Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2009, Blaðsíða 6
Þriðjudagur 3. febrúar 20096 Fréttir
Kröfuhafar í gamla útgáfufélagi Viðskiptablaðsins munu funda í vikunni:
Skoða hvort samningar standist
Kröfuhafar í útgáfufélaginu 2012 ehf.,
sem áður hét Framtíðarsýn og gaf út
Viðskiptablaðið, munu koma saman
til fundar í lok þessarar viku. Friðjón
Örn Friðjónsson, sem skipaður hefur
verið skiptastjóri þrotabúsins, stað-
festir í samtali við DV að verið sé að
skoða hvort rammasamningar sem
gerðir voru um yfirtöku á rekstri blaðs-
ins standist lög. Hann segir málið á
mjög viðkvæmu stigi og frábiður sér að
tjá sig meira um málið. Það muni hins
vegar skýrast í lok þessarar viku.
Möguleiki er á að kaupum Gísla
Freys Valdórssonar, blaðamanns á
Viðskiptablaðinu, á útgáfufélaginu
verði rift. Eins og DV greindi frá í síð-
ustu viku keypti hann Framtíðarsýn á
eina krónu, nokkrum dögum eftir að
það fór í greiðslustöðvun. 27. nóvem-
ber, eða viku eftir að hann hafði eign-
ast félagið, seldi hann rekstur Við-
skiptablaðsins út úr félaginu, gegn
yfirtöku á hluta af skuldum félagsins.
Kaupandinn var félag sem Haraldur
Johannessen, ritstjóri blaðsins, stofn-
aði utan um reksturinn og heitir nú
Myllusetur ehf.
Nafni Framtíðarsýnar, sem þeg-
ar var komið í greiðslustöðvun og átti
nær ekkert nema skuldir, var breytt í
2012 ehf. í kjölfarið. Eftir að viðskipt-
in höfðu gengið í gegn fór stjórnar-
formaður félagsins, Gísli Freyr Val-
dórsson, fram á að 2012 yrði tekið til
gjaldþrotaskipta. Samkvæmt heimild-
um DV eru á annað hundrað milljón-
ir króna eftir í gamla félaginu. Stærstu
kröfuhafar í 2012 eru OB fjárfesting og
Frásögn ehf. en auk þess eru skamm-
tímaskuldir við viðskiptamenn upp á
40 milljónir króna. valgeir@dv.is
Viðskiptablaðið blaðamað-
ur keypti gamla útgáfufélagið
á eina krónu og seldi það til
nýrra eigenda viku síðar.
Síginn grásleppa og
saltfiskur alla daga
Grandagarði 9 • 101 Reykjavík
Sími 517 3131 • sjavarbarinn.is
sjavarbarinn@gmail.com
50% afsláttur á kvöldinn
af sjávarréttahlaðborðinu
Kr. 1.300 (áður kr. 2.600)
Kennslustofurn-
ar voru frosnar
Það hefur væntanlega ekki
farið framhjá fólki að ansi kalt
var í gærmorgun. Það fengu
nemendur og starfsfólk Sæ-
mundarskóla í Grafarholti að
reyna sömuleiðis en krakkarnir
í skólanum voru sendir heim
í gærmorgun sökum kuldans.
Ástæðan er sú að enginn hiti
var á húsnæði skólans yfir
helgina og komu starfsfólk og
nemendur því að ísköldum
kennslustofum í morgun þar
sem hitastigið var undir frost-
marki.
Að sögn Þóru Stephensen,
aðstoðarskólastjóra Sæmund-
arskóla, var það bilun í hitakerfi
skólans sem orsakaði kulda-
kastið.
Bankaþjófar
handteknir
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hefur handtekið fjölda
manns í tengslum við hrað-
bankaþjófnaðinn í Hveragerði
aðfaranótt sunnudags. Þá var
mörg hundruð kílóa hraðbanka
stolið í heilu lagi úr verslunar-
miðstöðinni Sunnumörk þar í
bæ. Lögreglan er að sögn búin
að endurheimta hraðbankann
sjálfan en mennirnir fengu að
gista í fangageymslum lögregl-
unnar í Reykjavík.
Steig í sjóð-
heitan hver
Maður hlaut annars stigs
brunasár á fæti þegar hann
var á göngu á nýja hvera-
svæðinu í Grændal norð-
an við Hveragerði á dögun-
um. Maðurinn brenndist er
jarðvegur gaf sig undan fæti
hans svo hann sökk til hnés í
sjóðheitan hver sem leyndist
undir torfunni.
Er það talið manninum
til happs að hann var í stíg-
vélum en hann var einn á
ferð. 45 mínútna ganga var
til byggða og náði maðurinn
að kæla brunasárið af og til
með snjó. Hann var fluttur á
heilsugæslustöðina á Selfossi
til frekari aðhlynningar.
Í tilkynningu frá lögregl-
unni á Selfossi segir að af
þessu megi sjá að eftir stóra
jarðskjálftann í maí 2008 sé
svæðið varhugavert og full
ástæða sé til að fara þar um
með gát.
Augljóst er af verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar að ekki hefur tekist að ná samkomulagi
um mikilvæg skref um Evrópumálin. Forseti ASÍ gagnrýnir að enn skuli ákvörðun-
um slegið á frest og þjóðin sé föst í þeim farvegi að umræða um aðild að ESB sé alltaf
að hefjast. Með aðgerðaleysi þrengi núverandi ríkisstjórn kosti þeirrar stjórnar sem
mynduð verði eftir kosningar.
ESB viðKvæmt mál
í nýrri ríKiSStjórn
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu-
sambands Íslands, lýsir vonbrigðum
með þann kafla í verkefnaskrá ríkis-
stjórnarinnar sem snýr að Evrópu-
samstarfi og spurningunni um nýjan
gjaldmiðil.
„Það hefði verið uppbyggilegt
sem úrræði eftir bankahrunið að
sjá ákveðnari skref stigin í verkefna-
skránni. Ég ber virðingu fyrir um-
ræðu um lýðræðið, en að setja Evr-
ópumálin á bið er afleitur kostur. Ég
hef ekki skipt um skoðun varðandi
aðild að ESB og upptöku evru hér á
landi. Með því að samþykkja opn-
unarákvæði í stjórnarskrá fyrir þing-
kosningarnar 25. apríl næstkomandi
hefði sú ríkisstjórn sem við tæki eft-
ir kosningarnar úr fleiri kostum að
velja. Það er eins og við séum alltaf
að hefja umræðuna,“ segir Gylfi.
Viðkvæmt í
stjórnarsamstarfinu
Í verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar er
Evrópunefnd falið að ljúka störfum
við úttekt á viðhorfum hagsmunaað-
ila til Evrópusamstarfsins. Nefndin
á að skila skýrslu 15. apríl næstkom-
andi þar sem lagt verður mat á horf-
ur og stöðu Íslands gagnvart samstarfi
við Evrópuþjóðir og framtíðarhorfur í
gjaldmiðlamálum. „Stjórnarflokkarn-
ir eru sammála um að aðild að Evr-
ópusambandinu verði aldrei ákveðin
nema í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir
orðrétt í verkefnaskránni.
Bjarni Benediktsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði í viðtali við
Bylgjuna í gær að það sætti furðu að
ríkisstjórnin gerði lítið með Evrópu-
málin í verkefnaskrá sinni. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar, hefði talið það úrslitaatriði
um stjórnarsamstarf við Sjálfstæðis-
flokkinn að hann samþykkti aðildar-
umsókn að ESB á landsfundinum sem
halda átti í lok janúar.
Vilhjálm Egilsson til verka
Geir H. Haarde, formaður Sjáflstæð-
isflokksins, tilkynnti á fjölmennum
flokksfundi á Grand Hóteli síðastlið-
inn föstudag að Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, hefði orðið við beiðni hans um
að stýra nefnd sem skila ætti tillögum
um uppbyggingu efnahagslífsins eftir
bankahrunið. Gert er ráð fyrir að til-
lögur á vegum Vilhjálms, sem sæti á í
miðstjórn flokksins, verði tilbúnar fyrir
landsfundinn í lok mars. Margir telja
valið á Vilhjálmi til verksins sé tákræn
vending í átt að ESB.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
telur að með því að fá Vilhjálm til þess
að leiða þetta starf sé Sjálfstæðisflokk-
urinn að átta sig á að orsakir hruns-
ins hér á landi megi að miklum hluta
rekja til efnahagsstefnunnar sem rek-
in hafi verið undanfarin áratug með
dyggri aðstoð Framsóknarflokksins.
„Það kemur ekki á óvart að Vilhjálm-
ur sé valinn til þessa verks. Hann hef-
ur farið fyrir atvinnurekendum um
mótun nýrrar sýnar á framtíðina. Það
dylst engum að samskipti atvinnurek-
enda og Sjálfstæðisflokksins hafa ver-
ið með stirðara móti. Þetta er vonandi
tilraun Sjálfstæðisflokksins til að kom-
ast út úr ógöngunum,“ segir Gylfi.
Lækka þarf vextina
Gylfi vonast til þess að þótt umboð
ríkisstjórnarinnar sé takmarkað geti
þingið komið mikilvægum málum og
aðgerðum í gegn þótt minnihluta-
stjórn sé að störfum
„Margt af því sem lagt er til gagn-
vart heimilunum er lengra komið en
áður. Þarna eru atriði sem við höf-
um lagt áherslu á eins og breytingar á
gjaldþrotalögum og greiðsluaðlögun.
En það þarf að lækka vextina í sam-
vinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Það reynir á samráð á vinnumarkaðn-
um. Með styrkingu krónunnar ætti að
létta á verðbólguþrýstingi. Myndun
nýrrar ríkisstjórnar með skýr og mikil-
væg markmið ætti einnig að draga úr
óvissu.“
Jóhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
„Með því að samþykkja opnunarákvæði í stjórn-
arskrá fyrir þingkosningarnar 25. apríl næstkom-
andi hefði sú ríkisstjórn sem við tæki eftir kosn-
ingarnar úr fleiri kostum að velja.“
Vonsvikinn gylfi arnbjörnsson segir
að ef ríkisstjórnin reyni ekki að koma
opnunarákvæði í stjórnarskrána fyrir
kosningar muni það þrengja kosti þeirrar
stjórnar sem á eftir kemur.
undrandi bjarni benediktsson,
Sjálfstæðisflokki, undrast að ríkisstjórnin
leggi lítið upp úr evrópumálum á sama
tíma og Samfylkingin gerði þau nánast
að úrslitaatriði í síðustu ríkisstjórn.
EsB-varð undir Ákvarðana-
töku um aðild að evrópu-
sambandinu var slegið á frest í
stjórnarmyndunarviðræðum.