Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Page 2
Þeir sem slá inn vefslóðina facebook.is hafa hingað til fengið upp vefsíður spilavíta á borð við Betsson og Unibet. Norðmaður hefur haft yfir léninu að ráða en hann lokaði tenging- unni þegar blaðamaður benti honum á hversu auðveldlega börn og aðrir Facebook-notendur geta villst inn á síðuna. föstudagur 13. mars 20092 Fréttir hitt málið Þetta helst - þessar fréttir bar hæst í vikunni kúlulán og hálfsannleikur Einkahlutafélag í eigu þáverandi forstjóra fjárfestingabankans Askar Capital, Tryggva Þórs Herbertsson- ar, fékk 150 milljóna króna kúlulán frá bankanum til að kaupa hluta- bréf í bankanum sjálfum árið 2007. Tryggvi Þór seldi síðan einkahlutafélagið til Askar þegar hann hætti hjá bankanum í fyrrasumar og skildi skuldirnar af lánunum eftir inni í félaginu. Eftir að DV hafði samband við Tryggva Þór vegna málsins skrifaði hann bloggfærslu um kúlulánið. Einnig skoraði Tryggvi Þór á aðra frambjóðendur að greina frá fjárhagslegum tengslum sínum og virt- ist mörgum sem hann hefði þarna átt frumkvæði að því að greina frá eigin fjárhag. Þegar frétt DV birtist skrifaði Tryggvi Þór nýja færslu um að fyrra blogg hefði orðið að fréttamat. Hins vegar má efast um að fyrri færslan hefði verið skrifuð ef blaðamaður hefði ekki fyrst haft samband. lúxusbílar seldir án útboðs Bílasalan Úranus keypti nítján lúxusbifreiðir af Kaupþingi í janú- ar og fór salan fram fyrir luktum dyrum og án útboðs. Tíu dögum eftir að Úranus fékk bifreiðirn- ar hjá Kaupþingi keypti bílasalan Range Rover af Ingunni Svölu Leifsdótt- ur, en hún starfar í skilanefnd Kaupþings. Range Rover er versta endursölubifreið á landinu í dag að mati bílasala og stendur bifreiðin óseld hjá bílasölunni. DV rakti söluferli lúxusbíla Kaupþings og komst að því að aðeins tveir höfðu verið seldir til út- landa, en ekki flestir, eins og forsvarsmaður bílasölunnar fullyrti. Blaðamaður DV bað bílasalann um að rekja kaupferlið þegar hann keypti bílinn af Ingunni. Svarið var: „Nei, ég vil ekki gera það. Það er óþarfi að gera það og þess vegna geri ég það ekki.“ 2 1 F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ðþriðjudagur 10. mars 2009 dagblaðið vísir 42. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 „VONum að Við FÁum sVÖr“ TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON VILL FARA Á ÞING: SLAPP VIÐ AÐ BORGA 70 MILLJÓNIR „sVONa dÍLar KEYrðu BaNKaKErFið Í KaF“ FOrstjóriNN tóK LÁN hjÁ asKar capitaL tiL að Kaupa Í asKar capitaL Og BOrgaði ENga VExti KÚLuLÁN trYggVa „FÖLsuN“ Á EigiN FÉ asKar capitaL jÁtaði Á BLOggi EFtir FYrirspurN dV „Var FuLLKOmLEga EðLiLEgt Á sÍNumtÍma“ tEKur Við KVÖrtuNum Í BóNus „Fæ það BEiNt Í æð“ samFYLKiNgiN Lýsir EFtir FOrmaNNi „haNN ELsKaði dóttur sÍNa Á siNN hÁtt“ LÖgFræðiNgur tiL VarNar jOsEF FritzL „hVað NÚ?“ FóLK ErLENtFrÉttir FrÉttir Fær EKKi stYrK tiL að Læra tóNList FrÉttir BÍLar hirtir aF FóLKi Og sELdir Á sLiKK risaLÁN EN ENgiNN BÍLL NEYtENdur Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is Fjarstýrðir rafmagns- og bensínbílar í úrvali Fermingarmyndir Svipmyndir Hverfisgötu 50 sími 552 2690 www.svipmyndir.is „Ég hef engan áhuga á því að selja Ís- lendingum aðgang að fjárhættuspili. Ég mun á þessu ári losa mig við þetta lén, facebook.is. Ég mun loka þessari tengingu,“ segir Norðmaðurinn Pål Andreas Alnes. Hann hefur yfir lén- inu facebook.is að ráða en fram til þessa hefur sá sem slær inn slóðina ýmist endað á síðu á vegum Unibet eða Betsson en bæði fyrirtæki standa fyrir fjárhættuspilum. Stíla á innsláttarvillur Á annað hundrað þúsund Íslendinga nota samskiptavefinn facebook.com sér til dægrastyttingar og skemmtun- ar. Þar sem íslenskar síður hafa alla jafna endinguna .is má leiða líkur að því að fjölmargir, bæði ungir og gaml- ir, hafi fyrir slysni ratað inn á heima- síðu hvar fjárhættuspil er stundað. Guðberg K. Jónsson, verkefna- stjóri hjá Samfélagi, fjölskyldu og tækni, SAFT, segir að þessi aðferð sé þekkt hjá netsvindlurum en þess ber að geta að SAFT er verkefni á vegum Heimilis og skóla og er vakningar- átak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Guðberg seg- ir að slíkir aðilar kaupi sér oft svipuð vefföng og lén og löglegir starfsaðilar noti, vegna þess að þeir viti að ein- hver hluti fólks slái inn rangt veffang. „Sama máli gildir um svokallaðan „spampóst“ en þegar slíkur fjölpóst- ur er sendur láta þessir aðilar oft líta út fyrir að um póst frá viðurkenndum aðilum sé að ræða,“ segir Guðberg. Ekki allt sem sýnist Guðberg hvetur fólk til að taka ekki öllu trúanlega sem það finnur á net- inu. Ekki sé allt sem sýnist. „Þekkt dæmi um það snýr að Martin Luther King. Ef þú gúgglar nafnið finnurðu vandaða síðu sem heitir martinluth- erking.org. Þegar fólk rýnir í það sem þar stendur kemst það fljótlega að því að þarna er hann ekki sagður sá mannréttindafrömuður sem saga seg- ir heldur hafi hann verið fyllibytta og kvensamur. Þetta er sem sagt hægri- vængur Ku Kux Klan,“ útskýrir Guð- berg en Ku Kux Klan eru samtök hvítra kynþáttahatara í Bandaríkjunum. Guðberg segir að foreldrar eigi að taka fræðslu um internetið inn í upp- eldisaðferðir sínar, samhliða umferð- arfræðslu og sundkennslu. Mjög auð- velt sé með fikti að fara inn á mjög grófar klám- og ofbeldissíður. SAFT er hluti af aðgerðaáætlun Evrópu- sambandsins um öruggari netnotkun en hér á Íslandi sem víðar voru þann 12. febrúar sýndar auglýsingar um rafrænt einelti. „Á Írlandi varð gerð Youtube-mæling sem leiddi í ljós að auglýsingin var vinsælasta mynd- bandið á vefnum. Í 2. sæti var mynd- band sem sýndi þegar manneskja var tekin af lífi,“ segir hann. Facebook.is lokað Pål Andreas segist aðspurður eiga um 20 önnur lén en um áhugamanna- starfsemi sé að ræða. „Ég er tiltölulega nýr í þessu og er að fikra mig áfram. Markmið mitt með facebook.is var að selja borga-fyrir-áhorf [e. pay per view] auglýsingar. Ég get tekið undir að fólk geti ruglast vegna þess hversu lénið er líkt facebook.com. Því hef ég lokað tengingunni,“ segir hann. Tæplega helmingur Íslendinga 13 ára og eldri notar Facebook. Af þeim tölum má ráða að nokkur hluti þeirra sé börn. Spurður um öryggi barna inni á Facebook og öðrum sambæri- legum síðum segir Guðberg SAFT fylgjast ágætlega með slíkum vef- svæðum. „Við erum til dæmis að setja upp ákveðnar siðareglur í samstarfi við margar félagsnetsíður á borð við Facebook og Myspace,“ segir Guð- berg en einnig er unnið að því að gera tilkynningakerfi um óviðeigandi efni skilvirkara. „Notandanum er þó allt- af frjálst að setja inn það myndefni sem hann kýs,“ segir hann og leggur áherslu á að foreldrar fylgist með því sem börnin aðhafast á netinu. Lokkaðir í spiLavíti Unibet Þessa síðu hafa þeir fengið upp sem óvart slógu inn facebook.is. síðunni hefur verið lokað. Facebook.com um helmingur Íslendinga eldri en 13 ára nota facebook. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is DULARFULL BÍLASALA KAUPÞINGS dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð MIÐVIKUDAGUR 11. MARs 2009 dagblaðið vísir 43. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 DAVÍÐ AFGREIDDUR Í DAG dv rekur slóð lúxusbíla kaupþings: FRéttIR FólK „HElVÍtI á jöRÐU“ Í tÍbEt stYRKtUR AF HUlDUMAnnI EÐVAlD FæR AÐ læRA tónlIst FRéttIR DEtoxAR FYRIR útsEnDInGU AnIston Í AlsælU sVIÐsljós lúxUsbÍlARnIRVoRU EKKI sElDIR úR lAnDI MEÐlIMUR sKIlAnEFnDAR sElDI söMU bÍlAsölU IllsEljAnlEGAn RAnGE RoVER REIÐIlEstUR DAlAI lAMA ERlEnt FRéttIR áRnI páll Í MIlljónA AUKAVInnU þInGMAÐURVAnn Í sUMARFRÍInU FRAMbjóÐEnDUR UnnU AÐ útbREIÐslU IcEsAVE x-IcEsAVE „bEstI tÍMI lÍFs MÍns“ lAnGVERst áVöxtUn Í lAnDsbAnKAnUM lÍFEYRIssjóÐUR lAnDsbAnKAns FjáRFEstI Í pEnInGAMARKAÐssjóÐI EIGIn bAnKA oG stóRtApAÐI KAUpþInG oG ÍslAnDsbAnKI KoMU MUn bEtUR út ásDÍs AÐ „DREpAst úR HUnGRI“ FRéttIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.