Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Síða 4
föstudagur 13. mars 20094 Fréttir
Sandkorn
n Misjafnt er hve miklu fram-
bjóðendur eyða í auglýsing-
ar vegna prófkjöra sinna. Þeir
menn eru
þó til sem
ekki eyða
krónu í
slíkt en
gera út á
bloggið.
Þannig er
með Pétur
Tyrfings-
son sálfræðing sem býður
sig fram fyrir Samfylkinguna
í Reykjavík. Hann hefur gert
út á blogg sitt þar sem finna
má frasa á borð við „Kjaftfora
götustráka á þing“ og „Við get-
um treyst Pétri – hann reykir
pípu!“ Þá má nefna eftirfar-
andi frasa sem er auðvitað
snilld: „Kjósum mann sem
hefur reynslu og hreina snilli í
að leggja gangstéttir.“
n Ekkert bólar á bankastjóra-
skiptum í Íslandsbanka þar
sem Birna Einarsdóttir banka-
stjóri situr
sem fastast
þrátt fyrir
kúlulán sitt
sem hún
slapp við
að borga.
Ákveðið
hafði verið
að auglýsa
eftir bankastjóra en ekkert
bólar á efndum þar. Einn af
nánustu samstarfsmönnum
Birnu í bankanum er Einar
Sigurðsson sem starfar á fyr-
irtækjasviði. Einar er sonur
Guðbjargar Matthíasdótt-
ur, athafnakonu og ekkju í
Vestmannaeyjum, sem er ein
þeirra sem eiga að fá Mogg-
ann á slikk.
n Guðbjörg Matthíasdótt-
ir var svo stálheppin að selja
hlut sinn í
Glitni fyrir
milljarða,
örskömmu
fyrir fall.
Höfuðvígi
hennar
er Ísfélag
Vestmanna-
eyja sem
hún stjórnar af festu og öryggi
ásamt athafnamanninum
Gunnlaugi Sævari Gunn-
laugssyni. En það verður ekki
allt að gulli í garði ekkjunn-
ar því félag hennar tapaði
hundruðum milljóna króna á
afleiðusamningum sem raktir
eru til Glitnis. Gjörningurinn
kostaði Ægi Pál Friðbertsson
framkvæmdastjóra starfið en
Gunnlaugur Sævar og Guð-
björg spörkuðu honum með
látum á dögunum og kunnu
honum litlar þakkir fyrir fjár-
festingabröltið.
Garðlíf
Tökum að okkur garðslátt,
trjáklippingar, beðahreinsun,
trjáfellingar, þökulagnir
og allt annað sem
viðkemur garðinum.
Komum á staðinn og gerum
verðtilboð þér að
kostnaðarlausu!
Láttu okkur sjá
um garðinn!
S: 691 9151
„Ég veit ekkert hvernig framhald-
ið verður. Sumir með mér á hælinu
eru búnir að bíða í þrjú til fjögur ár
þannig að ég er hræddur um að það
gerist líka í mínu tilviki. Ég er mjög
dapur yfir þessu ástandi og þetta er
auðvitað erfitt,“ segir Elyas Sultani.
Elyas er 27 ára og kemur frá Af-
ganistan. Hann kom til Íslands fyrir
ári síðan til að leita sér hælis. Í heilt
ár hefur hann þurft að bíða á flótta-
mannahælinu Fit hostel í Njarðvík
eftir svari yfirvalda um hvort hann
fái að búa á Íslandi og hefja nýtt líf.
Nú hefur hann sent þingmönnum
einlæga bón í bréfi þar sem hann
biður þá að leyfa sér að setjast hér að
og vonar hann að bréfið verði til þess
að yfirvöld leysi vanda hans.
Erfitt að vera einn
„Á Fit hostel eru um það bil 24 flótta-
menn ásamt mér. Ég veit ekkert hvað
mun gerast í mínu máli og það er
ekki skemmtileg tilhugsun,“ seg-
ir Elyas en Fit hostel er farfugla- og
gistiheimili auk þess sem það hýsir
flóttamenn.
Elyas segir lífið fjarri fjölskyld-
unni taka verulega á en hann veit
ekki nákvæmlega hvar fjölskylda
hans er niðurkomin.
„Auðvitað sakna ég fjölskyldu
minnar. Í okkar menningu elst mað-
ur upp með fjölskyldunni og allir
hugsa um alla. Það er mjög erfitt að
vera einn. Ég veit reyndar ekki hvar
fjölskyldan mín er. Þau fóru til Pak-
istan og síðast þegar ég vissi voru
þau í Íran.“
Dreymir um að vera ljóðskáld
Elyas vill ekkert fremur en að búa
á Íslandi og vonast hann til að geta
unnið við fjölmiðlun eða skriftir af
einhverju tagi.
„Mig langar að reyna að búa
mér til líf hér. Ég er ekki með neina
menntun og kláraði bara tíunda
bekk í Afganistan. Ég lærði af föður
mínum og fjölskyldu að skrifa ljóð.
Ef ég fæ að vera hér þá langar mig að
læra íslensku og vinna við að skrifa
ljóð. Einnig langar mig að vinna sem
blaðamaður, í útvarpi eða eitthvað í
þá áttina.“
Fuglinn vantar hreiður
Bréfið sem Elyas skrifaði þingmönn-
um er á ensku og ber titilinn „Bón
til allra þingmanna að gefa flótta-
mönnum tækifæri“. Bréfið er ein-
staklega ljóðrænt og í því líkir Elyas
sér við fugl sem vantar hreiður.
„Fugl án hreiðurs er týndur fugl.
Leitandi að besta staðnum þar sem
hann mun ekki mæta illu eða veik-
indum heldur lífi fullu af gleði, fullu
af ást. Fuglinn flýgur yfir fjöllin, yfir
eyðimerkurnar og höfin og hingað
kemur hann.
En í staðinn fyrir að finna hreiðr-
ið er tunga hans bundin, frelsi hans
takmarkað og rödd hans þögguð
niður. Svarti hrafninn með óttalausu
augun umkringir hann og hindrar
hann í því að syngja, tala, hreyfa sig.
Svarti hrafninn ræðst á hann með
hvassri tungu.
Fuglinn er fullur eldmóðs og það
særir hann að ykkur sé sama, að þið
munið aldrei geta ímyndað ykkur
sársaukann. Haf af köldu vatni er
ekki nóg, heill jökull er ekki
nóg.
Þegar fuglinn er hindraður í því
að finna hreiðrið lærir hann að hann
getur alveg eins hulið líkama sinn
með svörtu og verið eins og hrafninn.
Sama hvað gengur á þá verður hann
að vera eins og þeir. Hann verður að
láta af hendi sálu sína, huga, hjarta –
og fara inn í frumskóginn,“ segir Ely-
as í bréfinu og endar það á að biðja
þingmenn um að leyfa sér að setjast
að á Íslandi.
„Ég vildi að ég mætti vera í hreiðr-
inu sem ég hef fundið. Ég flaug lang-
an veg, ég beið í langan tíma. Getið
þið hjálpað mér að finna hreiðrið?“
Flóttamaðurinn Elyas Sultani hefur dvalið á flóttamannahælinu Fit hostel í Njarðvík
í ár og bíður eftir niðurstöðu yfirvalda um hvort hann fái að dvelja á Íslandi eður ei.
Hann hefur sent þingmönnum bréf þar sem hann líkir sér við fugl og biður þá um að
leyfa sér að setjast að í hreiðrinu sem hann hefur fundið á Íslandi. Elyas segir dvölina
á Íslandi taka á en vonast til að fá að gera sér heimili hér, læra íslensku og skrifa ljóð.
ljóðrænt neyðar-
kall flóttamanns
lilja Katrín gunnarSDóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„Ég vildi að ég mætti
vera í hreiðrinu sem
ég hef fundið. Ég flaug
langan veg, ég beið í
langan tíma. Getið þið
hjálpað mér að finna
hreiðrið?“
Erfitt líf á íslandi
Elyas saknar fjölskyldu
sinnar og er mjög
dapur yfir því að þurfa
að bíða á flóttamanna-
hæli eftir svari frá
yfirvöldum.
Fjöldi flóttamanna bíður
Á fit hostel eru um 24
flóttamenn sem bíða eftir
svari að sögn Elyasar.