
heimtaðir og hótaðir og lofaðir öllu
fögru fyrir okkar hag á kostnað Kópa-
vogsbæjar bara ef þú fengir svo og svo
mikla peninga eða víxla hvort sem þú
værir búinn að vinna fyrir þeim eða
ekki. Þetta er alveg með ólíkindum
hvernig við létum þig þvinga okkur
til þessara hluta,“ segir Gunnar í bréf-
inu.
„Bull og vitleysa“ segir Gunnar
Birgisson
Gunnar Birgisson segir að ásak-
anirnar á hendur honum sem komi
fram í bréfinu séu „bull og vitleysa út
í loftið“ og að höfundur bréfsins hafi
dregið orð sín til baka eftir að hann
hafði hótað ÓGBYGG málsókn. „Ég
gef alls ekki neitt fyrir þessar ásakan-
ir. Ég lét lögmanninn minn fá bréfið
því þarna voru alvarlegar ásakanir á
hendur mér. Ég íhugaði að fara með
málið fyrir dómstóla því ég sit ekki
undir slíku. Viðkomandi dró þetta
svo til baka því það var ekki fótur fyrir
þessu,“ segir Gunnar og bætir því við
að bréfið hafi augljóslega verið skrif-
að í mikilli bræði.
Kæran dregin til baka og
skuldin greidd
Markmið Gunnars Ólafssonar
með bréfinu var að knýja Gunnar
Birgisson til þess að greiða fyrirtæk-
inu rúmar sjö milljónir króna fyrir
aukaverk við Fífuna sem Kópavogs-
bær var ekki búinn að borga ÓG-
BYGG fyrir. Jafnframt vildi ÓGBYGG
að Gunnar drægi til baka kæru gegn
fyrirtækinu sem hann hafði lagt fram
vegna þess að Gunnar vændi ÓG-
BYGG um að hafa stolið byggingar-
efni af Kópavogsbæ. Í lok bréfsins
segir Gunnar Ólafsson að ef Gunn-
ar gangi ekki að kröfum fyrirtækisins
muni forsvarsmenn ÓGBYGG fara
í „frekari aðgerðir“ til að
verja fyrirtækið.
Þessar aðgerðir,
sem Gunnar Ól-
afsson hótaði
nafna sín-
um Birg-
issyni
með,
gengu
út á
að
Verktaki staðfestir að hafa skrifað Gunnar Birgissyni, bæjarstjóra í Kópavogi, harð-
ort bréf árið 2005 þar sem bæjarstjórinn er vændur um fjárkúgun. Í bréfinu er Gunn-
ar sagður hafa misnotað aðstöðu sína sem bæjarfulltrúi í Kópavogi til að hygla fyrir-
tæki sínu Klæðningu við byggingu Fífunnar. Gunnar Birgisson segir ásakanirnar
í bréfinu vera „bull og vitleysu“. Verktakinn segist aldrei hafa fengið
tæplega 6 milljóna króna greiðslu frá Kópavogsbæ sem
hann veit ekki hvert fór.
GUNNAR BÆJARSTJÓRI
VÆNDUR UM FJÁRKÚGUN
ÓGBYGG FéKK eKKI GReIðSlUNA
FYRIR KlÆðNINGU
Í bréfinu gerir gunnar Ólafsson því
skóna að gunnar birgisson hafi
stuðlað að því að Klæðning fengi
greiddar tæpar sex milljónir króna
beint frá Kópavogsbæ sem ÓgbYgg
hefði átt að greiða Klæðningu
sem undirverktaka að byggingu
knatthússins. „rétt er að rifja upp
hvernig þú komst með tillögu að
við fengjum bættan gengismun
vegna innkaupa á stálburðarvirki í
knatthúsið í Smáranum og ritaðir
meira að segja sjálfur upp uppkast
fyrir okkur að bréfi til Stefáns
L. Stefánssonar (deildarstjóra
framkvæmdadeildar hjá Kópavogs-
bæ) og upphæðin var 5,9 millj að
viðbættum virðisaukaskatti. en
þessa greiðslu ætlaðir þú að sjá um
að Stefán L. mundi greiða okkur
til að þú fengir greitt fyrir fyrirtæki
þitt sem var jarðvinnuverktaki í
knatthúsinu fyrir vinnu sem átti að
vera innifalin í tilboði sem þú hafðir
gert okkur... en aldrei kom þessi
greiðsla til okkar,“ segir gunnar
Ólafsson í bréfinu.
InGI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
harðort bréf til
Gunnars Birgissonar
dV hefur undir
höndum harðort
bréf til núverandi
bæjarstjóra í Kópavogi
þar sem meðal annars
kemur fram að tilboði
tiltekins verktaka í
fífuna hafi verið tekið
svo auðveldara væri
fyrir gunnar birgisson
að vefja verktakanum
um fingur sér en ella.