Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2009, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2009, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 3. febrúar 2009 13Fréttir Vetur konungur sýnir styrk sinn Suðausturhluti Englands er búinn að vera í greipum Veturs konungs og útlit er fyrir að svo verði enn um sinn. Yfir tvö þúsund og átta hundruð skólum var lokað, átta hundruð flug féllu niður, réttarsalir í Old Bailey-dómhúsinu voru lok- aðir, aðgerðum sjúkrahúsa frestað og milljónir manna upplifðu mar- tröð við að koma sér til vinnu. Veðrið hefur nú þegar tekið sinn toll því lík tveggja fjallgöngu- manna, bræðra, fundust í gær- morgun, og talið að þeir hafi fallið um 300 metra þar sem þeir voru við fjallgöngu í Norður-Wales. Versta veðrið var í Lundúnum og Tempsárdal. Skúlptúr til heiðurs fréttamanni sem kastaði skó í Bush illa séður: Skórinn fjarlægður Skúlptúr, sem settur var upp í Tíkrit í Írak til heiðurs fréttamanninum sem henti skóm sínum í George W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur verið tekinn niður. Ákvörðun um það ku hafa verið tekin af yfirvöldum í Tíkrit, en verkið hafði verið til sýnis í nokkra daga í borginni sem er heima- borg Saddams Hussein, fyrrverandi einræðisherra Íraks. Fréttamaðurinn Muntadar al-Zai- di varð heimsfrægur á örskotsstundu eftir að hann kastaði skóm sínum að Bush þegar Bush sótti Írak heim í síð- asta mánuði, í síðasta skipti sem forseti Bandaríkjanna. Zaidi vandaði Bush ekki kveðjurn- ar sem fundu samhljóm í arabaheim- inum og urðu uppspretta mikilla und- irtekta í Mið-Austurlöndum og víðar. „Þetta er fyrir ekkjurnar, munaðar- leysingja og þá sem hafa verið drepn- ir í Írak,“ sagði Zaidi þegar hann fleygði skónum í Bush. „Þetta er kveðjukoss, hundurinn þinn.“ Muntadar al-Zaidi var handtekinn samstundis og hefur verið ákærður fyr- ir athæfið, enda ekki vel séð að sýna er- lendum þjóðhöfðingjum viðlíka óvirð- ingu. Fréttir þess efnis að hann hafi sætt slæmri meðferð í fangelsi hafa heyrst og sagt að hann sæti barsmíð- um, hafi verið handleggsbrotinn, hafi rifbeinsbrotnað og sé með innvortis blæðingar. Zaidi á yfir höfði sér fimmtán ára fangelsisvist ef hann verður dæmd- ur sekur, en fjölskylda hans þvertekur fyrir að hann hafi gert nokkuð rangt og nokkuð víst að fjöldi manns er á sama máli. kolbeinn@dv.is Farandverkamenn á faraldsfæti Að sögn Chen Xiwen, kínversks embættismanns, hafa um það bil tuttugu milljónir farandverka- manna snúið aftur til kínverskra sveita eftir að hafa árangurslaust reynt að finna atvinnu í borgum landsins. Þessi mikli fjöldi, sem er meiri en nemur öllum íbúum Ástralíu svo dæmi sé tekið, er helmingi meiri en opinberar spár höfðu sagt fyrir um og munu auka á áhyggjur kín- verskra stjórnvalda vegna stöðug- leika. Stjórnvöld í Kína vöruðu við því að árið 2009 yrði „mögulega erfiðasta árið“ með tilliti til efnahagsþróunar í landinu síðan ný öld gekk í garð. Mál Richards Williamson biskups, sem Benedikt XVI páfi veitti nýlega upp- reisn æru, hefur vakið mikla athygli. Williamson var á sínum tíma útskúfað úr kirkjulegu samfélagi vegna afar um- deildra skoðana sinna á helför gyðinga á tímum síðari heimsstyrjaldarinn- ar. Williamson hefur ekki farið í laun- kofa með það mat sitt að frásagnir af helförinni séu stórlega ýktar og full- yrðir að gasklefar hafi verið notaðir, en eingöngu til sótthreinsunar. Einnig báru nasistar ábyrgð á dauða „aðeins“ 300.000 gyðinga, að mati Williamson. Ekki eru glæður þessa máls kulnað- ar þegar Benedikt páfi bætir um bet- ur með skipan afar íhaldsams prests í embætti biskups í Austurríki. Harry Potter og hóruhús Austurríski presturinn sem um ræðir er Gerhard Maria Wagner sem hefur verið sóknarprestur í Windischgarsten í Austurríki síðan 1988, en hann lýsti hvirfilbylnum Katrinu, sem gekk yfir New Orleans 2005, sem refsingu Guðs vegna syndsamlegs lífernis og óhófs í kynferðismálum í borginni. Gerhard Maria Wagner sagði í fréttabréfi í sókn sinni að dauðinn og eyðileggingin sem Katrina olli fyrir fjórum árum hafi verið „réttlát refsing Guðs“ fyrir óhóflega undanlátssemi í kynferðismálum, þar með talið um- burðarlyndi gagnvart samkynhneigð, í New Orleans. Wagner benti sérstaklega á að ekki aðeins hefðu næturklúbbar og hóru- hús orðið eyðileggingunni að bráð heldur einnig fimm þeirra fóstureyð- ingastofa sem var að finna í borginni og lýsti yfir gleði sinni vegna þess. „Sið- leysið í þessari borg er ólýsanlegt,“ sagði Wagner. En það er fleira sem fer fyrir brjóst- ið á Wagner, sem páfi skipaði í embætti aðstoðarbiskups í Linz í Austurríki, því Harry Potter er honum mikill þyrnir í augum og hefur hann sakað bækur og kvikmyndir um þessa vinsælu söguper- sónu um að „breiða út djöfladýrkun“. „Andleg umhverfismengun“ Gerhard Maria Wagner er umdeildur í augum bæði lærðra og leikra í Linz og sagði það vera íhugunarefni hvort ekki ætti að líta á náttúrulegar hamfar- ir sem afleiðingar „andlegrar umhverf- ismengunar“, og skírskotaði til ham- faranna í New Orleans sem „guðlegrar refsingar“. „Það er sannarlega engin tilvilj- un að fimm af fóstureyðingastofum New Orleans eyðilögðust, auk næt- urklúbba,“ sagði Wagner í grein sinni. „Það er ekki bara einhver gömul borg sem hefur fallið, heldur draumaborg fólks með „bestu hóruhúsunum og fal- legustu hórunum“,“ sagði Wagner enn- fremur. Hamfarir af náttúrulegum toga eru Wagner greinilega hugleiknar. Einar verstu hamfarir síðari ára áttu sér stað undir lok desembermánaðar 2004, þegar gríðarmikil flóðbylgja skall á Taílandi og nálægum löndum. Wagner sagði það enga tilviljun að hamfarirnar riðu yfir í desember. Í því tilfelli var að hans mati um að ræða refsingu gegn „auðugum vestrænum ferðamönnum“ sem hefðu „flúið til fátæka Taílands“. Að kaþólsku háhirðinni forspurðri Eitt er það sem farið hefur fyrir brjóst- ið á þeim sem gagnrýna forfrömun Wagners, en það er að páfi gekk að mati hinnar kaþólsku háhirðar í Austurríki freklega framhjá henni. Einn þeirra er Franz Wild, sóknarprestur í Traun. „Ég er sleginn vegna þessarar ákvörðunar. Það er undarlegt að sá sem er þekktur fyrir jafnöfgafull sjónarmið í svo mörg- um málum sé skipaður í stöðu sem ætlað er að sameina fólk,“ sagði séra Wild. „Þróun þessa máls er svo sann- arlega hrikaleg,“ bætti hann við. Kaþólska kirkjan hefur átt á bratt- ann að sækja undanfarin ár eftir að yf- irmaður kirkjunnar var rekinn í kjölfar hneykslismáls sem varðaði samkyn- hneigða presta sem störfuðu við kennslu. Útskúfun aflétt Sem fyrr segir hefur gustað um Bene- dikt XVI páfa undanfarið enda sýn- ist sitt hverjum með þann gjörning að veita uppreisn æru Richard Williams- on biskupi og þremur starfsbræðrum hans í félagi sem kennt er við Pius X, hvað þá að taka í sátt um fimm hundr- uð presta sem tilheyra sama félags- skap. Samfélag Piusar X var stofnað af frönskum erkibiskupi, Marcel Lef- ebvre, árið 1970. Helsti ásteytingarsteinninn er áframhaldandi tregða lefebvrista til að samþykkja ályktun um endurbæt- ur sem var samþykkt á annarri ráð- stefnu Páfagarðs upp úr 1962, þar á meðal „Nostra Aetate“-yfirlýsingunni um tengsl kristinnar trúar við önnur trúarbrögð þar sem lögð var áhersla á böndin á milli kristinnar trúar og gyð- ingdóms, gyðingar voru hreinsaðir af sök á dauða Jesú og gyðingahatur var fordæmt í hvaða mynd sem það birt- ist. Vilja snúa Páfagarði Það verður að teljast hæpið að Páfa- garði takist með viðleitni sinni að snúa fylgismönnum Lefevbre. Fyrrnefndur Richard Williamson virðist eiga skoð- anabræður innan reglunnar og má þar nefna Floriano Abrahamowicz, yfir- mann samfélags Píusar X í Treviso á Ítalíu. Þvert á viðleitni samfélagsins til að draga úr þeim skaða sem samband kristinna og gyðinga hlaut af ummæl- um Williamsons kvaddi Abraham- owicz sé hljóðs í dagblaði í Treviso. Ummæli hans í dagblaðinu gefa tilefni til vangaveltna um sannfæringu hans hvað snertir helförina gegn gyðing- um. „Ég veit um tilvist gasklefa til sótt- hreinsunar. En ég get ekki fullyrt hvort einhver hafi verið drepinn í þeim, því ég hef ekki kannað málið,“ sagði Abra- hamowicz. Abrahamowicz telur að ummæli Williamsons, sem sagði að „aðeins“ 200.000 til 300.000 gyðingar hafi dáið í einangrunarbúðum nas- ista og „enginn þeirra í gasklefum“ séu skrumskæld og séu notuð til að koma höggi á Páfagarð. Einn þeirra lefebvrista sem fengu uppreisn æru á dögunum er Bern- ard Tissier de Mallerais biskup. Hann sagði að þeir myndu ekki skipta um skoðun hvað varðaði ályktun annarr- ar ráðstefnu Páfagarðs og vonaðist öllu heldur til þess að þeim tækist að snúa Páfagarði á sveif með skoðunum þeirra. Benedikt XVI páfi Ósátt er um nýlegar ákvarðanir páfa. Gustar um páFaGarð Richard Williamson Var veitt uppreisn æru þrátt fyrir um- deildar skoðanir á helförinni. Gerhard Maria Wagner biskup ( t.h.) Telur náttúruhamfarir refsingu af hálfu guðs gagnvart syndaselum. Bronsskórinn á stalli sínum Var illa séður í Tíkrit og fjarlægður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.