Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2009, Síða 13
Þriðjudagur 3. febrúar 2009 13Fréttir
Vetur konungur sýnir styrk sinn
Suðausturhluti Englands er búinn
að vera í greipum Veturs konungs
og útlit er fyrir að svo verði enn
um sinn. Yfir tvö þúsund og átta
hundruð skólum var lokað, átta
hundruð flug féllu niður, réttarsalir
í Old Bailey-dómhúsinu voru lok-
aðir, aðgerðum sjúkrahúsa frestað
og milljónir manna upplifðu mar-
tröð við að koma sér til vinnu.
Veðrið hefur nú þegar tekið sinn
toll því lík tveggja fjallgöngu-
manna, bræðra, fundust í gær-
morgun, og talið að þeir hafi fallið
um 300 metra þar sem þeir voru
við fjallgöngu í Norður-Wales.
Versta veðrið var í Lundúnum og
Tempsárdal.
Skúlptúr til heiðurs fréttamanni sem kastaði skó í Bush illa séður:
Skórinn fjarlægður
Skúlptúr, sem settur var upp í Tíkrit í
Írak til heiðurs fréttamanninum sem
henti skóm sínum í George W. Bush,
fyrrverandi forseta Bandaríkjanna,
hefur verið tekinn niður. Ákvörðun um
það ku hafa verið tekin af yfirvöldum
í Tíkrit, en verkið hafði verið til sýnis í
nokkra daga í borginni sem er heima-
borg Saddams Hussein, fyrrverandi
einræðisherra Íraks.
Fréttamaðurinn Muntadar al-Zai-
di varð heimsfrægur á örskotsstundu
eftir að hann kastaði skóm sínum að
Bush þegar Bush sótti Írak heim í síð-
asta mánuði, í síðasta skipti sem forseti
Bandaríkjanna.
Zaidi vandaði Bush ekki kveðjurn-
ar sem fundu samhljóm í arabaheim-
inum og urðu uppspretta mikilla und-
irtekta í Mið-Austurlöndum og víðar.
„Þetta er fyrir ekkjurnar, munaðar-
leysingja og þá sem hafa verið drepn-
ir í Írak,“ sagði Zaidi þegar hann fleygði
skónum í Bush. „Þetta er kveðjukoss,
hundurinn þinn.“
Muntadar al-Zaidi var handtekinn
samstundis og hefur verið ákærður fyr-
ir athæfið, enda ekki vel séð að sýna er-
lendum þjóðhöfðingjum viðlíka óvirð-
ingu. Fréttir þess efnis að hann hafi
sætt slæmri meðferð í fangelsi hafa
heyrst og sagt að hann sæti barsmíð-
um, hafi verið handleggsbrotinn, hafi
rifbeinsbrotnað og sé með innvortis
blæðingar.
Zaidi á yfir höfði sér fimmtán ára
fangelsisvist ef hann verður dæmd-
ur sekur, en fjölskylda hans þvertekur
fyrir að hann hafi gert nokkuð rangt og
nokkuð víst að fjöldi manns er á sama
máli.
kolbeinn@dv.is
Farandverkamenn á faraldsfæti
Að sögn Chen Xiwen, kínversks
embættismanns, hafa um það bil
tuttugu milljónir farandverka-
manna snúið aftur til kínverskra
sveita eftir að hafa árangurslaust
reynt að finna atvinnu í borgum
landsins.
Þessi mikli fjöldi, sem er meiri en
nemur öllum íbúum Ástralíu svo
dæmi sé tekið, er helmingi meiri
en opinberar spár höfðu sagt fyrir
um og munu auka á áhyggjur kín-
verskra stjórnvalda vegna stöðug-
leika.
Stjórnvöld í Kína vöruðu við því að
árið 2009 yrði „mögulega erfiðasta
árið“ með tilliti til efnahagsþróunar
í landinu síðan ný öld gekk í garð.
Mál Richards Williamson biskups, sem
Benedikt XVI páfi veitti nýlega upp-
reisn æru, hefur vakið mikla athygli.
Williamson var á sínum tíma útskúfað
úr kirkjulegu samfélagi vegna afar um-
deildra skoðana sinna á helför gyðinga
á tímum síðari heimsstyrjaldarinn-
ar. Williamson hefur ekki farið í laun-
kofa með það mat sitt að frásagnir af
helförinni séu stórlega ýktar og full-
yrðir að gasklefar hafi verið notaðir,
en eingöngu til sótthreinsunar. Einnig
báru nasistar ábyrgð á dauða „aðeins“
300.000 gyðinga, að mati Williamson.
Ekki eru glæður þessa máls kulnað-
ar þegar Benedikt páfi bætir um bet-
ur með skipan afar íhaldsams prests í
embætti biskups í Austurríki.
Harry Potter og hóruhús
Austurríski presturinn sem um ræðir
er Gerhard Maria Wagner sem hefur
verið sóknarprestur í Windischgarsten
í Austurríki síðan 1988, en hann lýsti
hvirfilbylnum Katrinu, sem gekk yfir
New Orleans 2005, sem refsingu Guðs
vegna syndsamlegs lífernis og óhófs í
kynferðismálum í borginni.
Gerhard Maria Wagner sagði í
fréttabréfi í sókn sinni að dauðinn og
eyðileggingin sem Katrina olli fyrir
fjórum árum hafi verið „réttlát refsing
Guðs“ fyrir óhóflega undanlátssemi í
kynferðismálum, þar með talið um-
burðarlyndi gagnvart samkynhneigð, í
New Orleans.
Wagner benti sérstaklega á að ekki
aðeins hefðu næturklúbbar og hóru-
hús orðið eyðileggingunni að bráð
heldur einnig fimm þeirra fóstureyð-
ingastofa sem var að finna í borginni
og lýsti yfir gleði sinni vegna þess. „Sið-
leysið í þessari borg er ólýsanlegt,“
sagði Wagner.
En það er fleira sem fer fyrir brjóst-
ið á Wagner, sem páfi skipaði í embætti
aðstoðarbiskups í Linz í Austurríki, því
Harry Potter er honum mikill þyrnir í
augum og hefur hann sakað bækur og
kvikmyndir um þessa vinsælu söguper-
sónu um að „breiða út djöfladýrkun“.
„Andleg umhverfismengun“
Gerhard Maria Wagner er umdeildur
í augum bæði lærðra og leikra í Linz
og sagði það vera íhugunarefni hvort
ekki ætti að líta á náttúrulegar hamfar-
ir sem afleiðingar „andlegrar umhverf-
ismengunar“, og skírskotaði til ham-
faranna í New Orleans sem „guðlegrar
refsingar“.
„Það er sannarlega engin tilvilj-
un að fimm af fóstureyðingastofum
New Orleans eyðilögðust, auk næt-
urklúbba,“ sagði Wagner í grein sinni.
„Það er ekki bara einhver gömul borg
sem hefur fallið, heldur draumaborg
fólks með „bestu hóruhúsunum og fal-
legustu hórunum“,“ sagði Wagner enn-
fremur.
Hamfarir af náttúrulegum toga eru
Wagner greinilega hugleiknar. Einar
verstu hamfarir síðari ára áttu sér stað
undir lok desembermánaðar 2004,
þegar gríðarmikil flóðbylgja skall á
Taílandi og nálægum löndum. Wagner
sagði það enga tilviljun að hamfarirnar
riðu yfir í desember. Í því tilfelli var að
hans mati um að ræða refsingu gegn
„auðugum vestrænum ferðamönnum“
sem hefðu „flúið til fátæka Taílands“.
Að kaþólsku
háhirðinni forspurðri
Eitt er það sem farið hefur fyrir brjóst-
ið á þeim sem gagnrýna forfrömun
Wagners, en það er að páfi gekk að mati
hinnar kaþólsku háhirðar í Austurríki
freklega framhjá henni. Einn þeirra er
Franz Wild, sóknarprestur í Traun. „Ég
er sleginn vegna þessarar ákvörðunar.
Það er undarlegt að sá sem er þekktur
fyrir jafnöfgafull sjónarmið í svo mörg-
um málum sé skipaður í stöðu sem
ætlað er að sameina fólk,“ sagði séra
Wild. „Þróun þessa máls er svo sann-
arlega hrikaleg,“ bætti hann við.
Kaþólska kirkjan hefur átt á bratt-
ann að sækja undanfarin ár eftir að yf-
irmaður kirkjunnar var rekinn í kjölfar
hneykslismáls sem varðaði samkyn-
hneigða presta sem störfuðu við
kennslu.
Útskúfun aflétt
Sem fyrr segir hefur gustað um Bene-
dikt XVI páfa undanfarið enda sýn-
ist sitt hverjum með þann gjörning að
veita uppreisn æru Richard Williams-
on biskupi og þremur starfsbræðrum
hans í félagi sem kennt er við Pius X,
hvað þá að taka í sátt um fimm hundr-
uð presta sem tilheyra sama félags-
skap. Samfélag Piusar X var stofnað
af frönskum erkibiskupi, Marcel Lef-
ebvre, árið 1970.
Helsti ásteytingarsteinninn er
áframhaldandi tregða lefebvrista til
að samþykkja ályktun um endurbæt-
ur sem var samþykkt á annarri ráð-
stefnu Páfagarðs upp úr 1962, þar á
meðal „Nostra Aetate“-yfirlýsingunni
um tengsl kristinnar trúar við önnur
trúarbrögð þar sem lögð var áhersla á
böndin á milli kristinnar trúar og gyð-
ingdóms, gyðingar voru hreinsaðir af
sök á dauða Jesú og gyðingahatur var
fordæmt í hvaða mynd sem það birt-
ist.
Vilja snúa Páfagarði
Það verður að teljast hæpið að Páfa-
garði takist með viðleitni sinni að snúa
fylgismönnum Lefevbre. Fyrrnefndur
Richard Williamson virðist eiga skoð-
anabræður innan reglunnar og má þar
nefna Floriano Abrahamowicz, yfir-
mann samfélags Píusar X í Treviso á
Ítalíu.
Þvert á viðleitni samfélagsins til að
draga úr þeim skaða sem samband
kristinna og gyðinga hlaut af ummæl-
um Williamsons kvaddi Abraham-
owicz sé hljóðs í dagblaði í Treviso.
Ummæli hans í dagblaðinu gefa tilefni
til vangaveltna um sannfæringu hans
hvað snertir helförina gegn gyðing-
um. „Ég veit um tilvist gasklefa til sótt-
hreinsunar. En ég get ekki fullyrt hvort
einhver hafi verið drepinn í þeim, því
ég hef ekki kannað málið,“ sagði Abra-
hamowicz. Abrahamowicz telur að
ummæli Williamsons, sem sagði að
„aðeins“ 200.000 til 300.000 gyðingar
hafi dáið í einangrunarbúðum nas-
ista og „enginn þeirra í gasklefum“ séu
skrumskæld og séu notuð til að koma
höggi á Páfagarð.
Einn þeirra lefebvrista sem fengu
uppreisn æru á dögunum er Bern-
ard Tissier de Mallerais biskup. Hann
sagði að þeir myndu ekki skipta um
skoðun hvað varðaði ályktun annarr-
ar ráðstefnu Páfagarðs og vonaðist
öllu heldur til þess að þeim tækist að
snúa Páfagarði á sveif með skoðunum
þeirra.
Benedikt XVI páfi Ósátt er
um nýlegar ákvarðanir páfa.
Gustar um páFaGarð
Richard Williamson Var veitt
uppreisn æru þrátt fyrir um-
deildar skoðanir á helförinni.
Gerhard Maria Wagner biskup ( t.h.)
Telur náttúruhamfarir refsingu af hálfu
guðs gagnvart syndaselum.
Bronsskórinn á stalli sínum
Var illa séður í Tíkrit og fjarlægður.