Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2009, Síða 17
Þriðjudagur 3. febrúar 2009 17Sport
SkoSkir hjálpaSt að Nýskipaður fyrirliði ryder-liðs evrópu, Colin
Montgomerie, segist vel getað hugsað sér að fylgja fordæmi forvera síns,
Sams Torrance, sem leiddi ryder-lið evrópu til sigurs árið 2002. Torrance fór þá
á fund Sir alex ferguson, knattspyrnustjóra Manchester united, og bað hann
um ráð varðandi leiðtogahlutverkið. „Ég ber mikla virðingu fyrir starfi Torrance
í ryder-bikarnum 2002,“ segir Montgomerie sem lék í sigurliði evrópu það árið.
„Hann lærði frá öðrum Skota þar og það gæti vel verið að ég gerði það sama. af
hverju ætti maður ekki að nýta sér visku annarra? Ég vil getað gengið frá mótinu 2010
með þá fullvissu að ég hafi lagt mig allan í verkefnið,“ segir Skotinn Colin Montgomerie.
Pittsburgh Steelers varð í fyrrinótt
meistari í NFL-deildinni þegar lið-
ið lagði Arizona Cardinals, 27-23,
í hreint ótrúlegum og mögnuðum
Superbowl-leik. Með sigrinum vann
Steelers sinn sjötta Superbowl-
leik sem er met. Þegar útlit var fyr-
ir að Cardinals hefðu stolið sigrin-
um tæpum þremur mínútum fyrir
leikslok var komið að þætti Stóra-
Bens Roethlisberger, leikstjórnanda
Steelers, sem lagði upp í magnaða
lokasókn.
Cardinals var á hælunum í fyrri
hálfleik og var liðið heppið að vera
aðeins 10-7 undir þegar fyrri hálf-
leik var að ljúka. Og það sem meira
var þá fékk Cardinals upplagt tæki-
færi til að komast yfir en lét Steelers
stela af sér boltanum og hlaupa alla
leið yfir völlinn. Steelers leiddi í hléi,
17-7. Steelers var svo yfir, 21-20, en
Cardinals virtust vera að stela sigr-
inum þegar Larry Fitzgerald skoraði
64 yarda snertimark tæpum þremur
mínútum fyrir leikslok.
En Ben Roethlisberger sem átti
versta leik allra leikstjórnenda í Su-
perbowl frá upphafi síðast þegar
hann lék í honum árið 2005 lagði
með sitt lið í frábæra lokasókn.
Henni lauk með snertimarkssend-
ingu á hinn magnaða útherja Sant-
onio Holmes 35 sekúndum fyr-
ir leikslok en Holmes var kjörinn
mikilvægasti leikmaður leiksins.
Cardinals náði ekki að skora á þeim
knappa tíma sem var eftir og fagn-
aði Steelers sínum sjötta titli.
„Allt er mögulegt,“ sagði Ben
Roethlisberger eftir leikinn að-
spurður hvað þessi leikur hefði
kennt honum. Stóri-Ben átti ömur-
legan leik þegar Steelers sigraði síð-
ast í Superbowl. Hann bætti nú um
betur en þessi 26 ára gamli risi hefur
nú unnið tvo Superbowl-leiki.
tomas@dv.is
Steelers er Superbowl-meistari í sjötta skiptið:
UppreiSn ærU fyrir Stóra-Ben
aUglýSendUrnir
Styðja phelpS
Sundgarpurinn Michael Phelps sem
vann til átta gullverðlauna á síðustu
Ólympíuleikum heldur
stuðningsaðilum sínum þrátt fyrir
að mynd af honum hafi birst í
breska götublaðinu News of the
World. Þar mátti sjá þennan
magnaða íþróttamann sem hefur
unnið til samtals fjórtán
gullverðlauna á Ólympíuleikum
sjúga á glerpípu sem vanalega er
notuð til kanabis-reyking. Phelps
baðst tafarlaust afsökunar á að hafa
komið sér í þessa aðstöðu en
viðurkenndi aldrei hvað var í
pípunni. armbandsúra framleiðand-
inn Omega sem er annar stærsti
stuðningsaðili sagði myndina vera
einkamál og koma sér ekki við. að
sama skapi sagði Speedo, hans
stærsti stuðningsaðili, Phelps vera
mikilvægan Speedo-fjölskyldunni.
Þá kom tennisleikarinn rafael Nadal
honum einnig til varnar í gær og
sagði íþróttamenn ekki vera
vélmenni.
Scolari verStUr
Luis felipe Scolari knattspyrnustjóri
Chelsea þurfti að sæta enn einu
tapinu gegn einum af stóru liðunum í
ensku úrvalsdeildinni um helgina
þegar liðið lá fyrir Liverpoool, 2-0, á
anfield. Scolari á ennþá einn leik eftir,
gegn arsenal á útivelli, en samt mun
hann vera með slakasta árangur
síðustu þriggja knattspyrnustjóra
Chelsea gegn stóru liðunum,
Manchester united, arsenal og
Liverpool. Síðasta tímabil Mourinho
með Chelsea liðið var hans slakasta
gegn stóru liðunum en samt er það
skömminni skárra en hjá Scolari.
2008/2009 - Luis Scolari
Chelsea 0 - 1 Liverpool
Liverpool 0 - 2 Chelsea
Chelsea 1 - 1 Man. united
Man. united 3 - 0 Chelsea
Chelsea 1 - 2 arsenal
1 stig af 15, getur mest náð 4 stigum.
2007/2008 - Avram Grant
Liverpool 1 - 1 Chelsea
Chelsea 0 - 0 Liverpool
Man. united 2 - 0 Chelsea
Chelsea 2 - 1 Man. united
arsenal 1 - 0 Chelsea
Chelsea 2 - 1 arsenal
8 stig af 18
2006/2007 - Jose Mourinho
Chelsea 1 - 0 Liverpool
Liverpool 2 - 0 Chelsea
Man. united 1 - 1 Chelsea
Chelsea 0 - 0 Man. united
Chelsea 1 - 1 arsenal
arsenal 1 - 1 Chelsea
7 stig af 18
uMSjÓN: TÓMaS ÞÓr ÞÓrðarSON, tomas@dv.is / SveiNN Waage, swaage@dv.is
Stóri-Ben og Kurt Warner
Leikstjórnendurnir auðmjúkir eftir leik.
Mynd AFP
KEANE KOMINN HEIM
Hvort heimskreppan hafi spilað
svona stórt hlutverk er ekki fyrir
fullt vitað en ljóst er að lokadagur
janúargluggans var með þeim tíð-
indaminni á Englandi í gær. Robbie
Keane fór aftur með skottið á milli
lappana til Tottenham frá Liverpool
á tólf milljónir punda. Þar högnuð-
ust Tottenham-menn um átta millj-
ónir punda en þeir seldu Írann til
Liverpool á 20,3 milljónir punda
síðastliðið sumar.
Andrei Arshavin stal hins vegar
senunni í gær með „hann er kom-
inn – hann er ekki kominn” fé-
lagaskiptasögu sinni til Arsenal en
rússíbanareið hans minnti helst á
Ronaldo-málið á milli United og
Real í Sumar.
Búist er við að samningar klárist í
dag en Arsenal og Zenit þurfa þá að
sýna fram á að liðin hafi átt í viðræð-
um áður en félagaskiptaglugganum
lokaði í gær. Það ætti ekki að vera
mikið vandamál og eflaust haugur
pappíra til um málið.
Ekki rétt ákvörðun
„Það var erfið ákvörðun að yfirgefa
Tottenham síðastliðið sumar,” sagði
Keane við heimasíðu Tottenham þeg-
ar félagaskiptin voru klár. „Það sann-
aðist að þetta var ekki rétt ákvörðun
hjá mér. Ég veit að sumir stuðnings-
menn Tottenham finnst eins og ég
hafi brugðist þeim en ég get fullviss-
að þá um að ég mun leggja mig allan
fram,” bætti Keane við.
Knattspyrnustjórinn, Harry Red-
knapp, var einnig sáttur með að fá
Írann til baka. „Robbie Keane er frá-
bær leikmaður og á eftir að skipta
sköpum fyrir okkur. Hann er ekki
bara góður á vellinum heldur smitast
ákveðni hans og barátta í búnings-
klefanum,” sagði Redknapp í gær.
Quaresma á kantinum
Roman Abromovich var búinn að
segja Luiz Scolari, stjóra Chelsea, að
hann fengi ekki peninga til kaupa
í janúar. Hann stóð við þau orð en
gaf leyfi fyrir lánssamningi á væng-
manninum Ricardo Quaresma frá
Inter. Eitthvað sem Chelsea þurfti
sárlega svo Florent Malouda gæti eytt
meiri tíma þar sem hann á heima. Á
bekknum.
Scolari þekkir vel til Quaresma
frá dögum hans sem landsliðsþjálf-
ari Portúgals en þessi skemmtilegi
vængmaður hefur verið orðaður við
stórleik á hverju sumri síðustu árin.
Samingurinn við Chelsea gildir þó
aðeins út tímabilið.
Rólegt á eirinni
Lokadagur félagskipta í gær fer
seint í sögubækurnar sem einn á
magnaðist hingað til. Everton nældi
sér þó í brasilíska framherjann Jo á
láni út tímabilið en þetta 18 millj-
óna punda flopp hefur ekki skorað
fyrir Manchester City síðan í sept-
ember. Fulham nældi sér í Frakk-
ann Oliver Dacourt á láni frá Int-
er og Julian Gray frá Coventry. Þá
losnaði Charles N’Zogbia loks und-
an óvini sínum, Joe Kinnear, stjóra
Newcastle, en hann fór til Wig-
an. „Ég var mjög óhamingjusamur
undir stjórn Kinnear,” sagði Frakk-
inn um stjórann sem kallaði hann
Charles Insomnia í sjónvarpsviðtali
fyrir rúmri viku.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Félagaskipti í úrvals-
deildinni í gær:
Jo til Everton frá City á láni
Oliver dacourt til fulham frá inter
á láni
Julian Gray til fulham frá Coventry
Ryan Taylor frá Wigan til
Newcastle
Charles n’Zogbia til Wigan frá
Newcastle
Angelos Basinas til Portsmouth
frá aeK
Henri Camara til Stoke frá Wigan á
láni
youssouf Mulumbu til Wba frá
PSg á láni
Robbie Keane til Tottenham frá
Liverpool
Ricardo Quaresma til Chelsea frá
inter á láni
Carlos Menseguez til Wba frá San
Lorenzo á láni
Calum davenport til Sunderland
frá West Ham á láni
Síðasti dagur félagaskipta var ansi rólegur hjá úrvalsdeildarliðunum á Englandi. Tvær
sögur yfirgnæfðu allar aðrar eins og búist var við, Robbie Keane og Andrei Arshavin.
Chelsea spilaði þó út einu trompi og tryggði sér þjónustu Ricardos Quaresma.
Með skottið á milli
lappana robbie Keane er
kominn aftur til Tottenham.