Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Page 6
föstudagur 13. mars 20096 Fréttir Sandkorn n Málið um hraða afgreiðslu Icesave-málsins í breska lög- sögu í byrjun október verður einkennilegra með hverj- um degi. Ráðgjafi Geirs H. Haarde, þáverandi forsætis- ráðherra, sagði hon- um frá þessu 6. október, æðstráð- endur í Seðlabank- anum og FME vissu um þetta sem og vitanlega Landsbankamenn. Þá gengst breska fjármálaeftirlitið við því að málið hafi verið rætt. Þungt var í Geir þegar hann lagði út af málinu á þingi í gær: „Hvað menn segja í ör- væntingu um miðja nótt við aðstæður sem þessar er eitt... og koma síðan hér og bera á forsætisráðherrann að hann hafi sagt rangt frá, það er óboðlegt og ég sætti mig ekki við það.“ n Flest virðist nú ganga á aft- urfótunum hjá Frjálslynda flokknum. Magnús Þór Haf- steinsson, varaformaður og áhugamað- ur um út- lendinga, féll af Al- þingi síðast. Hann ætlaði að koma sterkur til baka með því að bjóð- ast til að sitja í öðru sæti lista flokksins í Norðvesturkjör- dæmi. Sjálfsagt reiknaði hann með því að geta flotið inn eins og Kristinn H. Gunnarsson sem komst á þing fyrir styrk Guðjóns A. Kristjánssonar, oddvita flokksins. En Frjáls- lyndir vildu lítið með Magnús Þór hafa og hann lenti í 4. sæti sem er vonlaus staða. n Ósigur Magnúsar Þórs Haf- steinssonar á sér rætur í því að hann tók slaginn við sinn gamla banda- mann, Sig- urjón Þórð- arson, sem hreppti annað sæti á lista frjálslyndra í Norðvest- urkjördæmi. Sigur Sigurjóns markar líklega endalok stjórn- málaferils Magnúsar Þórs sem á sér varla viðreisnar von eftir útreiðina. Ólíklegt er að hon- um takist að verja varafor- mannsembætti sitt á komandi landsfundi. STRAUM BLIK Raflagnir, dyrasími, töfluskipti. Bjóðum upp á ástandsskoðun á raflögnum í eldra húsnæði með tillögum um úrbætur án skuldbindinga. Löggiltur rafverktaki S.: 663 0746 fridhelgi@internet.is „Hún er mjög skapstór. Hún er frek og yfirgangssöm,“ sagði Jens R. Kane, fyrrverandi flugstjóri hjá Icelandair, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þar sem ákæra á hendur honum var tekin fyrir. Jens er gefið að sök að hafa ráðist á fyrrverandi unnustu sína, Veronicu Virginiu Sarcos Rin- con frá Venesúela, og veitt henni al- varlega áverka. Jens neitar sök og fer ófögrum sögum um skapgerð Veron- icu. Hann segir hana hafa kært sig í þeirri von að fá landvistarleyfi. Héraðsdómur dæmdi Jens í átta mánaða fangelsi í desember 2007 fyrir líkamsárás á hendur Veronicu. Hæstiréttur ómerkti hins vegar dóm- inn og vísað honum aftur í hérað. Meint árás átti sér stað á heimili Jens aðfaranótt 23. janúar 2007 að heimili hans í Mosfellsbæ. Veronica þurfti að lýsa meintri líkamsárás fyrir dómi í annað sinn og virtist það reyna mjög á hana. „Hann var að reyna að kyrkja mig,“ hafði dómstúlkur eftir Veronicu sem tal- aði spænsku í dómsal. Hún grét þeg- ar hún lýsti atburðunum og skömmu síðar þurfti að gera hlé á yfirheyrsl- um þar sem Veronica gat ekki hald- ið áfram vitnisburði. Þá var hún að skoða myndir af áverkum sínum og lýsa því hvernig þeir komu til. Blaðamaður DV náði tali af Jens í hléinu. Þar vildi hann lítið tjá sig um málið en þegar talið barst að gráti Veronicu sagði hann: „Það er erfitt að ljúga.“ Nýr vitnisburður Veronica gaf munnlega skýrslu á spænsku við fyrstu aðalmeðferð málsins og var túlkur fenginn til starfa. Hann hafði hins vegar ekki hlotið löggildingu til að gegna því starfi. Taldi Hæstiréttur ekki loku fyr- ir það skotið að þau atriði sem þar komu fram gætu haft áhrif á sönnun- argildi framburðar Veronicu. Því vís- aði Hæstiréttur málinu aftur í hérað. Annað sem talið er geta haft áhrif á sönnunargildi framburðar henn- ar er að eftir uppkvaðningu héraðs- dómsins kom fram vitni sem greindi frá atriðum varðandi málið sem ekki höfðu komið fram áður. Hæstiréttur ákvað því að vísa málinu aftur í hér- að. Eftir því sem blaðamaður kemst næst er þar um að ræða eina þeirra nágrannakvenna Jens sem áður báru vitni. Jens segir að málaferlin hafi eyði- lagt líf hans og að nám hans, sem snýr að flugstjórn, sé fyrir bí. „Það er gjörsamlega búið að rústa öllu mínu lífi,“ segir Jens sem í dag er atvinnu- laus. Líkt og áður neitar hann stað- fastlega að hafa ráðist á Veronicu á þann hátt sem greinir í ákæru. Jens segist telja að hún hafi meðal annars hafa gengið viljandi á dyrastaf til að veita sjálfri sér áverka. „Bara venjulegt sakamál“ Tvær nágrannakonur Jens sem komu fyrir dóminn störfuðu einnig með honum þegar hann var flugmaður. Önnur þeirra bar að Veronica hefði leitað til sín í nóvember fyrir ákærða árás. Þá hefði Veronica verið illa leik- in og sagt að Jens hefði ráðist á sig. Einn þeirra þriggja dómara sem sátu í héraðsdómi gagnrýndi sækjanda mikið fyrir að kalla fyrir dóminn vitni sem ekki tengdist meintri árás í jan- úar. Saksóknari sagðist með þessum vitnaleiðslum vilja sýna hvernig sam- band Veronicu og Jens hefði þróast og benti á að mál sem snerta heimilisof- beldi séu gjarnan erfið. „Þetta er nú bara venjulegt sakamál,“ sagði dóm- arinn þá. Vitnið tók einnig til máls án þess að spurningu væri beint til þess og sagði þennan vitnisburð hljóta að styrkja stöðu Veronicu. Veronica var ástfangin Önnur nágrannakona Jens hafði annars konar sögu að segja af samskiptum sínum við Veronicu: „Hún sagði mér beinum orðum að hún hefði ætlað að giftast hon- um til að fá landvistarleyfi.“ Enn- fremur sagði þessi nágrannakona að Veronica hefði ítrekað reynt að fá hana með sér á vinnustað Jens, Icelandair, til að bera út um hann róg í þeim tilgangi að hann missti vinnuna. Hún sagði sömuleiðis að Veronica hefði greint sér frá því að hún ætlaði að hefna sín á Jens, og að Veronica hefði valdið sér svo miklu ónæði að hún hefði íhug- að að skipta um símanúmer. „Hún vildi koma honum úr starfi,“ sagði konan. Fyrri nágrannakonan sem hér var greint frá sagðist hins veg- ar aldrei hafa heyrt Veronicu tala um að hefna sín á Jens né heldur hafi hún reynt að fá hana á vinnu- stað Jens til að koma á hann óorði. „Hún var mjög ástfangin og átti erf- itt með að kæra hann,“ sagði hún. Breytir um karakter Lögreglukona sem kom á vettvang eftir meinta árás sagði Veronicu þá hafa verið í miklu uppnámi og halt- rað. „Hún var í mikilli geðshrær- ingu.“ Upp hafi komið sú hugmynd að seinni nágrannakonan hýsti Ver- onicu þá um nóttina en lögreglukon- an sagði nágrannakonuna hafa verið hrædda við Jens og óttast að hann kæmi inn til sín ef Veronica væri þar. „Hún var mjög hrædd,“ sagði lög- reglukonan um nágrannann. Seinni nágrannakonan sagði þetta rangt með farið hjá lögreglu- konunni: „Þetta eru ekki mín orð. Ég hef aldrei verið hrædd við Jens og er það ekki.“ Lögreglukonan vitnaði um að Jens hefði verið áberandi ölvaður þetta kvöld. Veronica sagði drykkju hans hafa verið vandamál. Sjálfur vildi Jens ekki kannast við það. Þegar dómari spurði hvort hann breytti um karakter þegar hann fengi sér í glas sagði hann: „Hver gerir það ekki?“ Hann játti því þó að hafa fari í með- ferð að ósk vinnuveitanda síns eftir að málið kom upp. Rangar merkingar Fyrri nágrannakonan sagði að Ver- onica hefði greint sér frá því að Jens drykki illa. „Hún virtist hrædd við hann þegar hann fékk sér í glas.“ Seinni nágrannakonan sagðist hins vegar hafa hitt Jens þegar hann var undir áhrifum áfengis og hann hefði ekki verið ógnandi. „Hann var eins og stór mjúkur bangsi,“ sagði hún. Þriðja nágrannakonan sagði fyr- ir dómi að gjarnan hefðu verið ólæti í fjölbýlinu sem þau Jens bjuggu í og nágrannar hefðu vitað af mikilli drykkju Jens. Eina ónæðið af henni hefði hins vegar verið hávær tónlist. Fyrir dóminn voru lagðar mynd- ir af áverkum Veronicu sem teknar voru 1. febrúar 2007 í endurkomu hennar á sjúkrahús eftir meinta árás. Áverkarnir voru merktir á lík- ama hennar með miðum sem voru dagsettir sama dag og meint árás átti sér stað, en þá voru áverkarnir einn- ig myndaðir. Hjúkrunarfræðingur sem tók seinni myndirnar sagði að vissulega mætti setja út á að rangar dagsetningar voru á miðunum. Hún staðfesti hins vegar að myndirnar voru teknar síðar og sýndu hvernig ásýnd áverkanna hefði þróast þessa daga. Hjúkrunarfræðingurinn sagði að hluti af starfi sínu fyrir þolend- ur heimilisofbeldis væri að mynda áverkana. Þegar hún hitti Veronicu hefði hún verið mjög dofin. Flugstjórinn Jens R. Kane komst fyrst í fréttirnar árið 2007 þegar Morgunblaðið greindi frá því að hann hefði smyglað unnustu sinni, Veronicu, frá Venesúela með fraktflugi til Íslands. Sama unnusta stefnir honum nú fyrir að reyna að kyrkja hana. Jens segir að lífi sínu hafi verið rústað. Nú hefur hann misst lífsviðurværið og unnustu sína. Gera þurfti hlé á vitnaleiðslu fyrir héraðsdómi í gær þegar Veronica brast í grát. „BÚIÐ AÐ RÚSTA ÖLLU MÍNU LÍFI” ERla HlyNsdóttiR blaðamaður skrifar: erla@dv.is „Hann var eins og stór mjúkur bangsi.“ segist saklaus Jens r. Kane kom fyrir héraðsdóm í annað sinn í gær. Hann var upphaflega sakfelldur fyrir líkamsárás á hendur fyrrverandi unnustu sinni en Hæstiréttur vísaði því aftur í hérað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.